Þjóðviljinn - 29.07.1972, Page 8
8. SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur. 29. júli 1972
EVARAAAM:
AAANNFALL
OG
AAEYJAVAL
—Ég fann hann uppi i Kleif með
hópi af stórum strákum, sagði
Gunda. — Og mér þótti rétt að
koma honum hingað, ef þér væruð
farnar að undrast um hann.
—Þakka yður kærlega fyrir
sagði móðirin innilega. — Þér
eruð Gunda Henriksen, er það
ekki'? Viö höfum oft tekið bensin
hjá yður. Nei, það er ekki auðvelt
að vera i vinnu, meðan börnin eru
litil, það er satt og vist. En hvað
skal gera? Það eru bókstaflega
engir leikvellir i Totta. Jú,
reyndar er gæzluvöllur rétt hjá
kirkiugarðinum, en þar er alltaf
yfirfullt.
—Hún leit á Gundu og það var
eins og hún fengi allt i einu góða
hugmynd.
—Þessu verðiö þér að berjast
fyrir, ef þér komizt i bæjarstjórn,
frú Henriksen! Fleiri barnaleik-
velli i Totta. ó, að hugsa sér ef
þér gætuð komið þvi i kring.
—Já, þá er eina ráöið að kjósa
Káta kvennaflokkinn, sagði
Gunda og drap tittlinga. — Þá
tökum við málið upp!
—Þá fáið þið öll atkvæðin hér i
götunni, sagði móðirin, — þvi aö
íiér eru býsn af börnum! Og þeg-
ar sjórinn éf svona alveg i
nágrenninu, þá ættuð þér að
skil ja hvernig manni liður
stundum.
— Já, auövítað, sagði Gunda.
— En nú verð ég að flýta mér
heim og setja yfir kartöflurnar.
Ég bað manninn minn að gera
það, en karlmenn hafa ekkert vit
á sliku. Ég er viss um að hann
þekkir ekki muninn á kartöflu og
lauk, veslingurinni.
— Já, þessir karlmenn, sagði
úrsmiðsfrúin og hló. — Hver
skyldi halda að þeir notuðu stund-
um höfuðið til að hugsa.
Gunda steig veifandi upp i
vörubilinn og var komin aftur aö
Henriksenshúsinu eftir nokkrar
minútur. Hermann stóð með
vandlætingarsvip við eldavélina
og íylgdist með kartöflunum.
— Þetta er meiri þeytingurinn
á þér. Hér er ekki lag á nokkrum
sköpuðum hlut. Enginn matur og
allt i ólestri. Littu á.
i
Enn cinu sinni er hann Geir
borgarstjóri kominn i klærnar
á kommunum. Nú eru þeir
sem sé farnir að rífa sig út af
smáskekkjum og ruglingi i
reikningshaldi borgarinnar,
rctt eins og borgarstjórinn
hafi ekkert annað að gera á
þessum umbrotatimum en elt-
ast við einhverjar hégómlegar
bókhaldsreglur. Nei, nú teflir
borgarstjórinn valdatafl á
öðru borði, og þá skipta milj-
ónir ekki máli. Vasabókhald
er jafnvel heimilt á meðan.
Hann sýndi sokkana sina, þar
sem tvær stórar tær höföu fundið
leið til frelsisins, i gleði sinni yfir
þessu höfðu þær atað sig i oliu og
bensini eins og börn i sólskini.
— Nú er maturiin bráðum tii,
sagði Gunda.
Arild kom inn rétt i þessu,
óhreinn og með annað augað
lokað.
— Mamma, þeir eru að syngja
um þig, hixtaði hann.
— Þarna sérðu hvað af þessu
leiðir, hrópaði Hermann reiði-
lega.
— Þeir eru að syngja — syngja
um græningjann hana Gundu,
snökti Arild i uppnámi.
— Hafðu ekki áhyggjur af þvi,
vinur minn, sagöi Gunda og þvoöi
augað úr volgu vatni. — Mér
fannst þetta ágætur söngur. Og
þegar við erum búin að borða,
skal ég kenna þér annan texta,
sem þú getur sungið þegar hinir
syngja sinn. Svona nú, hættu að
gráta, og þá færðu pylsur. Hvar
er Bárður?
