Þjóðviljinn - 12.10.1972, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 12.10.1972, Blaðsíða 12
12. StDA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 12. október 1!)72. Áhugasamt starfsfólk Bóksala stúdenta vill ráða áhugasamt starfsfólk. Tungumálakunnátta nauðsyn- leg. Reynsla i skrifstofustörfum æskileg. Umsóknir sendist Kélagsstofnun stúdenta. Pósthóif 21. Fyrir þriðjudag 17. okt. F/ÍA FLUGFÉEJXGINU Störf í vöruafgreiðslu Flugfélag íslands hf. óskar að ráða karl- menn til starfa i Vöruafgreiðslu félagsins' á Reykjavikurflugvelli. Upplýsingar hjá Sverri Jónssyni, stöðvar- istjóra á Reykjavikurflugvelli. Staða borgarverkfræðings í Reykjavík er laus til umsóknar. Staðan veitist frá ársbyrjun 1973. Laun samkv. lfl. B-5. Umsóknir sendist skrifstofu borgarstjóra Austurstræti 16, eigi siðar en 15. nóvember n.k. 11. október 1972 Borgarstjórinn i Ileykjavik. FÉLAC mim HUðMUSIARMANNA útvegar ybur hljóðfœraleikara og hljómsveitir við hverskonar tœkifœri íinsamlegast hringið í 20255 milli kl. 14-17 TVÖ LJÓÐSKÁLD, sem þýtt hafa hvor annars ljóð á móður- mál sitt, EINAR BRAGI og KNUT ÖDE- GÁRI),lesa úr ljóðum sinum i Norræna, húsinu fimmtudaginn 12. október kl. 20.30. Ljóðin verða' lesin bæði á islenzku og norsku. Knut ödegárd leikur einnig á flautu. Umræður. NORRÆNA HÚSIÐ LÍTLI GLUGGINN Til sjós — Þiö verðið að biða þangað til við komum aftur, sagði hann. — Þá skal ég hjálpa ykkur. Nú er það ekki hægt. Karlinn er vakandi. Hvenær komið þið aftur? spurði Óli. — í næstu viku. — Eruð þið ekki að fara í lang- ferð? Léttadrengurinn lokaði öðru auganu eins og hann væri að hugsa sig um. Jú, sagði hann. — En ekki núna. — Hefir þú farið víða? — Já, já, sagðir vinur okkar. — Ég hefi verið við miðjarðarlínuna. Þar var svo ógurlega heitt, að við urðum að hafa hænurnar inni í kæliskáp. — Hvers vegna? Leyfði ég mér að spyrja. — Annars verptu þær harðsoðnum eggjum. — Þú hefur komist í sitt af hverju, sagði Óli hrifinn. — Hefir þú aldrei orðið skipreika? — Ég held nú það. Síðast var ég nærri drukknaður. — Segðu okkur f rá því, sögðum við báðir í einu. Léttadrengurinn klóraði sér í höfðinu. — Jæja, sagði hann, — það var í Kyrrahafinu. Við fengum ógurlegan storm — ofsarok. Allt lék á reiði- skjálfi. Seglin rifnuðu, siglan brotnaði og skipið liðaðist að lokúm í sundur. Ég og kokkurinn komumst upp á mjótt borð, sem var á floti. Þarna sátum við í marga tima og vorum að deyja úr hungri. — Hvað svo? spurði Óli. — Þá köstuðum við hlutkesti um það, hvor ætti að éta hinn. Kokkurinn átti krónu í vasanum. Hann kastaði henni upp, en borðið var svo mjótt að hún féll í sjóinn og hákari gleypti hana. Rauðhærði strákurinn glápti á okkur. Við vorum ákaflega hrifnir. Hann hélt áfram. — Jæja, ég náði i styrtluna á hákarlinum. Við skárum hann og lifðum á honum þangað til okkur var bjargað. En kokkurinn var bálreiður. — Hvers vegna? — Þegar hann fór að leita að krónunni sinni í maga hákarlsins, voru þar aðeins 70 aurar. Vitið