Þjóðviljinn - 12.10.1972, Side 15
Fimmtudagur 12. október 1972. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15.
Minningarorð
Framhald af 10. siðu.
frá stofnun þess 1947 til 1961.
Hann var i nýbýlastjórn á árun
um 1947-1970, var kosinn af
Alþingi i milliþinganefnd um
brunatryggingar utan Reykjavik-
ur 1954 og i milliþinganefnd til að
endurskoða ábúðarlög 1959. Hann
var kosinn alþingismaður i fyrsta
sinn 1919 og sat á þingi á árunum
1920-1931, 1933-1937 og 1942-1959, á
35 þingum alls.
Jón Sigurðsson var mikill
áhugamaður og forgöngumaður
um landbúnaðarmál. Hann bjó
rausnarbúi á sögufrægu höfuð-
bóli. Hann var stjórnsamur og
hjúasæll framkvæmdamaður
heima fyrir og glöggskyggn og
tillögugóður um málefni landbún-
aðarins á þeim fjöldamörgu fund-
um og þingum, sem hann sat um
ævina. Hann var oft kvaddur af
stjórnarvöldum og stéttarbræör-
um sinum til að vinna að undir
búningi löggjafar um landbúnað.
A Alþingi beindist áhugi hans og
starf um annað fram að þeim
málum. Hann átti löngum sæti i
landbúnaöarnefnd, og mátu and
stæðingar hans jafnt sem sam-
herjar i stjórnmálum jafnan mik-
ils það, sem hann hafði þar til
mála að leggja. Mikinn áhuga
hafði hann á sögulegum fróðleik
og varðveizlu þjóðlegra verð
mæta. Hann hafði frum
kvæði að lagasetningu um
byggðasöfn og hérðasskjalasöfn
og átti rikan þátt i stofnun
byggðasafns Skagfirðinga i
Glaumbæ. t Sögufélagi Skagfirð-
inga vann hann ósleitilega að þvi
að koma á framfæri sögulegum
fróðleik og lagði sjálfur hönd að
verki við ritstörf um búendur i
Skagafirði og annan skagfirzkan
fróðleik. Hann var vinsæll
hérðashöfðingi og skilaði
miklu ævistarfi.
Asgeir Asgeirsson var fæddur
13. mai 1894 i Kóranesi á Mýrum.
Foreldrar hans voru Ásgeir kaup-
maður þar Eyþórsson kaup-
manns i Reykjavík Felixsonar og
kona hans, Jensina Björg
Matthiasdóttir trésmiðs i Reykja-
vik Markússonar. Hann lauk
stúdentsprófi i menntaskólanum i
Reykjavik vorið 1912 og guðfræði-
prófi i Háskóla tslands 1915. Hann
var biskupsskrifari 1915-1916,
stundaði framhaldsnám i guð-
fræði og heimspeki við háskólana
i Kaupmannahöfn og Uppsölum
1916-1917 og var bankaritari i
Landsbankanum 1917-1918.
Kennari við kennaraskólann var
hann 1918-1927. A árinu 1926 var
hann settur fræðslumálastjóri og
skipaður i það embætti ári siðar.
Frá 20. ágúst 1931 til 3. júni 1932
var hann fjármálaráðherra, en
tók þann dag forsæti i nýrri rikis
stjórn og var forsætisráðherra til
29. júli 1934. Tók hann þá aftur við
embætti fræðslumálastjóra og
gegndi þvi fram á árið 1938. Áár-
unum 1938-1952 var hann banka-
stjóri Útvegsbanka Islands.. Hinn
1. ágúst 1952 tók hann við embætti
forseta Islands og gegndi þvi
fram á árið 1968, er hann kaus að
draga sig i hlé fyrir aldurs sakir,
þá kominn nokkuð á áttræðisald-
ur.
Mörg voru þau störf, sem
Ásgeiri Ásgeirssyni voru falin
jafnframt hinum föstu embættis-
störfum og skal nokkuð af þeim
störfum talið hér. Hann var kjör-
inn alþingismaður 1923, tók sæti á
Alþingi hið fyrsta sinn 1924, og
var siðan óslitið þingmaður Vest-
ur-isfirðinga fram til 1952, er
hann var kjörinn forseti íslands.
