Þjóðviljinn - 29.07.1972, Page 12

Þjóðviljinn - 29.07.1972, Page 12
DJÚDVIUINN Laugardagur 29. júli 1972. Kvöldvarzla lyfjabúða vikuna 29. júli til 4. ágúst er i Lyfja- búðinni Iðunni og Garðs Apóteki. Næturvarzla er i Stór- holti 1. Almennar upplýsingar um læknaþjónustu borgarinnar' eru gefnar I simsvara Læknafélags Reykjavikur, simi 18888. Slysavaröstofa Borgarspitalans er opin all- an sólarhringinn. Simi 81212. Kvöld-, nætur- og helgidaga- vakt á heilsuvernarstöðinni. Simi 21230. Saigon-herinn fer halloka í QuanTri Hafnbann og loftárásir eiga að svelta Norður-Yíetnama inni SAIGON 28/7 — Saigon-herinn hörfaði i dag út úr kastalavirkinu i Quang Tri og eftirlét það þjóð- frelsishermönnum eftir margra daga bardaga. Hermenn úr stjórnarhernum i Suöur-Vietnam eru nú utankastalamúranna og hafa skipun um að vinna virkið. Sveit úr stjórnarhernum tókst að vinna borgina Hoai An i strand- héraðinu Bihn Dihn um miðbik Suður-Vietnams. Hermálaráðuneytið bandariska greinir svo frá að hafnbannið á Norður-Vietnam og hinar viðtæku loftárásir á vegi, bryr og járn- brautir hafi leitt til þess að nú berist til landsins aöeins sem svarar tiunda hlutanum af þvi vörumagni sem flutt var inn að staðaldri fyrir 3 mánuðum. Ekk- ertskip hafi komizt inn fyrir tund- urdúflalagnir Bandarikjamanna úti fyrir Norður-Vietnam. Bandariska kvikmyndaleik- konan Jane Fonda var gestur Ilanoi-stjórnarinnar i Norður- Vietnam fyrir skemmstu og gafst þá kostur á að lita á stiflugarða sem bandariskar flugvélar höfðu varpað sprengjum á. Hún kom fram i útvarpinu i Hanoi og fordæmdi skipulagðar árásir á sjúkra- húsi, skóla og áveitukcrfi landsins. Myndin sýnir leik- konuna virða fyrir sér loft- varnabyssu i Vietnam. Nixon ber af sér fólskuverkin WASHINGTON 28/7 — Nixon Bandarikjaforseti boðaði i skyndi til blaðamannafundar á fimmtu- dagskvöld til að bera af sér ásak- Stuðningur WASHINGTON 27/7 — Tvö bandarisk verkalýðsfélög hafa hvatt meðlimi sina sem eru nær hálf miljón talsins til að styðja frambjóðanda Demókrata til for- setakjörs, George McGovern. Er hér um að ræða samband verka- manna i vefjariðnaði og hjúkrun- arsambandið. anir um loftárásir á áveitukerfin i Norður-Vietnam. Nixon réðst með dólgslegu orðbragði að Waldheim aðalframkvæmda- stjóra Sameinuðu þjóðanna fyrir hógvær ummæli hans um spreng- ingarnar. bó játaði Nixon að „minniháttar skemmdir hefðu orðið á þýðingarlitlum hlutum stiflugarðanna”, en neitaði þvi að loftárásum væri að þeim beint. Forsetinn fór með margar tölur um hervirki Norður-Vietnama i Suður-Vietnam og talaði um „villimannlega innrás”, en gat að engu eyðileggingar sem banda- riski herinn vinnur á landinu. Verkfall hafnarverkamanna i Bretlandi algert Brezka stjórnin kvíðir efnahagserfiðleikum LONDON 28/7 — Allir hafnar- verkamenn Bretlands, 42 þúsund að tölu.hófu i dag verkfall sem lokar öllum höfnum i landinu; er Kínverjar staðfesta fregnir um lát Líns ekki búizt við skjótri lausn á deil- unni, og samningaviðræða milli leiðtoga hafnarverkamanna og atvinnurekenda hefst i fyrsta lagi á mánudaginn. Er nú óttazt að miklir erfiðleik- ar komi upp i brezku atvinnulifi, ef ekki verður samið við hafnar- verkamennina, þvi að stöðvun innflutnings mundi leiða til hrá- efnisskorts i iðnaðinum. Brezka stjórnin kviðir þvi að vinnudeilan veiki efnahagslifið og geti falið i sér hættur fyrir hið „fljótandi” pund á gjaldeyrismörkuðum. Brezka stjórnin ihugar þvi hvort hún eigi ekki að lýsa yfir „undantekningarástandi” til að geta sett hermenn til uppskipun- arstarfa. Um 500 skip biða nú fyrir utan brezkar hafnir eftir þvi að verk- fallið leysist. Einhver skipanna verða sjálfsagt semd til hafna á meginlandinu, en flest munu biða áfram. Brezku blöðin gátu komið út i dag eftir margra dagaverkfall prentaranna. Töldu þau að hafn- averkfallið gæti truflað efnahags- lifið verulega og ef til vill neytt rikisstjórnina til að huga að nýj- um kosningum. Ihaldsblaðið Dai- ly Telegraph skrifaði i þessu sambandi um skipulagningu af hálfu kommúnista. Eitt af sendiráðum Kin- verska alþýðulýðveldisins hefur nú loks staðfest