Þjóðviljinn - 20.10.1972, Blaðsíða 11
Köstudagur 20. október 1972. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
r
Ovœnt úrslit
Siöasta leikkvöld i Reykjavikur-
mótinu i handknattleik varð all sögu-
legt hvað úrslit leikja snertir, örugg-
lega það sögulegasta til þessa i mót-
inu. Bæði toppliðin, tslandsmeistarar
Fram og Reykjavikurmeistarar
Vals, töpuðu sinum leikjum og eru
það fyrstu stigin sem þessi lið tapa i
mótinu til þessa. Þá bar það einnig til
tiðinda að nýliðarnir i 1. deild, Ár-
mann, náðu aðeins jafntefli gegn
Þrótti. Og það sem meira er um vert,
allir leikirnir voru jafnir og skemmti-
legir og viröist svo sem heldur sé að
lifna yfir leik liðanna en hann hefur
verið heldur daufur það sem enn er af
mótinu. Við þessi úrslit er aftur kom-
in mikil spenna i mótið, en fyrir þetta
leikkvöld höfðu Fram og Valur ekki
tapað stigi. Nú stendur Vikingur bezt
að vigi, hefur aðeins tapað einu stigi,
en á erfiða leiki eftir. Það getur þvi
allt gerzt enn i sambandi við úrslit
Reykjavikurmótsins.
Allt ásuðumarki
Þegar Víkingur sigraði Fram 13:12
Mikið gekk á í leik Vik-
ings og Fram á miðviku-
dagskvöldið, og undir
lokin sauð uppúr og það
svo að vernda þurfti
Magnús V. Pétursson
dómara fyrir einum leik-
manni Fram, sem ekki
gat haft vald á skapi sínu.
Magnús gerði margar
skyssur i leiknum og sum-
ar alvarlegar, en einkum
var það þó undir lokin, að
honum brást bogalistin,
og birtnaði það nokkuð á
Fram-liðinu, og vildu
sumir leikmanna þess
kenna Magnúsi tapið. En
hvað um það, þetta var
átakamesti leikur mótsins
til bessa.
Vikingar komu mjög ákveðnir
til leiks og náðu afgerandi for-
ustu strax i byrjun, eða 4:0, og
þó að þetta væri á fyrstu 5
minútunum var þetta of mikill
munur til þess að Fram næði
nokkru sinni að vinna hann upp
til fullSjen minnst munaði einu
marki.
1 fyrri hálfleik munaði alltaf 2
til 4 mörkum, og i leikhléi var
staðan 7:4. Vikingum i vil.
Framan af siðari hálfleik
hélzt þetta 2ja til 4ra marka
munur en um miðjan hálfleikinn
var munurinn minnstur eða eitt
mark, 9:8. En siðan sigu Vik-
ingar framur aftur, en aftur
minnkuðu Framarar bilið niður
i eitt mark, 12:11, en Vikingar
komust i 13:11. Siðasta markið
skoruðu svo Framarar og þvi
lauk leiknum með sigri Vikings
13:12.
Vikings-liðið átti sinn lang-
bezta leik i mótinu að þessu
sinni.Það fer vart milli mála að
Vikingsliðið er bezt mannaða
liðið hvað skyttur snetir með þá
Guðjón, Einar og Magnús i
broddi fylkingar. En vörn liðs-
ins er alltaf veikari hluti þess,
er að þessu sinni kom þó ekki að
sök fyrir það hve einhæf sókn
Fram var.
Þar var það aðeins Axel einn
sem eitthvað kvað að, og hann
skoraði megnið af mörkum
Fram.
Mörk Vikings: Einar 6, Magn-
ús 2, Sigfús 2, Ólafur , Jón og
Guðjón eitt mark hver.
Mörk Fram: Axel 9, Sigurður
2 og Stefán 1.
— S.dór.
Valsmennirnir Itergur Guðnason (t.v. á myndinni) og Jón Breið-
fjörð fengu blóm frá llandknattleiksdeild Vals fyrir leikinn við KR
vegna þess að þetta var 250. ieikur Bergs, cn 200 leikur Jóns Breið-
fjörð.
Úrbrœdd mulningsvél
Valur varð að þola stórtap gegn KR, 9:13
Axel Axelsson hélt Framliðinu
uppi i leiknum gegn Víkingi og
skoraði 9 mörk.
Þvi veröur ekki meö
réttu haldið fram að neitt
lifi eftir af hinni frægu
Valsvörn, sem menn sáu í
fyrra og hittiðfyrra,
vörninni sem fékk á sig
nefnið ,,mulningsvélin'/,..