þið,j hvernig á því stóð? — Nei, sögðum við báðir i einu. — Það var af því, að hákarlinn er svo fljótur að melta. Hann var búinn að melta 30 aura af krónunni. — Við Óli horfðum hvor á annan. — En hvað þú hefur komist í margt, sagði blessunin hann bróðir minn. — Já, og þetta er allt saman heilagur sannleikur, svaraði strákurinn, — annars væri ég ekki hér. Við flýttum okkur i land. Komið þið í næstu viku, hrópaði rauðhærði strákurinn á eftir okkur. — En þið verðið að minnsta kosti að hafa með ykkur krónu. Þá skylduð þið fá að koma í langferð. — Jæja, krónu, — alveg einsog þá, sem hákarlinn át, hrópaði Óli. Við námum fyrst staðar, þegar við komum að hafnarhúsinu. Óli spurði einhvern mann kurteislega, hv^rt skútann ,,Anna Soffía" færi. — ,,Anna Soffía," sagði maðurinn. — Hún flytur kartöflur á milli Sámseyjar og Kaupmanna- hafnar. Léttadrengurinn þar er sá mesti lygalaupur, sem ég hefi nokkurn tima þekkt. Við þökkuðum fyrir upplýsingarnar og gengum heim í hægðum okkar. Okl.ur langaði ekki lengurtil sjós. Heima í eldiviðargeymslunni sátum við drykklanga stund hvorá móti öðrum og mæltum ekki orð af munni. Að lokum sagði Óli: Þessi saga var 25 aura virði. — Og ég var honum sammála. En þegar öllu var á botninn hvolft, var best að vera heima. Prinsinn, sem hikstaði Ævintýri eftir Anthony Armstrong Einu sinni var kóngur, sem hét Gúmmílakk, og hafði móðgað álf- konu. i þá daga var það hið mesta ó- happaverk að móðga álfkonur. Það gat haft alvarleg eftirköst. Það var á allra vitorði, að nágrannaríkinu væri stjórnað af vansköpuðu hrossi, og öðru riki stjórnaði dauðhræddur krónprins í umboði stóreflis eikar- trés,sem'alveg óvænt hafði fest ræt- ur í næst bezta krýningarsalnum í höllinni. Gúmmílakk kóngur hafði nú samt sem áður ekki orðið tilfinn- anlega fyrir barðinu á álfkonunni, því að amma hans kunni fyrir sér, og álögin hrinu ekki á hann, nema hvað hann fékk óþægilegan verk í bakhluta líkamansþenna sama dag. En álfkonan hugði á hefndir og beið átekta. Leið nú og beið þangað til drottningin fæddi son, sem hún kall- aði Smekk, í þeirri von, að hann yrði smekkmaður. Þegarátti að fara að skíra, komu allar álfkonur í ríkinu með gjafir handa prinsinum. Þær voru einmitt að drekka kaffið og gera lítið úr veitingunum, eins og gengur, þegar allt í einu kom blossi og álfkonan móðgaða, sem auðvitað hafði ekki verið boðið, birtist á gólfinu í mikilli svælu og voða-skapi. — Nú, hvers vegna er mér ekki boðið? spurði hún, og meðan Gúmmílakk kóngur tautaði eitthvað um að hann hefði gleymt heimilis- fangi hennar, gekk hún yfir að vöggunni. — Ég kom með gjöf handa barn- inu, sagði hún ískyggilega mjúkmál. — O, það er svo sem alveg óþarfi, sagði aumingja kóngurinn í mesta fáti og tvihenti bjórkolluna til að manna sig upp — reyndar var hann áður búinn að fá sér vel neðan i því við háborðið. — Gjöfin sú, hélt álfkonan áfram, — skal minna þig á mig upp frá þessu. Framhald

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.