Þjóðviljinn - 31.05.1972, Blaðsíða 10
10. SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 31. mai 1972-
/*v
staöan
Þá er lokið einni umferð 1.
deildarkeppninnar i knatt-
spyrnu, og þótt ef til vill sé of
snemmt að fara að setja
stöðúna upp, þá skulum við nú
eigi að siður gera það.
Fram
fBK
KR
UBK
1A
Valur
IBV
Vikingur
l-l-O-O-l :0-2
1-1-0-0-3:1-2
1-1-0-0-2:1-2
l-l-0-0-3:2-2
l-0-0-l-l:3-0
l-0-0-l-l:2-0
1-00-2-2:3-0
1-0-0-1-0:1-0
Mörkin
Steinar Jóhannsson IBK 1
Albert Hjálmarsson IBK 1
Matthias Hallgrimsson 1A 1
Óskar Valtýsson tBV 1
Heiðar Breiðfjörð UBK, 1
Ólafur Friðriksson UBK, 1
Simon Kristjánsson Fram, 1
Atii Þór Heðinsson KR, 1
Gunnar Gunnarsson KR, 1
Alexander Jóhannesson Val, 1.
Og eitt sjálfsmark hefur verið
skorað.
Oheppnir
Þeir voru vægast sagt óheppnir Víkingarnir að ná ekki
að minnsta kosti jafntefli gegn Fram í fyrsta leik þessara
liða s.l. mánudagskvöld. Fram vann leikinn 1:0, en
Víkingarnir sóttu mun meira, og það litla sem sást af
knattspyrnu í þessum annars slaka leik, kom frá Víkin-
gum. Ekkert sem þessi lið sýndu í leiknum bendir til þess,
að þau verði i toppbaráttunni í sumar, og hiklaust má
segja að þetta hafi verið slakasti leikurinn af þeim fjór-
um sem fram hafa farið í fyrstu umferðinni.
Það gerðist fátt markvert
fyrstu minútur þessa leiks. Strax
i upphafi varð hann þófkenndur
og hélzt það allan timann, nema
hvaöstöku sinnum að Vikingarnir
náðu upp sæmilegu samspili, en
herzlumuninn vantaði alltaf hjá
þeim þegar inn i vitateiginn kom.
Framarar voru heldur ákveðnari
þessar fyrstu minútur, en náðu þó
ekki að ógna fyrir en á 16. minútu.
Þá var það, að Simon
Kristjánsson, ungur og cfnilegur
lcikmaður Fram, sem þarna lék
sinn fyrsta mfl.-leik i islandsmóti,
fékk holtann innan vitateigs,
utarlega, cftir mikið krafs rétt við
markteiginn og hann sendi bolt-
ann i netið, 1:0. Þetta var laglega
gert hjá Simoni, þvi að hann var i
þriingri aðstöðu.
Smám saman náðu Vikingar
betri tökum á leiknum og sóttu
mjög stift siðustu 20 minútur f.h.
Þessar minútur voru bezti kafli
leiksins hvað knattspyrnu viðvék.
Þrátt fyrir þessa sókn var aldrei
ógnun i leik Vikinganna og mark
Fram komst aldrei i hættu. Hins
vegar átti Kristinn Jörundsson
skot i þverslá af stuttu færi á 32.
minútu, en hann fékk boltann
mjög óvænt i ágætu færi, en fór
svona með það.
Framan af siðari hálfleik var
mikið um þóf og ónákvæmar
sendingar. Ekkert umtalsvert
gerðist fyrr en á 62,minútu, er
Gunnar Gunnarsson fyrirliði
Vikings skallaði rétt yfir þverslá
eftir hornspyrnu. Nokkrum
sinnum eftir þetta skall hurð
nærri hælum við Fram-markið,
en alltaf var hættunni bægt frá,
oftast á siðustu stundu að fótur
kom fyrir skot innan vitateigs.
Fram átti engin umtalsverð
marktækifæri i siðari hálfleikn-
um og það verður að segjast eins
og er, að Fram var heppið að fara
með bæði stigin úr þessari viður-
eign.
