Þjóðviljinn - 21.07.1972, Side 4

Þjóðviljinn - 21.07.1972, Side 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur. 21. júli 1972 NOÐVIUINN MÁLGAGN SÓSÍALISMA, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Útgefandi: Útgáfufélag ÞJóðviljane. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann. Ritstjórar: Sigurður Guðmundsson, Svavar Gestsson (áb.). Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingan Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 225.00 á mánuðí. Lausasöluverð kr. 15.00. Prentun: Blaðaprent h.f. SKATTSKRÁIN KOMIN FRAM Skattskráin hefur séð dagsins ljós, og al- menningur hefur nú aðstöðu til að dæma, hvernig nýja skattakerfið kemur út. Ekki er að efa að dómar fólks verða mismun- andi. í vetur urðu miklar umræður um skattamálin, og stjómarandstaðan var ið- in við að koma með gifuryrtar yfirlýsing- ar um stórfelldar skattaálögur, og við- brögð málgagna stjórnarandstöðunnar eru i samræmi við það, en i æpandi and- stöðu við viðbrögð þess fólks sem þessi sömu blöð hafa viðtöl við. Alþýðublaðið segir fólk t.d. vera furðu bratt eftir atvik- um, en leiðarahöfundurinn er gifuryrtur að vanda. Enn er of snemmt að setja fram einhvern algildan dóm á þau skattalög, sem nú er lagt á eftir. Nauðsynlegt er að gera heildarúttekt á áhrifum þeirra, kost- um þeirra og göllum, ef menn vilja á ann- að borð hafa i frammi málefnalegar um- ræður um skattamál. Þjóðviljinn vill benda á eftirfarandi: 1. Þvi hefur ekki verið haldið fram hér i blaðinu að með skattalögunum ætti að lækka skatta. Hin mörgu samfélagslegu verkefni i okkar þjóðfélagi sem úrlausnar biða gera það nauðsynlegt að auka tekjur rikisins. Bandaríkjamenn í Víetnam 2. Tilgangurinn með skattalagabreyt- ingunum i vetur var sá, að skattur á fólki i lægri tekjuflokkum hækkaði ekki og reyna yrði að deila sköttunum öðru visi og rétt- látar niður. Fljótt á litið virðist fólk i lægri launaflokkum ýfirleitt ekki koma illa út i sköttum samkvæmt skattskránni. 3. Skattaálagning á hærri tekjur var aukin. Skattskráin sýnir vel, hve hátekj- urnar eru gifurlegar i þjóðfélaginu. Það sýnir sig, að til eru einstaklingar með allt upp i 500 þúsund króna tekjuútsvar, sem þýðir að 10-falda má þá upphæð til að fá út árstekjur þeirra, sem þá teljast um 5 miljónir. Til eru þvi einstaklingar með yfir 400 þúsund króna mánaðarlaun. Skattskráin sýnir þvi svart á hvitu hinn mikla launamismun i þjóðfélaginu, og lik- lega sleppa þessir menn enn of vel sam- kvæmt nýja kerfinu. 4. Verkamenn og lágtekjufólk virðist al- mennt ekki hækka i sköttum, og skatt- prósentan af tekjum þess hefur ekki auk- izt. Rétt er að hafa i huga, að almennt eru tekjur fólks á árinu 1971 um 30% hærri en árið áður, og þvi hækka skattar einstakl- inga samkvæmt þvi i krónutölu. 5. Breytingin á skattalögunum i vetur er engin endanleg breyting. Þau eru enn i endurskoðun, og þeir sem hafa þá endur- skoðun með höndum verða þvi að hafa vakandi augu fyrir þeim annmörkum sem nú koma fram við fyrstu álagningu. 