Þjóðviljinn - 21.07.1972, Blaðsíða 1
Föstudagur 21. júli 1972—37. árgangur—160. tölublað
AlþýÖubankínn hf
ykkar hagur
okkar metnaöur
I 2 1/2:2 1/2 eftir ljótan afleik heimsmeistarans I
! FISCHER SIGRAÐI FALLEGA í 27 LEIKJUM'
Er menn komu til
fimmtu einvigisskákarinn-
I arveittu þeir því athygli að
ýmsar breytingar höfðu
verið gerðar til að draga úr
Ihávaða i salnum. Komið
hafði verið fyrir auka for-
hengi og einnig höfðu tré-
bekkirnir verið teknir úr
umferð, það minnkar að
vísu sætaplássið nokkuð, en
það kemur ekki að sök þar
eð menn eru það mikið á
ferli.
Heimsmeistarinn var
mættur á tilsettum tima, en
áskorandinn kom nokkrum
minútum of seint að vanda.
Eins og i fyrri skákum
þar sem heimsmeistarinn
hefur haft hvitt lék hann
drottningarpeði og upp
kom Nimzoindversk vörn.
Spasski eyddi miklum tima
í 11. leik sinn en sá leikur
bauð upp á mannsfórn sem
Fischer þorði ekki að
Þiggia.
I
Kom nú upp mjög lokuð
staða þar sem riddari .
Fischers mátti sin meira en |
biskup heimsmeistarans. .
Spasski tókst að skipta upp |
á hrókum og létta þannig á .
Framhald á bls. 11. |
Eiga að finna leið
í efnahagsmálum
Ríkisstjórnin hefur
skipað nefnd til að gera út-
tekt á ástandi efnahags-
málanna og gera tillögur
um leiðir til varanlegri
lausna á vanda efnahags-
málanna. Þegar bráða-
birgðaaðgerðirnar voru
gerðar í byrjun mánaðarins
var það boðað að nef nd yrði
skipuð. ( gær barst blaðinu
eftirfarandi fréttatil-
kynning frá forsætisráðu-
neytinu:
„Forsætisráðherra hefur i dag
skipað nefnd til þess að gera til-
lögur um leiöir og valkosti i e,fna-
hagsmálum með það fyrir augum
að halda verðbólgu i svipuðum
skorðum og i nágrannalöndunum,
treysta grundvöll atvinnuveg-
anna og tryggja atvinnuöryggi og
kaupmátt lauan.
Formaður nefndarinnar er Jón
Sigurðsson hagrannsóknarstjóri
og með honum i nefndinni eru
Jóhannes Nordai, seðlabanka-
stjóri, Jóhánnes Eliasson, banka-
stjóri, Ólafur Björnsson,
prófessor, Guölaugur Þorvalds-
son, prófessor, bröstur Ólafsson
hagfræðingur og Halldór S.
Magnússon, viðskiptafræðingur.
Lagt var fyrir nefndina að hafa
samráð v\6 Alþýðusamband
tslands og Vinnuveitendasam-
band tslands.”
Yerkbann?
A fundi hjá Félagi isl. raf-
virkja, sem haldinn var s.l. mið-
vikudag, var nær einróma sam-
þykkt tillaga þess efnis, að
félagsmönnum FIR sé óheimilt
að vinna i nýlagnavinnu og við
meiriháttar breytingar, nema
samkvæmt ákvæðisvinnutaxta.
Þessi samþykkt þýðir eiginlega
að FIR samþykkti einhliða
taxta.
t gær barst Þjóðviljanum afrit
af bréfi sem Vinnuveitendur
sendu til Félags isl. rafvirkja,
þar sem þessari samþykkt
félagsmanna FIR er mótmælt,
sem broti á nýgerðum kjara-
samningum. Vinnuveitenda-
sambandið skorar á FIR að
draga fyrrnefnda samþykkt til
baka fyrir kl. 17 n.k. þriðjudag
ellegar verði „málaferli og
frekari óþægindi”.
