Þjóðviljinn - 21.07.1972, Page 5

Þjóðviljinn - 21.07.1972, Page 5
Föstudagur. 21. júli 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5, Víðtækar fj arskipt an j ósnir af hálfu Bandaríkj anna Skýrsla um njósnir vekur undrun og hneyksli Bandarisk njósnastoln- un notar rafeindabúnað til að hlera öll simtöl og túlka dulmálsskeyti sem fram fara ein- staklinga og stofnana á rnilli. Rafeindanjósnir Banda- ríkjanna eru komnar á svo hátt stig aö unnt er aö lesa hvert þaö dulmálstákn sem Sovétrikin nota, og jafn- framt er fylgzt nákvæm- lega með stöðu og tegund hverrar einustu flugvélar Sovétmanna og kafbáta sem flytja eldflaugar — segir i ágúst-hefti hins rót- tæka bandariska timarits Ramparts. Bandaríska njósnakerfiö getur hleraö öll símtöl sem fara fram yfir Atlanzhaf, til eöa frá Bandaríkjunum, einnig þau samtöl sem óbreyttir borgarar eiga. Njósnakerfi þetta er byggt upp af Þjóðaröryggisstofnun Bandarikjanna (skammstafað NSA) og er hún sú stærsta af þeim njósnastofnunum sem sérhæfðar eru i njósnum með rafeindabún- aði. Grein hins bandariska blaðs byggir á viðtali við fyrrverandi dulmálsfræðing i þjónustu NSA, sem notar dulnefnið Peck.Hann segir að það sé uppljóstrun Daniels Ellsbergs á svokölluðum Pentagon-skjölum um Vietnam sem fengu hann til að leysa frá skjóðunni. Peck segir að það sé dagsdag- legur hlutur að Bandarikjamenn fljúgi yfir sovézkt land, enda viti þeir um stöðu hverrar einustu flugvélar nema litilla einkaflug- véla á hvaða augnabliki sem er og einnig fylgist þeir með öllum hræringum flotans, svo og þeirra kafbáta sem búnir eru eldflauga- vopnum. Orvinnsla i tölvum. Það er staðreynd að við getum leyst öll dulmálstákn og skilið öll fjarskeyti þeirra, er haft eft- ir Peck. Við vitum hvar kafbátarnir eru og hvað hver og einn af leiðtogum þeirra er að að- hafast. Yfirleitt vitum við lika hvað þeir geta gert og hvar allan herafla þeirra er að finna. Upplýsingarnar fara sifellt i sam- hæfingu i tölvum, þeim er haldið við og þessi vinna er i gangi allan sólarhringinn. Njósnavélar eru sendar yfir sovézkt land og það mega heita fastar leiöir frá Svartahafi og upp að Eystrasalti. Flugherinn sendir vélarnar, en með stuðningi NSA. Okkar hlutverk er að rannsaka viðbrögð Rússa, loftvarnir, flug- her og leynilögreglu. Peck segist einnig hafa sannanir um njósna- flug yfir Kina. Timaritið Ramparts er mjög þekkt fyrir gagnrýni sina á striðs- rekstur Bandarikjanna i Viet- nam. Það segir að Peck hafi verið i þjónustu NSA um þriggja ára skeið eftir að hann gekk i flugherinn 1966. Hann vann m.a. i tstanbul og i Indó-Kina og var þá orðinn „dulmálsfræðingur með starfsreynslu”. t fyrstu hafði hann verið mjög hrifinn af starfi sinu,en það breyttist heldur betur þegar hann sá ástandið i Vietnam eigin augum. Njósnaö um vini sem óvini. NSA þekkir engin landamæri. - Sérfræðingar NSA tóku með raf- eindabúnaði sinum þátt i leitinni að Che Guevara, kúbanska byltingarleiðtoganum i Bólivfu, og þeir hleruðu samtal milli Kosigfns forsætisráðherra Sovét- rikjanna og sovézka geimfarans Komarofs rétt áður en geimfar- inn fórst við undirbúning að lend- ingu. En einnig vinir og bandamenn verða fyrir forvitni NSA, og er þar til nefnt bandariska njósna- skipið I.iberty sem sent var að ströndum ísraels meðan á 6-daga striðinu stóð til að hlera öll smá- atriði i hernaðaráætlun Moshes Dayans. En hann kunni ekki að meta aðferðir hinna bandarisku vina sinna, lét gera árás á skipið svo að það laskaðist mjög og tugir Bandarikjamanna létu lifið. En tæknin sá um að koma njósna- fréttum áleiðis og fengu þá Bandarikjamenn að vita að tsra- elsmenn höfðu i hyggju að sækja fram til Damaskus og Kairo. Þetta likaði Bandarikjamönnum stórilla, og beittu þeir hermála- ráðherra ísraels þeim þrýstingi sem dugði til að hverfa frá þessari áætlun. NSA-njósnir eru beztarí Heimild Ramparts kveður fjóra fimmtu hluta af öllum þeim bandarisku njósnafréttum sem eitthvaö duga koma frá NSA og vera fengnar með hlerun á fjar- skiptum annarra þjóða. Upplýs- ingar NSA eru fullkomnar og gallalausar. Þær taka yfir þaö, hvaö erlendar rikisstjórnir taka sér fyrir hendur, hvað þær hafa á prjónunum, hreyfingar herja eru skrásettar með fyllstu nákvæmni og athafnasvið þeirra kortlögð. AP-fréttastofan spurði formæl- anda NSA álits á upplýsing- um Ramparts en hann vildi ekki gera neinar athugasemndir i nafni stofnunarinnar. Svipuð neitun hefur komið frá hermála- ráðuneyti Bandarikjanna. Aðrar heimildir i grennd við æðstu her- stjórnina neita þvi, að bandarisk- ar njósnavélar fljúgi yfir sovézkt og kinverskt land, og segja það óþarft vegna tilkomu gervi- hnatta, sem taki myndir og hleri öll útvarpsskeyti. Hins vegar er viðurkennt, að flogið sé meðfram landamærum Sovétrikjanna og Kina og fylgzt með radarbúnaði þeirra, og einnig sé fylgzt ræki- lega með hreyfingum skipa og flugvéla frá þessum löndum, en ætlazt sé til að könnunarflugvélar haldi sig á alþjóðlegum flugleið- um. (Information). mælið með HF. BRJÓSTSYKURSGERÐIN NÓI VIPPU - BltSKÖRSHURÐIN Lagerstærðir miðað við múrop: Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm - 210 - x - 270 sm Aðrar stærðir.smfðaðar eftír beiðni. QLUGGAS MIÐJAN Sfðumfila 12 - Sími 38220 HÁRGREIÐSLAN Hárgreiðslu- og snyrtistofa Steinu og Dódó I.augav. 18 III. hæð (lyfta) Simi 24-6-16 Perma llárgreiðslu- og snyrtistofa Garðsenda 21 Simi J3-9-68. ÞORSHÖFN ' p?»É« Z" m m Wsmmi . Wi. WÁ i'ÍitWv

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.