Þjóðviljinn - 12.09.1972, Qupperneq 6
6. StÐA — ÞJÓÐVILJINN ]Þriðjudagur 12. september 1972.
>■ >. [rtartSöC [? >: J)D3(°)'SGfl[F - P'
EYJAMENN
LANGTUM
BETRI
og sigruðu áhugalausa Skagamenn
Eftir siðustu leikjum
Vestmannaeyinga ieik-
ur enginn vafi á að þeir
eru langbezta liðið sem
nú leikur i 1. deild.
Hvergi er að finna veik-
an hiekk i leik liðsins, og
framlína þess væri full-
boðleg i mörg af beztu
liðum heims. Ef rétt
verður haldið á spöðun-
um næstu árin i Vest-
mannaeyjum er öruggt
að þar verður reist stór-
veldi i knattspyrnunni
sem erfitt verður að
knésetja. Leikmenn
liðsins eru ungir og
friskir, og með aukinni
leikreynslu verður þetta
lið ósigrandi i 1. deild-
inni á komandi árum.
Staðan
i 1. deild
Úrslit leikja í 1. deild um
helgina urðu þessi:
Akranes-IBV 1-4
Valur—Keflavík 0-3
KR—Vikingur 1-0
Staðan er þannig:
Fram 12 7 5 0 31-16 19
IBV 14 7 4 3 37-22 18
Keflavik 14 5 5 4 26-24 15
Akranes 14 7 1 6 24-22 15
Breiðablik 13 5 3 5 16-23 13
Valur 13 3 5 5 19-21 12
KR 14 4 2 8 17-26 10
Víkingur 14 2 2 10 8-23 6
Markahæstu leikmenn eru:
Tómas Pálsson, ÍBV 15
Eyleifur Hafsteinss. tA 11
Ingi B. Albertss. Val 11
Steinar Jóhannss. tBK 9
Atli Þ. Héðinss. KR 8
Teitur Þórðars. 1A 8
Erlendur Magnúss. Fram 7
llörður Ragnarss. tBK 6
Kristinn Jörundss. Fram 6
Marteinn Geirss. Fram 6
Örn Óskarss. IBV 6
Alexander Jóhanness. Val 5
Ásgeir Sigurv.ss. tBV 5
Skagamenn voru óvenjudaufir I
þessum leik, og vel mátti sjá á
leik liðsins að litið var lagt upp úr
aö færa sig aðeins ofar á stigatöfl-
unni. A fyrstu minútunum var
leikurinn að visu nokkuð jafn, en
siðan dofnaði yfir heimamönnum
um leið og Eyjamenn sóttu i sig
veðrið. Um miðjan fyrri hálfleik
tóku svo Vestmannaeyingarnir
öll völd og héldu þeim út leikinn.
Þótt leikurinn hefði verið nokkuð
ójafn er á leið var hann skemmti-
legur á að horfa, og skemmtileg
knattspyrna sást hjá báöum lið-
unum, og þó sérstaklega hjá IBV.
Veður var mjög gott, sól og bliða
og aðstaða til fallegrar knatt-
spyrnu þvi hin bezta.
A 7. minútu kom fyrsta markið
og stuttu siðar bættu Vestmanna-
eyingarnir öðru við, og staðan i
hálfleik var þannig 2—0. Bæöi
mörkin komu eftir að framlina
IBV hafði leikið sig i gegnum
máttiausa Akranesvörn og voru
þvi skoruö af stuttu færi eftir
gegnumspil. Varla er þó við vörn-
ina eina að sakast þvi erfitt er að
ætlast til þess af islenzkri vörn að
halda Vestmannaeyjasókninni
alveg niðri.
A 10. minútu i siðari hálfleik
jöfnuðu Skagamenn svo leikinn
meö marki frá Eyleifi. Þannig
var svo staðan langt fram i leik-
inn, en undir lokin bættu Eyja-
menn tveimur mörkum við og
lauk leiknum með verðskulduð-
um sigri þeirra 4—1.
5 mörk i einum knattspyrnuleik
þykir dágott nú til dags, en eftir
tækifærum hefðu þau getaö orðið
fleiri. Bæði liðin áttu sin tækifæri.
Jón Alfreðsson skaut af löngu færi
i stöngina og út, og tvfvegis á
sömu minútunni björguðu Skaga-
menn á marklinu.
Það er leiðinlegt til þess að vita,
að um leið og úrslit eru ráðin í 1.
deild skuli liöin missa allan áhuga
og slá þvi sem eftir er upp i kæru-
leysi. Þannig var þetta með
Akurnesingana i þessum leik.
