Þjóðviljinn - 31.05.1972, Page 6

Þjóðviljinn - 31.05.1972, Page 6
6. SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN— t Miðvikudagur 31. mai 1972- DJOÐVIUINN MÁLGAGN SÓSÍALISMA, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Útaefandi: Útgáfufélag ÞJóðviljans. Framkvæmdastjórl: Eiður Bergmartn. Ritstjórar: Sigurður Guðmundsson, Svavar Gestsson (áb.). Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson.' Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 225.00 á mánuði. Lausasöluverð kr. 15.00. Prentun: Blaðaprent h.f. Launajöfnuður verður að aukast Athyglisverð ályktun V erkamannasambands Islands Verkamannasamband Islands hefur nú verið til í átta ár. Innan vébanda þess eru öll félög ófag- lærðra verkamanna og verkakvenna í landinu ef frá eru talin félög iðnverkafólks og sjómannafé- lögin. Þegar Verkamannasambandsþing sendir frá sér ályktanir hlýtur það að vekja athygli hversu þessi samtök meta ástand kjaramála þeirra sem lægst hafa launin. Um síðustu helgi, er Verkamannasamband íslands efndi til þings, var gerð ályktun um kjaramál og fleira sem hlýtur að vekja umtalsverða athygli, því þar er því sleg- ið föstu að kaupmáttur almennra launa hafi ekki í annan tíma verið hærri á Islandi en hann er nú. Með þessari ályktun staðfestast mjög mikilvægar pólitískar staðreyndir. I fyrsta lagi er það stað- fest að núverandi ríkisstjórn hefur lagt áherzlu á að stjórna landinu með hag vinnandi fólks fyrir augum. f öðru lagi er Ijóst að desembersamning- arnirvoru öllu launafólki hagstæðir og það hvern- ig að þeim var staðið af hálfu verkalýðssamtak- anna og ríkisstjórnarinnar hefur verið árangurs- ríkt. I þriðja lagi staðfesta ályktunarorð Verka- mannasambands Islands um kaupmátt launa þá miklu stökkbreytingu sem orðið hefur í allri að- stöðu verkafólks á Islandi á síðustu 10 mánuðum. Fyrri þing Verkamannasambandsins hafa jafnan verið haldin í skugga árása fjandsamlegs ríkis- valds á launastéttirnar. Þannig gerist það nú í fyrsta sinn í sögu Verkamannasambands Islands að sambandið getur látið viðurkenningarorð falla um ástandið í kjaramálum verkafólks. I fjórða lagi staðfestir ályktun Verkamannasam- bandsins að það er ekki aðeins álit talsmanna ríkisstjórnarinnar á hinum pólitíska vettvangi, að kaupmáttur verkalauna sé betri en áður. Þetta er einnig álit forustumanna verkalýðsfélaga, for- ustumanna úr öllum flokkum og utan flokka, úr stjórnarandstöðuflokkum sem stjórnarflokkum. Af öllum þeim ástæðum sem hér hefur verið minnt á kemur því í Ijós að með tilliti til kaupmáttar launa er þróunin á réttri leið. En þrátt fyrir þær staðreyndir sem hér hafa ver- ið raktar í fyrri forustugrein blaðsins um kaup- mátt almennra verkalauna er vert að taka og und- ir þá kröfu þings Verkamannasambands Islands að launajöfnuður verði að aukast hér á landi. Með því vísitölukerfi sem nú tíðkast hér á landi eykst launamismunur í raun við hverja nýja upp- bót vegna verðlagshækkana. Menn fá því hærri uppbætur fyrir hækkanir því hærri laun sem þeir hafa. Þannig græða hátekjumenn á háum verð- lagsbótum. Hér er vitanlega um gjörsamlega ó- eðlilegt ástand að ræða og það stuðlar ekki að auknum launajöfnuði. Jafnframt nauðsyn þess að athuga verðlagsbótakerfið verður svo að leggja á það áherzlu í næstu kjarasamningum verkalýðs- samtakanna og í undirbúningi að þeim kjarasamn- ingum, að bilið milli hærri og lægri launa minnki frá því sem nú er. Þá er ekki nóg að taka tilliit til launa samkvæmt töxtum, það verður að taka tillit til möguleika viðkomandi starfshópa til á- kvæðisvinnu á hærra kaupi en tímakaupi o. s. frv. Hér er um fjölmörg afar flókin atriði að ræða, en staðreynd málsins stendur eftir: Launajöfnuð- ur verður að aukast hér á landi. Guðmundur Böðvarsson: ÆSÉR GJÖF TIL GJALDA Þegar þverbrautarmáliS var á döjinni barst okkur ejtirjarandi grein Guðmundar Böðvarssonar skálds á Kirkjubóli. Vegna ým- issa erfiðleika við undirbúning þeirra breytinga sem nú haja átt sér stað á blaðinu hefur þessi grein Guðmundar Böðvarssonar beðið lengur en xtlunin var. Við biðjum Guðmund velvirðingar á þessum drætti — en grein hans á nú sem jajnan jyrr erindi til allra lesenda Þjóðviljans. Margt gerist úti í heiminum og því miður ber meira á þeim tíðindum sem eru vafasamt fagn- aðarefni. Stórveldapólitíkin þefj- ar af óheilindum meira en nokkru