Þjóðviljinn - 15.07.1971, Page 10
§!i
Hið
nýja frystiskip S.I.S.
Hlaup komið
í Skaftá
og
Hverfísfljót
Hlaup er koniið í Skaftá
og hefur brennisteinsþef
slegið fyrir öðru hverju í
dajr, sagði frú Jóna Þor-
steinsdóttir á Kirkjubæj-
arklaustri í viðtali við
Þjóðviljann snemma í gær-
kvöld. Þá hefur vaxið mik-
ið í Hverfisfljóti.
Annars hefur verið regn
og sólskin á víxi hér í dag
og allt að 15 stiga hiti á
C Skaftá þykir all grugg-
ug orðin, en vatnsmagns
gætti lítið framan af degi
í ánni. Sjónvarpsmenn eru
komnir á vettvang og kvik-
mynda ána í þessum ham.
Afhjúpaður minn-
isvarði af Davíð
Stefánssyni
N.k. sunnudag, 18. þ.m. verð-
ur minnisvarði Daviðs Stefáns-
sonar skálds, afhjúpaður í
Fagraskógi. Athöfnin, sem verð-
ur ö'llum opin, hefst klukkan
1,30 e.h. með helgistund, Gísli
Jónsson menntaskó'l akenn ari
flytur erindi um skáldið og einn-
ig verður einsöngur kórsöng-
Ur og upplestur.
Minnisvarðinn stendur á af-
mörkuðu svæði sunnan við í-
búðarhúsið í Fagraskógi.
Ungmennasamband Eyjafjarð-
ar, Samband eyfirzkra kvenna og
Búnaðarsamband E.yj af jiarðar
hafa staðið að byggingu minnis-
varðans.
Skaftafell, nýtt
frystiskip S.I.S.
Fischer vinnur
fjórðu skákina
gegn Larsen
Bobby Fischer hel<iur áfram
sigurgöngu sinni í einvígjum
þeim sem hann þarf að heyja
til að nálgaist heimsmeistaratitil-
inn í skák. Sigraði hann Bent
Larsen í gær í fjórðu skák ein-
vígis þeirra og hefur þá fjóra
vinninga og þarf aðeins IV2 í
viðbót til sigurs. Fischer hefur
þegar sigrað sovézka stórmeist-
arann Tajmanof með 6 vinning-
um gegn engum.
Meðan þessu fer fram gerðu
sovézku stórmeistaramir Kortsn-
oj og Petrosjan enn eitt jafn-
tefli og hafa nú 2 Ví> vinning
hvor.
Fimmtudagur 15. júlí 1971 — 36. árgangur — 156. tölublað
Kínverjar fúsir að
fara á Genfarfund
Lauigardaginn 10. þ.m. var
írystiskip það sem Sambandið
á í smíðum hjá Búsumer Werft
í Þýzkalandi sjósett. Viðstaddir
voru sem fulltrúar Sambandsins
Erlendur Einarsson, forstjóri, og
kona hans, frú Margrét Helga-
dóttir og ennfremur Hjörtur
Hjartar og Óttar Karlsson og
konur þeirra.
Frú Margrét gaf skipinu nafn
og heitir það „Skaftaíell“. Heima-
höfn verður Homafjörður.
Skipið er 1680 brúttólestir og
getur það siglt á allar hafnir
landsins, þar sem frystihús eru.
Svo til allur vélabúnaður er þeg-
ar kominn í skipið og langt
komið með einangrun frystilesta.
Gert er ráð fyrir að „Skaftafell"
verði afhent seinnipart í septem-
ber.
Um leið og Sbaftafell var sett
á flot var kjölur lagður að 2600
lesta flutningaskipinu sem Bús-
umer Werft er að smíða fyrir
Sambandið, en þegar er búið
að smíða vissar einingar þess.
>að skip á að afhendiast í lok
þessa árs.
Harðir hardagar í
norðurhluta Jórdan
Morðin í Norður-
Englandi upplýst
CHESTER, Englandi 14/7 —
ILögreglan hefur nú upplýst
morðin á frönsiku ungmennumim
þremur á Norður-Englandi. Tals-
maður lögregltinnar sagði í dag.
að 25 ára gamall Lundúnabúi
hefði fundizt látinn í bíl og hjá
honum hefði verið bréf þar sem
hann játaði að hafa framið
morðin..
