Þjóðviljinn - 10.10.1972, Side 15
Þriðjudagur 10. október 1972. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA K.
Magnús
Framhald af bls. 7.
landi. Hún er hins vegar reiðu-
búin til samvinnu við erlenda
aðila á þeim forsendum að
islenzka rikið eigi meirihluta i
slikum fyrirtækjum og þau lúti i
einu og öllu islenzkum lögum. A
sviði smáiðnaðar er naumast
ástæða til samvinnu við erlenda
fjármagnsaðila um eignarhlut.
Sú iðnþróunaráætlun sem nú er
verið að fullgera stefnir að iðn-
þróun sem tslendingar ráði
örugglega yfir, einnlendri iðn-
væðingu.
Þegar talað er um iðn-
þróunarhugmyndir Jóhanns
Hafsteins og þau áform sem ég
hef nýlega gert grcin fyrir er þvi
um að ræða gcrólik markmið,
andstæðar hugmyndir um getu
landsmanna og raunar framtið
þeirra.
— Telur þú að fyrri áform
viðreisnarflokkanna séu
óbreytt?
— Þvi miður sé eg enga
ástæðu til að ætla annað. Til að
mynda hefur Morgunblaðið
hamazt i allt sumar gegn stefnu
og ákvörðunum rikisstjórnar-
innar i raforkumálum. Blaðið
snerist gegn þvi, að Norðurland
væri gert að einum raforku-
markaði en vildi i staðinn láta
ráðast i smáaðgerðir á Norður-
landi vestra sem engan vanda
leystu. Morgunblaðið snerist
einnig gegn Mjólkárvirkjun á
Vestfjörðum, en mælti i staðinn
með Suðurfossárvirkjun sem
gat aðeins leyst litinn hluta af
raforkuvandamálum Vestfirð-
inga
Blaðið hefur snúizt gegn þvi
að lögð verði orkuveitulina frá
Búrfellssvæðinu norður i land
og m.a. borið fram þá kröfu að
Norðlendingar borguðu linuna
með þvi að kostnaður við hana
legðist ofan á raforkuverðið til
þeirra. Þetta er röksemd sem
menn ættu að gefa gaum . Sam-
kvæmt henni ættu Norðlend-
ingar einnig að greiða kostnað
af vegalagningu frá Reykjavik
og norður með hækkuðu verði á
vörum sem fluttar eru um veg-
inn. Auðvitað verður samteng-
ing orkuveitusvæða á sama hátt
og vegagerð að vera heildar-
átak þjóðarinnar allrar, enda
mun lina sem flytur orku norður
um skeið einnig flytja orku
suður, þegar ráðizt verður i
stórvirkjun nyrðra. En sam-
tenging orkuveitusvæða er for-
senda þess að þjóðin öil fái notið
stórframkvæmda og að hægt sé
að tryggja sama heildsöluverð á
raforku um land allt. Aðeins
mcð slikri stefnu er hægt að
framkvæma iðnþróun sem nái
til þjóðarinnar allrar.
1 hinni neikvæðu afstöðu
Morgunblaðsins, sem speglar
skoðanir tiltekins valdahóps i
Sjálfstæðisflokknum, birtist
einmitt vantrúin á getu íslend-
inga og framtið. Stórvirkjanir
eru þvi aðeins framkvæman-
legar að þeirra mati að útlend-
inar kaupi orkuna. Ef ekki
kemur til erlend stóriðja finnst
þeim að hver sveit geti látið sér
nægja bæjarlækinn heima.
Breyting
Framhald af 5. siðu.
lagt, tók hinn virðulegi réttur sem
gæðavöru. Siðan fékk hann sér
hálf-áttrætt gamalmenni til þess
að kveða upp dóminn sem hljóð-
aði á þá lund að hinn slasaði bæri
einn alla sök og útgerðin þvi ekki
bótaskyld.Hjálpi matsveinn til á
þilfari, eftir beiðni, og hljóti
meiðsl af, fær hann engar bætur
sá braser; honum bar sko skylda
til að halda sig i hæfilegri nálægð
við eldavélina. Þessi dæmi tala
sinu máli, en þau skipta vafalitið
hundruðum, og mál að linni.
Tryggingar ökutækja i umferð-
inni eru háþróaðar og fylgjast
ágæta vel með breyttum timum,
lögbundnar sem frjálsar.
I bifreiðatryggingum er
mannslifið yfirleitt metið hærra
en gerist i sjóslysatryggingum,
en þær kúra ennþá aftur i grárri
forneskju.
Mikil er lágkúra þeirra manna
er ætla sér að standa sem stein-
runnin nátttröll gegn þvi að þessi
ómannúðlegi tryggingarmáti
verði færður i mannúðlegra og
nútimalegra form.
