Þjóðviljinn - 07.12.1972, Page 1

Þjóðviljinn - 07.12.1972, Page 1
Fimmtudagur 7. desember 1972 — 37. árg.—278. tbl. ÞAÐ BORGAR SlG AÐ VERZLA í KRON k á Jafnlaunaráð til 1. umræðu í gær: Misréttið ótvírætt — sagði Svava Jakobsdóttir. Frumvarpift um jafnlaunaráö var til fyrstu umræöu á fundi ncöri deildar alþingis i gær og inælti Svava Jakobsdóttir fyrir frumvarpinu. Kins og áöur hefur veriö getið hér i blaöinu eru með- flutningsmenn frumvarpsins einn þingmaöur frá hverjum hinna flokkanna, Stefán Valgcirsson, Stefán (íunnlaugsson, Hjarni (iuönason og ()lafur G. Kinarsson. I framsöguræöu sinni rifjaöi Svava upp meginefni frum- varpsins og þær breytingar, sem á frumvarpinu hafa verið gerðar frá þvi þaö var til umræðu á þingi i fyrra. Aö lokinni ræðu Svövu töluöu tveir þingmenn Sjálf- stæöisflokksins, þeir Sverrir Her- mannsson og Halldór Blöndal. Málflutningur þeirra var vægast sagt mjög neikvæður i garö frum- varpsins. Um hlutverk frumvarpsins sagði Svava Jakobsdóttir að það Átök umlóðir í Stóragerði hefði að geyma 1) skýlaus ákvæði um lagalegt jafnrélti kynjanna og 2) þvi væri ætlað að tryggja fram- kvæmd á jafnrétti kynjanna i at- vinnulifinu og til starfs i sam- ræmi við islenzk lög og sam- þykktir Alþjóðavinnumála- Frh. á bls. 15 Byrjaðir að safna Strákarnir í Reykjavik eru þcgar byrjaðir að safna i ára- mótabrennurnar eins og sjá má af þessari mynd, scm tckin var i gær vestur á Sörlaskjóli i Reykjavik. Strákarnir sögöu að allir i ná- grenninu hjálpuðust að við að safna i brennurnar. — Eruð þið búnir að fá leyfi? — Nei, ekki enn, það er ekki farið að veita þau, en við höfum alltaf haft brennur hérna og babbi eins stráksins fær leyfi fyrir okkur þegar farið verður að veita þau. — En er þá ekki hætta á að lög- reglan komi og taki brennuefnið af ykkur fyrst þið eruð ekki búnir að fá leyfi? — Nei, nei, þeir eru ágætir og taka þetta ekki frá okkur, enda erum við rétt að byrja að safna og fáum bráðum leyfið. — Hvar fáið þið svo efnið? — Hingað og þangað. Það koma sendibilar með það og svo fáum við lika kassa i verzlun- unum og svo bara um allt. — Verður þetta stærsta brenn- an hér i Vesturbænum? — Já, langstærsta brennan. Hún hefur alltaf verið það og við ætlum lika að hafa hana það núna. — En nú eru tvær brennur hér rétt hjá ykkur, verða þeir strákar sem safna i þær ekki eins duglegir og þið og safna i jafn stóra brennu? — Ja, það getur verið, en við berðum þá bara að herða okkur svo okkar brenna verði stærst. — Hvað eruð þið margir sem eigið þessa brennu? — Það er ekki gott að segja, við erum ógurlega margir, næstum allir strákarnir i Sörlaskjólinu og margir af Ægissiðunni og hérna i kring, nema bara þessir sem eiga brennurnar hérna við hliðina. — Þeir eru nú dálitið margir? — Já, dálitið en ekkert mjög margir, við erum fleiri og verðum með flottustu brennuna. Að svo komnu kvöddum við þessa snaggaralegu stráka, enda var þeim ekki til setunnar boðið. — S.dór. Mikil átök áttu sér stað i borgarráði i gær er fjallað var i annað sinn um úthlutun lóða i Stóragerði. Sigurjón Pétursson borgarráðsmaður Alþýðubanda- lagsins skýrði Þjóðviljanum frá þvi i gærdag, að á borgarráðs- fundinum hefði hann, ásamt Kristjáni Benediktssyni, lagt til að kosin yrði sérstök sjö manna nefnd i borgarstjórn til þess að út- hluta þessum eftirsóttu lóðum, en úthlutunartillögu lóðanefndar yrði þar með hafnað. Þessi tillaga Kristjáns og Sigurjóns var felld með 3 atkvæðum gegn 2. Sigurjón sagði að hann teldi að lóðanefndin hefði brotið þær reglur er hún setti sér sjálf i sam- bandi við þetta mál. Þess vegna hefði verið flutt tillagan um sér- staka úthlutunarnefnd af hálfu borgarstjórnar. Er meirihluti ihaldsins i borgarráði hafði fellt fyrrgreinda tillögu lögðu þeir Sigurjón og Kristján fram aðrar tillögur sem einnig voru felldar og kemur málið þvi á dagskrá borgar- stjórnar Reykjavikur i dag. — Upphaflega voru umsækjendur um lóðir i Stóragerði á sjötta hundrað, en þegar búið var aö vinza úr umsóknunum kom i ljós að um 290 höfðu umsóknir, sem unnt var að taka tillit til. Úr þessum umsókn- um valdi lóðanefnd 44 aðila — og um það mál verður tekizt á, á borgarstjórnarfundinum i dag. Yinningaskrá SÍBS er birt á 15. síðu blaðsins í dag | Lúðvík Jósepsson um samþykkt Sameinuðu þjóðanna: JKrafa um yíðtækari ■ "II# þykkt og tel að hún styrki veru- ^ I ^ I leea okkar málstað i lanrihpleis- istranariKia rétt Þjóðviljinn spurði i gær Lúðvik Jósepsson sj á va rut vegsráðherra álits á þýðingu sam- þykktar Sameinuðu þjóðanna, er gerð var fyrir fáum dögum, um _ yfirráð strandrikja yfir auðlindum hafsins og hafsbotnsins, en frá þessari samþykkt hefur verið greint ítarlega í Þjóðviljanum og öðrum dagblöðum. Lúðvik sagði: Ég fagna mjög þessari sam- le^a okkar málstað i landhelgis- maiinu. Þessi samþykkt ber það með sér, að þeirri stefnu vex óðfluga fylgi meðal þjóðanna, að strandriki verði og eigi að hafa fullkominn yfirráðarétt yfir öllum auðlindum hafsins út frá ströndum sinum. Hitt er svo að visu ljóst, að enn vantar nokkuð á, að nægilega sterk samstaða hafi fengizt um hvar ytri mörk þessa svæðis skuli vera, en um það atriði verður alþjóða hafréttarráðstefnan að taka endanlega ákvörðun. Telur þú ekki, að þessi sam- þykkt bendi eindregið til þess, að meirihluti þjóða styðji það sjónarmið að landhelgi skuli vera a.m.k. 50 milur? Þessi samþykkt, sem gerð var i 2. nefnd Sameinuðu þjóðanna, gerir ekki ráð fyrir neinni sér- stakri fjarlægð frá ströndinni, heldur er almenns eðlis um yfir- ráðarétt strandrikja yfir öllum auðæfum hafsins út frá strönd- inni. Það lék, að sjálfsögðu enginn vafi á þvi, að þessi eignarréttur strandrikja nær til Frh. á bls. 15 Lúövik Jósepsson

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.