Þjóðviljinn - 31.07.1971, Síða 3
Uaugandaigur-31. jtín iSíja —WÓBVTIiJINN — SÍBA 3
Norðurverk hf. smíðar
Lagarfljótsvirkjunina
Framkvæmdir hefjast 15. ágúst — Munur á
hæsta og iægsta tilboði 22 miljónir króna
■ Rafveitustjóri ríkisins, Valgarð Thoroddsen, boðaði
blaðamenn á sinn fund í Vaiaskjálf á Egilsstöðum í fyrra-
dag. Skýrði hann þar frá framkvæmdum við virkjun Lag-
arfoss og ýmsum öðrum áformum Rafmagnsveitna ríkisins.
Fer hér á eftir greinargerð hans um þessi tnál.
Hinn 23. júlí s.l. var undirrit-
aður verksamningur við Norður-
verk h.f. um framkvæmdir við
smíði fyrsta byggingarhluta Lag-
arfossvirkjunar.
Samningurinn gerir ráð fyrir
að verkinu verði lokið fyrir 1.
júlí 1973.
Vélar og annar búnaður hafa
verið botiin út og er skilafrestur
tilboða til 6. okt. n.k.
Reiknað er með að virkjunin
geti tekið til starfa í árslok 1973.
AKRA
á brauð
Þrjú tilboð bárust
Þrjtilboð bárust í fyrsta
byggingarhluta virkjunarinnar
— frá Brúnás á Egilsstöðum og
Istak í Reykjavík 92 miljónir,
frá Vélsmiðjunni Stál, Húsaiðj-
unni og Gunnari og Kjartani Eg-
ilsstöðum 78 miljónir og frá
Norðurverk h.f. Akureyri 70
miljónir.
Áætlun Rafmagnsveitnanna
hljóðaði upp á 74 miljónir.
Lægst var tilboð Norðurverks og
var það lægra en áætlaður kostn-
aður.
Með tilliti til þessa svo og
þe®s að Norðurverk h.f. hafði áð-
ur unnið að Smyrlabjargaár-
virkjun í Suðursveit og leyst þaö
Báran verSur senn
sjófær á nýjan leik
verk af hendi með ágætum var
samþykkt að taka því tilboði.
Stefnumótandi ákvörðun
Endanleg ákvörðun um að
hefjast handa um byggingafram-
kvæmdir var tekin af núverandi
iðnaðarráðherra Magnúsi Kjart-
anssyni og hann tók einnig þá
ákvörðun að laxastigi skyldi
vera innifalinn í byggingarmann-
virkinu.
Þctta síðastnefnda • atriÖi er
mjög þýðingarmikið, því þag er
stefnumótandi um að vatnsafls-
virkianir ríkisins stuðli að sínu
leyti að fiskirækt í þeim vötnum
sem virkjud eru á vegum rík-
isins.
Heildiarkostnaður þessa fyrsta
áfanga er áætlaður 180 miljón-
ir k_-., en vélaafl hans er 5000
KW
Við þennan áfanga verður
ekki gerÖ stífla og vatnsborðs-
hækkun verður ekki af rennsli
án miðlunar.
Annar áfangi er áætlaður
1978, þá verður aflið aukið úr
5 í 6 þúsund KW og kostnaður
við hann er áætlaður 40 miljón-
ir kr. Þriðji áfangi er áætlaður
1982 og verður þá sett upp önn-
ur 6000 KW vél og er áætlaður
kostnaÖur við hann 170 milj-
ón kr.
Verður þá glls virkjað 1200
KW afl í Lagarfossi og heildar-
kostnaður verður 390 miljónir
króna.
Upprunalega hafði verið gert
ráð fyrir að yfirfall stiflna yrði
í 22 metra hæð yfir sjávarmáli,
en síðari vatnsborðsmælingar í
Lagarfljóti sýna að þetta er full-
hátt. Verður þessi fyrirhugaða
yfirfallsstífla lækkuð auk þess
sem í athugun er að rýmka fyr-
ir vatnsrennslið á tveimur *stöð-
um neðan brúar til þess að
laka við flóðum.
Varðandi þessi atriði um
vatnsborðshækkanir við síðari
áfanga standa nú yfir mælingar
meðfram öllum Leginum og verð-
ur tekið fullt tillit til hagsmuna
jarðeigenda, þegar endanlega
verður gengið frá þeim málum.
Ef sú áætlun stenzt að 2 áfangi
þurfi að vera fullbúinn 1978
þarf vatnshæðinn að verða end-
anlega ákvörðuð 1976.
Rafveitustjóri , sagðist samt
vona a’ð þaö yrði fyrr — þar
sem hann vonaðd að • svo mikil
gróska yrði í atvinnulífi á Aust-
fjörðum að þörf verði á aukinni
orku töluvert fyrr en áætlun
Rafveitnanna segir til um.
