Þjóðviljinn - 31.05.1972, Page 11

Þjóðviljinn - 31.05.1972, Page 11
Miðvikudagur 31. mai 1972- ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11. Ungt afreks- fólk Þetta unga íþróttafólk á myndinni hér til hliöar eru sigurvegararnir úr 5 Árbæjarhlaupum i vetur. Verðlauna — afhending fyrir hlaupin fór fram sl. sunnudag og var þá mikil gleöi rikjandi meðai þessara ungu hlaupara, sem flestir voru þarna aö taka á móti sínum fyrstu, en ef til vill ekki siðustu sigurverölaunum fyrir iþróttir. A myndinni hér fyrir ofan eru sigurvegararnir úr Arbæjarhlaup- unum Í vetur. Þeir eru: Gisli Halldórsson 16 ára, Stefán R. Iljálmars- son 15 ára, Agúst Karlsson 14 ára, Helgi Hilmarsson 13 ára, Jenni Clausen 12 ára, Arni Þór Arnason 11 ára, Höskuldur Sveinsson 10 ára, Loftur Ólafsson 9 ára, Magnús Arnarson og Sven Jcnsen 8 ára, Benedikt llálfdánarson 7 ára, Jónina Þórarinsdóttir 13 ára, Asta Henediktsdóttir 12ára, Lára Marteinsdóttir 11 ára, Anna D. Armanns- dóttir og Sigrún Axelsdóttir 9 ára, Maria Pálsdóttir 8 ára og Nanna Dröfn Sigurdórsdóttir 7 ára. A myndina vantar Ninu Karenu Grétars- dóttur sem varö sigurvcgari i aldursfiokki 10 ára stúlkna. A myndinni eru einnig Kristján Þorgeirsson og forráöamenn Fylkis. Arbæjarhlaupin hófust siðla vetrar og urðu alls 5, en til þess að hljóta þátttökuverðlaun urðu keppendur að taka þátt i minnst 3 hlaupum. Alls munu 296 börn og unglingar hafa tekið þátt i hlaupunum og mest um 200 þátttakendur i einu hlaupi, en þeir fóru aldrei niður fyrir 100. Alls hlutu 105 verðlaun eða þátttökuviðurkenningu. Sigur- vegararnir hlutu verðlaunapen- ing úr gulli, sem trygginga- félagið Ábyrgð gaf, en iþróttafé- lagið Fylkir i Árbæjarhverfi stóð fyrir hlaupinu. Þetta er i annað sinn sem Fylkir gengst fyrir Arbæjar- hlaupi, i fyrsta sinn var það i fyrra vetur og njóta þessi hlaup mikilla vinsælda meðal unga fólksins i hverfinu. Margir gest- ir úr öðrum hverfum hafa tekið þátt i einu eða fleiri hlaupum, meðal þeirra Ragnhildur Páls- dóttir, hin kunna frjálsiþrótta- kona. Þrjú mót úti á landi í sumar Þrjú af mótum Frjálsiþrótta- sambands tslands fara fram úti á landi i sumar. Stærsta mót sambandsins, tslandsmót yngri aldursflokk- anna (drengir, sveinar, piltar, stúlkur, meyjar, telpur) verður háð á Sauðárkróki dagana 15.- 16. júli á vegum Ungmenna- sambands Skagafjarðar. Mót þetta er fyrir átján ára og yngri. Dagana 29.-30. júli verður B —• mót FRl haldið á Hornafirði á vegum Ungmennasambandsins Olfljóts. Unglingakeppni FRl fer fram i Vestmannaeyjum dagana 19,- 20. ágúst. Frjálsiþróttaráð Vestmannaeyja sér um fram- kvæmd. HVAÐ SEGIR LANDSLIÐSNEFND HSÍ? Landsliösæfingar i hand- knattleik standa nú sem hæst og undirbúningur fyrir lokakeppni Ólyinpiuleikanna i fullum gangi. Nú liður senn að þvi, aö landsliösnefnd velji cndanlega þaö liö sem fara á til Miinchen. Telja má fullvist að hinn frá- bæri knattspyrnu- og hand- knattleiksinaður Sigurbcrgur Sigstcinsson