— Hann er að teikna uppi i her-
berginu sinu, sagði Arild, tára-
flóðið haföi minnkað, það breytt-
ist smám saman i hægt sirennsli,
siöan i slitrótta sprænu, unz ekk-
ert varö eftir nema stöku andkaf,
eins og þegar silungur glefsar
eftir lofti.
— Bárður, kallaði GunuS upp
stigann. — Bárður! Heldurðu að
þú getir teiknað á tvö spjöld i viö-
bót?
— Já, já, hrópaði Bárður að
ofan. — Hvað á að standa á þeim,
mamma?
— A öðru á að standa: VIÐ
VILJUM EKKI LATA RtFA
KLEIFINA! og á hitt geturðu
sett: VIÐ VILJUM FLEIRI DAG-
HEIMILI t TOTTA!
Hermann barði hnefanum i eld-
húsborðið svo að hnifar og gafflar
tókust á loft.
— Ertu farin að draga dreng-
ina inn i pólitikina !
— Nú er maturinn til, söng
Gunda eins og óperusöngkona.
Bárður stóð i stiganum og
hrópaði i fagnandi sköpunar-
gleði:
— Ég teiknaði á þau blóm og
hjörtu, mamma! Helduröu að það
verði ekki flott?
Hermann þandi sig út eins og
rostungur og barði aftur i eldhús-
borðið, en Gunda og drengirnir
voru komin inn i borðstofu.
— Komdu nú, Hermann, ann-
ars kólnar maturinn!
— Úff, stundi Hermann af heil-
um hug. — Þetta kvenfólk! Hvað
var drottinn að hugsa þegar hann
skapaði það!
Eftir matinn gat Gunda þess i
framhjáhlaupi að hún væri dálitið
önnum kafin og yrði að skreppa út
um sexleytið.
— Ætlarðu aftur út i kvöld?
sagði Hermann og lét dagblaðið
siga með skelfingarsvip. — Ertu
alveg hætt að hugsa um heimilið
þitt?
— Ég lofaði að koma á fund i
húsmæðrafélaginu, sagði Gunda.
— Þær verða að fá að vita hvað er
á stefnuskrá hjá kvennaflokkn-
um, ef þær eiga að kjósa okkur.
Og á eftir hafði ég hugsað mér að
skreppa á spitalann.
— Gera hinar kerlingarnar þá
ekki neitt? sagði Hermann
ólundarlega bak við blaðið.
— Jú, mikil ósköp. Brita er
búin að fara á elliheimilið og
Laura til þriggja trúboðsfélaga
og Liva —
— Þakk fyrir, ég hef engan
áhuga á þvi sem þessi græningja-
flokkur er að aðhafast, sagði Her-
mann.
— Já, græningjar, eins og þeir
segja — Bárður!' Arild! Komið
hingað og ég skal kenna ykkur
annan texta við lagið, þið munið!
Strákarnir komu þjótandi og
settust spenntir fyrir framan
hana. Hún fór að raula og Arild og
Bárður rauluðu með:
Hver er að koma?
Hver kemur þar?
Já, hver kemur þar?
Jú!
Það er kátur kvennaflokkur,
karlmennirnir óttast okkur!
Og kosningarnar vinnum við.
Hæ, hæ, húrra!
Hæ, hæ, húrra!
Er þetta ekki fint? Tökum þetta
aftur, strákar:
Hver er að koma —
Strákarnir tóku undir af hrifn-
ingu, en Hermann faldi sig bak
við dagblaðið og eina hljóðið sem
hann lagði af mörkum i kórsöng-
inn var djúp og innileg sársauka-
stuna.