sinni, og „fagurt skal mæla, en flátt hyggja", virðist vera það boðorð sem nú þykir sjálfsagt að kunna til hlítar og lifa eftir án undansláttar. Forseti mesta herveldis Jarðar flýgur yfir löndin sem engiil friðar og sátta, og flytur í þeim anda skálaræður, sem aðrir, honum sleipari, hafa fyrir hann saman- sett. Hann flytur þær af inm- leik og brosir sætlega, jafnframt því sem hann fyrirskipar herjum sínum að sauma með drápum, brennum og sprengingum að þeim þrjósku bændum Indókína- skagans, sem telja sér til engrar þurftar afskiptasemi hans og ráðsmennsku. En heima fyrir í ríki hans hinu milda, vekur þetta tvöfalcÍan fögnuð: þar gleðjast hinir nytsömu sakleys- ingjar yfir þeim fagnaðarboð- skap sem fram streymir af vör- um leiðtogans, og þá ekki síður hinir risavöxnu auðhringir, sem sjá fram á áframhaldandi og ör- ugg viðskipti við alríkið: því fleiri flugvélar sem skotnar eru niður, því fleiri þúsundir tonna af sprengjum sem helt er þar austurfrá yfir lönd og lýði, því betra, því meiri markaður fyrir flugvélar og sprengjur. Og fnykurinn af hinni farða- smurðu látbragðslist, lyktin af hinni diplómatisku slægvisku og slótnigheitum, sveimar einnig hér yfir norðlægu landi lítillar þjóðar og þykir mörgum yfrið góð. Gaman va?æri nú að kunna eitthvað fyric sér í galdri blekk- inganna. Væri nú t. d. ekki mögulegt að svínbeygja nokkra búandmenn (sem haldnir eru óskiljanJegria tryggð til átthaga sinna) með stofnun göfugra hagsmunasamtaka á breiðum grundvelli? eða þá að smeygja inn á sjálft alþingi frumvarpi (með náttúruverndarsvip) um eignarrétt ríkisins á vissum landsvasðum, — og þar innifalið, svo lítið bæri á, ákvæði um for- réttindi þess fjármagns sem nauðsynlega krefst ávöxrunar- — Já, það eru margar leiðir sem fara má að settu marki, ef vel er athugað, ekki sakar að rétta óvitanum tíeyring, ef hægt er að stela af honum eina túkaU- inum sem hann á, það getur meira að segja litið svo faJiega út, þegar það er gert af þeim listamanni sem bæði hefur æf- ingu og meðfædda hæfileika. Hugsið ykkur bara hvað það Stundum lcveður við þann tón í skrifum, að ekki megi móðga viðskiptaþjóðir okkar með gagn- rýni á stjórnarfari í viðkomandi Iöndum. Þessi athyglisverða kenning var enn ítrekuð í Morgunblaðinu á sunnudaginn: þar segir fuUum fetum að ís- lendingar eigi að meta viðskipta- hagsmuni framar sannfæringu sinni eða skoðun á stjórnarfari var elskulega gert af stórveldinu að bjóða litla bróður brautarstúf suður á Miðnesheiði fyrir hreint ekki neitt, jafnvel þó það væri nú kannski hugsað svolítið umræ:ddra landa. Var hér einkum átt við Bandaríkin og Portúgal. Er þessi kenning einkar fróð- leg: Við eigum samkvæmt henm ekki að hafa aðra skoðun á Vietnamstríðinu en Nixon- stjórnin vegna þess að Banda- ríkjamenn vilja gjarnan kaupa íslenzkan fisk, við eigum ekki að hafa skoðun á framkomu öðruvísi upphaflega. Þetta er annars meira örlætið, því hér takur stórveldið þó svo sannar- íega nærri sér, það skarðar í sjóðinn, og vera samt sjálft að fórna flugvélum í þágu friðar- ins. Það er von að nú ægi þeirri þjóð, sem bjó sér tU orðtakið: gjöf skal gjaldast ef vinátta á að haldast, — hún má svo sann- arlega taka á honum stóra sín- um, veslingurinn, — því auð- vitað má maður ekki láta sér til hugar koma þá tortryggni sem liggur að baki öðru orðtaki: æ sér gjöf til gjalda. En svo maður snúi nú blað- inu við í fullri alvöru: af hverju var þetta gert? hvers vegna var þessi gýligjöf þegin? Við gátum gert þetta.sjálf, við höfum gert annað eins án þess að svelta, og Portúgala í Angóla vegna þess að þeir í Portúgal kaupa af okk- ur saltfisk. Við eigum — sé þessi kenning ' útfæð rökrétt — ekki að fordæma afstöðu brezku eða vestur-þýzku stjórn- anna til landhelgismálsins vegna þess að Bretar og Vestur-Þjóð- verjar kaupa af okkur tilteknar vörur. Nú hafa íslenzk stjórn- arvöld mjög eindregið hafnað þeirri kenningu að setja við- skiptamál og landhelgismálið undir sama hatt. Engum verður hér ætlað að hafa þá skoðun að við eigum að fara varlega í sak- irnar í afstöðu okkar tU mann- réttindamála eða annarra vegna þess að við eiguim að taka fjár- muni fram yfir mannúðina. Undirritaður minnir hins vegar á þessi viðhorf til til viðvörunar. Fjalar. Frh. á bls. 15 o 0 Fjármunir eða mannúðarsjónarmið

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.