Þjóðviljinn - 18.08.1972, Qupperneq 9
Föstudagur 18. ágúst 1972 ÞJÓÐVILJINN -^SIÐA 9.
r
Oþekkt fyrir
2 árum —
heimsmethafi
í dag
Enginn stendur nærri þvi að storka
heimsmeti Fainu Melnik í
kringlukasti um þessar mundir
Það eru ekki nema tvö ár
síðan Faina Melník, nú
heimsmethafi i kringlu-
kasti kvenna, kom fram á
sjónarsviðið fyrir alvöru,
þótt hún hafi stundað þessa
íþróttagrein í nærfellt 7 ár.
Síðustu met hennar (65, 48
og 66, 76) hljóta að vekja þá
gömlu spurningu, hvort
iþróttaafrekum séu nokkur
takmörk sett. Sjálf segist
Faina eiga eftir að gera
beturá ólympíuleikunum í
Múnchen.
Hún fæddist fyrir 26 árum uppi i
úkrainskri sveit og ólst þar upp
við almenn sveitarstörf. I upp-
vextinum var skólaleikfimi einu
iþróttirnar, sem hún hafði af að
segja. Hún vissi ekkert sælla en
að yrkja jörðina og ákvað að ger-
ast búfræðingur. Að þvi loknu hélt
hún til Kiev, höfuðborgar
Úkrainu, til að þreyta inntökupróf
i landbúnaðarakademiuna. En
einn fagran veðurdag varð henni
reikað út á iþróttavöll borgarinn-
ar og ákvörðun margra ára
breyttist á einum klukkutima.
Þar sá Faina i fyrsta skipti
Tamöru Press, sem þá stóð á
hátindi frægðar sinnar, og tóku
þær tal saman. Það dró þann dilk
á eftir sér, að Faina sótti ekki um
inntöku i Akademiuna, heldur i
iþróttaháskólann en var visað
frá.
En Faina Melnik lagði ekki
árar i bát, heldur brá sér til
Moskvu og komst i iþróttadeild
kennaraskóla nokkurs. Nú býr
hún i Jerevan, höfuðborg
Armeniu. Þar stundar hún
iþrótta- og leikfimikennslu barna
og heldur sjálf áfram að læra hjá
Kim Bukhantsov þjálfara i
Moskvu, sem öðrum fremur hefur
hjálpað henni til stórafreka.
Þegar hann tók við þjálfun henn-
ar árið 1970 hafði hún kastað 54,
76, gott, en ekki „extraklassi”.
Þrem vikum siðar var hún tekin i
B-lið SSSR i landskeppninni við
USA i Leningrad. Þar lét hún sér
ekki nægja að sigra báðar amer-
isku stúlkurnar, sem var létt
verk, heldur einnig stöllur sinar i
A-liöinu, þær Tamöru Daniiovu,
sem þá var Evrópumeistari, og
Sovétmethafann trinu
Solontsovu. Skömmu siðar
sigraði hún á sovézka meistara-
mótinu og svo i þriggja landa
keppninni SSSR-DDR-Pólland,
þar sem hún kastaði 61,80.
Keppniskap F.Melnik er með
eindæmum. Fyrsta heimsmet sitt
setti hún á EM i Helsinki i siðustu
tilraun og rændi þar með sigrin-
um frá L.Westermann frá Vestur-
Þýzkalandi. Þegar þar fréttist i
mai i ár, að Menis frá Rúmeniu
hefði náð öðrum bezta árangri
allra tima 64,24, svaraði hún þeg-
ar með 64,64, og tveim dögum
siðar varpaði hún fyrst kvenna
yfir 65 metra (65,42). Hinn 4.
ágúst flaug svo kringlan 66,76
metra. Um þetta segir
Bukhantsov: „Þetta eru ekki
óvænt met, heldur skipulagðir
dagskrárliðir, áfangar, áður en
lengra er haldið”.
Blikur á lofti í
sambandi við OL
Nú horfir orðið all alvarlega
með ólympiuleikana vegna
hótana nokkurra Afrikurikja
um að hætta við þátttöku ef
Ródesiumenn fá að taka þátt i
leikunum.
Framan af voru það aðeins
smáriki eins og Sierra Leone
og Uganda, svo að dæmi séu
nefnd, sem hótuðu, en þessi
lönd eiga enga fræga iþrótta-
menn sem sjónarsviptir er af.
Þess vegna var þeim ekki
anzað. En nú hafa bæði
Eþiopia og Kenýa bætzt i
hópinn og þá tók alþjóða ÓL-
nefndin við sér, enda eiga
þessi lönd frábæra iþrótta-
menn og m.a. beztu lang-
hlaupara heims.
Unnið er að þvi að reyna að
ná sættum en svo virðist sem
enginn möguleiki sé á þvi.
Afrikurikin er hörð á þessari
kröfu sinni og kvika ekki frá
henni. Og sifellt bætast fleiri
Afrikuriki i hóp þeirra, sem
lióta að draga sig til baka frá
leikunum ef Ródesiumönnum
verður ekki bönnuð þátttaka.