Leikgleði og sigurvilji sást ekki
hjá liðinu og útkoman varð vissu-
lega i samræmi við áhugann. Eini
maðurinn sem eitthvað barðist
var Jón Alfreðsson, og einnig
hressti Eyleifur sig töluvert i
siðari hálfleik. Eigi að siður var
liðið i heild slakt og áhugaleysi
þess og kæruleysi vitavert.
Eins og áður segir voru Vest-
mannaeyingarnir mjög góðir og
hvergi veikan hlekk að finna.
Asgeir Sigurvinsson, sá ungi og
efnilegi drengur, sýndi frábæran
leik, og þungir Akurnesingarnir
réðu ekkert við leikni hans og lip-
urð.
— GSP.
„Austurlandsimdr-
ið” upp í 2. deild
...sigraði Víði úr Garði með 3-1
Þróttur frá Neskaupstað sigr-
aði Viði úr Garði léttilega með
þrcmur mörkum gegn einu i úr-
slitaleik um 2. deildar sætið á
Meiavellinum sl. sunnudag. Viðir
tók þó forystuna i fyrri hálfleik
með marki frá Sigurði Ingvars-
syni á 5. min. ieiksins. Björn
Arnason jafnaði síðan úr vita-
spyrnu á 30. minútu, og stuttu
siðar tók Birgir Einarsson, fyrir-
liði og þjálfari Þróttar, forystuna
fyrir Þrótt. i byrjun siðari hálf-
leiks skoraði Björn Arnason svo
aftur, og staðan var orðin 3-1 fyrir
Þrótt.
Þannig lauk leiknum með
sigri Þróttar, og leika þeir nú aft-
ur i 2. deild eftir árs hlé.
Sérstaka athygli i þessum leik
vakti markvörður Viðis, og
bjargaði hann liði sinu frá enn
stærra tapi. Þróttarar léku fall-
ega knattspyrnu á köflum, en i_
heildina verður þó varla sagt, a>
leikurinn hafi verið góður. Viðis|
menn hafa yfir ágætum einstakl-
ingum að búa, og með betra spili
má gera ráð fyrir góðu liði frá
þeim i framtiðinni,
GSP
Austur-þýzku stúlkurnar eru örugglega langsterkastar I boðhlaupun-
um, bæði 4x100 metrunum og 4x400. Ef ekki hefði komið til léleg
skipting 1100 metrunum á siöustu beygju hefðu þær fengið gulliö þar og
tvivegis settu þær heimsmet i 4x400 metrunum á þessum Ólympiuleik-
um. Og ekki er það nú lakara að allar eru þær gullfallegar.
Góðurárangur
í boðhlaupum
Mjög góður árangur
náðist i úrslitahlaupum
boðhlaupanna sem fram
fóru á sunnudaginn. Alls
staðar var mikil keppni
háð nema við sveit A-
þýzku kvennanna i 4x400
metrum. Þær höfðu al-
gjöra yfirburði og settu
nýtt heimsmet. Þá voru
heimsmetin jöfnuð i
4x100 m hlaupi karla og
kvenna. Bandariska
sveitin sem var álitin
öruggur sigurvegari i
4x400 metrunum heitist
úr lestinni og sigraði þá
sveit Kenýa.
4x100 m hlaup kvenna
Austur-þýzka sveitin var fyrir-
fram talin svo til öruggur sigur-
vegari i þessu hlaupi. Vestur-
þýzka sveitin hélt þó vel i þær a-
þýzku þar til á siðustu beygjunni,
en þá skiptu austur-þýzku
stúlkurnar Struppert og Stecher
illa, og Rosendahl, sú er sigraði I
langstökkinu, náði góðu forskoti
sem Stecher tókst ekki að vinna
upp þrátt fyrir hraða sinn.
Vestur-Þjóðverjar jöfnuðu þarna
heimsmet bandarisku stúlknanna
frá Olympiuleikunum i Mexicó
fyrir fjórum árum.
Úrslit:
1. V-Þýzkaland
2. A-Þýzkaland
3. Kúba
4. USA
5. Sovétrikin
6. Astralia
42.81
42.95
43.36
43.39
43.59
43.61
knattspyrna
nm heljíina
Konur og karlar háðu harða
keppni i knattspyrnunni yfir helg-
ina.