6. Svo virðist sem skattaálagningin komi nú fremur illa niður á eldra fólki, sem hefur tekjur umfram lifeyrisgreiðsl- ur. Ef sú er raunin, verður að breyta þvi hið bráðasta. 7. Ungt fólk i námi, sem áður þurfti að greiða almannatryggingasjóðsgjald og fleiri nefskatta, sleppur nú með kirkju- gjaldið eitt (400 krónur, er vart svara inn- heimtukostnaði), og er sú breyting til bóta. Stjórnarandstöðumálgögnin munu ef- laust hamast nú til að vera sjálfum sér samkvæm frá i vetur. Visir skrifar nú þegar um glæpamennina sjö i rikisstjórn. En enginn þarf að draga i efa hvers hags- muni lögfræðiklikan i Sjálfstæðisflokkn- um ber fyrir brjósti. Þjóðviljinn dregur hins vegar ekki i efa, eftir útkomu skattskrárinnar, að rétta þurfi enn frekar hlut ýmissa hópa i þjóðfé- laginu, en i þvi efni eru skattalögin ekki eini þátturinn,heldur mun vera fleira sem þar hefur áhrif og leiðrétta þarf. Einkastríð hershöfðingj ans Á meðan Nixon forseti og sérlegur ráðgjafi hans i öryggismálum,Henry Kissinger, dvöldust i Peking og ræddu við kinverska ráðamenn m.a. um hugsan- lega lausn á Vietnam-striðinu, háði hershöfðinginn John Daniel Lavelle sitt einkastrið i Vietnam. Hann hafði að engu þær skipanir, sem hann fékk frá Pentagon, að varpa ekki sprengjum á skotmörk i Vietnam nema i varnarskyni, þe. þvi aðeins að flug- vélarnar yrðu fyrir árásum. Og til að halda málinu leyndu lét hann flugmenn sina falsa skýrslur. 17. nóvember 1971 slitu Norður- Vietnamar leynilegum samningaviðræðum, sem staðið höfðu i Paris nokkurn tima milli þeirra Le Duc Tho og Kissingers, og sögðu að Bandaríkjamenn héldu uppi stöðugum sprengju- árásum i Vietnam, þrátt fyrir yfirlýsingar um að slikt ætti sér ekki stað. Stjórnin i Washington sagði þetta tylliástæðu eina: sprengjum væri ekki varpað á skotmörk i Vietnam nema i varnarskyni. t febrúar 1972 kom svo i Ijós, að fullyrðingar Norður-Vietnama höfðu við rök að styðjast. Siðla febrúarmánaðar skrifaði John Daniel Lavelle liðsforingi nokkur, sem ekki hefur fengizt nafngreindur, til öldunga- deildarþingmannsins Harolds Hughes, að hann og aðrir hefðu falsað skýrslur um árásarferðir yfir Vietnam. ,,Við höfum skrifað, að flugvélar okkar hafi orðið fyrir árásum, hvort sem það hefur verið tilfellið eða ekki.” Hughes sendi bréfið áfram til þingmannsins Stuart Symington, sem fór þess á leit við formann herforingjaráðsins John Ryan að málið yrði rannsakað. Ryan komst að þvi, að Lavelle hafði skipað flugmönnum sinum að varp^ sprengjum á ýmis skot- mörk i Vietnam, burtséð frá þvi hvort vélarnar urðu fyrir árásum eða ekki. Lavelle var settur þegjandi og hljóöalaust á eftir- laun með 27 þúsund dollara á ári og sviptur einni stjörnu af þrem- ur. Pentagon sagði að hvort- tveggja væri gert vegna þess, að Lavelle væri bágur til heilsunnar. En þar sem hershöfðingjar i Bandarikjunum eru ekki lækkaðir i tign á hverjum degi vegna heilsufarsins, vakti málið talsverða athygli, og aö lokum kom Lavelle fyrir þingnefnd til yfirheyrslu. I yfirheyrslunum kom i ljós, að frá þvi i nóvember 1971 þar til 8. mai þessa árs hafði Lavelle amk. sent 