Sat hann á 36 þingum alls. Forseti
sameinaðs Alþingis var hann
1930-1931. Hann átti sæti i milli-
þinganefnd i bankamálum 1925-
1927 og aftur 1937-1938, var i
alþingishátiðarnefnd 1926-1930
formaður gengisnefndar 1927-1935
og formaður Stúdentagarðs-
nefndar 1937-1952. 1 gjaldeyris-
kaupanefnd var hann 1941-1944, i
samninganefnd utánrikisvið-
skipta 1942-1952 og i undirbún-
ingsnefnd lyðveldishátiðar 1943-
1944. Iiann var fulltrúi á fjár-
málafundi Sameinuðu þjóðanna i
Bretton Woods i Bandarikjunum
1944. bankaráðsmaður Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins 1946-1952 og i
sendinefnd islands á Allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna 1947 og
1948.
Ásgeir Ásgeirsson valdi sér
guðfræði að háskólanámi og varð
siðar kunnur að frjálslyndi i
trúmálum. Ungur vann hann
bankastörf um eins árs skeið, og
i siðar varð bankastjórn aðalstarf
hans árum saman. Margs konar
önnur afskipti af fjármálum og
efnahagsmálum hafði hann um
ævina. Á Alþingi átti hann lengi
sæti i fjárhagsnefnd og var um
skeið fjármálaráðherra. Hátt á
annan áratug var aðalstarf hans
kennsla og fræðslumálastjórn, og
beitti hann sér þá meðal annars
fyrir nýrri lagasetningu um
fræöslu barna. Hann átti sæti i
utanrikismálanefnd Alþingis og
var oft i samninganefndum um
viðskipti tslendinga við aörar
þjóðir. Hann sat á Alþingi tæpa
þrjá áratugi við miklar vinsældir
og traust af hálfu kjósenda sinna.
Hann var forseti Alþingis á hátiö
þess 1930 og skipaði þann sess
með miklum sóma. Störf hans á
svo mörgum sviðum sem hér hef-
ur verið talið og leyst af hendi
með sæmd eru augljóst vitni um
það traust, sem hann naut, þá
hæfileika, sem hann hafði hlotið i
vöggugjöf, og þá fjölþættu mennt-
un og lifsreynslu, sem hann aflaði
sér um dagana.
Asgeir Asgeirsson var um lang-
an aldur i hópi mestu áhrifa-
manna þjóðarinnar. Hann var
hygginn málafylgjumaður, snjall
samningamaður og átti gildan
þátt i mörgum afdrifarikum
stjórnmálaákvörðunum, meðan
hann átti sæti á Alþingi. Um slik
mál er einatt deilt hart, og flest
mannanna verk á þvi sviði orka
tvimælis og skipa mönnum i and-
stæða flokka. Þess var ekki að
vænta, að Asgeir Ásgeirsson færi
varhluta af gagnrýni og ádeilum
fyrir árangursrik stjórn-
málaafskipti sin. Slikt er hlut-
skipti allra mikilla stjórnmála-
manna.
Asgeir Asgeirsson var höfðing-
legur á velli, virðulegur og alúð-
legur i senn. Glöggur mannþekkj-
ari var hann og fjölfróður um
land og þjóð, sögu, bókmenntir
og atvinnuhætti, og hann kunni þá
viðræðulist, sem við átti á hverj-
um stað og hverri stundu. Hann
hófst ungur til áhrifa og mann-
virðinga og komst siðar til æðstu
metorða á landi hér. Forsetinn
Asgeir Ásgeirsson naut mikillar
hylli að verðleikum. Hann var
gæddur þeim mannkostum, sem
öfluðu honum vinsælda i embætti
forseta Islands, og hann hafði öðl-
azt þá lifsreynslu, sem gerði hann
færan um að leysa þar stört sin af
hendi með ágætum.
Eg vil biðja þingheim að minn- j
ast Vilhjálms Þór, Jóns Sigurðs-
1 sonar og Ásgeirs Ásgeirssonar
með þvi að risa úr sætum”.
Rannsókn
Framhald af bls. 9.
Arið 1963 voru 143 starfsmenn ,
íðallega frá fyrirtækjum i málm-
ðnaði, en einnig starfsmenn úr
Vburðarvcrksmiðjunni, teknir til
| ilmennra heyrnarmælinga.
bessir menn voru á ymsuin aldri ,
>g i athuguninni var þeim skipt
liður i ýmsa aldurshópa.