orð- róminn um slysalegt andlát Lín Piao, eins af forystu- mönnum kínverska komm- únistaflokksins, og vélræði hans gagnvart Maó for- manni. Sem ,,náinn vopna- bróðir" AAaós var Lin út- nefndur eftirmaður for- mannsins á flokksþingi 1969. Tveimur árum siðar er hann allur, og enn ári eftir það fær hann þau op- inberu eftirmæli sem til er vitnað hér á eftir. Lín Piao varð 63ja ára gamall. ALGEIRSBORG 28/7 — Kin- verska sendiráöið i Alsir staðfesti opinberlega i dag að Lin Piao, fyrrverandi hermálaráðherra Kina og „eftirmaður Maós for- manns” hafi farizt i flugslysi 12. september i fyrra yfir Mongóliu. Hafði hann þá gert tilraun til að ráða sjálfan formanninn af dög- um, en það farið út um þúfur. í yfirlýsingu sem sendiráðið gaf tveimur alsirskum blaðamönnum og itrekaði gagnvart Reuter- fréttastofunni segir svo m.a.: Lin Piao-málið endurspeglar baráttu milli tvenns konar höfuð- stefnu sem lengi hafði þróazt inn- an kinverska kommúnistaflokks- ins. Lin gerði sig sekan um mis- tök hvað eftir annað og Maó var honum oft ósammála. Stundum var sett ofan i við Lin og gat hann þá unniö margt til þarfa. Meðan i hinni miklu menningarbyltingu öreiganna stóð lézt hann styðja hugsanir Maós formanns og rak fyrir þeim áróður. Þannig tókst honum að blekkja almenning og verða arftaki Maós. En hann var maður sem lék tveim skjöldum og barðist i reynd gegn byltingar- stefnu Maó Tse-tung og þeirri byltingarsinnuðu utanrikisstefnu sem hann mótaði, einkum eftir 9. flokksþingið. Lin rak flokksfjand- samlega starfsemi i þeim tilgangi aö taka völdin i flokki, stjórn og her. Maó Tse-tung kom upp um samsæri Lins og stöðvaði aðgerð- ir hans. Maó reyndi að leiða hann aftur á rétta braut, en Lin breytti ekki öfugsnúnu eðli sinu. Hann gerði tilraun til stjórnarbyltingar og reyndi að stytta Maó aldur. Þegar áform hans splundruðust flúði hann i flugvél i átt til Sovét- rikjanna en vélin hrapaði á leið- inni. Fregnir berast um að fleiri sendiráð, svo og háttsettir menn i Peking, leysi nú frá skjóðunni um háttsemi Lins. Viðræður um viður- kenningu á A-Þýzkalandi HELSINGFORS 28/7 — A mánudaginn hefjast viðræður i Helsingfors milli fulltrúa Finn- lands og Austur-Þýzkalands um stjórnmálasamband milli land- anna. Ef jákvæður árangur næst verður Finnland fyrsta „vest- ræna” rikið sem viöurkennir Austur-Þýzkaland. Finnland hef- ur hingað til hvorki haft stjórn- málasamband við Vestur- né Austur-Þýzkaland, en skipzt við þau á verzlunarsendinefndum með föstu aðsetri i höfuðborgum landanna. N áttúruhamf arir á Filippseyjum MANILA 28/7 — Mikil úrkoma olli nýjum flóðum á Luzon á Filippseyjum i dag, og versnaði við það enn aðstaða hinna mörgu sem urðu fyrir búsifjum vegna flóðanna i siðustu viku. Hjálpar- starfsemi hefur torveldazt vegna vegaskemmda. Nokkrir hafa far- izt i skriðuföllum. Flóðin i vikunni sem leið komu i kjölfar fellibyls, gerðu yfir tvær SATAN Það eru fjölbreytt nöfnin á tán- ingahljómsveitunum sem keppa um titilinn Táningahljómsveit landsins númer 1 á Húsafells- hátiðinni um verzlunarmanna- helgina. Þær heita: Satan,Goðá (frá Grimsstöðum á Fjöllum),Skóhljóð, Nýrækt og Námsfúsa fjólan. Það eru ófáar hljómsveitirnar, sem hafa byrjað sinn frægðarferil upp undir Eiriksjökli t.d. Nafnið og Gaddavir. En sem sagt — þessar keppa um titilinn laugar- dagskvöldið 5. ágúst. miljónir manna heimilislausar, og um 250 manns drukknuðu eða fórust með öðrum hætti. Gizkað hefur veriö á að tjón á mannvirkj- um og eigum nemi um 80 miljörð- um króna. Flóð þessi eru hin mestu á Filippseyjum á þessari öld. Sadat hafnar viðrœðum KAIRO 28/7 — 1 ræðu fyrir stúdenta við háskólana i Alexandriu á fimmtudagskvöld visaði Sadat Egyptalandsforseti frá tilboði Goldu Meir um beina samninga til að leysa deilumálin i Austurlöndum nær. Þetta er gildra sem mundi leiða til ófarn- aðar fyrir okkur sagði Sadat. Hann lá Bandarikjamönnum á hálsi fyrir að styðja slikar viö- ræður, en dæla um leið vopnum i Israelsmenn. — Hvernig ætti það að vera unnt að semja á meðan hlutar af landi okkar eru hersetn- ir?

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.