Undirbúninður hafinn
Þess má geta að þótt loka-
ákvörðun hafi nú verið tekin um
að hei’ja byggingarframkvæmdir
við Lagarfoss, þá hafa Raf-
magnsveitur ríkisins þegar áöur
gert ýmsar undirbúningsfram-
kvæmdir svo sem vegalagningu
að virkjunarstað, lögn háspennu-
linu frá væntanlegri virkjun til
tengingar við aðalspennistöð á
Egilsstöðum, svo og að koma
upp vinnuhúsum fyrir verktaka
á virkjunarstað (fyrir 40
manns) auk skrifstofu. sem til-
búið verður til innflutnings svo
sem samningar gera ráö fyrir
15 ágúst n.k., en þá er gert ráð
fyrir að Norðurverk h.f. hefji
verkil eða komi sér fyrir til að
hefja það.
(Nánar verður skýrt frá fyr-
irætlunum Rafmagnsveitna rík-
isins í öðrum landsihlutum í
blaðinu á næstunni).
Báran, KE 26, sem strandaði
fimm mílum vestan við Ingólfs-
böfða, er nú í slipp hjá Skipa-
viðgerðum hf. í Vestmannaeyj-
um. Báran er frambyggður bátur,
smíðaður eftir teikningu Egils
Þorfinnssonar í Keflavík, en
smíði bátsins fór fram á Fá-
skrúðsfirði.
Björgun hf. aðstoðaði við að ná
bátnum af strandstað, en þó mun
hann hafa notazt við eigið vélar-
afl meðfram. Báran er nýr bát-
ur, afhentur á þassu ári, 25
brúttólestir. Samkvæmt upplýs-
ingum Eggerts Ölafssonar, hjá
Skipaviðgerðum hf. þá var bát-
urinn nokkuð skemmdur. m.a, sá
á íslætti við kjölinn og öldu-
stokkurinn bafcborðsmegin var
brotinn. Sjór haifði komizt í vél-
arrúm og mannabústaði og
skemmdir urðu á rafmaignstækj-
um. Viðgerð á bátnum er lokið
að öðru leyti en því, að beðið
er eftir vélarhlutum frú útlönd-
um.
Gerið góð kaup
Herrajakkar kr. 2700,00. Terylenebuxur herra kr.
900,00. Bláar manchetskyrtur kr. 450.00.
Sokkar tneð þykkum sólum, tilvaldir fyrir sára og
sjúka fætur og einnig fyrir íþróttafólk.
Sendum gegn póstkröfu.
LITLI-SKÓGUR
Snoirabraut 22. — Sími 25644. *
Terylenebuxur
á börn, unglinga og fullorðna.
Gæði • Úrval • Athugið verðið.
O.L.
Laugavegi 71. — Sími 20141.
SOOOsti gesturinn fékk listaverk
Að Laugavegi 53A stendur nú yfir sýning 30 listamanna, eldri sem yngri, í húsnæði Fylkingar-
innar. Aðsókn að sýningunni hefur verlð með afbrigðum góð og hafa mörg verkanna þegar verið
seld. Að morgni liins 11. sýningardags heimsótti fiimnþúsimdasti gesturinn sýninguna. í tilefni þses
var honum afhent listaverk eftir Rósku að gjöf. Sýningin mun enn verða opin um nokkurt skeið.
Plastpokar i öllum stæröum ni actddciuTlí
- áprentaðir í öllum litum. rLASTPKENTh f
Gleyminn
ritstjóri
I útvarpsþætti í gærkvöld
var ritstjóri M or gunbl aðs ins
spurður hver væri afstaða
hans og MorgunblaÖsins til
þeirrar greinar sem Kristján
Albertsson skrifaði í Morgun-
blaðið í fyrra um utanríkis-
mál. Kristján hefur um ára-
tugaskeið verið einn helzti
sérfræðingur Sjálfstæðis-
flokksins í utanríkismálum
og þess vegna vakti grein
hans 25. ágúst 19.70 í morgun-
blaðinu athygli, en þar hélt
hann fram þeirri kenniiTgu
að Bandaríkin ættu ekki að
verða við óskum íslendinga
um að herinn færi úr land-
inu. Þjóðviljinn þráspurÖi
Morgunblaðið og Sjálfstæðis-
flokkinn um afstöðu til þess-
arar greinar í fyrra en fékk
ekkert svar og í þessum pistli
í gær var enn spurt um af-
síöðu Sj álfstæðisflokksins til
Þessara skrifa Kristjáns Al-
bertssonar.
En þegar ritstjóri Morgun-
blaösins var sþurþur um af-
stöðu sína til kenninga Kristj-
áns í útvarpsþætti í gær-
kvöld kom í ljós að hann
þóttist hafa gleymt henni og
svaraði út úr með steigurlæti:
Ábyrgðarmaður Þjóðviljans
læsi MorgunblaÖið greinilega
betur en ritstjóri Morgun-
blaðsins!
Gleymska ritstjóra Morg-
unblaðsins er hins vegar
skiljanleg. Hún stafar af því
að hann hefur slæma sam-
vizku og í ruslahaug hennar
hefur hann grafið þann sora
sem sízt mé sjást; afstaða
sem bannaði Islendingum að
ráða málum sínum sjálfir er
af landráðategundinni.
Það hefur oft gerzt áðtir í
seinni tíma sögu íslenzkri að
menn hafi þótzt gleym.a ’—-
en Þjóðviljinn mun halda
minni þeirra Mórgunbláðs-
manna vakandi.
Fjalar.