Þjóðviljinn - 12.09.1972, Qupperneq 11
Þriðjudagur 12. septemberl 1972. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
Góður árangur
Framhald af bls. 6.
4x400 m hlaup karla
Þar sem hinn öruggi sigur-
vegari i þessari grein, Banda-
rikjamenn, voru ekki meö
myndaöist æöisgengin og
skemmtileg barátta milli
keppenda. Alþjóöaolympiu-
nefndin hafði dæmt svertingjana
Collett og Matthews frá þátttöku
á Olympiuleikunum og sá þriöji,
John Smith, sleit vöðva i 400
metra hlaupinu og gat þvi ekki
verið meö.
Þetta skapaði miklar
sviptingar sem erfitt er aö lýsa i
rituöu máli. Vestur-Þýskaland
náði góöri forystu eftir fyrstu 2
sprettina en Kenýa var þá I 4.
sæti. Robert Ouko hljóp þriðja
sprettinn fyrir Kenýa og vann sig
upp i annað sæti og David'
Hemery vann upp mikiö bil fyrir
Bretana. Lokaspretturinn var
geysiharöur og V-Þjóöverjar,
sem leiddu eftir 2 fyrstu
sprettina, enduöu i 4. sæti.
Úrslit:
1. Kenýa 2.59.8
2. Bretland 3.00.5
3. Frakkland 3.00.7
4. V-Þýzkaland 3.00.9
5. Pólland 3.01.1
6. Finnland 3.01.1
Noregur
Framhald af bls. 4
sjálfstætt riki, sem markar sér
sjálft framtiðarstefnu.
Þann 25. september n.k. verður
skorið úr þvi við þjóöaratkvæða-
greiðslu, hvor þessara fylkinga
ber sigur af hólmi. Þó þessi at-
kvæðagreiðsla sé lagalega ekki
bindandi fyrir Stórþingið og rikis-
stjórnina, en eigi aðeins aö vera
leiðbeinandi i þessum efnum, þá
bar öllum Norðmönnum, sem ég
talaði við, jafnt með sem móti,
saman um það, að i reynd yrðu
úrslit atkvæðagreiöslunnar 25.
september bindandi, þvi það yrði
ekki þolað að þjóðarviljinn væri
virtur að vettugi. Þá gerðu
margir sér það ljóst, að erfiðasta
vandamálið gæti orðið það,
hvernig með málið ætti að fara, ef
styrkur þessara andstæðu fylk-
inga yrði þvi sem næst jafn i at-
kvæðagreiðslunni.
Rikisstjórn Brattelis, sem
hefur tekið afstöðu með inngöngu
i EFTA og berst fyrir henni af öll-
um mætti, hún er búin aö til-
kynna, að fái hún ekki inn-
gönguna samþykkta, þá segi hún
af sér. Allt er þvi i mikilli óvissu,
eins og stendur i norskum stjórn-
málum. Það var áberandi, að nei-
mennirnir norsku standa
fremstir með okkur tslendingum i
landhelgismálinu og vilja færa
norska fiskveiðilögsögu út, i ekki
minna en 50 milur, fái þeir stuðn-
ing þjóðarinnar til þess
Nauðungar-
flutningar
Framhald af 5. siðu.
viku reynslutima, geta verka-
menn komizt i ákvæðisvinnu, og
fengið sem svarar 500 dönskum
krónum i vikulaun. Þá geta kon-
urnar unnið i frystihúsinu, og
hjón sem vinna úti geta haft allt
að átta til niu hundruð danskar
krónur á viku”.
Allt í óvissu
Ég tek Knud Rosing, fulltrúa
danskra stjórnvalda, tali i mat-
sal skipsins:
„Knud Rosing, hlutverk yðar
er að skipuleggja brottflutning-
inn. 1 hverju er það fólgið?”
„Fyrst og fremst i að afla
upplýsinga um óskir útflytjend-
anna, og koma þeim á framfæri
til hlutaðeigandi aðila”.
„Er komið til móts við þessar
óskir?”
„Mér virðist sem það sé reynt
af fremsta megni, svo fremi að
þær séu aðgengilegar”.
„Hvers æskir fólkið?”
