Þjóðviljinn - 18.08.1972, Qupperneq 3
Föstudagur 18. ágúst 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA S.
Listaverk Jóhanns
Eyfells á Olympíu-
leikjunum
Nútímaskúlptúrar eft-
ir Jóhann Eyfells verða
á menningardagskrá
sumarolympiuleik janna
i Munchen, sem senn
hefjast.
Jóhanni sem nú er aðstoðar-
prófessor i listum við Florida
Technological University,
hefur verið boðið að leggja til
uppblásna skúlptúra sina i
dagskrá i Ólympiugarðinum
sem nefnist Project Spiel-
strasse. Verk Jóhanns verða
sýnd með verkum félaga hans
málaranna Steves Lotz og
Walters Gaudneks. Lista-
mennirnir munu i allra aug-
sýn mála og reisa risastór
táknræn segl og skúlptúra og
sigla þeim um ólympiuvatnið.
Þá munu þeir félagar einnig
sýna likan af „Dómkirkju
geimsins” sem þeir gerðu á
Kennedyhöfða i sambandi við
alþjóðlegt geimferðaþing.
Líflegt atvinnulif á Norðfirði
Birtingur með
1100 síldar-
kassa úr Norðursjó
Birtingur NK kom á mið-
nætti i nótt til Norðfjarðar
með 1100 kassa af síld af
Norðursjávarmiðum.
Síldin verður fryst i beitu.
Auk þessa sildarfarms sem
Birtingur kom með i nótt hefur
hann selt sild i Danmörku fyrir
8,4 miljónir það sem af er sumr-
inu.
Veiðar Norðfjarðarbáta ganga
annars vel. Þokkalegur afli er hjá
smábátunum, og skuttogarinn
Barði hefur aflað 2160 tonna frá
áramótum. Hásetahlutur á
Barða er oröinn 674 þúsund.'úþ
Lágmarksverð á skarkola
og þykkvalúru ákveðið
A fundi yfirnefndar Verðlags-
ráðs sjávarútvegsins i dag varð
samkomulag um, að lágmarks-
verð á skarkola og þykkvalúru, 1.
flokkur, 453 gr. og yfir, skuli vera
kr. 16,70 hvert kg frá 1. ágúst til
30. september 1972.
Reykjavik 16. ágúst 1972
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
Myndin er tekin um borð i Albert og sýnir einn leiöangursmanninn við
setþykktarmæli.
Alþjóðasamband verzlunar-
r .
manna þingaði á Islandi
1 fyrradag lauk hér tveggja
daga fundi Alþjóðasambands
verzlunarmanna, FIET, og er það
i fyrsta sinn sem sambandið held-
ur fund á tslandi.
FIET hefur innan sinna vé-
banda 5,5 milj. félagsmanna i 70
löndum. Sambandið var stofnað
árið 1904, en islenzka verzlunar-
mannasambandið varð aðili að
þvi árið 1970. FIET er annað
stærsta verkalýðsbandið innan
sambands frjálsra verkalýðsfé-
laga.
Eitt af aðal-málum þingsins hér
var launajöfnuöur manna er
vinna sams konar störf i hinum
einstöku löndum og er sá launa-
mismunur, sem nú rikir, eitt af
mestu vandamálum sem sam-
bandið á við að glima.
Þá stendur til að stofna sér-
staka Evrópudeild innan FIET og
á að halda stofnfund hennar i
Kaupmannahöfn 7.-8. nóvember.
Þá var hér flutt skýrsla frá fundi
Alþjóðasambands verkalyðsfé-
laga.
Forseti FIET er Alfred Allen
frá Englandi en fyrsti varaforseti
James Suf féregd frá Bandarikj-
unum. -S.dór.
Ilér eru þeir Steve Lotz, Jóhann Eyfells og Gaudnek með afurðir sinar.
Þeir niunu sigla risastórum táknrænum seglum um ólympiuvatnið.