I atliuguninni var gerður
'reinarmuiiur á þremur stigum
íeyrnardoyfu: 1) Kngin
leyrnardeyfa . eða eðlileg heyrn;
l) Litilsháttar , þ.e. byrjunarcin-
keimi. og 3) Mikil. þ.e. heyrnar-
leyfa á háu stigi.
Sem da'ini af niðurstöðum
þessara atbugana má nefna, að
uf 61 starfsmanni á aldrinuni
20—29 ára voru 1 1 með heyrnar-
deylu á byrjunarstigi, en 17 liöfðu
eðlilega lieyrn.
A aldurshilinu 19—50 voru 16
iiienii. Af þeim voru 15 með
beyrnardeyfu á báu stigi og að-
eins einn með eðlilega heyrn.
A aldrinum 59—60 voru 10 menn
heyrnurntældir, og þeir voru allir
með mikla beyrnardeyfu.
I'essar upplýsingar fengum við
íjá Sören Sörensyni . sem á þess-
jm tima var starfsmaður borgar-
ækniscmbættisins i Reykjavik og
nikill áhugamaður um bætta
lollustuha'tti á vinnustöðum.
Sö"en lagði á það áherzlu. að af
pessari könnun væri ekki hægt að
draga þá ályktun. að þessir menn
nefðu endilega orðið fyrir
neyrnártjóni á þeim vinnustöðum
sem þeir störfuðu þegar mæiingin
var gerð. Sumir þessara manna
höfðu t.d. starfað sem vélgæzlu-
menn á bátum áður og gátu þvi
eins hafa orðið fyrir heyrnartjóni
við þau eða önnur fyrri störf. I
annan stað sagði Sören að þegar
menn færu að eldast gæti
heyrnardeyfa auðvitað stafað af
hrörnun. Þannig voru_t.d. þeir 3
menn á aldrinum 69—70 ára sem
voru með i athuguninni allir með
mikla heyrnardeyfu, sem a.m.k.
að hluta til gat stafað af hrörnun.
En livar svo sem menn þeir
sem athugunin náði til höfðu orðið
fyrir heyrnartjóni, þá sýndi þessi
könnun að ástandið var alvarlegt
á vinnustöðum hér, sem bezt sést
af þvi, að um 94% manna á
aldrinum 49—50 ára skyldu vera
nieð stórskerta heyrn.
Sören upplýsti okkur um, að sá
hluti heyrnarsviðsins, sem er
einna viökvæmastur fyrir hávaða
er á bilinu 2000—6000 sveiflur á
sekúndu. Mannlegt mál liggur á
tiönisviðinu 300-1500 sveiflur á
sekúndu. Þvi er það, aö þeir sem
tapa heyrn á viðkvæmasta tiðni-
sviðinu eiga ekki erfitt meö aö
heyra tal viö eölilegar aðstæöur.
Þeir verða þvi ekki varir við
byrjandi heyrnardeyfu og ugga
ekki að sér fyrr en þessi atvinnu-
sjúkdómur er kominn á hærra
stig.
Fjárlög
Framhald af bls. 1.
Gjaldaliðir frumvarpsins hækka
um 3,3 miljarða króna frá fjárlög-
um fyrra árs, úr 16,5 miljörðum i
19,8 — eða um 20,1%. Tekjuliðir
hækka samsvarandi. Rekstraraf-
gangur er áætlaður 580 miljónir
króna en greiðsluafgangur rúmar
100 miljónir.
t fyrra var hækkun fjárlaga-
frumvarps frá fjárlögum fyrra
árs 26,7%, enda færðust þá ýmsir
tekju- og gjaldaliðir frá sveitar-
félögunum til rikisins.
En fjárlagafrumvarp fyrir árið
1971 hækkaði á sinum tima um
22,6% frá fjárlögum næsta árs á
undan. Var það siöasta fjárlaga-
I frumvarp i tið fyrri rikisstjórnar.
Lagt er til að skattvisitalan
hækki um 28 stig úr 100 stigum i
128, og þýðir það hækkun á per-
sónufrádrætti manna við næsta
skattaframtal um 28%. Ef miða
hefði átt skattvisitöluna við
hækkun framfærslukostnaðar á
árinu 1972 hefði hún aðeins átt að
hækka um 10%). Á timum fyrri
rikisstjórnar fékkst skattvisital-
an hins vegar oft ekki hækkuð,
sem nam hækkun fram-
færslukostnaðar.
