Þjóðviljinn - 18.08.1972, Side 12

Þjóðviljinn - 18.08.1972, Side 12
DIÚmiUINN Föstudagur 18. ágúst 1972 Kvöldvarzla lyfjabúðanna vikuna 12,—18. ágúst er i Vesturbæjar Apóteki, Háa- leitis Apóteki og Apóteki Austurbæjar. Almennar upplýsingar um læknaþjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykjavfkur, simi 18888. Slysavarðstofa Borgarspitalans er opin all- an sólarhringinn. Simi 81212. Kvöld-, nætur- og helgidaga- vakt á heilsuvernarstöðinni. Simi 21230. Tilræði við Hussein konung, varnarmála- ráðherra skýtur sig Oufkir: Svo brcgöast krosstrc. RABAT 17/8. Allt var meö kyrrum kjörum í Rabat, höfuðborg Marokko, i dag, en i gær gerðu liösforingjar, sem njóta stuðnings Libíu- stjórnar, tilraun til að myrða Hassan konung. i dag framdi Oufkir varnar- málaráðherra sjálfsmorð, en hann er þekktur fyrir að útrýma andstæðingum konungsaf mikilli grimmd. Er hann jafnvel orðaður við samsærið Fimm liösforingjar i flughern- um, sem þátt tóku i tilræðinu, flúðu i þyrlu til Gibraltar i nótt sem leið, en sagt er að átta aðrir flugmenn hafi verið teknir hönd- um, þeirra á meðal Koeira E1 Ouael, sem var fyrirmaður Tekur aðeins helmingnr verka- manna upp vinnu LONDON 17/8. Talið er aö um helmingur hafnar- verkamanna muni fylgja fyrirmælum verklýðssam- bands sins um að taka upp vinnu. Byrjað var að vinna við sumar hafnir i dag, en 9000 verkamenn í Liver- pool, næststærstu höfn landsins, voru enn i verk- falli. Samband hafnarverkamanna gaf i gær fyrirmæli um að hafnar- verkamenn skyldu hverfa til vinnu i siðasta lagi á mánudag og taldi sig þá hafa fengið nægilega Fórnaði sér fyrir uppskeruna MOSKVU 17/8. Moskvublaðið Komsomolskaja Pravda hyllir i dag ungan dráttarvélastjóra, sem fórst i s.l. viku er hann reyndi að bjarga uppskeru samyrkjubús sins undan eldunum miklu fyrir austan Moskvu. Er þetta hin fyrsta opinbera staðfesting á þvi að eldarnir miklu á mótekjusvæðum austan höfuðborgarinnar hafi krafizt mannslifa. Enn eru þúsundir manna við slökkvistörf. 13 Afríkuríki hætta við þátttöku í OL MÍÍNCHEN 17/8. Æ fleiri Afrikuriki bætast i hóp þeirra sem ætla að hætta við þátttöku i Ölympiuleikunum vegna þess að Ródesiu hefur verið leyfð þátt- taka. Nú eru þessi riki orðin 13 og búizt er við að fleiri bætist i hópinn. Afrikuriki hafa á undan- förnum árum eignazt marga frá- bæra iþróttamenn og verða þvi Olýmpiuleikir sýnu bragðdaufari eftir fráhvarf þeirra. tryggingu fyrir þvi, að gáma- flutningar leiddu ekki til fjölda- uppsagna við brezkar hafnir. Hinir róttækari meðal verka- manna telja þessar tryggingu ekki nægilega og hafa meira að segja barið á forystumönnum sambands sins fyrir mála- miðlunina. Liklegt er talið að þeir róttæku muni allviða koma i veg fyrir að vinnan hefjist að nýju. Kenitra-flugstöðvarinnar sem er skammt frá Rabat. Varð hann að stökkva út i fallhlif eftir að flug- vél hans var orðin eldsneytislaus. Tilræðið var gert er Hussein konungur var á leið heim til Marokkó i einkaþotu sinni. Fóru þá þrjár orustuþotur á loft svo sem til að fylgja konungsvél inn að flugvelli, en þegar minnst varði hófu þær skothrið á hana. Samt tókst að lenda flugvélinni, enda þótt tveir hreyflar af þrem væru laskaðir. Skömmu eftir að konungsþotan var lent komu