Þjóðviljinn - 31.05.1972, Blaðsíða 1
UÚDVUHNN
Miðvikudagur 31. mai 1972 — 30. árgangur —118. tölublað.
Bankakerfið
verður tekið í
endurskoðun
í gær barst Þjóðviljanum
fréttatilkynning frá við-
skiptaráðuneytinu þar sem
frá því er greint að skipuð
hafi verið nefnd til þess að
gera tillögur um æskilegar
breytingará bankakerfinu.
1 stefnuyfirlýsingu rikisstjórn-
arinnar ér þvi lýst yfir, að rikis-
stjórnin einsetji sér: „að endur-
skoða allt bankakerfið þ.á.m. lög-
gjöf varðandi Seðlabankann og
hlutverk hans, og vinna að sam-
einingu banka og fjárfestingar-
sjóða”.
Til framkvæmda á þessu
stefnuatriði hefur viðskiptaráðu-
neytið ákveðið að skipa nefnd,
sem taki þetta verkefni fyrir til
rækilegrar athugunar, svo og
önnur þau atriði varðandi löggjöf
um peningastofnanir eins og lög
um sparisjóði og innlánsdeildir
samvinnufélaga, og geri tillögur
til ráðuneytisins um æskilegar
breytingar varðandi þessi mál.
2000 kollu-
hreiður
Nú stcndur varptimi bæði stað-
fugla og farfugla á islandi sem
hæst. Við brugðum okkur út á
Alftancs, þar sem mun vera eitt
mesta varpland hér sunnan
heiða. Þarna verpir bæði æðar-
fugl i þúsundatali, hettumáfur og
kria, en hún er þó ekki byrjuð að
verpa ennþá, en er þó farin að
huga að hreiðurgerð. Þá verpa
þarna ótal tegundir vað- og mó-
fugla.
Að þvi er okkur var tjáð, munu
nú vera yfir 2000 æðarkolluhreið-
ur á öllu Álftanesinu, en sem
kunnugt er, er æðarfuglinn frið-
aður allt árið.
Landeigendur á Álftanesi, sem
og aðrir varplandseigendur eiga i
Frh. á bls. 15 l
A miðnætti i nótt hefst verk-
fall faglærðra matreiðslu-
manna og fæst þannig ekki af-
greiddur matur á veitingahús-
um og hótelum viða um land.
Þá leggst niður matargerö
hjá báðum flugfélögunum og
ennfrcmur á stórum vinnu-
stööum.
i gær náði Þjóðviljinn tali af
Hallgrimi Jóhannessyni, for-
manni Félags matreiðslu-
manna. Félagið hefur haft
lausa samninga siðan 15. mai
og hafa verið haldnir nokkrir
samningafundir frá þvi i byrj-
un mai. Hefur ekki náðst sam-
komulag við veitinga- og gisti-
húsaeigendur. Við höfum farið
Samstarfsnefndir á
Menningar-
yitinn
Nú er unnið af fullum
krafti að undirbúningi Lista-
hátiðar i Reykjavik. Eitt
þeirra mörgu verka sem
munu setja svip sinn á hátið-
ina — kannski meiri svip þó
en önnur — er „Menningar-
viti” Kjartans Guðjóns-
sonar, sem verður reistur i
Laugardalnum og stendur
þar meðan á hátiðinni stend-
ur — en siðan verður vitinn
brenndur i lok hátiðarinnar.
Uppsetning menningarvit-
ans hófst i gærmorgun og
þessa mynd tók ljósmyndari
Þjóðviljans af Kjartani Guð-
jónssyni þar sem hann veltir
vöngum yfir teikningunni.
dotinni í ó rikisiynr
tækjum og Héðni
Matarlausir
frá miðnætti
Faglærðir matreiðslumenn i verkfall
frá miðnætti i nótt
fram á það, að raunkaup veröi
viðurkennt i samningum, en
að meðaltali eru matreiðslu-
menn um 30% yfirborgaðir við
störf sin. Um miðjan mai
runnu út tveggja ára samn-
ingar matreiðslumanna við
veitingahúsaeigendur sagöi
Hallgrimur.
Faglærðir matreiðslumenn
vinna á hótelum og veitinga-
stöðum hér i Reykjavik, i
Hafnarfirði, Hornafirði, Akur-
eyri, hótelum við Mývatn, Isa-
firði, Borgarnesi og Þingvöll-
um.
Hér i Reykjavik fæst ekki
matur afgreiddur i Aski,
Brauðbæ, Hótel Loftleiðum, á
Hótel Sögu og viðar. Sem
dæmi um undantekningu
verður ekki verkfall mat-
reiðslumanna i veitingahúsinu
á Laugavegi 28. Þar vinna
ekki faglærðir matreiðslu-
menn.
Flugfélag Islands starfrækir
stórt eldhús hér i Reykjavik og
Loftleiðir annað á Keflavikur-
flugvelli. Hjá báðum þessum
flugfélögum leggja mat-
reiðslumenn niður vinnu.
Þá starfa faglærðir mat-
reiðslumenn hjá verktökum á
stórum vinnustöðum. Itætt
hefur verið um undanþágur i
þeim tilfellum eins og til
dæmis upp við Þórisós. Ekki
var búið að ganga frá þeim
undanþágum i gær. g.m.
Unmð að reglugerð í iðnaðarráðuneytinu um vald-
svið samstarfsnefndar í Landsmiðjunni.
í iðnaöarráðuneytinu er
nú unnið að gerð reglugerð-
ar um samstarfsnefnd fyrir
Landssmiðjuna. í Lands-
smiðjunni er gert ráð fyrir
víðtækara starfssviði sam-
starfsnefndar en i öðrum
fyrirtækjum þar sem skip-
an samstarfsnefnda er nú í
athugun og undirbúningi.
Er hér um að ræða tvö
ríkisfyrirtæki auk Lands-
smiðjunnar og svo vél-
smiðjuna Héðin.
Fyrsta samstarfsnefndin var
mynduð i vélsmiðjunni Héðni og
tók þessi samstarfsnefnd til
starfa fyrir nokkrum dögum. Eru
i þessari nefnd þrir starfsmenn i
vélsmiðjunni og þrir fulltrúar til-
nefndir frá fyrirtækinu. Sam-
starfsnefndin hefur það verkefni
að bæta aöbúnað, hollustu, öryggi
og umgengni á vinnustað. Hefur
hún þegar haldið fundi um þetta
verkefni.
Þá hefur þriggja manna nefnd
unnið að stofnun samstarfsnefnd-
ar i Landssmiðjunni. Er senn til-
búin sérstök reglugerð frá
iðnaðarráðuneytinu i sambandi
við starfssvið nefndarinnar, en
þar er gert ráð fyrir viðtækara
starfssviði nefndarinnar en i öðr-
um fyrirtækjum. Undirbúnings-
nefnd að stofnun samstarfsnefnd-
arinnar er skipuð Þórleifi Jóns-
syni i iðnaðarráðuneytinu. Guð-
laugi Hjörleifssyni, forstjóra
Landssmiðjunnar og Guðjóni
Frh. á bls. 15