„Það fer einkum fram á ým-
islegt i sambandi við ibúðir,
vinnustaði, barnaheimili og
vöggustofur”.
„Ber að skilja þetta svo, að
allt hafi verið skipulagt vand-
lega áður en fólkið lagði upp frá
K’utligssat?”
„Það vonum við.”
„Hefur allt gengið samkvæmt
áætlun með fyrstu hópana sem
fluttu?”
„t byrjun voru ýmsir mis-
brestir á skipulaginu. Þá feng-
um við aðeins simskeyti, þar
sem sagt var, að hinn eða þessi
gæti komið með næsta skipi.
Ekkert var minnzt á atvinnu-
horfur eða húsnæði. Nú höfum
viö lært af reynslunni”.
„Eigið þér við, að fjöl-
skyldurnar sextán, sem nú
flytja, viti gjörla hvað þeirra
biður?”
„Nei, ekki er það svo. Ein-
hverra hluta vegna höfum við
engar upplýsingar fengið um
húsnæði eða atvinnuhorfur.
Yfirleitt fáum við upplýsingar
um tilvonandi heimili þeirra,
húsaleigu, vinnustað og laun”.
„Er þá allt i óvissu með fram-
tið þessa fólks?”.
„Nei, það vil ég ekki segja.
Þær hafa allar rætt við félags-
ráðgjafa og vinnuráðunaut, sem
hafa skýrt þeim frá hvað biði
þeirra i Jakobshöfn”.
Dýrt húsnæði
„Eiga allir visa ibúð i Jakobs-
höfn?”
„Já”.
„Er húsnæði þar dýrara en i
K’utligssat?”
„Já, miklu dýrara”.
„Fá fjölskyldurnar þá niður-
greiðslu á húsnæði?”
„Þær geta fengið vissar
ivilnanir, sem fara eftir fjölda
barna”.
„Er hugsanlegt að húsnæðis-
kostnaður sumra fjölskyldna
hækki t.d. úr 50 krónum i 500?”
„Já, og ekki nóg með það, i
sumum tilvikum gæti hann
hækkað úr 0 krónum i 800 á
mánuði”.
„Fyrir venjulega ibúð?”
„Já”.
„Og þær eru allar vanar að
búa i þannig húsum?”
„Já”.
„Þvi er haldið fram, að allir
útflytjendurnir fái vinnu. Er
það föst atvinna?”
„Nei, vinnan er árstiða-
bundin”.
„Fólkið getur sem sagt staðið
uppi atvinnulaust?”
„Já, það fer ekki hjá þvi á
vissum timum árs, til dæmis
þegar litið er um afla. Og þvi er
fólkið óvant. 1 K’utligssat
hafði það fasta atvinnu árið um
kring. A veturna var unnið i
námunni, og á sumrin var nóg
að gera við útskipun”.
„Verður fólkið ekki i
vandræðum með að borga háa
húsaleigu, ef vinna er stopul?”
„Vafalaust”.-
„Vitið þér hvernig þeim
K’utiigssatbúum, sem fluttu
fyrir nokkrum árum, hefur
vegnað?”.
„Nei, það vitum við ekki”.
„Hafið þér engan grun um
það? ”
„Maður hefur heyrt, að at-
vinnumálin séu ekki eins og bezt
yrði á kosið”.
„Hið opinbera hefur alltaf
haldið þvi fram, að ibúum
byggðarlaga, sem lög væru
niður, yrði tryggð atvinna”.
„Já, satt er það en það hefur
samt ekki heppnazt”.
Uppgjör reikninga
„Hafið þér, sem slikur, beitt
yður fyrir aö leggja
K’utligssat niöur?”
„Ég get skilið ákvörðun
stjórnvalda frá efnahagslegu en
ekki frá mannlegu sjónar-
miði?”
„Hvers vegna er hún skiljan-
leg frá efnahagslegu sjónar-
miði?”
„Vegna þess að það er hægt
að gera upp rekstrarreikninga
K’utligssat, og þaö má teljast
býsna óvenjulegt, hvað snertir
slik byggðarlög. Hallinn á
námunni sjálfri nemur tæpum
fimm miljónum króna á ári, en
það er nokkurn veginn heildar-
upphæð launagreiöslna árlega”.