XI
En það var ekki bara á heimili
bilasmiðsins sem brakaði i sam-
skeytunum. Konurnar i Totta
voru orðnar bandóðar: það var
almennt álit karlmannanna. 1
stað þess að tala um barna-
uppeldi og bezta þvottaefnið og
hátt verðlag á matvörum eins og
konum bar, þá óðu þær skeleggar
út á götur og torg og ræddu
stjórnmál. Og ekki fjarlæg stjórn-
mál eins og til að mynda vanda-
málin i Suður-Afriku eða léleg
kjör svertingjanna i Banda-
rikjunum, heldur einkamál
Tottabæjar, viðkvæm mál sem
ástæðulaust var að hafa i háveg-
um. Var þá nokkuð að undra þótt
hver einasti rétthugsandi karl-
maður hristi höfuðið i uppgjöf og
örvilnun og óskaði þess að þeir
timar væru aftur upp runnir þeg-
ar konur höfðu ekki kosningarétt.
Og þessar þrjátiu og fimm,sem
léð höfðu nöfn sin á þennan
smánarlega kvennalista, lágu
ekki á liði sinu við að koma boð-
skapsinum á framfæri. Þær tróðu
sér alls staðar inn: ef það var
fundur i íoreidrafélaginu með
stjórnarkjöri á dagskrá, þé var
ekki að vita nema Liva Torén sæti
þar og spyrði hvort ekki væri rétt
að ræða ögn um hið ófullkomna
hoiræsakerfi i Totta, og i vikuleg-
um bridgeklúbb karlmannanna i
Alþýðuhúsinu bar ekki á öðru en
framreiðslustúlkan færi einn
daginn að tala um hið háleita
hlutverk kvennaflokksins. 1 miðju
alslemmi. Þær báru ekki virðingu
fyrir neinu.
Það var komiö fram i septem-
ber, og rósirnar stóðu i blóma um
allan Totta-bæ. Bærinn var eins
og skrúðgarður, ilmandi af fegurð
og yndisleik en karlmennirnir i
Totta áttu ekki auðvelt meö að
gleðjast yfir þvi. Þeir horfðu
áhyggjufullir á þróunina, og
margir þeirra áttu i mestu vand-
ræðum með eiginkonurnar.
Jens Storhaug bæjarstjórnar-
forseti var til að mynda svo miður
sin af áhyggjum, að hann sá varla
eina einustu rós þegar hann ók
fram og til baka milli ráðhússins
og einbýlishússins bakvið
kirkjuna i fallega, nýja
Mercedes-bilnum sinum. Og þó
var kirkjugarðurinn ein rósa-
breiða, hver einasta gröf var
rósadýrð: gullnar og dökkrauðar,
Poulsen og Grootendorst, Peace
og Hamburger Phönix, allt
lagðist á eitt þessa hlýju septem-
berdaga til að gera Totta að
ilmandi Paradis á jörð i miðri
kosningabaráttu og byrjandi
kvenfaraldri. Paradis, það er nú
svo!
Jens Storhaug brosti þunglyndis-
lega: gráyrjótt, hrokkið hárið
hafði gránað enn meira upp á sið-
kastið og við munnvikin höfðu
hrukkurnar dýpkað. Þetta hafði
hún Laura gert honum, hún
Laura hans! Hún var gjaldkeri i
Káta kvennaflokknum og hafði
dregið ósómann með sér inn i
hans eigin stofur, að hans eigin
skrifborði! Þar sat hún timunum
saman og útfyllti félagsskirteini
og sendi út beiðni um greiðslu á
félagsgjaldi, 5 krónum, og það
var geysileg vinna, þvi að félags-
talan var að nálgast niu hundruð
og fór stöðugt vaxandi.
—Er þetta ekki ánægjulegt,
Jens? sagði hún ef til vill við hann
og augu hennar ljómuðu, meðan
hún þandi ritvélina með sama
röskleikanum og hún hafði áður
þvegið gólf og föt. Hún notaði tvo
fingur og skrifaði x og y i stað
annarra bókstafa sem áttu betur
við, en hún hafði ekki áhyggjur af
sliku, og bréfin runnu i striðum
straumum út um Tottabæ.
Þetta var nú svo sem nógu
slæmt. En verra var þó, að hún
lagði sig alla fram við að vinna
gegn hinni merku áætlun hans um
bilastæði á Grænavangi.
