Þjóðviljinn - 12.10.1972, Side 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 12. október 1972.
Enn um BUR-mat
Þegaréglas i Þjóðviljanum um
daginn svar skrifstofu BÖR
vegna kjötkaupa útgerðarinnar,'
datt mér i hug dálitið , sem kunn-
ingi minn einn, sem verið hefur
skipsmaður á BÚR-togurum,
sagði mér:
Eins og einhverjir kunna að
vita, er seit tóbak og hlifðarföt
um borð i togurunum. Sölu þessa
annast ýmist loftskeytamenn eða
stýrimenn viðkomandi skipa.
Þessar vörur eru keyptar i heild-
sölu til skipsins, en seldar á
smásöluverði um borð. Gott og
vel, það er ekkert við þvi að
segja.
En hvernig er gróðanum varið?
Þessi kunningi minn fullyrti, að
gróðanum af tóbaks- og hlifðar-
fatasölu um borð i togurum BÚR
væri varið til skemmtiferðar
skrifstofufólks fyrirtækisins. Það
eru sem sagt sjómennirnir, sem
greiða sumarferðir skrifstofu-
fólksins!
Mér þætti vænt um ef skrif-
stofustjóri BÚR vildi segja okkur,
hvort þetta geti verið rétt.
hmh.
VÖRUGÆÐUNUM MÁ ÆTÍÐ TREYSTA
Svipmynd
úr umf erðinni
9 sovétmeim
á móti 3000
Bandarikja
mönmim
Alls komu rúmlega 12.600
ferðamenn til landsins i septem-
ber, þar af tæplega 6000 útlend-
ingar. 365 manns af þessum fjölda
kom með skipum til landsins.
Rúmlega 6700 tslendingar
komu heim þennan mánuð, og er
það að sjálfsögðu stærsti hópur-
inn. Næst-stærsti hópurinn var
frá Bandarikjunum, eða tæplega
3000 manns. Næst þessum koma
Bretar 656, 573 Þjóðverjar og 384
Danir.
Sovétmenn virðast hálf
smeykir við alla þá Bandarikja-
menn sem hér eru.þvi aðeins 9
Sovétborgarar komu til landsins i
september.
1 skýrslu útlendingaeftirlitsins,
þar sem þessar tölur er að fá,
gefur að lita nýtt landheiti, þvi
þar segir að tveir menn hafi
komið hingað frá Sameinuðu
þjóðunum.
Nýtt skólafélag
tslendingar sem stundað hafa
nám við háskólann i St. Andrews i
Skotlandi efndu til fundar i
Norræna húsinu laugardaginn 30.
september og ákváðu að stofna
með sér félag. Fundinn sátu 13
manns, en alls munu yfir 30
Islendingar hafa stundað nám við
St. Andrews háskóla . Eru þá
meðtaldir þeir, sem nám hafa
stundað i Dundee, en háskólinn
þar var fram til 1967 deild frá St.
Andrews-háskóla. 1 stjórn hins
nýja félags voru kjörnir þeir dr.
Þorsteinn Sæmundsson stjörnu-
fræðingur, Asmundur Jakobsson
eðlisfræðingur og Sigurður Stein-
þórsson jarðfræðingur
Háskólinn i St. Andrews er elzti
háskóli i Skotlandi, stofnaður
1411. Fyrsti íslendingurinn mun
hafa útskrifazt þaðan árið 1951,
en siðan hefur islenzkum náms-
mönnum þar farið fjölgandi. Alls
eru stúdentar við háskólann nú
um 3000 talsins.
Jöklarannsókna-
félag íslands
Jöklarannsóknarfélag íslands
er að hefja fræðslustarf vetrar-
ins.
Fundur verður i Domus Medica
föstudaginn 13. október kl. 20.30.
Fundarefni: Páll Theodórsson
og Bragi Árnason segja frá borun
á Bárðarbungu og sýna myndir.
Kaffi og rabb.
Félagar eru minntir á aðalhátið
félagsins i Átthagasal Hótel Sögu
laugardaginn 4. nóvember.
Nánar siðar.
Yélabilun
í Þór
Viðgerð stendur nú yfir á vél
varðskipsins Þórs i Kristjansand
i Suður-Noregi. Leitaði Þór þar
hafnar á iaugardag, þegar vart
varð vélarbilunar á heimleið frá
Danmörku. Komst Þór af sjálfs-
dáðum til hafnar. Ekki er þetta
talin alvarleg vélarbilun.