1 bréfinu hróeaði maðurinn
m.a. rififlinum, sem hann hafði
stolið. en það var sá þjófnaður
sem kom lögreglunni á sporið.
Samkvæmt frétt í ensku blaði,
hafði maðurinn svipt sig lífi með
því að leggja slöngu frá púst-
rörinu og inn í bílinn.
Lögreglan telur að þessi maður,
Miehael Bassett að nafni, hafi
verið einn að verki og hefur því
hætt leitinni. Þessi morð eru ein-
hver hin óhugnanlegustu, sem
framin hafa verið í Englandi.
DAMASKUS 14/7 — Harðir
bardagar geysuðu milli stjórnar-
hersins í Jórdaníu og Palestínu-
skænuliða fyrir norðan Amman
í morgun að sögn aðalbækistöðva
skæruliðanna í Damastous. Bar-
dagamir hólfust að sögn skæru-
liðamna eftir að Jórdaníulher
hafði ráðizt á þá með brynvögn-
um og stórskotaliði.
1 tilkynningu sem A1 Fatalh
sendi frá sér í Beirut sagði að
her Husseins konunigs hefði aukið
sókn sína eftir árásirnar, sem
hann gerði á bækistöðvar skæru-
liða að flóttamannbúðir í gær.
I tilkynningu frá Daimaskus
stóð að árásirnar hefðu hafizt
í nótt, þegar jórdanskt stórskota-
lið réðst á bækistöðvar skænj-
liða í Jerashskóginum 40 km
fyrir noðan Amman. Um leið
hefðu jórdanskir brynvaignar
reynt að taka stöðvar skæruliða
Félag flutningsverkamanna
andvígt þátttökunni í EBE
SCARBOROUGH, Norður-Eng-
landi 14/7 — Samband fLutn-
ingsverkamanna, sem er stærsta
verklýðsfélag Englands, sam-
þykkti í dag með miklum meiri-
hluta að berjast gegn þótttöfcu
Englendinga í Efnahagsbanda-
Hannibal hættir
sem forseti ASf
í Somia en orðið Ifrá að hverfa.
í gærkvöld var sagt að her
Jórdaníu hefði ráðizt inin í
flóttamannabú’ðimar „Gaza“ 1
Norður-Jórdaníu eftir að hafa
gert mikla skothríð á þser, og
fjölmargir flóttamenn hefðu fall-
ið, en ekkert hefur verið sagt
um það opinberlega í Jórdaníu.
Þjóðarráð Palestínubúa í Kaíró
hefur sent ákall til þjóð’höfðmgja
Sýrlands, Egyptalands og Saudi-
Arabíu og beðið þá að skerast
í leikinn og sjá um að samþyilíkt-
in sem gerð var ó fundi þjóð-
höfðingja arabaríkjanna í Kairó
í haust verði haldin.
I allan dag geysuðu bardagar
milli skæruliða og jórdansfca
hersins í borginni Jerash.
Framhald á 7. siðu.
HONG KONG 14/7 — Sjú
Enlæ, forsætisráðherra Kína, héf-
ur lýst því yfir að Kínverjar
séu fúsir til að taka þátt í
nýrri Genfarráðstefnu um málefni
Indókína ef þátttaka Asíuríkja
verður meiri en hún var 1954.
Það var formaður ástrafska
verkamannaiflokksins. Whitlaxn,
sem skýrði frá þessu í Hong
Kong í dag, þegar hann kom úr
tveggja vikna heimsóikn til Kína.
Whitlam hitt Sjú Enlæ og full-
trúa kín-verska utanríkisráðuneyt-
isins í ferð sinni. Sagði hann að
Sjú hefði lagt áherzlu á að síð-
asta tiUaga Norður-Víetnama og
þjóðfrelsishersins nyti fulls
stuðnings Kínverja og væri raun-
verulegur grundvöllur til lausn-
ar á vandamálum Víetnams.
Whit.lam taldi að þetta væri
í fyrsta skipti, sem Kínverjar
styddu opinberlega áætlun um
frið í Víetnam.
Sjú Enlæ sagði að Evrópuríkin,
einkum Bretland og Sovétrikin,
heffðu mótað fyrri Genfarráð-
stefnur of mikið, og það hefði
ekki verið nóg að hafa aðeins
•eitt Asíuiland, Indland, í þeirri
þriggja ríkja nefnd, sem kjörin
var f-.il þess að sjá uffl fram-
kvasmd friðarsáttmólans, sem
gerður var á ráðstefnunni.
