Þjóðviljinn - 07.09.1972, Page 9

Þjóðviljinn - 07.09.1972, Page 9
Fimmtudagur 7. september 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 9. Stjórn Bókavaröafélags íslands. Taliö frá vinstri: Ragnheiöur Helgadóttir, Elsa Mia Sigurösson, for- maöur, Ingibjörg Jónsdóttir, ólafur Fr. Hjartar, Kristfn Þorsteinsdóttir, Guöný Siguröardóttir og Kristin II. Pétursdóttir. Landsfundur bóka- varða hefst í dag Næsta fimmtudag hefst 2. landsfundur islenzkra bókavarða og sitja hann islenzkir bókaverðir og aðrir áhugamenn um bóka- safnsmál. Ennfremur munu sitja þingið fulltrúar frá bókavarða- félögum á öllum Norðurlöndun- um. Norræna félagið hefur annazt fyrirgreiðslu vegna komu tveggja erlendra fyrirlesara, þeirra Ingerlise Koefoed frá Danmörku og Bengt Holmström frá Svi - þjóð, sem bæði eru vel þekkt fyrir framlag sitt á sviði bókasafns- mála. Alls munu þátttakendur vera um 130, þar af 25 erlendir gestir frá bókavarðafélögum og norrænu félögunum á Norður- löndum. Landsfundurinn verður settur i Norræna húsinu fimmtudags- kvöldið 7. sept. kl. 20, en fundar- störf hefjast kl. 9 á föstudags- morgun. Fyrsti dagur fundarins er helgaður efninu „islenzk bóka- söfn á ári bókarinnar”, og er þá eingöngu fjallað um innlend mál- efni og féiagsmál islenzkra bóka- varða. Dagskráin hefst með ávarpi menptamálaráðherra, -hr. Magnúsar Torfa Ólafssonar. Aðrir ræðumenn eru Stefán Júliusson, bókafulltrúi rikisins, sem heldur yfirlitserindi um islenzk bókasöfn. Haraldur Guðnason, bókavörður, flytur erindi um lög almenningsbóka- Framhald á bls. 11. Guðbrandur Guðmundsson áttræður Þegar Guðbrandur Guömunds- son er áttræöur, skuldar Þjóðvilj- inn lionuni að minnsta kosti ótal þakkir fyrir það starf sem hann hefur af hendi innt fyrir Þjóðvilj- ann um áratugaskciö. Þá á Guö- brandur inni hjá okkur þakkir fyrir hið mikla fórnfúsa og ágæta framlag hans til sósialskrar bar- áttu á islandi um hálfrar aldar skeið. Þjóðviljinn flytur Guð- brandi þessar þakkir. Þær hefðu mátt verða myndarlegri — en heföu samt aldrei oröið nógu myndarlegar til þess að þakkað væri að fullu. Guöbrandur veröur i dag stadd- ur að heimili stjúpsonar sins að Fclismúla 14. Til Guðbrands Jæja, gamli! Ennþá bruna leiðarmerkin hjá, án þess að Elli kerling fái nokkurt svigrúm til bess að beygja þig i baki, né rista þig rúnum. Silfrið sem henni hefir tekizt að sáldra yfir höfuð þitt eykur bara sjarmann. Það hafa margar sprænur i sjóinn runnið siðan heimsauð- valdið tók að reka i mig hornin, svo að ég tæki eftir þvi, og hratt mér úti rauðasta kommúnisma. Þar i fylking stóðuð þið hjónin þá þegar og voruð heit i andanum, svo að ekki komu úrtölur frá ykkur. Þetta voru alvörutimar og baráttan aðkallandi. Eldar brennandi hugsjóna vermdu geðið, og hvorki spöruð spor né skæði. Margar glennur hafa okkur verið gerðar siðan, bæði „heima- fyrir og utanlands”. Margur vigahnötturinn hefir brunniö upp fyrir augum okkar, skærar sólir reynzt okkur halastjörnur, eða breytzt i gervitungl. ,,Allt streymir fram”, segir Þórbergur Til stjórnvalda og eru orð að sönnu. Ekkert i um- róti timans hefir þó breytt grund- vellinum. Kjörorðin úr frönsku byltingunni gilda enn: Frelsi — jafnrétti — bræðralag. Þau hafa ekkert fölskvazt. Sifellt vaxa upp ungir, óþreyttir baráttum., sem taka upp merkið og beita stjórn- list, sem hæfir hverju timaskeiði. Framlag manna eins og ykkar hjóna til aukinna áhrifa al- þýðunnar marka spor i sögunni og visa veginn fram. Ég samgleðst þér á þessum heiðursdegi þinum og fagna þvi, að þú skulir enn i fullu fjöri. Megi það haldast sem lengst. Haraldur Björnsson. Svarið beiðni um hækkun leigu með stofnun húsaleigumiðstöðvar! Okkur hafa borizt fréttir af þvi, aö nokkuð margir þeirra leigusala, sem ætluðu að hækka húsaleig- una nú 1. september, hafi horfið frá því, eftir að Þjóðviljinn skýrði frá þvi á dögunum, að slik hækkun væri brot á verðlagslögum og varðaði sektun allt að 500 þúsund krónum. Einnig höfum við frétt, að Hús- eigendafélag Reykjavikur hafi fyrr i sumar lagt fyrir ráðuneyti beiðni um hækkun húsaleigu vegna hækkaðra fasteignaskatta, og er það mál enn óafgreitt hjá ráðuneytinu. Réttlátast svar ráðuneytisins við þessari hækkunarbeiðni væri tvimælalaust það, að boða til stofnunar húsaleigumiöstöðvar likrar þeirri sem Þjóðviljinn hefur gert tillögu um, sem starfaði þannig, að til þess að húseigendur fengju tryggingu á ibúbir sinar þyrfti að koma til lög- gilding slikrar húsaleigumiö- stöðvar á gerðum leigusamn- ingum, en með þvi móti væri hægt aö fylgjast með þróun þessara mála og halda húsaleigu niðri og koma þannig i veg fyrir það gifur- lega okur sem nú viðgengst. —úþ. TILKYNNING um lögtök i Seltjarnarneshreppi 23. ágúst s.l. var úrskurðað, að lögtök geta fram farið vegna gjaldfallinna en ógreiddra útsvara, aðstöðugjalda, kirkju- og kirkjugarðsgjalda, fasteignagjalda álagðra i Seltjarnarneshreppi árið 1972 svo og heimtaugargjalda hitaveitu, allt ásamt dráttarvöxtum og kostnaði. Lögtök fyrir gjöldum þessum geta farið fram að liðnum átta dögum frá birtingu auglýsingar þessarar, ef ekki verða gerð skil fyrir þann tima. Sveitarstjóri Seltjarnarneshrepps F ramtíðarstarf Samgönguráðuneytið óskar eftir að ráða karl eða konu til vélritunar, skjala- vörzlu og annarra almennra skrifstofu- starfa. Laun samkvæmt 13. launaflokki hins al- menna launakerfis starfsmanna rikisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist samgöngu- ráðuneytinu fyrir 15. september 1972. iteykjavik, 5. september 1972. Samgönguráðuneytið. BJÓDDU ÓVINUM ÞÍNUM SÍGARETTU! . Sigurður Baldursson — hæstaréttarlögmaður Laugavegil8 4hæö Simar 21520 og 21620 úrogikartgripir KDRNELlUS JÚNSSON

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.