Bréf Vinnuveitendasam-
bandsins er mjög harðort og
ýmislegt bendir til að meistarar
hyggi nú á verkbannsaðgerðir
vegna samþykktar Félags
islenzkra rafvirkja.
Skaftá í ham
Allar likur benda nú til þess að
jökulhlaup sé aö hefjast i Skaftá. t
viðtali við húsfreyjuna i Skaftár-
dal um 4 leytið i gær, sagði hún að
vatnsborð árinnar heföi hækkað
um nálega 2 metra frá þvi kl. hálf
clicfu i gærmorgun. Væri þessi
vöxtur mcð örasta móti.
Við höfðum samband við Sigur-
jón Rist, vatnamælingamann,
sem var að búa sig undir að halda
austur. Hann sagði að siritinn hjá
Skaftárdal hefði sýnt mjög öran
vöxt i ánni á milli kl. 10 og 12 i
gær.
Sigurjón kvaö hlaup i Skaftá
hafa verið með 4ra til 5 ára milli-
bili, en nú i seinni tið væri farið að
styttast verulega milli hlaupanna
og væri nú timinn milli þeirra
kominn niður i 2 1/2 ár. Siðasta
hlaup hefði verið i janúar 1970.
Rennslið i þessum hlaupum hefur
náð nærri 2000 teningsmetrum á
sekúndu.
Nú fer Skaftá sem kunnugt er
eftir tveim farvegum eftir að
kemur niður i byggð. Aðalvatns-
magnið fer eftir farvegi austan
við bæinn Ása i Skaftártungu. Þar
hefur undanfarið verið allmikil
hætta og mun sennilega vera nú
við brú, sem er þarna á aðalþjóð-
veginum. Hættan stafar af þvi að
Framhald á bls. 11.
Búnir að
skila sínu
Nýlcga voru tveir bátar,
Herstcinn og Lagarfoss,
brenndir i slippnum i Eyjum,
cn þeir höfðu báðir verið
dæmdir ónýtir. Þetta voru
happafleytur, sem voru
búnar að skila sinu i þjóðar-
búið. (Ljósm. Heiðar
Martcinsson).
IBM ruglar IBM
Heilarnir hjá I.B.M.
rugluðu heldur betur út-
reikningunum hjá skatt-
stofnunni. Tölvan gleymdi
einum io miljónum og kom
þannig eigin fyrirtæki i hið
eftirsótta og auglýsta
fyrsta sæti i tekjuskatts-
greiðslu fyrirtækja. Það
fyrirtæki sem varð fyrir
barðinu á tölvunni var
Hekla h/f sem auðvitað á
að vera i fyrsta sæti eins og
Volkswagen hefur alltaf
leitazt við að vera og
greiðir Hekla h/f 12.744 þús
i tekjuskatt. En tölvan
sýndi einnig Oliufélaginu
h/f þann fjandskap (tölvan
er á móti Esso) að sleppa
þar tölu, en réttilega átti
Oliufélagið að fá 12.668
þús.
Samkvæmt þessu verður
Hekla í fyrsta sæti i
heildargjöldum félaga til
hins opinbera og greiðir
20.197 þús. Fleiri villur
höfðu ekki komið fram í
gær.
Þessi knálegi piltur
dvelur i sumarbúðum
Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra að
Reykjahlíð i Mosfells-
sveit, en frá þeim
sumarbúðum segir
nánar i opnu blaðsins.
REYKJANESKJÖRDÆMI
Enn eru nokkur sæti laus í helgarferð Alþýðubandalagsins um
Fjallabaksleið í Eldgjá.
Horfur eru á góðu ferðaveðri um helgina og landslag er bæði
hrikalegt og fagurt á þessari leið.
Þeir sem enn hafa ekki tilkynnt þátttöku, en ætla að vera með i
þessa ob> gðaferð þurfa að hringja i sima 40853 eða 41279 i siðasta
lagi um hádegi i dag.
Lagt verður af stað frá Félagsheimili Kópavogs kl. 8 i fyrramálið.
V
Ferðanefndin.