Þjóðviljinn - 28.07.1972, Blaðsíða 12
PIÚÐVIUINN
Föstudagur. 28. júli 1972
Kvöldvarzla lyfjabúða vikuna
22.-28. júli er i Laugavegs Apó-
teki og Holts Apóteki. Nætur-
varzlan er i Stórholti 1.
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara
Læknafélags Reykjavikur,
simi 18888.
Slysavarðstofa
Borgarspitalans er opin all-
an sólarhringinn. Simi 81212.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
vakt á heilsuvernarstöðinni.
Simi 21230.
Verkfall boðað
við allar
brezkar hafnir
Allsherjar verkfalli aflýst, en átökin
á vinnumarkaðinum halda áfram
LONDON 27/7 — Full-
trúasamkunda hafnar-
verkamanna í öllu Bret-
landi gaf i dag fyrirmæli
um verkfall við allar hafnir
landsins frá föstudegi að
telja. Hins vegar afboöaði
Alþýðusambandið — TUC
— allsherjarverkfall það
sem átti að vera á mánu-
dag. Var ekki lengur
grundvöllur fyrir þvi verk-
falli, þar eð hafnarverka-
mönnunum 5 var sleppt úr
haldi í gær.
Fulltrúar hafnarverkamann-
anna höfnuðu nýjum tillögum til
samkomulags sem leiðtogar
verkalýðsfélaganna höfðu mælt
meö. Féllu atkvæðin 38 gegn 28.
Margir af þeim hafnarverka-
mönnum sem höfðu verið i
„óopinberu” verkfalli hurfu aftur
til vinnu i dag, ásamt þeim þús-
undum af öðrum verkamönnum
sem höfðu lagt niður vinnu til að
lýsa yfir samstöðu með hinum
fimm fangelsuöu hafnarverka-
mönnum. En ákvörðunin um
verkfallsboðun við hafnirnar kom
svo seinna i dag. Hópur hafnar-
verkamanna i Norður-Englandi
hvarf úr vinnu i dag, þegar þeir
heyrðu fréttir af verkfallsboðun-
inni.
.lack Jones formaður i sam-
bandi flutningaverkamanna
harmaði i dag, að hafnarverka-
menn skyldu hafna þvi sam-
komulagi sem hann hafði tekið
þátt i að gera, en i þvi fólst m.a.
að stairri hluti af vinnu við gáma
skyldi koma i hlut hafnarverka-
manna en áður hafði verið.
Wilson leiðtogi Verkamanna-
flokksins sagði á þingi, að menn
ættu að samþykkja samkomu-
lagsdrögin.
í gær, miðvikudag, þegar verk-
úúsundir af verkafólki komu saman á útifund á þriðjudaginn á Tower Hill i London og héldu þaðan
fylktu liði til Penonville-fangelsisins til að mótmæla frelsissviptingu 5 hafnarverkamanna.
föllin náðu hámarki, var talið að
170 þúsund manns hafi veriö frá
vinnu. Þar af voru um 40 þúsund
hafnarverkamenn, en hitt voru
strætisvagnastjórar, prentarar
námuverkamenn, málmiðnaðar-
verkamenn og starfsmenn flug-
valla. Nokkrum klukkustundum
eftir að vinnumáladómstóllinn
gaf út skipun sina um að sleppa
hinum 5 fangelsuöu mönnum,
hvöttu flest verkalýðsfélög með-
limi sina til að hverfa aftur til
vinnu.
Mikil aukning
í brezka
setuliðinu
Kúgunarstefna hvítu minnihlutastjómarinnar í Rhódesíu
r
—■ á Norður-Irl a n di. Hermdarverk
Tangwena-menn útlægir
úr eigin heimkynnum
SALISBURY 27/7 — Ródesisk-
ar öryggissveitir fluttu i gær um
100 börn af ættkvisl Tangwena frá
heimilum þcirra til bæjarins Um-
tali eftir að fullorðið fólk ættkvisl-
arinnar hafði — að þvi er formæl-
cndur stjórnarinnar herma — yf-
irgefið hús sin og hyski og flúið til
fjalla.