Mér hefur verið sagt að útflutn-
ingssjóður, tryggingardeild, hafi
fengið i sinn hlut rúmar 400
miljónir króna s.l. ár, 80% af tekj-
um sjóðsins. Þó er talið að 200
hundruð miljónir muni vanta til
þess að hægt verði að ljúka
greiðslum til tryggingafélag-
anna. Þetta virðist vera óseðjandi
hit eins og áður var og mikil
nauðsyn að láta þá ekki hremma
það sem eftir er af sjóðnum og
öðrum er ætlað.
Breytingin sem Alþingi gerði á
siglingalögunum er efalaust til
bóta. Það sýna viðbrögð þeirra
sem hafa um áratugi leikið sér aö
réttmætum slysabótum til handa
sjómönnum sem hjá þeim hafa
starfað eins og kötturinn að mús-
inni. Nú riður á miklu að engar
þær breytingar verði gerðar á
lögunum sem rýrt gæti langþráða
réttarbót sem þeim var ætlað að
veita sjómannastéttinni. Það
væri fróðlegt að fá upplýst hjá
tryggingarfélögunum hve mörg-
um yfirmönnum hgfa verið
greiddar slysabætur siðasta
aldarfjórðung og upphæðina i
krónum. Þetta hefir verið bar-
áttumál F.F.S.t. um langan tima,
og nú verða þeir að standa fast i
istaðinu og hrinda með festu
hverri tilraun til skemmdarverka
á siglingalagabreytingunni sem
Alþingi samþykkti með 60 sam-
hljóða atkvæðum 29. mai 1972.
Minning
Framhald af bls. 2.
Hjálmar Eliesersson var
gæddur nægri skapfestu og
seiglu til þess að láta erfið-
leikana ekki buga sig. Hann
varð þvi einn þeirra manna er
skiluðu verkalýðshreyfingunni
áleiðis til aukins styrks og
viðurkenningar og lögðu grund-
völl að bættum lifskjörum
þeirra er minna máttu sin og
lengi báru skarðan hlut frá
borði. Hann var stilltur vel en
fastur fyrir og kunni ágætlega
að halda á þeim málum sem
hann vann að, hvort sem þau
voru á sviði verkalýðsmála, al-
mennra atvinnumála eða
hreppsmála. Hann náði þvi oft
ótrúlegum árangri þar sem
öðrum sýndust flestar leiðir lok-
aðar eða litt færar.
Hjálmar var að eðlisfari við-
kvæmur i lund og bjó yfir rikum
tilfinningum. Hann tók þvi oft
nærri sér áföll og mótbyr sem
honum eins og flestum öðrum
hlutu að mæta á lifsleiðinni.
Þetta vissu vinir hans, enda þótt
hann væri að eðlisfari dulur um
eigin hagi og það væri fjarri
honum að bera tilfinningar
sinar á torg.
Fráfall Hjálmars Eliesers-
sonar á góðum starfsaldri og
með óvæntum hætti er öllum
vinum hans og kunningjum
saknaðarefni. En sárasturharm
ur er þó kveðinn að eiginkonu
hans, Jensinu Jóhannsdóttur,
börnum þeirra fimm og öðrum
nánustu vandamönnum.
Minningin um umhyggjusaman
heimilisföður og góðan dreng er
þó dýrmæt eign og harmabót á
viðkvæmri skilnaðarstund.
Þeim eru öllum færðar einlægar
samúðarkveðjur.
Guðmundur Vigfússon.
Innbrot
Framhald af bls. 3.
hinum nýja útsýnisturni við laug-
ina brotin, sólbrettum dreift út
um alla laug, hjólavagni og fleiru
hent út i laugina. Sem sagt engu
stolið, að þvi aðséö verður, en allt
skemmt sem hægt var.
Mjög svipuð aðkoma var i
Sundlaug vesturbæjar i fyrrinótt.
Lögreglunni var tilkynnt um, að
maður hefði farið þar inn. Þegar
hún kom á staðinn sást til manns-
ins, en honum tókst að komas'
undan i myrkrinu,og þrátt fjr.r
mikla leit i nágrenninu far.ist
hann ekki.
011 ummerki voru svipuð i
vesturbæjarlauginni. Þar hafði
öllu lauslegu verið hent i laugina
og annað brotið og bramlað. Engu
virðist hafa verið stolið, heldur
allt kapp lagt á að skemma og
spilla. Hér er greinilega veikur
maður á ferð, haldinn mikilli
skemmdarfýsn.
S.dór
Víkingur
Framhald af 10. siðu.
þessi leikmaður var i unglinga-
landsliðinu i fyrra og á eflaust
eftir að ná langt i handknattleik.
Þá áttu Jóhann Frimannsson og
Halldór Bragason ágætan leik. |
Hjá Viking var það helzt Einar !
Magnússon sem eitthvað stóð
uppúr i tvennum skilningi.