Fyrir aðeins tveim árum siðan var Faina Melnik óþekkt iþróttakona,
sem hafði æft kringiukast i 5 ár. Nú er hún i algerum sérflokki og það er
engin kona i vcröldinni scm er neitt náiægt þvi að storka heimsmeti
hennar 66,76 m. Ef nokkur er öruggur um aö hljóta gull á ÓL i Mlinchen
þá er það hún.
Islandsmótið í útihandknattleik
Islandsmeistaramótið i úti-
handknattleik kvenna stendur nú
yfir,og þvi lýkur á sunnudaginn
kemur. Mótið er haldið við
Barnaskóla Austurbæjar i
Reykjavik.
Liðin sem taka þátt i mótinu
eru: Valur, FH, Breiðablik,
Ármann, ÍBK, Grindavik, Fram,
Vikingur og KR. M.a. hefur Fram
unnið UBK 6:5, FH vann IBK 16:3
og Armann vann Grindavik 12:7.
Mótið heldur áfram i kvöld,
morgun og á sunnudag og fara þá
þessir leikir fram:
Föstud. 18. ágúst. Kl. 19.00
l.leikur: UBK—Vikingur
2. leikur: Valur—Grindavik
3. leikur: Armann—FH
Laugard. 19. ágúst, Kl. 14.00
l.leikur: Valur—Ármann
2. leikur: KR—UBK
3. leikur: Grindavik—IBK
4. leikur: Fram—Vikingur
Sunnud. 20. ágúst. Kl. 15.00.
Úrslit. l.leikur: 3.—4. sæti
2. leikur: 1.—2. sæti
Golf
Arsþing Golfsambands ís-
lands (GSt) var haldið s.l.
mánudag að Hótel Loftleiðum.
A fundinum voru mættir full-
trúar frá 9 af 13 golfklúbbum,
sem starfræktir eru hér á
landi.
Þetta var 29. ársþing GSt,
en það er' elzta starfandi i-
þróttasamband sem til er hér
á tandi. Það á 30 ára afmæli
um þessar mundir og verður
haldið upp á það með hófi i
Atthagasal Hótel Sögu n.k.
laugardagskvöld — að loknu
tslandsmótinu i gólfi, sem nú
fer fram á Grafarholtsvelli.
A þessu þingi kom m.a.
fram, að fyrirhugað er að taka
þátt i Evrópumeistaramóti
landsliða i golfi, sem fram fer
á trlandi næsta sumar. Einnig
að bjóðast til að halda Norður-
landamótið hér árið 1974, en
frá hinum Norðurlandaþjóð-
unum hafa koinið fram á-
kveðin tilmæli um það.
Akveðið var að halda næsta
tslandsmót i golfi i Vest-
ntaniiaeyjum, en næsta ár á
Goifklúbbur Vestmannaeyja
35 ára afmæli. Þá var ákveðið
að i framtiðinni verði keppt I
tveirn flokkum kvenna á ts-
landsmóti. . . M.fl. og l.fl.
Reksturshagnaöur GSl á ár-
inu var 16.400 krónur, sem má
teljast gott, þar sem sam-
bandið hefur litlar sem engar
tckjur fyrir utan styrki frá
ÍSÍ. . . en pcningavandræði há
allri starfsemi þcss, sem og
annarra scrsambanda ÍSt.
Akvcðið var að halda auka-
þing GSÍ i okt.—nóv. n.k. og
ræða þar um nýja tekjustofna
sambandsins og opnu mót-
in, sem haldin cru á hvcrju
súmri.
Stjórn GSÍ var öll endur-
kjörin, en hana skipa : Páll As-
geir Tryggvason formaður.
Aðrir i stjórn. Ilagnar
Magnússon, Konráð Bjarna-
son, Kristján Einarsson, Iter-
mann Magnússon. Endur-
skoðendur: Vilhjálmur ólafs-
son og Ólafur Bjarki Kagnars-
son. Dómstóll GSt: Tómas
Arnason, Óttar Yngvason og
Kristján Einarsson.
o
Golfkeppni
handknatt-
leiksmanns
Nokkrir handknattleiks-
menn, sem einnig eru áhuga-
samir golf leikarar, hafa
ákvcðið að gangast fyrir golf-
keppni handknattleiksmanna
n.k. mánudag á golfvellinum i
Ilafnarfirði, og hefst hún kl. 17
til 17.30.
Samskonar keppni fór fram
i fyrra og þá sigraði hinn
kunni handknattleiksmaður úr
Val, Bergur Guðnason. Þátt-
tökurétt i keppninni hafa allir
leikmcnn 1. og 2. deildar-
liðanna s.l. ár svo og stjórnar-
menn og nefndarmenn i öllum
handknattlciksdeildum félag-
anna, HKRR eða HSÍ.
Þessi mynd er tekin á 2000.
stjórnarfundi KRR sem hald-
inn var i þessari viku. Til há-
tiðabrigða var nokkrum gest-
um boðið á fundinn. Við há-
borðið má sjá frá v. Hreggvið
Jónsson, Elias Hergeirsson,
Ólaf Jónsson, Gunnar Egg-
ertsson, Gisla Halldórsson,
ólaf P. Erlendsson, Albert
Guðmundsson, Harald Gisla-
son, Einar Björnsson, Hilmar
Svavarsson og Asgeir Guð-
laugsson.