Trúlofunarfregn
Hinn 10. sept s.l. opinberuðu
trúlofunsina Inga H. Andreassen.
kennari. Hraunbæ 11. Reykjavik
og Matthias Viktorsson. húsa-
smiður. Smyrlahrauni 12.
Hafnarfirði.
Yerðlaunagetraun MÍR um Sovétrikin
í tilefni 50 ára afmælis Sovét-
rikjanna efna félögin MÍR og
Sovétrikin-tsland til verðlauna-
getraunar um Sovétrikin.
Fyrstu verðlaun eru ferð til
Sovétrikjanna um næstu áramót.
önnur verðlaun eru transistor-
tæki, ljósmyndavél og plötusett
og auk þess verða veitt aukaverð-
laun. Spurningarnar eru sem hér
segir:
1. Hvenær (ár og dagur) voru
Sovétrikin stofnuð?
2. Hvaða sambandslýðveldi eru
innan Sovétrikjanna?
3. Hvað er og i havða Sovétlýð-
veldi: a) Sevan, b) Alma-Ata,
c) Ventspils, d)Bækal, e)
Elbrús, f) Dnépr?
4. Hve margar þjóðir búa i Sovét-
rikjunum?
5. Hver var fyrsti forsætisráð-
herra (forseti Þjóðfulltrúa-
ráðs) Sovétrikjanna?
6. Fyrir hvað hafa eftirtaldir
Sovétmenn getið sér frægðar-
orð: a)Vladimir Majakovski,
b) Aram Khatsjatúrjan c)
Alexandr Dovzjenko, d) Maja
Plisetskaja, e) Vasili Smyslof,
f) Konstantin Tsiolkovski?
7. Hvaða áætlun um þróun at-
vinnulifs er nú verið að fram-
kvæma i Sovétrikjunum?
8. Hvaða ár voru félögin MIR, og
Sovétrikin-tsland stofnuð?
Svör sendist fyrir 25. október tif
skrifstofu MIR, Þingholtsstræti
27.
ÞingHiaður þrífur gallann
í sal efri deildar
Þegar skvett var limi yfir alþingismenn og ráðherra i fyrradag
urðu margir þeirra að gera stanz i hliðarherbergjum alþingis til
þess að þrífa gallann. Hér er Matthias Á Matthiesen alþingis-
maður að hreinsa jakkann sinn i sal efri deildar.
100 atvinnu-
lausir á landinu
Um siðustu mánaðamót voru
100 menn skráðir atvinnulausir á
öllu landinu. Hafði þá atvinnu-
lausum fækkað um 15 i
septembermánuði.
Enginn maður er skráður at-
vinnulaus i kauptúnum með þús-
und ibúa eða meira. Hins vegar
eru 26 skráðir i Reykjavik. 11 á
Sauðárkróki og 13 á Siglufirði.
í kauntúnum eru 20 skráðir á
Blönduósi. 17, á Skagaströnd. 7 á
Vopnafirði. Hafði 12 atvinnu-
leysingjum 1'a‘kkað á Blönduósi i
september og 16 á Skagaströnd.
Allt þetta ár hefur atvinnu-
leysingjum fækkað frá mánuði til
mánaðar samkvæmt skýrslum
frá félagsmálaráðuneytinu. Um
siðustu áramót voru 1103 menn
skráðir atvinnulausir á öllu land-
inu.
Timaritið
Sveitastjómarmál
SVEITARSTJÓRNARMÁL. 3.
tbl. 1972. flytur m.a. grein um
veiðimál i strjálbýli. eftir Einar
Hannesson. fulltrúa i Veiðimála-
stolnuninni; Björn Friðfinnsson,
fyrrv. bæjarstjóri. á greinina
Hitaveitur og hestvagnar; Björn
Árnason . bæjarverkfræðingur.
skrifar um sorphirðu. og
Valdimar Oskarsson. skrifstofu-
stjóri. um nýja fasteignamatið.
Birt er samtál við Ásgrim Hart-
mannsson. bæjarstjóra á ólafs-
l'irði. sem nú hefur gegnt starfi
bæjarstjóra lengur en nokkur
annar maður hér á landi. i þessu
tölublaði eru einnig birtar fréttir
frá sveitarstjórnum og lands-
hlutasamtökum sveitarfélaga og
frá Hafnasam bandi sveitar-
íélaga.