Þjóðviljinn - 10.08.1972, Síða 12
yúDvium
Fimmtudagur 10. ágúst 1972
Kvöldvarzla lyfjabúða vikuna
29. júli til 4. ágúst er i Lyfja-
búðinni Iðunni og Garðs
Apóteki. Næturvarzla er i Stór-
holti 1.
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara
Læknafélags Reykjavikur,
simi 18888.
Slysavarðstofa
Borgarspitalans er opin all-
an sólarhringinn. Simi 81212.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
vakt á heilsuvernarstöðinni.
Simi 21230.
Norskir sjó-
menn okkur
vinsamlegri
en danskir
Kaupmannahöfn /Osló 9/8.
Danska fiskimannasambandið er enn sem fyrr
harðasti andstæðingur okkar ísiendinga á Norður-
iöndum, hvað útfærslu landhelginnar viðvikur. í
gær barst dönsku stjórninni áskorun frá samband-
inu um að mótmæla útfærslunni kröftuglega, og
talsmenn fiskimannanna kváðust í dag vera von-
sviknir sakir dræmra viðbragða stjórnvalda.
Christian Thomsen, sjávarút-
vegsmálaráöherra Dana, kvaöst i
dag ekkert vilja segja um mál
þetta að svo stöddu, en sagði það
myndu verða tekið til umræöu á
fundi ráðherra rikissljórnar-
innar.
VKSTUR-bÝZKALANI) og Dan-
mörk kepptu i handknattlcik um
helgiua. Fyrri leikurinn endaði S-
8, cii sá siöuri 17-10 V-Þjóðverjum
i v í I.
MARK SI’ITZ (USA) setti heims-
inet i loo m skriösundi um li'elg-
ina, lékk timann 51,47 og .lohn
lleneken (USA) selti heimsmet i
200 111 hringusundi á 2.22.79.
Dönsku fiskimennirnir hafa
beðið félaga sina i Noregi og
Sviþjóð að taka þátt i sameigin-
legum aðgerðum gegn Islend-
ingum. Þeim tilmælum hefur enn
ekki verið svarað, og að sögn
norsku íréttastofunnar NTB er
næsta óliklegt að norskir fiski-
menn muni láta hafa sig til slikra
aðgerða. Hins vegar hafa þeir
larið þess á leit við stjórnina, að
hún reyni á einhvern hátt að
draga úr óæskilegum áhrifum af
útfærslu islenzku landhelginnar,
og ráðherrar sjávarútvegs og
utanrikismála sátu fund i dag
með lulltrúum sjómanna og út-
gerðarmanna og ræddu þar af-
stöðu Norðmanna.
Biskupapar
F ischers
dugði ekki til
Spasski þvingaði fram jafnteflið með fallegri fléttu
Það fór sem menn grunaði, að
tólfta skákin yrði jafntefli. Er
umslagið með biðleiknum hafði
veriðopnaðkom i ljós, að Fischer
hafði leikið Dc6 i biðleiknum eins
og flestir höfðu reiknað með.
Það kom hinsvegar i ljós, að
Spasski hafði tilbúna örugga vörn
sem neyddi Fischer til að láta af
hendi biskupaparið, en við það
hurfu yfirburðir hvits ef nokkrir
voru úr stöðunni. Þeir félagar
voru þó ekkert að flýta sér að
semja jafnteflið og tefldu ellefu
leiki til viðbótar áður en þeir
sömdu.
t fimmtugasta og öðrum leik
laumaði Spasski einfaldri fléttu á
Fischer sem leiddi til þess, að
hann vann peð, en þá kom fram
endatafl með mislitum biskupum
og sömdu þvi keppendur um jafn-
tefli.
Fyrri hluta einvigisins er þar
með lokið, og hefur Fischer for-
12. EINVIBISSKÁKIH ■ ■
einvigsskákin fer svo fram i
kvöld, og hefur Spasski hvitt, og
verður fróðlegt að sjá hvort þeir
tefla Sikileyjarvörnina aftur og
þá hverjar endurbætur Fischer
hefur fundið frá elleftu skákinni.
Lothar Schmidt yfirdómari
tekur saman taflmennina
aö lokinni skákinni.
ustu með sjö vinninga gegn fimm
vinningum Spasskis. Þrettánda
41. Dc(i
42. Be5
43. I)a8
44. Bxfli
45. Df3
46. g4
47. Kg2
48. Hcl
49. Ilal
50. Hcl
51. gxf5
52. Hel
53. Kxf2
54. Ke2
55. Kxf3
Jafntefli.
Biðleikur Fischers
Dc2
Hd2
Kh7
gxf6
f5
De4
Kg6
Ba3
Bb4
Be7
exf5
Hxf2
Bh4
Dxf3
Bxel
ólafur Björnsson.
Sœnski sjávarútvegsmálaráðherrann:
FÆRI EIINS AÐ OG LÚÐYÍK
Fréttamaður útvarpsins I Stokkhólmi greindi frá
þvi i fréttum útvarpsins i gærkvöldi, að orðsending
sænsku rikisstjórnarinnar i tilefni landhelgisút-
færslu við ísland yrði mjög varlega orðuð og gengið
eins langt til móts við íslendinga og frekast er unnt.
Bretland:
Atök milli verka-
manna og lögreglu
fimm hundruð manna lög-
regluliös, meö þeim afleið-
ingum aó tugir manna
særöust og fjölmargir
verkamenn voru handtekn-
ir.