veröi valinn aftur i handknattleikslandsliöiö. Hvaö segir þá landsliðsnefnd við þvi aö hann æfi og leiki knattspyrnu i sumar, samhliöa landsliðs- æfingunum i handknattleik ? Það hlýtur aö teljast ábyrgöarhlutur að leyfa honum aö æfa og leika knattspyrnu, eft- ir að hann hefur veriö valinn i landsliöiö fyrir Ól. Það stafar eingöngu af þvi að hann gæti hæglega meiözt það illa stuttu fyrir ólympiuleikana aö hann gæti ekki farið með þvi utan. Segja má hann geti allt eins nieiðzt á landsliösæfingu eins og i knattspyrnu og er það alvcg rétt. Kn mcð þvi að hann æfi og leiki knattspyrnu er áhættan tvöföld. Þarna kemur upp vandamál sem cflaust vcrður ekki létt viöfangs, cnda vilja Framarar áreiðanlega ekki missa Sigurberg úr knatt- spyrnuunni, jafn frábær lcik- maöur og hann er. En cigi að siður hlýtur hann aö vcröa aö velja á milli handknattleiksins og knattspyrnunnar i sumar. —S.dór Til skammar Hið unga og stórefnilega Kópavogslið, Breiðablik, verður að leika á Melavellinum i Reykjavik i sumar sem sinum heimavelli. Þetta er eina liðið á öllu Islandi, sem verður að leita til annars bæjarfélags um völl til að keppa á. Og þetta er lið annars eða 3ja stærsta kaup- staðar á landinu. Maður hefði haldið að forráðamenn Kópa- vogskaupstaðar heföu séð sóma sinn i að fullgera völl þann.sem verið hefur i gerð um nokkurra ára bil, eftir að Breiðabliks-liðið þurfti að leika alla sina heima- leiki á Melavellinum i fyrra. En svo virðist alls ekki vera. Það er til háborinnar skamm- ar fyrir forráðamenn Kópavogs og raunar alla bæjarbúa lika, að sameinast ekki um að útbúa löglegan knattspyrnuvöll fyrir þetta lið þeirra. Sagt er að sum- ir bæjarfulltrúar i Kópavogs hafi vonazt til að liðið félli niður i fyrra, svo að ekki þyrfti að vinna meira að vallargerð nýja vaÚ'larins i bráð! Hvort sem þetta er satt eða ekki, þá er það aumt fyrir einn stærsta kaup- stað landsins aö búa ekki betur að iþróttafólki sinu en raun ber vitni. Svo aumt þorp finnst ekki einu sinni á Islandi að aðstaöa sé ekki betri fyrir iþróttafólk en i Kópavogi. -S.dór. Frazier vann i f jórum lotum Heimsmeistarinn i þungavigt i hnefaleikum, Joe Frazier, sigraði Ron Stander i aðeins fjórumlotum er þessir kappar mættust i Omaha i Nebraska i Bandarikj- unum fyrir helgina siðustu. Dómarinn stöðvaði leikinn eftir 4 lotur, þar eð andlit Standers var þá orðið alblóðugt og hann alls ófær um að halda keppninni áfram. Stjórn t þrót tas a m ba nds islands liefur ákveðiö aö veita þeim, sem synda 200 m. i Samnorrænu sundkeppninni 100 sinnum, gullmerki. Þctta merki er Trimm-karlinn umdcildi og vcrður hann þá sem barm- merki. Nú eru veitt sérstök merki fyrir 1. sund i 200 m. keppninni og er það bronz-merki. Fyrir 25 sund geta menn fengið silfur- merki og fyrir 50 sund geta menn fengið gullmerki. Þetta ..Trimmkarlsmerki” er þvi ,nýung og verður eflaust til að glæöa áhuga manna fyrir keppninni.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.