Mörk Þróttar: Trausti 4, Hall -
dór, 2 Sveinlaugur, Arni, Kjartan
og Guðmundur 1 mark hver.
Mörk Vikings: Einar 5, Jón Sig,
2, Ölafur 2, og Magnús 1 mark.
—S.dór. ;
ísafjörður
Framhald af bls. 16.
i Kópavogi. Ennfremur óttaðist
meirihlutinn, að bæjarsjóður yrði
dæmdur til að greiða Jóni Guð- j
laugi allt að 2,8 miljónir kr., ef \
honum yrði vikið úr embætti I
bæjarstjóra.
Þá var gengið til þess ráðs að I
gera starfsaðstöðu hans þannig, >
að honum yrði illa vært i starfi og
yrði að segja þvi lausu eins og nú
er komið á daginn. Þá er á allra
vitorði, að Bolli Kjartansson
verði ráðinn bæjarstjóri, en um !
launakjör hans er enn ekki kunn- ;
ugt. Ef til vill verður það leyndar-
dómur eins og bæjarmálastefnu-
skrá meirihlutans. H.ö.
Blaðið hafði simsamband vest-
ur i gær og innti Jón nánar eftir
afsögninni.
Sagði hann að afsagnarbréfið
væri dagsett fyrsta október og
hefði verið tekið fyrir á bæjar-
stjórnarfundi 5. október, og átti
að koma fyrir bæjarráðsfund i
gær klukkan 5.
t afsagnarbréfinu tók Jón fram,
að ástæðan fyrir uppsögn sinni
væri andstaða við nýmyndaðan
meirihluta, en hann mynda Sjálf-
stæðisflokksmenn, Alþýðuflokks-
menn og Hannibalistar, undir for-
ystu Jóns Baldvins Hannibals-
sonar.
Jón Guðlaugur Magnússon var
ráðinn sem bæjarstjóri af vinstri-
meirihluta eftir bæjarstjórnar-
kosningarnar 1970. Hann var
endurráðinn eftir kosningarnar
sem fram fóru á tsafirði vegna
sameiningar Eyrarhrepps og tsa-
fjarðarkaupstaðar i eitt bæjar-
félag. Þegar sú ráðning var
gerð, hafði ekki verið myndaður
meirihluti i bæjarstjórninni, en
nokkrar vonir stóðu til að aftur
yrði myndaður vinstrimeirihluti,
en úr þvi varð þó ekki.
„Reynslan, siðan nýr meiri-
hluti var myndaður i júli, hefur
leitt i ljós,” að mér er ógjörlegt að
vinna i andstöðu við ráðandi
meirihluta,” sagði Jón, og þvi
eðlilegt að ég segi starfi minu
lausu.” Er blaðið spurði hann um
hugsanlegan eftirmann, vildi
hann ekkert láta hafa eftir sér, og
ekki kvaðst hann vera búinn að fá
sér annan starfa.
Blaðið gerði itrekaðar tilraunir
i gær til þess að ná sambandi við
bæjarritarann i Kópavogi, Bolla
Kjartansson, en Þjóðviljinn
skýrði frá þvi i sumar, þegar
meirihlutamyndunin stóð yfir á
ísafirði, að hann þætti liklegur
kandidat til bæjarstjóra. Ekki
tókst okkur að hafa upp á Bolla,
svo ekki verður fullyrt um þá hlið
málsins að svo komnu.
Hins vegar er ástæða til aö geta
þess, að frumkvöðullinn að meiri-
hlutamynduninni á tsafirði, Jón
Baldvin Hannibalsson, og Bolli
þessi eru systkinabörn, og oft hef-
ur verið leitað innan frændgarðs
þessa, einmitt af mönnum innan
hans, eftir mönnum i virðingar-
stöður. —úþ
Hvað er bezt
Framhald af bls. 16.
þetta kjörtimabil að minnsta
kosti. Annað kemur vart til
mála.
Ellert.
Ellert B. Schram, formaður
Sambands ungra sjálfstæðis-
manna sagði:
— Það sem bezt hefur verið
gert er án efa að það hefur
komið i hlut þessarar rikis-
stjórnar að færa landhelgina
út.
Það sem ég held að hafi
valdið stuðningsmönnum
rikisstjórnarinnar mestum
vonbrigðum, hversu mistekizt
hefur að standa við þau loforð,
sem rikisstjórnin gaf um
félagsleg málefni.
Um þetta vil ég benda á þrjú
atriði: Fyrst vanmátt
Framkvæmdastofnunar rikis-
ins, i annan stað tillitsleysið
gagnvart gamla fólkinu i
skattamálum og i þriðja lagi
ráðleysið i glimunni við verð-
þólgudrauginn.
Gerður.