Landgrunnsrannsókn-
um lokið á þessu sumri
Nú fyrir skömmu lauk þeim hluta rannsókna
landgrunnsins við ísland, sem gera átti á þessu
sumri.
Unnið var að dýptarmælingum, þyngdarmæl-
ingum, segulmælingum og setlagarannsóknum á
stóru svæði út af Vesturlandi.
Haustið 1969 kallaði fram-
kvæmdanefnd Rannsóknaráðs
saman hóp sérfræðinga til að
gera tillögur um rannsóknir með
tilliti til hugsanlegrar nýtingar
náttúruauðæfa á hafsbotni.
Nefndin skilaði áliti I apríl 1970 og
komst að þeirri niðurstöðu að á
þessu stigi væri ekkert unnt að
segja til um tilvist hagnýtra efna
á landgrunninu fram yfir það,
sem þegar væri ljóst, enda skorti
algerlega upplýsingar um upp-
runa og eðli landgrunnsins. Væri
það ástand óviðunandi, ekki sízt
vegna tilkalls okkar til yfirráða á
landgrunninu og hafinu yfir þvi,
og eins vegna þýöingar botnlög-
unar og botngerðar fyrir fisk-
göngur og fiskveiðar á hinum
ýmsu svæðum umhverfis landið.
Nefndin lagði því til að hafnar
yrðu skipulagðar jaröfræðilegar
og jarðeðlisfræðilegar rannsóknir
á landgrunninu til að afla grund-
vallarupplýsinga um gerð þess og
lögun.
Meginatriðið i tillögum sér-
fræðinganna var, að gert yrði ná-
kvæmt dýptarkort af landgrunn-
inu, enda flest dýptarkort hér-
lendis byggö á mælingum frá þvi
um aldamót og kominn timi til að
hagnýta sér nýja tækni við mæl-
ingar. En á sama tima og gerðar
yrðu samfelldar dýptarmælingar,
skyldu einnig gerðar samfelldar
þyngdarmælingar, segulmæling-
ar og setþykktarmælingar með
neistatækjum. Þá var einnig gert
ráð fyrir töku botnsýna, varma-
straumsmælingum og rann-
sóknum á samskiptum lofts og
sjávar með tilliti til veðurfars-
áhrifa.
Sumarið 1970 barst Rann-
sóknarráði rikisins tilboð frá
bandarisku fyrirtæki um skipti á
setþykktarmælitækjum fyrir
leigu á skipi til rannsókna við
vesturströnd Grænlands. Þetta
var borið undir rikisstjórn og
samþykkt að leigja v/s Albert til
þriggja mánaða. Tillögur sér-
fræðinganna voru að öðru leyti
litið ræddar.og engar ákvarðanir
voru teknar af hálfu rikisstjórnar
fyrr en nú i vor að tilboð barst frá
mælingadeild bandarikjahers um
lán á þyngdarmælingatækjum og
starfrækslu þeirra um borð i
islenzku skipi gegn þvi, að rikið
legði fram skipið.
Tilboðið varð til þess að enn
komst hreyfing á málið. Málið
fékk jákvæðar undirtektir hjá
rikisstjórn, sem var ekki hvað
sizt að þakka miklum áhuga
iðnaðarráðuneytis á málinu.
Rikisstjórnin ákvað að hafið
skyldi starf á grundvelli tillagn-
anna um landgrunnsrannsóknir
frá 1970. Skipaði menntamálaráð-
herra nefnd fulltrúa nokkurra
stofnana og var dr. Vilhjálmur
Lúðviksson formaður nefndar-
Franihald á 11. siðu.
Nýr skattstjóri
á Vestfjörðum
Fjármálaráðherra hefur þ. 15.
ágúst s.l. skipað Hrein Sveinsson
lögfræðing, Hraunbæ 40, Reykja-
vik, skattstjóra i Vestfjarðaum-
dæmi frá 1. janúar 1973 að telja.
Fjármálaráðuneytinu, 17. ágúst
1972.