Þjóðviljinn - 07.09.1972, Side 5

Þjóðviljinn - 07.09.1972, Side 5
Fimmtudagur 7. september 1972 ÞJÓÐVILJINN -- SIÐA 5. Alvarlegt hneyksli í Frakklandi Útsýni yfir Lyon. Lögreglumenn grunaðir um náin tengsl við glœpastarf Kdouard Charrct. A rigningarkvöldum agúrku- tiöarinnar hafa Frakkar skyndi- lega fengið nýtt umræðuefni, sem óliklegt er að hjaðni mikið úr þessu fram að þingkosningunum. Þetta umræðuefni er að vísu ekki alveg nýtt af nálinni, þvi að þarna er um að ræða ,,elzta atvinnuveg mannkynsins”, en nýlega hafa komið upp á yfirborðið ýmis at- riði, sem varpa undarlegu ljósi á þennan atvinnurekstur i landinu nú á dögum. Allt byrjaði fyrir rúmum mánuði þegar maður nokkur að nafni Georges Meyer, auknefndur „Georg lygari”, var handtekinn i Lyon og ákærður fyrir að hafa skipulagt vændi þar i borg. Þessi handtaka hefði naumast verið frásagnar verð, ef ekki hefði viljað svo til að „Georg lygari” var fyrrverandi lögregluþjónn kominn á eftirlaun — hann hafði meira að segja verið einn nánasti samstarfsmaður Javilliey lög- regluforingja i Lyon, sem við- frægur var fyrir að góma afbrota- menn staðarins fljótar en flestir menn aðrir. Georg var nú grunaður um að hafa haft fleiri en eitt járn i eldinum meðan hann var aðstoðarmaður hetjunnar og hafa þannig getað auðveldað sér starfsskiptin. Rannsókn málsins hélt áfram og brátt fór að leika orð á þvi að ýmsir lögregluþjónar i Lyon hefðu tekið það hlutverk sitt að vernda borgara staðarins full- alvarlega — þeir hefðu t.a.m. haldið alveg sérstakri verndar- hendi yfir vændiskonum og vinnuveitendum þeirra. i tugthúsið með fríðu föruneyti. Javilliey lögregluforingi taldi sig ekki geta látið slikum ásökun- um ósvarað. Hann lét hafa eftir sér i viðtali, að þær væru fjar- stæða: lögreglumenn þyrftu Skotar ættu að fara að dæmi Islendinga! Skozki þjóðarflokkurinn er okkur islendingum mjög hliöhollur í land- helgismálinu eins og nokkrum sinnum hefur fram komið. 31. ágúst sendi forysta flokksins bréf til allra opinberra stofnana i Skotlandi þar sem gerð var grein fyrir sjónarmiðum flokksins og beðið var um aðstoð við að hindra það að Englendingar kúgi islendinga með striðs- rekstri á islandsmiðum eöa í viðskiptum. Bréf Skozka þjóðarflokksins hefst með venjulegu persónu- legu ávarpi bréfritara, en siðan segir: Eins og þið vitið færa islendingar út fiskveiðilög- sögu sina i 50 sjómilur nú 1. september. Bein áhrif útfærslunnar verða óveruieg i Skotlandi, þar eð aðeins 1% af þeim fiski sem um þessar mundir er landað i Skotlandi kemur af islandsmiðum. En Skotar munu hagnast á útfærslunni vegna óbeinna áhrifa,með þvi að afli heimabáta fær aukna hlutdeild á ensku fisk- mörkuðunum. en sem stendur byggja þeir mjög á fiski af islandsmiðum. Einnig liggur hagnaður Skota i hagnýtingu einhvers hluta af afla íslendinga i skozkum höfnum. Útfa’rsla fiskveiðilögsögunnar við ísland hefur það i för með sér að önnur lönd, þar á meðal Skotland, hljóta að krefjast þess að farið sé að dæmi islendinga. Það eru þvi allar ástæður til bjartsýni, en þess gætir ekki i þeirri afstöðu sem rikisstjórn Hennar Hátignar hefur tekið. Skozki þjóöar- flokkurinn hefur vaxandi áhyggjur af þeirri hörku sem hinir ensku baksviðsmenn þingsalanna beina sér fyrir. Þegar hala verið geröar heyrinkunnar kröfur um fall- byssubáta og viðskiptahöml- ur. Skotar eru dregnir inn i deilur við litla og vinsamlega nágrannaþjóð sem þeir eiga ekkert sökótt við. Skozki þjóðarflokkurinn tel- ur að almenningsálitið i Skot- landi eigi að beinast