„Er ekki halli á öllum rekstri
á Grænlandi?”
„Jú, en nú erum viö komnir út
i pólitiskar umræður, og þær vil
ég ekki blanda mér i”.
„Er ekki hugsanlegt, að hið
opinbera eyði jafn hárri upphæö
i flutningskostnað og félags-
aðstoð til útflytjendanna, eins
og þeirri, sem þarf til að reka
K’utligssat áfram?”
„Ekki kæmi mér það á óvart.
En þá reikninga verður erfiðara
að gera upp”.
| Strandferðaskipið kom til
Jakobshafnar nokkuð á eftir
áætlun. Þar tók formaður
sveitarstjórnarinnar á móti
fjölskyldunum sextán. A
bryggjunni stóðu vinir sumra
þeirra og vandamenn. Fólkið
kom koffortunum og pott-
blómunum fyrir á vörubilspöll-
um, klifraði sjálft upp á, og það
var ekið af stað.
Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför eiginmanns inins, sonar, foður
okkar, tengdafööur og afa,
AÐALSTEINS SNÆBJÖRNSSONAR,
MJÓSTRÆTI4.
Svava Stefánsdóttir Þórdls Andrésdóttir
Sesselja Aðalsteinsdóttir Anna Aðalsteinsdóttir
Snæbjörn Aðalsteinsson Kristin Lárusdóttir
Sveinn Ben. Aðalsteinsson Ólafla Jónsdóttir
Þórdfs Aðalsteinsdóttir Gisli Guðnason
Kristborg Aðalsteinsdóttir Rafn Guðmundsson
Stefán Aðalsteinsson EHn óladóttir
og barnabörn
Maðurinn minn
HALLDÓR ÓLAFSSON
FRA FÖGRUBREKKU,
andaðist að heimili sinu, Lönguhlið 19 Reykjavik, þann 10.
september.
Guðrún Finnbres -óttir.
mmmmmmmmmmmmmk jmm wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
ENSKAN
Kvöldnámskeið og siðdegistimar fyrir
fullorðna
BYRJENDAFLOKKAR
FRAMHALDSFLOKKAR
SAMTALSFLOKKAR HJÁ ENGLEND-
INGUM
SMÁSÖGUR
FERÐALÖG
BYGGING MÁLSINS
VERZLUNARENSKA
LESTUR BÓKMENNTA
Innritun i sima 11109 og 10004 (kl. 1-7 e.h.)
Málaskólinn Mímir
Brautarholti 4.
Húseigendur HKðunum!
Rithöfund vantar vinnuherbergi i Hlið-
unum eða nærliggjandi hverfum.
Vésteinn Lúðvigsson,
simi 21428.
Ibúðir til sölu
í Æsufelli 4
Tvær 4ra herbergja 93 ferm,
Ein 5 herbergja 115,5 ferm,
Fjórar 7 herbergja 158,5 ferm,
söluverökr. 2.000.000
og kr. 2.060.000
söluverð kr. 2.520.000
söluverö kr. 3.240.000
og kr. 3.300.000
tbúöirnar seljast fullfrágengnar og afhendast I júli 1973.
Sameign utan og innan húss er fullfrágengin. Hverri Ibúð
fylgir geymsla og frystihólf I kjallara. I húsinu verður
m.a. hárgreiöslustofa, gufubaðstofa og barnagæzla.
h.f.
Lágmúli 9 — Reykjavik — Slmar: : 81550 — 81551.
Skrifstofufólk óskast
Óskum eftir að ráða fólk til starfa við bók-
hald frá 15. september n.k. að telja. Vél-
ritunarkunnátta og meðferð bókhaldsvéla
nauðsynleg.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna.
Upplýsingará skrifstofunni, Borgartúni7.
Fyrirspurnum ekki svarað i sima.
ÁFENGIS- OG TÓBAKS-
VERZLUN RÍKISINS
Evröpubikarkeppnin
VÍKINGUR - LEGIA, VARSJÁ
á Laugardalsvellinum.miðvikudaginn 13. september kl. 6.15. Verð aðgöngumiða: Stúka kr. 200.00
Stæði kr. 150.00. Börn 75.00 kr. Athugið. Aðeins stúkumiðar gilda að stúkunni.