1 kvennaknattspyrnunni urðu
úrslit þessi:
Haukar — ÍBK
Breiðablik — Þróttur
Fram — FH
Armann — Grinda vík
1-0
2-1
1-1
8-0
Þar með munu FH og Fram
leika úrslitaleikinn i 1. islands-
móti kvenna i knattspyrnu utan-
húss.
Efstu lið hvers riðils i 3. deild
léku úrslitakeppnina nú um helg-
ina og urðu úrslit þessi:
KS —Viðir 3-2
Vikingurólafsv. — Þróttur N. 2-2
Þróttur N — KS 2-1
Víðir — Vikinguró 3-2
KS — Vikingur Ó 5-1
Þróttur — Viðir 3-1
Þar með vann þróttur frá Nes-
kaupstað 3. deildina og flyzt i 2.
deild.
1 2. deild léku Völsungar og FH
á laugardag og lauk leiknum með
jafntefii l-l. Á sunnudag sigraði
ÍBA svo Ármann með einu marki
gegn einu og tryggði sér þar með
sæti i 1. deild að ári.
4x100 m hlaup karla.
Bandarikjamenn byggðu þetta
hlaup skynsamlega upp. Þeir létu
sterkustu mennina, Larry Black,
Robert Taylor og Gerald Tinker,
ná góðu forskoti sem þeir vissu að
hinn frábæri. sovézki hlaupari,
Valery Borsov, átti ekki mögu-
leika á að vinna upp þrátt fyrir
meiri hraða en Eddie Hart, sem
hljóp siðasta sprettinn fyrir
Bandarikin. Bandriska sveitin
sigraði þvi örugglega og jafnaði
heimsmetið.
Úrslit:
1. Bandarikin
2. Sovétrikin
3. V-Þýzkaland
4. Tékkóslóvakia
5. A-Þýzkaland
6. Pólland
38.19
38.50
38.79
38.82
38.90
39.03
4x400 m hlaup kvenna
Yfirburðir a-þýzku stúlknanna i
þessu hlaupi eru ótrúlegir. Sigur
þeirra var öruggur frá upphafi og
þær stórbættu heimsmetið sem
þær settu fyrr á leikunum.
Úrslit:
* 1. A-Þýzkaland 3.23.0
2. Bandarikin 3.25.2
3. V-Þýzkaland 3.26.5
4. Frakkland 3.27.5
5. Bretland 3.28.7
6. Ástralia 3.28.8
Framhald á bls. 11.
Júgóslavar
sigurvegarar
Úrslitaleiknum milli Tékka og
Júgóslava lauk með auðvleld-
um sigri Slavanna, 21-16.
Leikurinn var ójafn frá upp-
hafi og i ieikhléi höfðu Júgó-
slavaryfir, 12-15. Tékkar urðu
þvi i öðru sæti og Rúmenar i
þriðja.
Williams sigraði
þrátt fyrir meiðsli
Randy Williams sigraði
óvænt i langstökki þrátt fyrir
meiðsli og er þar með yngsti
maður sem hlotið hefur gull-
verðlaun i stökkkeþpni á 01.
Úrslit:
1. R. Williams USA 8.24
2. Baumgarter V-Þýzkal. 8.18
3. A. Robinsson USA 8.031
Melnik var ekki
eins örugg og
búizt var við
Sovézki kringlukastarinn
Faina Melnik var ekki eins ör-
uggur sigurvegari i kvenna-
keppninni i kringlukasti og bú-
izt var við. Keppnin milli
hennar og rúmensku stúlk-
unnar Argentinu Menis var
mjög hörð og það var ekki fyrr
en i 4. umferð að Melnik náði
frábæru kasti, 66,62, sem
nægði henni til sigurs
Úrslit:
Faina Melnik Sovét 66,62
Argentina Menis Rúm. 65.06
Stoeva Búlgariu 64,34
Glœsilegur
lokasprettur
Fallegur lokasprettur Finn-
ans Lasse Viren tryggði
honum örugglega gullverð-
launin i 5000 metra hlaupi.
Þegar tveir hringir voru eftir
var Lasse i 12. sæti, af 13, en
vann sig upp i það fyrsta og
setti ólympiumet, jafnvel þótt
hann væri nokkuð frá sinu
bezta, Hinn sterki Breti, Da-
vid Bedford, gerði enga til-
raun til vinnings og varð
mörgum áhorfendum til mik-
illa vonbrigða.
Úrslit:
1. Lasse Viren, Finnl. 13.26.4'
2. Gammoudi, Túnis 13.27.4
3. Steward, Bretl. 13.27.6