Þeir gjaldaliðir fjárlagafrum-
varpsins, sem valda einir um 2/3
heildarhækkunarinnar, eru
1) Launahækkanir opinberra
starfsmanna, sem nema tæpum
miljarð króna, enda verður þetta
fynsta árið, sem siðustu kjara-
samningar þeirra segja til sin
með fullum þunga og auk þess
stafar fjórðungur launahækkun-
arinnar af yfirtöku rikisins á lög-
ga'zlukostnaðarhluta sveitarfé-
laganna.
2) Auknar greiðslur almanna-
trygginga. en hækkun þar nemur
734 miljónum króna, vegna stór-
bættra kjara bótaþega.
3) Niðurgreiðslur er áætlað að
aukist um 375 miljónir króna.
Meginforsendur tekjuáætlunar
Irumvarpsins eru sagðar þær, aö
almenn innlend verðmætaráð-
stöfun aukist um 10,6% og inn-
liutningur um 14%.
Þjóðviljinn mun siðar gera
nánari grein fyrir ýmsum liðum
fjárlagafrumvarpsins, en rétt er
að hafa i huga, að það fjárlaga-
írumvarp, sem fram er lagt við
hverja þingbyrjun, ber að skoða
sem uppkast, er á eftir að taka
miklum breytingum.
Vietnam
PTamhald af bls. 1.
ráðsbyggingunni eða loftvarnar-
eldiiaugar Norður-Vietnama.
Virtist hann gera á þvi mikinn
mun, en útvarpið i Hanoi. svo og
rikisstjórnir Sviþjóðar og Frakk
lands. halda þvi fram að banda-
riskar sprengjur hafi hæft sendi-
ráðið. Sendiherra Sviþjóðar,
Jean-Christoph Oberg, kom
fréttunum af árásinni til
Frakklands, enda önnuðust Sviar
fjarskiptasendingar fyrir franska
sendiráðið i llanoi, þar eð tæki
þess voru eyðilögð. öberg kvað
sprengjur hafa fallið i 400 metra
fjarlægð frá sænska sendiráðinu,
en það er i 2ja kilómetra fjarlægð
Irá þvi franska. Mikil eyðilegging
hefði orðið á stóru svæöi i mið-
borginni. og minnstu munaði að
alsirska sendiráðið færi sömu
leiðina og það franska.
Bandariski hermálaráðherrann
vildi ekki útiloka þann mögu-
leika, að flugmenn hans hefðu
sleppt sprengjum sinum ,,i ógáti”
yfir sendiráðsbyggingunum, en
hann hélt þvi fram að ekki séu
gerðar árásir á borgaraleg skot-
mörk né á miðbik Hanois ,,að
yfirlögðu ráði”.
Sendinefnd Norður-Vietnama á
friðarfundunum i Paris fordæmdi
árásina, kvað stjórn Nixons bera
ábyrgð á henni, enda væri hún
með vilja gerð.
Chelsea
Framhald af bls. 11.
sá hlutinn, sem kallaður var
stúka, orðinn mjög hrörlegur.
. Eftir hið alvarlega slys er varð i
Skotlandi fyrir tveim árum,
þegar áhorfendastæði hrundi og
margt manna lét lifið, tóku mörg
félög að huga að endurbyggingu
eða lagfæringu á leikvangi sinum.
Meðai þeirra var Chelsea, enda
var bent á, að Stanford Bridge
væri einn lakasti og hættulegasti
leikvangurinn sem þá væri i not-
kun. Upp úr þvi hófust forráða-
menn Chelsea handa um að
byggja nýjan leikvang, og i vor
var hafizt handa um að rifa niður
hluta af áhorfendastæðunum, þar
á meðal heiðursstúkuna, og að þvi
loknu hófst uppbyggingin.
Ekki er ótrúlegt, að þetta fram-
tak Chelsea verði til þess að fleiri
ensk l.-deildarlið og jafnvel 2,-
deildarlið, þótt þau séu flest
fátækari en l.-deildarliðin, hefjist
handa um uppbyggingu leik-
vanga sinna, enda er viða ekki
vanþörf á.
Barátta
Framhald af bls. 11.
i 3ja neðsta sæti er Sarpsborg
með 18 stig.