orustuþoturnar að- vifandi og skutu að konungi, sem var kominn út úr vél sinni, úr um 100 metra hæð. Fjórir menn biðu bana en um 20 særðust. Hussein bjargaði sér með þvi að fela sig bak við tré. baðan hélt hann til hallar sinn- ar, og gerðu 5 eða 6 flugvélar árásir á hana. Nokkru siðar settust konunghollar sveitir um Kenitra-flugstöðina, hreiður samsærismanna, og tókst þeim að ná henni á sitt vald án þess að hleypa af skoti. Ötvarpið i Libiu tilkynnti i gær- kvöld að stjórn landsins styddi til- ræðismenn og mundi tilræðum við konung haldið áfram þar til konungdæmi væri úr sögunni i Marokkó. Þetta er i annað sinn sem liðs- foringjar reyna að koma Hussein konungi fyrir kattarnef —- en i fyrra var gerð árás á höll hans á afmælisdag hans og létu þá um 100 manns lifið. Hægri hönd konungs Staðfest var i Rabat i dag, að Mohamed Oufkir, varnarmála- ráðherra Marokkó, hefði skotið sig til bana i nótt. Oufkir hefur lengi verið talin hægri hönd konungs og helzti oddviti hægri- sinna i landinu. Hann „hreinsaði til” i hernum eftir banatilræðið við konung i fyrra. Oufkir varð frægur að endenum fyrir svonefnt Ben Barka-mál. Þótti sannað, að Oufkir hefði rænt Ben Barka i Paris 1965, en sá siðarnefndi var þekktasti foringi marokkanskra vinstrisinna, og myrt hann með eigin hendi. Leiddi mál þetta um hrið til mjög stirðrar sambúðar við Frakkland. Frá Paris berast þær fregnir, að Oufkir kunni að hafa átt aðild að hinu misheppnaða samsæri, en i Rabat er þeim orðrómi visað á bug. Notuðu ástkonur sínar til að reyna að sprengja flugvél RÓM 17/8 Tveir Arabar laumuðu i gær sprengju i farang- ur ástkvenna sinna brezkra og ætluðu þar tneð að sprengja i loft upp israelska farþegaflugvél með 148 farþegum innanborðs. Flugvélinni tókst að lenda á flugvclli i Róm skömmu eftir að sprengingin varð og urðu á henni litlar skentmdir en fjórir farþeg- ar urðu fyrir brunasárum. Stúlkurnar brustu i grát þegar þær fréttu hvernig i málinu lá. Þær höfðu haldið við tvo Araba i Rómaborg, og höfðu þeir borgað fyrir þær ferðina til tsraels og gefið þeim plötuspilara i skilnaðargjöf. En i plötuspilaran- um höfðu Arabarnir tveir falið sprengju. Er verið að leita að náungum þessum. Yitnisburður trúböða: Svívirðileg morð í Mozambique UTRECHT 17/8. Fyrrverandi portúgalskur trúboði i Mozambique heldur þvi fram, að á tæpu ári hafi Portúgalir drepið um 1000 manns i Tete-héraði einu i hefndarskyni viö baráttu skæru- liða frelsishreyfingarinnav FRELIMO. Maður þessi, Luis Alfonso da Costa, sagði á ráðstefnu i Utrecht i Hollandi, að hann gæti sannað að á sama tima hefðu portúgalskar hersveitir myrt 92 menn i Caborra-Bassahéraði, og voru þeirra á meöal margar konur og börn. Einmitt i þvi héraði eru vesturevrópskir auðhringar nú að reisa mikið orkuver fyrir ný- lenduveldið. Trúboðinn fyrrverandi gaf og upp nöfn 16 manna sem Portúgal- ir brenndu lifandi i þorpinu Antonio i nóvember i fyrra. Þar skammt frá höfðu sveitir frá Ródesiu tekið þátt i að myrða 18 manns. Da Costa, sem gert var að velja á milli fangelsis og þess að fara úr landi, segir að flestir portúgalskir biskupar vinni með stjórninni og leiði hjá sér þróunina i Mozambique. Sé hin opinbera afstaða kirkjunnar i Portúgal sú, að ekki beri að hjálpa