Þjóðviljinn - 28.07.1972, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur. 28. júli 1972
MOÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
Útgefandi: Útgáfufélag Þ|ó5viljans.
Framkvæmdastjórl: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Sigurður Guðmundssort,
Svavar Gestsson (áb.).
Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Skólav.st. 19. Sími 17500 (5 línur).
Askriftarverð kr. 225.00 á mánuðí.
Lausasöluverð kr. 15.00.
Prentun: Blaðaprent h.f.
BREIÐU BÖKIN OG SKATTSVIKIN
Allar umræður um skattaálagninguna
hafa beinzt að þvi misrétti, sem aldrað
fólk hefur orðið fyrir. Þjóðviljinn hefur
tekið undir þá gagnrýni sem fram hefur
komið um skattlagningu á ellilifeyrisþega
og telur að nauðsynlegt sé að gera nú þeg-
ar ráðstafanir til að rétta hlut gamla
fólksins. En þetta eina atriði má ekki yfir-
gnæfa svo allt annað mat á skattskránni
að ekki séu teknir til umræðu þeir þættir
skattamálanna, sem ekki siður eru ámæl-
isverðir. Ekki hefur orðið vart við það, að
hátekjumennirnir i þjóðfélaginu kvarti yf-
ir opinberum gjöldum sem á þá eru lögð.
Hins vegar hafa jafnvel málgögn sjálf-
stæðismanna kvartað yfir þvi, að breiðu
bökin beri ekki skatta sem skyldi. Þegar
sósialistar hafa lagt fram tillögur um, að
tekjuskattstiganum sé breytt i það horf að
skattaálagningin sé meira stighækkandi
og tekjuskattinum beitt til tekjujöfnunar i
þjóðfélaginu, þá hafa forréttindastéttirn-
ar risið öndverðar gegn slikum tillögum.
Þvi má segja að nýleg skrif Morgunblaðs-
ins og Visis um breiðu bökin og skattana
gefi tilefni til, að við endurskoðun skatta-
laganna verði látið á það reyna enn frek-
ar, hvort þessir aðilar séu reiðubúnir i
reynd að láta breiðu bökin bera þyngri
skattabyrðar og létta meir á láglauna-
fólki.
Annað atriði i skattamálunum er einnig
vert að minnast á og gleyma ekki i öllu
fjaðrafokinu um skattana og gamla fólkið
en það eru skattsvikin i þjóðfélaginu.
Skattsvikin eru óhugnanlega mikil og svo
virðist sem almenningsálitið á Islandi liti
þau sem eðlilegan hlut. 1 nágrannalöndum
okkar hefur verið komið á fót viðtækri
skattalögreglu og sagt að fáir opinberir
starfsmenn skili meiru en þeir i rikissjóð.
í vetur var að visu fjölgað hjá skattaeftir-
litinu, en ljóst er að sú fjölgun starfs-
manna nær skammt. Enginn dregur i efa,
að fjölmennir starfshópar og viss tegund
atvinnurekstrar á auðvelt með að svikja
tekjur undan skatti, skatti sem aðrir þegn
ar þjóðfélagsins verða að gjalda fyrír
þessa skattsvikara i hærri sköttum. Hinn
almenni launamaður á heimtingu á þvi, að
skattaeftirlit sé eflt til muna og það ekki
lengur liðið, að augljós skattsvikadæmi,
sem lesa má af spjöldum skattskrárinnar,
séu látin viðgangast. Skattheimta á lifeyr-
isþegum er nú réttilega gagnrýnd, en er
ekki timi til kominn að gengið sé til verks
og skattsvikin i þjóðfélaginu afhjúpuð?
Þ RIÐJUDAGUR
1. ágúst 1972.
20.00 Kréttir.
20.25 Vcöur og augl.ýsinf'ar
20.30 Krá llcimsmeistara-
cinviginu i skák
21.00 Ashton-fjiilsky Idan.
Brezkur framhaldsmyndafl.
um lif stórrar miðstéttar-
fjölskyldu i siöari heims-
styrjöldinni. 14. þáttur. Ný
viöhorf. Þýöandi Jón O.