Minnihlutastjórn hvitra manna
i Rhódesiu undir forustu hins al-
ræmda lan Smith færir sig æ
meira upp á skaftið i viðskipt
um sinum við hina svörtu frum-
byggja landsins og rekur þá mis-
kunnarlaust frá beztu hlutum
landsins og lýsir þau svæði frið-
helg fyrir hvitt fólk af Evrópu-
stofni. Og einmitt þetta hafði
gerzt með Tangwena-ættkvislina,
að hún er þessa dagana rekin eins
og búfénaður úr heimkynnum
sinum og flutt nauðungarflutningi
i annað landshorn.
Þeir sem til náðist af hinum ó-
hlýðnu Tangwena-mönnum voru
dregnir fyrirdóm og ákærðir fyr-
ir að dvelja á landssvæði sem
hvitum einum væri ætlað. Voru
þeir bæði sektaðir og fengu skil-
orðsbundinn fangelsisdóm. Einn
þessara dæmdu manna sagðist
heldur vilja deyja en hverfa frá
ættarheimkynni sinu: ,,Ég get
ekki skilið aö ég sé að gera neitt
rangt, þótt ég búi þar sem ég er
fæddur”.
Castro telur Nixon
verri en Hitler
HAVANA27/7 — Fidel Castro,
forsætisráðherra Kúbu hélt ræðu
frammi fyrir miklum mannfjölda
á þjóðhátiðardaginn i gær. Hann
kvað Kúbumenn staðráðna i þvi
að fylgja eigin stjórnarstefnu og
reiðubúna til að standa á eigin
fótum án tengsla við Bandarikin
næstu 20 árin.
Castro bar lof á Sovétrikin fyrir
þá aðstoð sem þau veittu Kúbu.
Hann tjáði Perú þakkir fyrir að
hafa brotizt úr viðjum banda-
riskrar utanrikisstefnu og viður-
kennt Kúbu nú fyrr i þessum
Barizt áfram
í Víetnam
SAIGON, PARIS 27/7 — Þjóð-
frelsisherinn i Vietnam tók i gær-
kvöldi virkið Bastogne sem er 20
kflómetrum fyrir vestan Hue og
mikilvæg vörnum þeirrar borgar.
Virkið hafði áður fallið honum i
hendur seinast i april, en hann
misst það siðar.
í dag tókst Saigon-hermönnum
að draga sinn fána að hún á
kastalanum i Quang Tri, en þá
geisuðu enn bardagar innan
kastalans. Bandariskar B-52 risa-
þotur gerðu i dag sprengjuárásir
á stöðvar þjóðfrelsishersins 8
kflómetra frá Quang Tri.
152. samningafundur Vietnama
og Bandarikjamanna var haldinn
i Paris i dag. Aðilar skýrðu
sjónarmið sin án samkomulags.
Kissinger og Le Duc Tho hittust
siöast heimullega þann 19. þ.m.
Sprengja stifl-
99
uraar „óvart
WASIIINGTON 28/7 — A mið-
vikudag viðurkenndi formælandi
bandariska utanrikisráðuneytis-
ins að'- bandariskar flugvélar
hefðu hæft stiflugarða i Norður-
Vietnam, en það hefði verið
,,óvart” og aðeins valdið „minni-
háttar og tilviljunarkenndu”
tjóni. Þctta er i fyrsta sinn sem
Bandarikjamenn viðurkenna að
loftárásirnar hafi snert áveitu-
kerfið i Norður-Vietnam.
mánuði. Auk Perú hafa Mexikó,
Jamaika og Chile stjórnmála-
samband við Kúbu, ein Ameriku-
landa.
Sem tákn um samstöðuna með
vietnömsku þjóðinni var aðal-
samningamaður Þjóðfrelsisfylk-
ingarinnar i Paris, Nguyen Thi
Binh, heiðursgestur við hátiða-
höldin. Castro sagði i ræðu sinni
að ekki væri unnt að afbera leng-
ur striðsrekstur Bandarikja-
manna i Vietnam, og hann kvað
Nixon verri striðsglæpamann en
jafnvel Hitler vegna loftárásanna
á áveitukerfi Norður-Vietnams.