Hafi hún átt það skilið þá,
má kalla hana nú
úrbrædda mulningsvél,
svo hörmulega slök sem
hún var í leiknum gegn
KR. Þó eru svo til sömu
menn i liöinu og þá gerðu
það sem frægast. En það
er eins og allan áhuga
vanti, eða að hér hafi
verið um algert vanmat á
KR að ræða. KR-ingarnir
hafa að vísu ekki átt góða
leiki að unganförnu,en nú
náðu þeir sér vel upp, og
það hefur ekkert lið efni á
að vanmeta þá og halda
sig geta unnið þá fyrir-
hafnarlaust.
Að visu vantaði 3 af landsliðs-
mönnum Vals að þessu sinni, þá
Gisla Blöndal, Ágúst
ögmundsson og Ólaf Bene-
diktsson, en það er alveg sama;
fjarvera þeirra afsakar ekki
þetta tap. Sannleikurinn er sá
að leikmennirnir sýndu algert
kæruleysi og tóku aldrei á.
Það var rétt i byrjun að Valur
sýndi þokkalegan leik og komst
þá i 3:1. Þá var eins og liðs-
mennirnir héldu að þetta kæmi
svona af sjálfu sér og hættu allri
baráttu. Þetta notfærðu KR-
ingarnir sér, náðu að jafna 3:3,
4:4, 5:5 og höfðu komizt yfir i
leikhléi 7:6.
í siðari hálfleik var jafnt 7:7,
8:8, en þá sigu, KR-ingarnir
framúr og sýndu mjög góðan
leik á köflum. Og lokatölurnar
urðu stórsigur fyrir KR, 13:9.
Þeir Haukur Ottesen, Björn
Pétursson og Þorvaldur
Guðmundsson sýndu aliir góðan
leik að ógleymdum mark-
verðinum Ivari Gissurarsyni,
sem varði af snilld hvaö eftir
annað, en klaufaleg og ótima-
bær skot Valsmanna hjálpuðu
honum mikið.
Hjá Val var það aðeins Þor-
björn Guðmundsson sem stóð
uppúr meðalmennskunni. Hann
einn lék sina stöðu allan timann,
en stundum var hann eini
maðurinn i liðinu sem var inná
línu; hinir fimm léku allir fyrir
utan og ætluðu allir að skora á
sem stytztum tima.
Mörk KR: Björn P. 4, Þor-
valdur 3, Haukur 2, Björn Bl. 2,
Steinar og Bjarni 1 mark hvor.
Mörk Vals: Þorbjörn 3, Ólafur
.2, Stefán 2, Gunnsteinn og Jón
Karlsson eitt mark hvor.
—S.dór.
Ármann náði aðeins
jöfnu gegn Þrótti
Ármanns-liðið, sem
vakið hefur á sér verulega
athygli i síðustu leikjum
sinum fyrir góðan leik,
varð að láta sér nægja
jafntefli gegn 2.-deildar-
liði Þróttar, 14:14. Þetta
sannar það sem margir
hafa haldið fram að
undanförnu, að
Þróttarliðiö á áreiðanlega
eftir að gera stóra hluti í
2.-dei Idarkeppninni í
vetur. Þetta jafntefli var
mjög sanngjarnt og gátu
bæði liðin vel við það unað
miðað við gang leiksins.
Að visu leiddu Armenningar
lengst af,og einkum i fyrri hálf-
leik náðu þeir afgerandi forustu
8:4 og i leikhléi var staðan 8:5.
En i siðari hálfleik jafnaðist
leikurinn mjög. Á marka-
töflunni sá maður 9:7, 10:8,
12:10 og 13:12, alltaf Ármanni i
vil. Undir lokin var svo staðan
14:12 Armanni i vil en Þróttur
skoraði tvö siðustu mörkin og
jafnaði 14:14 og það urðu loka-
tölurnar.
Þar með hefur öllum leikjum
þessa leikkvölds i Reykjavikur-
mótinu lyktað með óvæntum úr-
slitum og gerir þetta mótið mun
jafnara og skemmtilegra en
áður.
Þróttarliðið er að verða mjög
skemmtilegt lið. Það veit sina
vankanta og reynir ekkert að
gera umfram það sem það
raunverulega getur, en sumw
um liðum hættir til aö ætla
sér um of. Þeir Halldór Braga-
son, Guðmundur Jóhannsson og
Trausti Þorgrimsson að
ógleymdum Jóhanni Frimanns
syni áttu mestan heiðurinn af
þessu jafntefli.
Ekki er örgrannt um að
Ármenningar hafi vanmetið
Þróttarliðið eitthvað. I það
minnsta fannst manni allt liðið
nema Vilberg Sigtryggsson
leika undir getu.
Mörk Þróttar: Halldór 4,
Trausti 3, Jóhann 4, Erlingur
Guðjónsson 2 og Guðmundur 1
mark.
Mörk Ármanns: Vilberg 3,
Björn 3, Hörður 2, Grétar 2,
Olfert, Ragnar, Pétur og Jón 1
mark hver. —S.dór