gegn hugsanlegu nýju „þorska- striði”, og ástæðan fyrir þvi að ég skrifa ykkur er einmitt sú að biðja ykkur um að gera allt sem i ykkar valdi stendur til að girða fyrir að þess konar ástand komi upp. Þegar til lengdar lætur sjáum við ekki að sjávarút- vegur hafi neina framtið nema undir ströngu eftirliti hverrar þjóðar — með svipuðum hætti og islendingar leggja nú til — og sé þannig hamlað gegn of- veiði á fiskstofnunum. Ykkar einl. Roscmary Hall. ritari Skozka þjóðarflokksins. Bréf Skozka þjóðarflokksins um stuðning við okkurí landhelgismálinu nefnilega alltaf að hafa góð sam- bönd við undirheimalýðinn til að fá upplýsingar, og þannig þyrftu þeir oft að vernda „smáafbrota- menn” til þess að eiga auð- veldara með að nappa hina stóru. Það væri þvi fráleitt að álasa lög- reglunni fyrir aö beita þeim einu aðferðum, sem dygðu til að ná einhverjum árangri. Og yfir- maður allrar lögreglunnar i Lyon sagðist skyldu ábyrgjast heiðar- leika undirmanna sinna. En þessi rök sannfærðu ekki alla, og rannsókn málsins sýndi að „verndin” hafði gengið nokkuð langt. Javilliey hafði t.d. notað aðstöðu sina til þess að eyðileggja sönnunargögn i morðmáli, þar sem einn skjólstæðingur hans var sökudólgurinn. Hann var einnig grunaður um að hafa tekið við all- riflegum mútum. Það leið þvi ekki á löngu áður en hann var handtekinn og fór hann i fangelsi með friðu föruneyti, bæði kolleg- um og vændiskonum. Alls hafa nú um tuttugu menn verið ákærðir i þessu máli og tiu þeirra settir i gæzluvarðhald. Þeir lögreglu- þjónar, sem hafa verið við málið bendlaðir, hafa mótmælt þvi og sagt að þarna sé um að ræða sam- særi gegn þeim. Kröfuganga vændiskvenna. Þegar málið var komið á þetta stig, var fokið i flest skjól fyrir portkonum Lyon-borgar, og lét lögréglan loka öllum vændishús- um staðarins, sem starfað hafa meira eða minna leynilega siðan þau voru bönnuð 1946. Sums staðar urðu eigendurnir þó fyrri til og breyttu slikum húsum i sak- laus veitingahús. Velta menn þvi nú mjög fyrir sér, hvort unnt muni vera að opna þau aftur með fyrra sniði fyrir kosningar. Þessar aðgerðir vöktu að sjálf- sögðu mikla reiði vændiskvenna borgarinnar, sem höfðu aldrei verið svo grátt leiknar fyrr. Þær ákváðu þvi að ^tiga niður á götuna föstudaginn 25. ágúst, ekki til sinnar náttlegu iðju eins og venjulega, heldur til þess að fara þar i mótmælagöngu um há- bjartan dag, mótmæla hræsni og óréttlæti og berjast fyrir viðurkenningu og atvinnufrelsi. Slikt er fáheyrður atburður, ekki sizt i Frakklandi, og mótmæla- gangan var að sjálfsögðú bönnuð. Vændiskonurnar hirtu þó ekkert um bannið — frekar en róttækir vinstri menn gera i slikum kringumstæðum — heldur fóru hópum saman þangað sem gangan átti að hefjast. Þar beið lögreglan eftir þeim, og þá kom það þeim i koll að lögreglu- þjónarnir þekktu þær allar i sjón og jafnvel með nafni — þær Vændixkona að nóttu — á gang- stctt. Vændiskonur á daginn mælagöngu. i mót- vændiskonur sem vildu ekki hverfa aftur til sins heima, voru þegar handteknar, og féll mót- mælagangan niður i það sinn. Þingmaðurinn og skækjurnar. Helzta baráttumál vændis- kvennanna er sennilega afnám þeirra laga, sem banna allt opin- bert vændi i Frakklandi. Siðan þingkonan, ævintýrakonan og njósnarinn Marthe Richard gekkst fyrir þessari lagasetningu árið 1946, hafa margir viljað af- nema hana. Meðal þeirra er Edouard Charret, einn af þing- mönnum Gauleista fyrir Lyon. Skömmu eftir að tengsl lög- Framhald á bls. 11.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.