Yfir þúsund manns
handteknir í Rabat
Morðingjar sendi-
herrans dæmdir
STOKKHÖLMI 14/7 — Réttur
í Stoktohólmi dæmi í dag Júgó-
slavana Miro Baresic og Delko
Brejkovic í ævilangt fangelsi
fyrir morðið á sendiherra Júgó-
slavíu í Svíþjóð, Vladimir Rolo-
vic, 7. apríl síða.stliðinn. Þrír
aðrir Júgóslavar fengu fangelsis-
dóma tfyrir þátttöku í morðdnu,
og verður þeim vísað úr Svíiþjóð,
þegar þeir verða lótnir lausir.
Mennirnir fimm, sem eru allir
félagar í leynifélagi króatiski-a
öfgamanna, byrjuðu að undirbúa
árásina á sendiráð Júgóslavíu
í Stokkhólmi í lok fébrúar, og
var ætlunin að handtaka sendi-
herrann til að neyða yfirvöld
Júgóslawiu til að lóta lausa
Króata, sem sitja í fangelsd.
RABAT 14/7 — Meir en þús-
und menn hafa verið handtekn-
ir eftir hina misheppnúðu vald-
ránstilraun í Marokkó á laugar-
d'aginn auk þeirra herforingja
og herskólanema, sem tóku bein-
an þátt í árásinni á konungs-
höHina.
Hasisian annar konungur hefur
skipað nefnd til þess að rann-
saka valdránsUlraunina, og eiga
sæti í henni Úfkír innanríkis-
ráðherra, dómsmálaráðherrann
og vamarmálaráðhernamv Er-
lendir fréttamenn hafia sagt, að
þessi rannsókn kunni að leiða
til nýrra dauðadóma og Hassan
og stjóm hans muni nota þetta
tækifæri tii að losa sig við leið-
toga stjórnarandstöðunnar, en
því hefur verið mótmælt opin-
berlega. Enn er leitað að 500
hermönnum, sem tóku þátt í
uppreisninni.
Úfkír innanríkisráðherra sagði
í dag í viðtali við Iæ Monde að
Ababou forseti, sem var yfir-
maður herforingjaskólans, hefði
stjómað uppreisninni, og Med-
bouh hershöfðingi hefði stutt
hann, en hvorki herinn né stjóm-
arandstaðan í Marokkó hel'ðu
stutt uppreisnarmennina
Ky deilir
hart á Thieu
SAIGON 14/7 — Ky vara-
fonseti leppstjórnarinnar i
Suður-Víetnam hefur nú
gefið út harorða yffirlýsingu
þar sem hann sakar Thieu
forseta landsins um ein-
ræði, spillingu og svik. 1
ytfirlýsingunni segir Ky að
þjóðfélag Víetnams sé gegn-
sýrt spillingu og Tthieu hafi
ekkert gert til að virma
gegn henni. Stjórn Thieus
hirði ekki u-m almenn
mannréttindi borgara og
beiti ólýðræðislegum að-
ferðum, ef hún bæti ekki
ráð sitt hljóti menn .að á-
lykta Thieu samsekan í
spillingunni.
í bili
Á miðstjómarfundi i Alþýðu-
nambandi íslands í fyrradag var
frá því gengið að Hannibal
Vaildimars'son lætur af störfum
siem forseti ASÍ um sinn en
Bjöm Jónsson sem verið hefur
varaforseti gegnir forsetastörf-
um.
Hannibal tekur nú við emb-
ætti félags- og - samgöngumála-
ráðherra.
lagi Evrópu. f félaginu eru um
þrjár miljónir verkamanna.
Formaður félagsins, Jaek Jon-
es, sag’ðist búast við samskonar
niðurstöðu á fundi verkamanna-
flokksins um þetta mál, en hann
byrjar í London á laugardaginn.
Verkamannaflokkurinn sótti
um inngöngu í Efnahagsbanda-
lagið, meðan Wilson var forsæt-
isráðherra, en nú virðast æ ffleiri
flokksmenn vera andvágir því.
Wilson mun láta álit sitt í ljós
á fundi 28. júlí, en talið er að
hann sé andvígur þátttöfcu Breta
vegna efnahagsástands liandsins
nú, og vegna þess að þau kjör,
sem Bretar hafi samið nm, géu
ekfci fulilnægjandi.