Edwald. Við tökum upp
þráðinn þar sem frá var
fvocfið i velur. Þessi þáttur
gerist um áramótin 1940- 41.
Tony Briggs hefur gefið sig
fram til herþjónustu. Edwin
Ashton er orðinn fram-
kvæmdastjóri fyrir prent-
smiðju Sheftons Briggs, en
er óánægður og þykir
mágur sinn ekki sýna sér
na'gilegt traust. Nokkurrar
þreytu ga'tir einnig i sam-
búð Ashtonhjónanna.
21.45 Sctið fyrir svörum.
Umsjónarmaöur Eiður
Guðnason.
22.20 iþróttir. Umsjónar-
maður Omar Ragnarsson.
23.20 Dagskrárlok.
MIDVIKUDAGUR
2. ágúst 1972
20.00 Krcttir
20.25 Veöur og auglýsingar
20.30 Kjórðungur mannkyns.
Mynd um Alþýðulýðveldi
Kina eftir bandariska
blaðamanninn Edgar Snow.
sem kunnur varð á árunum
kringum 1940 fyrir bækur
sinar um málefni Austur-
Asiu og byltinguna i Kina,
en hann var þá búsettur i
Kina um árabil. Hér greinir
hann frá ferðalagi sinu til
Kina árið 1966 með frásögn
og myndum, rifjar upp sögu
byltingarinnar og þróun
menningarmála og atvinnu-
lifs á undanförnum ára-
tugum. Einnig ræðir hann i
myndinni við ýmsa kunna
Kinverja, þar á meðal Maó
formann og Sjú En Læ.
Þýðandi og þulur: Óskar
Ingimarsson.
21.45 Búlgarskir dansar.
Nitján félagar úr Þjóðdans-
afélagi Ueykjavikur sýna
búlgarska þjóðdansa.
Stjórnandi er Vasil
Tinterov.
22.05 Valdatafl. Brezkur fram-
haldsmyndaflokkur. 7.
þáttur. óvæntur mótleikur.
Þýðandi Heba Júliusdóttir.
Efni 6. þáttar: Wilder rær
að þvi öllum árum að skapa
al varlega misklið milli
Bligh-feðganna. Hann biður
vinkonu sina, Susan
Weldon, að sýna sér skjöl,
sem hún hefur undir
höndum og gætu orðið
hættulegt vopn i baráttunni
við þá feðga. Hún neitar, en .
kveðst þó mundu sýna þau
eiginmanni sinum. Wilder
stenzt þessa freistingu, en
Gaswell gamla grunar hvað
i vændum er.
22.50 Krá heimsmeistara-
cinviginu i skák
23.00 llagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
4. ágúst 1972
20.00 Krcttir.
20.25 Vcður og auglýsingar
20.30 Tónleikar unga fólksins.
,,llin gömlu kynni".Á þessui
tónleikum koma tveir
hljóðfæraleikarar og ein
söngkona, sem öll hafa áður
verið kynnt á Tónleikum
unga fólksins, sem ,,ung og
efnileg", en hafa nú aflað
sér viðurkenningar viða um
heim. Þau eru Stephen
Kates (selló) , Veronica
Tayler (sópran) og André
Watts (pianó) sem lék hér á
Listahátiðinni i sumar.
Verkin, sem þau flytja hér
I VtHmQASKALIHS
FERÐAMENN
Kjölþætlar veitingar. Vörur fyrir ferðafólk f úrvali.
Bcnzín og oliur — þvottaplan —
Leggjum áherzlu á fljóta og góða afgreiðslu f nýju og fall-
egu húsi. Verið velkomin.
VEITINGASKÁLINN BRtJ, Hrútafirði.
— llve glöð er vor æska er á dagskrá sjónvarpsins laugardaginn 5. ágúst. Þessum skemmtilega þætti
fagna sennilega margir.
ásamt Filharmóniuhljóm-
sveit New York-borgar, eru
eftir Tsjækovski, Puccini,
Gershwin og Brahms.