Gerður Steinþórsdóttir er
varamaður fyrir Fram-
sóknarflokkinn i borgarstjórn
Reykjavikur. Hún sagði:
útfærsla landhelginnar i 50
sjómilur er tvimælalaust það
bezta, sem rikisstjórnin hefur
gert. Fyrrverandi rikisstjórn
hefði aldrei haft dirfsku til
þess. Þó ber að fagna þvi, að
fullkomin samstaða tókst á
Alþingi. — Næsta skrefið er,
að rikisstjórinni auðnist að
gera hagkvæma samninga við
Breta og Vestur-Þjóðverja til
að tryggja lifsafkomu þjóðar-
innar.
Ég álit að meira hafi gætt
kapps en forsjár við afgreiðslu
skattafrumvarpsins, og það
þarfnist verulegrar endur-
skoðunar. Einnig álit ég, að 40
stunda vinnuvika fyrir alla
hafi komið of skyndilega, fólk
hafi ekki verið nægilega
undirbúið undir þessa breyt-
ingu. Annars vegar hefur
styttingin orsakað slæma
þjónustu þar sem ekki hefur
tekizt að skipuleggja vinnu
fólks nógu vel. Hins vegar
nægir ekki að fá fritima, það
þarf einnig að kunna að nýta
hann.
Ég óska rikisstjórninni
langra lifdaga, og vona að
störf hennar verði landi og
þjóð til farsældar.
Rikisstjórnin
Frámhald af bls. 1.
þessu ári. Á móti áhrifum
minnkandi afla vegur hinsvegar
aö nokkru hækkun á útflutnings-
verði, og er talið, að sú hækkun
nemi til frystihúsanna frá þvi
fiskverð var siðast ákveðið sem
svarar um 120 miljónum króna á
ársgrundvelli.
Lúðvik lagði áherzlu á það, að
þær greiðslur sem hér væri gert
ráð fyrir úr verðjöfnunarsjóðn-
um, væru eingöngu miðaðar við
timabilið til áramóta, en málin
yrðu skoðuðað nýju fyrir áramót.
Hann gat þess, að inn i Verð-
jöfnunarsjóð hefðu komið 150
miljónir króna á fyrstu 8
mánuðum þessa árs, svo aö
væntanlega mun hækka i sjóðnum
yfir árið þrátt fyrir þessar ráð-
stafanir.
Hér koma svo upplýsingar um
það, hve mikið hver fisktegund
hækkar:
Þorskur 19%, ýsa 12%, langa
18%, ufsi 6%, steinbitur 12%,
karfi 6% og lúða um 15%.
Lúðvik
Framhald af bls. 1.
borði meðan ekkert nýtt kemur
fram frá Bretum. Það er þeirra
að stiga næsta skref. Ég örvænti
ekkert um útkomuna. Bretar eru
hér með mikinn taprekstur, geta
ekki fiskað með eðlilegum hætti,
og aðstaða þeirra stórversnar, er
vetur gengur i garð.
Það er með öllu óhjákvæmilegt,
að verulega dragi úr fiskveiðum
útlendiriga á tslandsmiðum.
Gerist það ekki, erum við neyddir
til að minnka okkar eigin sókn, en
slikt þýðir versnandi lifskjör. Hér
verður annar aðilinn að vikja, þvi
að fiskistofnanir eru i I hættu, og
þó að við rekum erlendu togarana
úr landhelginni/verðum við
einnig að skipuleggja okkar eigin
veiðar betur en gert hefur verið.
Ráðherrann var að þv!
spurður, hvort ekki mætti vænta
þess, að farið yrði að taka togara i
landhelgi.
Hann minnti á, að landhelgis-
gæzlan heyrði ekki undir sitt
ráðuneyti, en kvaðst bera til
hennar fullt traust, og eflaust
kæmi að þvi áður en langur timi
liði, að togarar yrðu teknir.
Um hugsanlegar viðræður við
Vestur-Þjóðverja sagði ráð-
herrann,að islenzka rikisstjórnin
hefði lýst sig reiðubúna til tvi-
hliða viðræðna við þá en frá
Þjóðverjum hefði enn ekkert
frekar heyrzt.
Kópavogsapótek
Opið öll kvöld til kl. 7,
nema laugardaga til
kl. 2, sunnudaga milli
kl. 1 og 3.
Simi 40102.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Akureyri.
Almennur félagsfundur verður haldinn i Alþýðubandalagsfélagi
Akureyrar miðvikudag 11. okt. kl. 20.30, i Þingvallastræti 14 (fél-
agsheimili Einingar).
DAGSKRA:
Ilmtaka nýrra fclaga. Fclagsstarfið. Kosning fulltrúa á flokks-
ráðsfund. Önnur mál.
Stjórnin.
Verkfæri
eru sérgrein okkar
Næst þegar þú kaupir verkfæri, vertu viss
um að það sé