Og það var óskadraumur hans
og hugsjón.
Þetta torg hafði átt að gera
nafn hans frægt og rómað að
eilifu, einnig eftir að hann hafði
vikið úr sæti forseta. Tilhugsunin
um að sá timi kæmi að hann sæti
ekki framar i forsetastólnum var
honum kvalræði, en slikt varð
hver maður að horfast i augu við,
það var lifsins gangur. Og þá
myndi Torg Storhaugs forseta
vera minnisvarði um gerðir hans.
Torg Storhaugs forseta — já,
hann vissi ekki nema betra væri
að hafa skirnarnafnið með. Torg
Jens Storhaugs forseta — Hann
smjattaði á nafninu, lét það renna
á tunginni eins og finan og
mjúkan ost, velti þvi um hugann
og rýndi i þaö frá öllum sjónar-
hornum. Var þetta kannski
fullþunglamalegt? Já, það gat
verið. Torg Storhaugs forseta var
betra. Eða þvi ekki Torg Jens
Storhaugs?
Þessir þankar voru timafrekir:
hann gat setið timunum saman á
skrifstofu sinni og velt fyrir sér
hvaða nafn myndi sóma sér bezt i
augum eftirkomendanna.
Og hann teiknaði hverja til-
löguna af annarri. Torg Jens
Storhaugs eða Torg Storhaugs
forseta — það var verst að hann
skyldi ekki geta ákveðið sig! —
átti að verða bilastæði með þvi-
likum glæsibrag að annað eins
fyrirfyndist ekki á öllum Norður-
löndum. Yfir öllu saman átti að
vera þak og veitingahús ofaná
þvi! marmaragólf og básar fyrir
blaðasölu og minjagripi og sæl-
gæti, með blómaskreytingum og
gosbrunni og gullfiskum i keri og
bilabiói til fróðleiks og
skemmtunar. Það hafði fyrir
löngu verið sett nefnd á laggirnar
til að undirbúa málið, og hann var
sjálfur formaður nefndarinnar.
Þó það nú lika væri!
En hún Laura, hÚR Laura hans!
Sem aldrei fyrr hafði andmæit
honum með einu einasta orði.
Sem hafði kosið eins og hann og
haft sömu skoðanir og hann. Eins
og hann myndi ekki hvað hún var
vön að segja:
—Mér finnst að konur ættu ekki
að skipta sér af pólitik. Þess
vegna kys ég verkamanna-
flokkinn eins og Jens, þvi að hann
hefur betra vit á sliku. Auk þess
hef ég engan tima. Börnin og
heimilið, þvotturinn og matseldin
er nóg fyrir mig.
En siðan hún gekk i Káta
kvennaflokkinn i Totta hafði orðiö
á henni skelfileg breyting. Nú
hafði hún svo sannarlega nægan
tima aflögu. Það kom ekki fyrir
að hún bakaði köku, og heimilið
var á rúi og stúi meðan hún var
eins og útspýtt hundskinn við að
stússa i áróðri og stjórnmálum.
Gegnhonum, eiginmanni hennar,
og hjartans máli hans.
Hann hafði sina heimildarmenn
sem gáfu honum skýrslur.
Verkstjórinn i húsgagnaverk-
smiðjunni haföi sagt honum að
hún hefði komið þangað að
morgni dags og hvatt verka-
konurnar með eldlegri tölu ofanaf
smjörlikiskassa: hún kreppti
hnefana eins og rauðglóandi
kommi og lét allt flakka.
—Stelpur. kallaði hún. — Nú
höfum við tækifærið til að halda i
Grænavang. Kjósið Káta kvenna-
flokkinn i Totta. Við i Kvenna-
flokknum samþykkjum aldrei að
karlmennirnir eyðileggi eina al-
mennilega leikvöllinn okkar. Ég á
sjálf þrjá stráka og þeir eru að
leik allan daginn niðri á Græna-
vangi. En karlmennirnir hugsa
aðeins um bilana sina og muna
aldrei eftir börnunum. Nei,
kjósum konur i bæjarstjórnina!