Fram kom i ræðu Castros sú
einlæga von að sambúðin við
Bandarikin mætti fara batnandi.
halda áfram og UDA boðar
skemmdarverk í Derry
BELFAST 27/7— Brezka
stjórnin ákvað í dag að
senda 4 þúsund manna
brezkt lið til viðbótar til
gæzlu á Norður-irlandi.
Eftir nokkra daga verður
þá tala brezkra hermanna
á Norður-írlandi komin upp
i 21 þúsund, og hafa þeir
aldrei verið fleiri undan-
farin 3 ár.
I morgun fundust 2 menn látnir
i flakinu af brenndum bil i Bel-
fast. Hafa 64 látizt i átökum og af
hermdarverkum siðan vopnahléi
lauk 9. júli, en heildartala látinna
er 416 siðan brezkir hermenn voru
kvaddir til gæzlu i ágúst 1969.
í dag voru margar sprengingar
i Belfast bilastæðishús og hús
gagnaverzlun eyðilögðust. Þetta
eru fyrstu sprengingarnar siðan á
föstudaginn i fyrri viku þegar 9
manns létust og 130 sködduðust i
spreng jutilræðum.
Að áliðnum degi sprakk
sprengja i fullsetinni drykkjarkrá
i viðskiptahverfi i Belfast; einn dó
þegar og annar er hætt kominn.
Kráin gereyðilagðist, og særðust
jafnvei vegfarendur úti á götu við
sprenginguna.
Fyrrverandi dómsmálaróðherra Johnsons
fer með nefnd til að rannsaka
Stríðsglæpi
Nixons í
V í etnam
MOSKVU 27/7 — Ramsey Clark
seni var dóinsmálaráðherra
Bandarik janna seinasta skciðið
af forsetatið Johnsons fer á morg-
un til Norður-Vietnam ásamt full-
trúum alþjóðlegrar nefndar sem
rannsakar bandariska striðs-
glæpi i Indó-Kina. Einkum mun
nefndin kynna sér loftárásir á
áveitukerfi og önnur skotmörk
sem ekki teljast hernaðarleg, svo
og notkun sérstakra drápstækja
svo sem nálasprengja.
Ofgasamtök mótmælenda UDA
hafa hvatt félaga sina til aö setja
afgirtu kaþólsku borgarhverfin i
Derry i oliubann svo að brezki
herinn eigi auðveldari leik i á-
hlaupi á „frjálsu Derry”. Ætlazt
er til að oliuflutningabilar á leið
inn i Bogside og Creggan séu
stöðvaðir og olian gerð ónothæf
með sandi og rusli.
Símavændi
í Róm
RÓM 27/7 — Komizt hefur upp
um viðtækt simavændi i Róma-
borg, og hefur 40 ára gömul kona
verið ákærð fyrir að hafa tælt
ungar stúlkur út i vændi og fyrir
auðgun á lauslæti annarra. Helm-
ingnum af þvi gjaldi sem við-
skiptavinirnir greiddu stakk hún i
eigin vasa, en meöal þeirra var
margt auðugra manna, iðnjöfrar,
stjórnmálamenn og leikhúsmenn.
Stúlkurnar voru flestar vart
komnar af barnsaldri.
Geislavirk
úrkoma
á Nýja-
Sjálandi
CHRISTSCHURCH Nýja Sjá-
landi 27/7 — Visindamaður á
Nýja Sjálandi hefur fundið geisla-
virkni i úrkomu eftir siðustu
kjarnorkutilraunir Frakka við
Mururoa i Suður-Kyrrahafi.
Forstöðumaður Rannsóknarstofu
rikisins um geislavirkni hefur
staðfest að fundizt hafi joð i mjólk
á vesturströnd syðstu eyjunnar i
rikinu, og einnig hafi orðið vart
við hættulega mikla geislavirkni i
rigningarvatni i höfuðborginni
Auckland.