Eins og undanfarin ár var vörn
Fram sterkari hluti liðsins með
þá Martein Geirsson og Sigur-
berg Sigsteinsson sem beztu
menn. Þessir tveir stóðu eins og
klettar úr hafi i öftustu vörn
Fram-liðsins. Tengiliðirnir eru
greinilega veikasti hlekkur
Fram-liðsins, en aftur á móti eru
sumir framlinumennirnir
skemmtilegir, svo sem hinn
boltaheppni Kristinn Jörundsson,
sem alltaf er stórhættulegur.
Vikingsliðið getur mun meira
en það sýndi i þessum leik. Það
getur leikið vel saman, ef sá
gállinn er á þvi, og menn eins og
Gunnar Gunnarsson og Guðgeir
Diðrik Ólafsson markvörður Vikings býr sig undir að grlpa boltann.
Páll Björgvinsson til varnar viö stöngina.
Þorbergur Atlason slær frá en þeir Páll Björgvinsson og Ólafur Þorsteinsson sækja að honum. Gunnar
Gunnarsson fyrirliði Víkings fylgist meö viðureigninni.
Leifsson eiga að geta ráðið
miðjunni gegn hvaða liði sem er.
Já, hann Guðgeir Leifsson, sem
sennilega er einn allra bezti
knattspyrnumaður sem við eig-
um i dag, en hann hefur einn
stóran galla og það er þessi
sifelldi einleikur hans. Það er
ekki nóg með að hann fái minna
útúr sinum eiginn leik, heldur
skemmir hann mikið fyrir liðinu
með þessu. Vikings-vörnin með
þá Jóhannes Bárðarson og Jón
Ólafsson sem beztu menn var góð
i þessum leik, ef undan er skilið
það sem henti hana þegar markið
kom. Framlinan var greinilega
veikasti hlekkurinn i Vikings-
liðinu, þvi að það vantar allan
brodd i sóknina hjá þvi; i það
minnsta var það þannig i þessum
leik.
Dómari var Einar Hjartarson
og slapp vel frá leiknum i heild,
þótt mér fyndist hann full-smá-
munasamur til að byrja með.
S.dór
Fundur áhuga-
manna um
frjólsiþróttir
Næstkomandi fimmtudag, 1.
júni, verður efnt til stofnfundar
á félagsskap manna, sem áhuga
hafa á frjálsiþrótta-þjálfun.
Fundur þessi verður haldinn i
kaffistofu Guðmundar Sigtúni 3
og hefst kl. 21.30.
Allir eru velkomnir á fund
þennan sem áhuga hafa á mál-
efninu, jafnt iþróttakennarar
sem aðrir.
Breiðablik og
KR i kvöld
i kvöld kl. 20 hefst á Melavellin-
um leikur Breiðabliks og KR i 1.
deildarkeppni islandsmótsins.
Bæði þessi lið unnu sina leiki um
siðustu helgi, svo áreiöanlega
verður gaman aö fylgjast með
viðureign þeirra i kvöld.
Menn voru að gera þvi skóna
áður en tslandsmótið hófst, að
þessi lið yrðu i fallbaráttunni, en
byrjun þeirra i mótinu bendir
ekki til þess að svo verði.
Frammistaða Breiðabliksiiðs-
ins i Vestmannaeyjum á sunnu-
daginn var, kom öílum á óvart og
það eru ár og dagar siðan úrslit
knattspyrnukappleiks hér á landi
hafa komið jafn mikið á óvart. Nú
verður liðið að leika áfram á
Melavellinum sem sinum heima-
velli i. sumar, og þar sem Breiða-
bliksmenn eru vanari malarvelli
kemur það þeim sjálfsagt til góða
að hafa malarvöllinn, þótt það sé
til skammar fyrir Kópavogsbæ
hvernig búið er að iþróttafólki
kaupstaðarins.
Halda ungu KR-ljónin áfram
eins og þau byrjuðu? Það er
spurning sem margir biða
spenntir eftir svari við. I kvöld
fæst skorið úr þvi að einhverju
leyti. Vinni KR þennan leik, þá
hefur það sennilega fengið það
start, sem dugir þvi til að verða
ekki i falihættunni i sumar.
—S. dór