þjóðfrelsishreyfingunni, vegna þess að hún sé kommúnisk. Fox stefnir Kvikmyndatökumaðurinn Chester Fox hefur nú stefnt Fischer i N ew York fyrir samningsrof varðandi kvik- myndun einvigisins. Krefst Fox þess að fá 1 miljón og 750 þúsund dala bætur, en það eru hvorki meira né minna en 154 miljónir isl. króna. Jafntefli eða sigur hjá Fischer? Fimmtánda einvigisskákin sem tefld var i gær var alger andstæða þeirrar fjórtándu, hvað allan gang skákarinnar snerti. I stað allrar þeirrar logn- mollu sem hvildi yfir fjórtándu skákinni komu nú æsilegar sviptingar þar sem vinnings- vonin sveiflaðist á milli kepp- enda. Sþasski lék i fyrsta leik e4 og upp kom Sikileyjarvörn. Fisch- er hafði þó ekki áhuga á að tefla vörnina með peðsdrápinu á b2, en tefldi i staðinn hið venjulega áframhald. I 10. leik valdi Spasski frekar óvenjulegt fram-. hald, þ.e. að leika biskupi sinum til d3. Venjulega er leikið g4. Fischer brást við þessu á þann hátt að hann hrókaði á lang- veginn en venjulegast er hrókað á styttri veginn i Sikileyjarvörn. Spasski virtist hafa góð tök á stöðunni og nældi sér i peð á g7. Fyrir þetta peð fékk Fischer biskupaparið, en menn voru al- mennt þeirrar skoðunar að það væri ekki peðsins virði. Einmitt þegar menn héldu að Spasski væri nú búinn að ná taki 'a Fischer, komu nokkrir óná- kvæmir leikir hjá heimsmeist- aranum. Aætlunin með Rg5 virðist gersamlega út i hött og allt i einu eru menn Fischers, sem voru lokaðir frá öllum átökum, komnir i spilið með ógnvekjandi hótunum. Kóngs- staða Spasski hrundi i sundur og svo virtist sem Fischer myndi innbyrða sigur á hverri stundu. En nú var komið að Fischer að ieika ónákvæmt, og öruggt má telja að hann hefur misst af vinningi. Greinilegt er til dæmis aö hann hefur algerlega gleymt að taka 37. leik svarts Dg7 með I reikninginn. i fjórtándu skákinni, og eins með taflmennskunni sem hann sýndi i þessari skák. Það er ekki neinum blöðum um það að fletta að hann teflir langt undir þeim styrkleika sem hann raunveru- lega hefur, hverju sem þar er um að kenna. Sú staða, sem fór i bið i gærkvöld, var af flestum talin jafntefli. Fischer átti þrá- skák á borðinu, og var álitið vafasamt að hann hefði tima til að koma mönnum sinum það vel i spilið að hann gæti hafið afger- andi sókn. Hann er t.d. i stöð- unni bundinn við máthótanir Spasskis upp á b7. Biðskákin verður tefld áfram 11. Hhel Bb7 12. Dg3 0-0-0 13. Bxf6 Rxf6 14. Dxg7 Hdf8 15. Dg3 b4 16. Ra4 Hhg8 17. Df2 Rd7 18. Kbl Kb8 19. C3 Rc5 20. Bc2 bxc3 21. Rxc3 Bf6 22. g3 h 5 23.e5 dxe5 24. fxe5 Bh8 25. Rf3 Hd8 26. Hxd8 Hxd8 27. Rg5 Bxe5 28. Dxf7 Hd7 29. Dxh5 Bxc3 30. bxc3 Db6 Framhald á 11. siðu. Biðstaðan ABCDEFGH Það var einnig hald manna að Ka8 i stað Df5 hefði fært Fischer i dag kl. 14.30. «4 auöveldan vinning. 1. e4 c5 OJ Það verður að segjast eins og 2. Rf3 d6 Oi er,að menn eru að verða næsta 3. d4 cxd4 undrandi á taflmennsku heims- 4. Rxd4 Rf6 meistarans. 5. Rc3 a6 M Nú hefur hann i tveim skákum 6. Bg5 e6 M i röð látið sér úr greipum ganga 7. f4 Be7 ágæta möguleika á vinningi og 8. Df3 Dc7 það alveg á óskiljanlegan hátt 9. 0-0-0 Rbd7 eins og til dæmis með f6 leiknum 10. Bd3 b5 AI 11 ISLl ABCDEFGB 15. EHWIGISSKÁKIN

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.