Stjórnandi og kynnir er
Leonard Bernstein. Þýð-
andi Óskar Ingimarsson.
21.25 Ironsidc Bandariskur
sakamálaflokkur. Greiði
fyrir greiða. Þýðandi: Dóra
Hafsteinsdóttir.
22.15 Erlend málefni.
Umsjónarmaður Jón Hákon
Magnússon.
22.45 Frá heimsmeistaraein-
viginu i skák.
22.55 Dagskrárlok.
LAUGARDAGUR
5. ágúst 1972
20.00 Kréttir
20.20 Veður og auglýsingar.
20.25 Hve glöð er vor æska
Brezkur gamanmyndafl.
Skólakvikmyndin. Þýði
Jón Thor Haraldsson.
20.50 Evrópukeppni f dansi.
Sjónvarpsupptaka frá
Evrópukeppni i suður-
ameriskum dönsum, sem
háð var i Berlin i vor.
(Evróvision — Þýzka sjón-
varpið) Þýðandi Briet
Héðinsdóttir.
22.10 Konan, sem hvarf (Lady
in the Lake) Bandarisk bió-
mynd frá árinu 1947. Leik-
stjóri Robert Montgomery.
Aðalhlutverk Robert Mont-
gomery, Audrey Totter og
Lloyd Nolan. Þýðandi: Dóra
Hafsteinsdóttir. Spæjari
nokkur skrifar leynilög-
reglusögu og sendir hana til
útgáfufyrirtækis. Fyrir-
tækið býðst til að gefa hana
út gegn þvi, að hann hafi
upp á konu forstjórans, en
hennar hefur verið saknað i
nokkrar vikur.
23.50 Dagskrárlok.
Peð á móti peði
Á miðvikudaginn birti
Morgunblaðið forystugrein und-
ir fyrirsögninni „Stórveldin
fórna peðum". Var efni greinar-
innar, sem er lofgjörð um Nixon
forseta, tekin til meðferðar i
leiðara Þjóðviljans I gær. Hins
vegar er rétt að benda á þann
hugsunarhátt sem einkennir
Nixondýrkendurna á Morgun-
blaðinu (sbr. Stalindýrkun fyrr
á öldinni). 1 augum Morgun-
blaðsins eru smárikin ekkert
annað en peð, sem stórveldin
geta fórnað að eigin geðþótta,
og eflaust telur blaðið ekkert
athugavert við það, að Island sé
eitt peðanna i hinu helga banda-
lagi Nato. Sjálfstæðismenn hafa
einnig alla tið verið þeirrar
skoðunar, að hlutverk Islands i
alþjóðamálum sé það eitt að
þjóna risanum (K) á taflborði
stórveldanna og sætta sig við
hvaða peðsfórn sem er. En i
skáklist alþjóðastjórnmálanna
er ávallt talið æskilegt að staðan
sé jöfn. Morgunblaðið hefur
ávallt skrifað mikið um nauðsyn
valdajafnvægis i heiminum.
Þannig var blaðið andvigt brott-
flutningi bandarisks herliðs frá
tslandi, þvi að einhliða brott-
flutningur gæti raskað valda-
jafnvæginu. Ef blaðið vill vera
sjálfu sér samkvæmt og hugsa
sina peðshugsun til enda, þá ætti
Morgunblaðið aö vera andvigt
þvi að Sovétmenn verði að
flytja brott hernaðarsérfræð
inga sina frá Egyptalandi nema
eitthvað komi á móti. Þvi skal
Morgunblaðinu bent á þann
möguleika, að Islendingar geri
sitt til að viðhalda valdajafn-
væginu og sendi bandarisku
hermennina heim frá Islandi.
Þá komum við i veg fyrir að
valdajafnvægið raskist, og
peðið islenzka i taflsveit Banda-
rikjanna drepið i skiptum fyrir
egypzka peðið og eftir eru jöfn
uppskipti á taflborði stórveld-
anna og þráskákin getur haldið
áfram.
err