Átökin hófust er yfirvöld skip-
uðu ófélagsbundnum verkamönn-
um til vinnu viö uppskipun, og sló
lögreglan hring um verkfalls-
brjótana til aö verja þá.
Yfirvöld segja þessar ósvifnu
ráöstafanir nauðsynlegar þar eð
koma þurfi nauðsynjavarningi til
ibúa Hjaltlands og Orkneyja, en
þar munu matvæli þvi nær til
þurrðar gengin.
Vinnuflokkur sem var að grafa
fyrir möstrum sem eiga að halda
uppi háspennulinum frá Búrfelli,
,-gróf i gær i sundur 28 simalinur
sem liggja um Suðurland.
Þessi sundurgröftur átti sér
stað við Krók i Flóa og var allt
Suðurlandsundirlendið austan
Selfoss simsambandslaust i gær-
kveldi.
Ekki var vitað i gær hvenær
viðgerð lyki. —ú.þ.
LONDON 9/8. í dag sló í
harða brýnu milli hafnar-
verkamanna i borginni
Scunthorpe í Skotlandi og
„Við viljum
mennina
okkar aftur”
BELFAST 9/8. Hundruð
kaþólskra ungmenna gengu
berserksgang i Belfast á
Norður-trlandi i dag og réðust
á lögreglustöðvar og kveiktu i
bilum til að mótmæla þvi, að
lög brezku stjórnarinnar um
frelsissviptingu án dóms hafa
nú verið i gildi um eins árs
skeið. Þá söfnuðust kaþólskar
konursaman fyrir utan ýmsar
lögreglustöðvar, og báru þær
spjöld sem á var letrað:
,Nemið lögin úr gildi’ , og ,,Við
viljum fá mennina okkar aft-
ur’ .
Einar Karl Haraldsson frétta-
maður rikisútvarpsins i Stokk-
hólmi átti i gær viðtal við sjávar-
útvegsráðherra Sviþjóðar. Ráð-
herrann sagði i viðtalinu að Sviar
styddu algerlega þær ráðstafanir
sem Islendingar kynnu að gera til
þess að friða fiskistofnana um-
hverfis landið. Ennfremur kom
fram að Sviar munu ekki mót-
mæla útfærslu landhelginnar við
Island.
En það var meginsjónarmið
ráðherrans aö Islendingar ættu
að biða með útfærsluna til haf-
réttarráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna. Ráðherrann itrekaði enn-
fremur, aö hann myndi gera
nákvæmlega það sama væri hann
i sporum Lúðviks Jósepssonar;
jafnvel færa landhelgina út strax
fyrir ráðstefnuna.
Það kom og fram i viðtalinu að
Sviar vona að tslendingar með-
höndli vinsamlega hugsanlegar
undanþágubeiðnirSvía um veiðar
i islenzku landhelginni.
— Af viðtali útvarpsins við
Bengtson kom greinilega fram að
frásagnir fjölmiðla erlendis og
hérlendis af mjög fjandsamlegri
afstöðu sænsku rikisstjórnar-
innar i garð útfærslunnar við
Island voru mjög orðum auknar.
Sabata fékk 61/2 ár!
PRAG 9/8. Dómur féll i gær
i máli tékkneskra yfirvalda á
hendur prófessor Jaroslav
Sabata, fyrrum aðalritara
deildar Kommúnistaflokksins
i Brno, og hlaut hann hálfs sjö-
unda árs fangelsisvist. Eins og
aðrirsakborningar i Brno, var
prófessor Sabata ákærður
fyrir undirróðursstarfsemi.
Alfred Cerny, sem fyrrum
átti sæti i miðstjórn tékkneska
Kommúnistaflokksins, hlaut
þriggja ára fangelsisdóm fyrir
sömu sakir, og fimm menn
aðrir voru dæmdir til allt að
fimm ára frelsisskerðingar.
Kommúnistaflokkur Italiu
hefur nefnt réttarhöldin i
Tékkóslóvakiu „ofsóknir
vegna pólitiskra skoðana”.
Allt klappað og klárt hjá Demókrötum:
Shriver hlaut samþykki
VVASHINGTON 9/8. Flokks-
s t j ó r n I) e m ó k r a t a f I o k k s i n s
bandariska samþykkti i gær-
kveldi útnefningu Sargent
Shrivers til varaforsetaefnis með
svo gott sein ölluni grciddum at-
kvæðum. Allir lielztu forkólfar
flokksins, svo sein þeir Edmund
Muskie, Edward Kenncdy, Mike
Mansfield og Hubcrt Humphrey,
voru viðstaddir atkvæðagreiðsl-
una. svo seni til að sýna og sanna
að flokkurinn stæði nú heill og
óskiptur að baki McGovern og
varaforsetaefni hans.
Þótt Sargent Shriver hafi ekki
gegnt kjörnu embætti á póli
tiskum ferli sinum, er framboð
hans talið munu styrkja
1 McGovern til muna. Hann gat sér
gott orð sem fyrsti yfirmaður
Friðarsveitanna á árunum 1961 til
1966, og á stjórnarárum Lyndon
B. Johnsons var hann skipaður
sendiherra i Paris og sat þar til
1970, en þá kvaddi Nixon hann
heim.
Shriver er kvæntur systur
hinna kunnu Kennedybræðra, og
sakir þeirra tengda nýtur hann
eflaust nokkurs af dýrðarljóman-
um um þá fjölskyldu. Auk heldur
er hann kaþólikki, en McGovern
er mótmælandi, og slikt jafnvægi
i trúmálum hefur löngum þótt
einkar sigurstranglegt i
bandariskri kosningabaráttu.