Undanfarin ár hefur Rosen-
borgar-liðiö verið i nokkrum sér-
flokki i norskri knattspyrnu og
vann til aö mynda bæði deild og
bikar i fyrra. Nú veröur liöið að
láta sér nægja 4. sætið. En það
hefur lika sjaldan verið jafn mikil
barátta um efsta sætið og nú er á
milli Vikings og Fredrikstad þar
sem aðeins eitt stig skilur á milli.
Islenzkir knattspyrnuáhuga-
menn fengu aö sjá Vikings-liðið
leika hér fyrir skömmu er það
mætti ÍBV i UEFA-bikar-
keppninni, og þá sáum við að
beztu norsku liðin eru mjög áþekk
okkar beztu liðum að styrkleika.
En svo við höldum áfram að
ræða um norsku l.-deildarkeppn-
ina, þá dugar Viking jafntefli i
sinum siðasta leik um næstu helgi
: til að vinna titilinn, þar eð marka-
tala þess er mun betri en marka-
tala Fredrikstad, ef það vinnur
sinn siðasta leik i deildinni.
Þá eru, eins og áður segir,
Mjölner og Hödd fallin niður i 2.
deild hvernig sem leikirnir fara
um næstu helgi. En staðan fyrir
siðustu umferð er þannig:
Viking 21-16-1-4-41:14-33
Fredriks. ,21-15-2-4-30:16-32
Strömgodset '21-10-7-4-40:26-27
Rosenborg
Lyn
Skeid
Hamark.
Mjöldalen
Bann
Sarpsborg.
Hödd
Mjölner
21-6-9-6-21:18-21
21-7-6-8-29:22-20
21-7-5-9-25:29-19
21-6-7-8-14:18-19
21-8-3-10-28:36-19
21-6-6-9-20:23-18
21-6-6-9-21:29-18
21-4-6-11-18:38-14
21-3-6-12-10:31-12
Þotur
Framhald af bls. 3.
að allar skoðanir og viðhald flug-
véla félagsins verði framkvæmt
hér á landi. Einnig viðhald fylgi-
hluta eftir þvi sem timar liöa.
Allar horfur eru þvi á, að þegar
fram liða stundir muni vinna
fyrir flugvirkja aukast á verk-
stæðum félagsins.
Allar hátiðniskoðanir á flugvél-
um félagsins hafa hingað til verið
framkvæmdar erlendis. — g.m.
Frá Finnlandi
Framhald af bls. 7.
skripaleikur i þinginu, tólf-
menningarnir settu upp aug-
lýsingar um fund i þingflokknum
sem jafnóðum voru teknar niður
af sexmenningunum og svo gekk
þar til þingverðir þreyttust og
létu auglýsinguna haldast á
töflunni. En er tólfmenningarnir
ætluðu að ganga til fundar fundu
þeir dyr þingflokksherbergisins
læstar, en þar hafði Vennamo
verið að verki og sett lykilinn i
eiginn vasa.
A miðstjórnarfundi þann 7. okt.
undir stjórn Vennamos var
komizt að þeirri niðurstöðu að
tólfmenningarnir hefðu rekið sig
sjálfa úr flokknum með þvi að
ganga af fundi þingflokksins,
þeim hafi verið gefinn kostur á að
biðjast afsökunar og fyrir-
gefningar á framferði sinu til 10.
okt., en utanaðkomandi öflum og
sundrungarmönnum flokksins
tekizt að koma i veg fyrir alla
sameiningarmöguleika og sátta-
viðræður.
Þar með er þessi litli sproti
fasistiskrar endurreisnar i Finn-
! landi á hraðri niðurieið og mun i
framliðinni ekki eiga nokkra
framtið fyrir sér. Ef nýafstaðnar
1 sveitarstjórnarkosningar hefðu
j verið þingkosningar, hefði þing-
styrkur Sveitaflokksins minnkað
; úr 18 i 5 þingmenn.
Borgþór S. Kjærncsted.
Tilboð óskast
i lílllGDASKEMMUK, STÆRÐ 12,5 X 30
M
Upplýsingar i sima 24989 kl. 10 til 12 ár-
degis næstu daga.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri
fimmtudaginn 19. þ.m. kl. 11 árdegis.
Sölunefnd varnarliðseigna.
ÍBÚÐ ÓSKAST
Rjóðviljinn óskar að taka á leigu 2ja til 4ra
lierbergja ibúð.
Fyrirlramgreiðsla ef óskað er.
Upplýsingar á skrifstofunni.
ÞJÓÐVILJINN