147 sprengjuflugvélar i árásarferðir yfir Vietnam og siðan látiðfalsa skýrslurnar. Alls eru til 1300 skýrslur frá flug- mönnum Lavelles þar sem segir, að sprengjum hafi verið varpað i vamarskyni, og er ekki óliklegt að einhver þeirra sé einnig fölsuð. Lavelle viðurkenndi fyrir nefndinni, að hann hefði brotið þær reglur, sem honum voru sett- ar, en taldi að aðgerðir hans væru réttlætanlegar, þar eð þær hafi verið gerðar til að hindra „kommúnistana” i að búa sig undir mai-sóknina, er þjóðfrelsis- herinn lagði undir sig Quang Tri- hérað. Lavelle sagði, að yfirmenn sinir hefðu haft fulla vitneskju um það sem hann gerði. ,,Ég hygg að Abrams hershöfðingi hafi vitað hvað ég var að gera”. En her- stjórnin i Saigon telur fráleitt, að Abrams hafi haft hugmynd um að reglurnar hafi verið brotnar. bað eru þó ekki allir á sama máli og bandariska herstjórnin i Saigon. Fyrrgreindur þingmaður Symington sagði: ,,Ég heid að Abrams hafi ekki verið sá eini af yfirboðurum Lavelles, sem vissi hvaö hann var að gera.” James Framhald á bls. 11. „Að láta endana ná saman” Dagblaðið Visir birti i fyrradag viðtal við helztu skattgreiðendur i Reykjavik. bar lætur þriðji hæsti greiðandinn, Friðrik A. Jónsson Garðastræti 11, en hann hefur umboð fyrir Simrad-tækin, hafa eftirfarandi eftir sér: „Ég bjóst nú við háum sköttum, en þetta finnst mér nokkuö mikið hærra en verið hefur, og erfitt að láta end- ana ná saman”. Hvað hefur þessi maður svo i tekjur, sem nú barm- ar sér? Hann greiðir i opinber gjöld samtals 2,7 miljónir. bar af er tekjuútsvarið 506 þúsund krón- ur. Ef tekjuútsvarið er talið vera 10% af brúttótekjum, þá má margfalda útsvarið með 10 og fá þá gróft reiknað árstekjur mannsins, sem i þessu tilfelli eru um 5 miljónir. bað gerir mán- aðarlaun upp á 415 þúsund og vikukaup á 104 þúsund, og ef við reiknum með 40 stunda vinnu- viku, þá er kaupið á timann 2.600 kr. bessi maður lætur siðan hafa eftir sér að erfitt muni reynast að láta endana ná saman. Brúttótekjur á framteljanda á skattárinu 1971, þ.e. tekjur á ár- inu 1970, voru i Reykjavik taldar 271 þúsund krónur, og áætlað er að tekjur ársins 1971, sem nú koma til skatts hafi hækkað um 30%. Hér er að sjálfsögðu um meðaltöl að ræða, en það sýnir vel, hve launamunurinn er mikill. Dagsbrúnarkaup var 1. júli i fyrra 82.85 kr., en er nú 119.70 kr. betta er litið miðað við timakaup helztu skattgreiðendanna sem er nær þrjú þúsund krónur. begar útsvarið er nú 10—11% brúttóskattur, þá er nokkuð auð- velt að sjá hverjar heildartekjur skattgreiðenda hafa verið og jafnframt auðvelt fyrir fólk að reikna út útsvarið fyrirfram. En nú fæst einnig fróðlegur saman- burður á útsvari og tekjuskattin- um. bannig rekst maður i skatt- skr. á lögfræðinga meö nokkuð hátt tekjuútsvar, en þegar litið er á tekjuskattinn, þá er hann ekki mikill. betta eru mennirnir sem kunna á krókastigu framtalsins og frádráttarmöguleika, og enn sleppa þeir of vel, þvi fáir trúa að lögfræðiskrifstofur séu reknar með tapi. err.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.