Samkvæmt skoðanakönnu n,
' sem birtist í brezkia blaðinu Fin-
ancial Times í dag eru 67 af
hundraði Englendinga á móti
inngöngu í Efnahagsbandalaigið,
en aðeins 22 af hundraði með.
76 af hiundraði telja að Englsend-
ingar muni ganga í bandalagið.
ARNARHOLT Á
DAGSKRÁ
Amarhóltsmálið er enn
mjög á dagskrá og verður
fj'allað um það á fundi borg-
arstjómarinnar í dag. A'ð
undanfömu hefur verið fjall-
að um málið í heilbrigðis-
málaráði og í borgarráði var
málið til umræðu á mánu-
daginn. Þar gerðu læknamir
Ámi Bjömsson off Gunnlaug-
ur Snædtai grein fyrir málinu
„til að kanna réttmæti ásak-
ana senn fram baffa verið
bomar um rekstur Vistheim-
ilisdns að Amarholti“.
HVAR VERÐA
BÖRNIN?
Fellaskóli í Breiðholti III
er nú senn tilbúinn til útboðs.
En hrvar eiga böm í Breið-
holti III að vera í skóla í
vetur? Um þetta hefur verið
fja’laS í fræðsluráði og sam-
þykkt að fela fræðslustjóra
oð laysia skólaþörf barna í
Breiðholti III næsta vetur,
sennilega með akstri þeirra í
skóla annars hverfis.
FRAMKVÆMDIR
STÖÐVAÐAR
Á sáðasta fundi byggingar-
nefndar Reykjavíkurborgar
var meðal annars fjallað um
byggingu þá sem grunnur
hefur verið lagður að á homi
Banka»itrætis og Skóiavörðu-
stígs, Ba«kastræti 14. í
fundargerð segir byggingar-
nefnd um þetta mál: „Nefnd-
in hefur efnislega fallizt á
uppdrætti að nýbyggingu, en
ekki hefur verið unnt að sam-
þykkja þá, þar eð ekfci hefur
verið gengið frá samningum
um framlög vegna bifreiða-
stæða, samkv. 25. gr. bygg-
ingarsarnþykklar. Nefndin
telur þó rétt, að framkvæmd-
ir, sem eru með vitund nefnd-
arinnar verði stöðvaðar þar
til málið hefur fengið fcllin-
aðarafgreiðslu".
STARFSVÖLLUR
VIÐ ÁLFHEIMA
Á borgarráðsfundi hefur
verið fjiallað um staðsetnipgu
starMeikvallar við enda húsa
nr. 50 — 54 og 56 — 60 við
Álfheima. Var staðsetningin
samþykkt í borgarráði, skv.
bréfi skipuliagsstjóra.
LESBÓK UM
REYKJAVÍK
Borgarráð mun beila sér
fyrir stuðningi við útgáfu
lesbókar um Reykjavík Kem-
ur þetta fram í fundargerð
borgaiTáðs nýverið, en á
fundii borgarráðs var lagt
fram bréf fórstjóra Ríkisút-
gáffu némsbóka um útgáíu
séi’stakrar lesbófcar.
FOSSVOGSSKÓLI
í HAUST
Áformað er að Fossvogs-
si.óii taki til starfia í haust,
en frá þessu er greint í á-
ætlun um byggingarfram-
kvæmdir við Fossvogsskóla
sem var á dagskrá á fundi
fræðsluráðs nýlega. Á sama
fundi fræðsluráðs var sam-
þykkt að óska eftir því við
fræðslumálastjóra að staða
skólastjóra við Fossvogsskóla
verði auglýst lau-s til umsókn-
ar.
TILRAUNASKÓLI
Á fundi borgarstjórnar í
dag fer fram fyrri umræða
um tilraunaskóla í Reykja-
vík á gagnfræða- og mennta-
skólastigi og fuilorðinna-
fræðslu. Hefur l>etta mál
verið á dagskrá borgarstofn-
ana að undanfömu.
KENNSLUTÆKJA.
MIÐSTÖÐ
Samþykikt hefur verið að
stefna að því að koma upp
vísi að kennsiutækjamiðstöð í
Tjiamangötu 20 á vegum
íræðsluyfi rvalda í- Reykjavík.