Mæður sem vilja að börnunum
þeirra liði vel. Bill er nú einu sinni
ekki annað en bíll, nokkur hjól og
stýri og vél, börnin, stelpur,
börnin okkar, þau eru framtiðin.
Leyfum karlmönnunum að leggja
bilunum sinum hvar sem þeir
vilja, en ekki á Grænavangi.
LAUGARDAGUR
29. júlí
7.00 Morgunútvarp.
Veðurfregnir kl. 7.00 8.15 og
10.10. Fréttir kl 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl) 9.00 og
10.00 Morgunbæn kl. 7.45
Morgunlcikfimi kl. 7.50
•Morgunstund barnanna k
8.45. Einar Logi Einarsson
les sögu sina ,,Strákarnir
viðStraumá sögulok (6) Til
kynningar kl. 9.30. Létt lög
milli atriða. Laugardags-
lögin kl. 10.25. Stanz kl.
11.00 Jón Gauti Jónsson og
Árni Ólafur Lárusson sja
um þáttinn.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.13.00 óskalög
sjúklinga Kristin Svein-
björnsdóttir kynnir.
14.30 i hágir. Jökuli Jakobsson
sér um þáttinn.
15.00 Fréttir.
15.15 IIIjómskálamúsik. a.
Hljómsveit Lou Whitesons
leikur lög eftir Smetana,
Delius o.fl. b. Hljómsveit
Kurt Edelhagen leikur lög
eftir Rodgers, Berlin og
Wright-Forest. c. Vico
Torriani syngur með hljóm-
sveit Bels Sanders. d.
Hljómsveit Joe Loss leikur
lög eftir Albinoni, Bach,
Debussy o.fl.
16.15 Veðurfregnir. A nótum
æskunnar. Pétur
Steingrimsson og Andrea
Jónsdóttir kynna nýjustu
dægurlögin.
17.00 Fréttir. Heimsmeistara-
einvigið i skák.
17.30 Frckjan, 9. og siðasti
lestur.
18.00 Fréttir á ensku.
18.10 Söngvar i léttum dúr.
Kór og hljómsveit Rays
Conniffs flytja lög úr kvik-
myndum.
18.30 Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Beint útvarp úr Matt-
hildi.
19.45 A Ólafsvöku. a. Halldór
Steíánsson flytur pistil um
þjóðhátiðarhöld Færeyinga.
b. Færeysk smásaga:
„Böðullinn” eftir Jens Pauli
Heinesen. Helma Þórðar-
dóttir les. c. Astriður
Eggertsdóttir rifjar upp
horfna tið i samskiptum Is-
lendinga og Færeyinga. d.
Hugrún skáldkona flytur
frásöguþátt um „Sönginn i
sjóhúsinu” eftir Kristinu
Rögnvaldsdóttur á Ólafs-
firði. — Ennfremur færeysk
tónlist.
20.40 Framhaldsleikrit:
„Nóttin langa” eftir Alistair
McLean.Sven Lange bjó til
flutnings i útvarp. Þýðandi
Sigrún Sigurðardóttir. Leik-
stjóri Jónas Jónasson. Per-
sónur og leikendur i fjórða
og siðasta þætti: Mason
læknir — Rúrik Haraldsson
Jackstraw — Flosi Ólafsson,
Joss — Guðmundur
Magnússon, Margaret Ross
— Valgerður Dan, Johnny
Zagero — Hákon Waage,
Solly Levin — Árni Tryggva-
son, Nick Corazzini — Jón
Sigurbjörnsson, Séra Small-
wood — Gunnar Eyjólfsson,
Marie LeGarde — Inga
Þórðardóttir, Helene
Fleming — Lilja Þórisdóttir,
Frú Dansby-Gregg —
Hrafnhildur Guðmunds-
dóttir, Theodore Mahler —
Jón Aðils,Hoffman Brewster
— Bessi Bjarnason,
Hillcrest — Guðmundur
Pálsson.
21.35 Blanda af tali og tónum.
Geir Waage kynnir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
SENDIBÍLASTÖÐIN Hf