Þjóðviljinn - 07.12.1972, Page 5
Fimmtudagur 7. desember 1972 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Þessi mynd er tekin af Sigfúsi Eymundssyni af Austurstræti og Lækjargötu um árið 1880. Þarna sést vel
Eymundssenhornið.
Ursin, kgl. bókbindari,og starfaði
Sigfús sem verkstjóri hjá honum
um skeið að loknu námi. Þá
dvaldi Sigfús i Noregi á fjórða ár
og komst þar i náin kynni við
skáldið Björnstjerne Björnson
og Ole Bull, hinn heimsfræga
fiðlusnilling. t Noregi nam Sigfús
ljósmyndaiðn, en hvarf aftur til
Hafnar og rak þar ljósmynda-
stofu um 2ja ára skeið.
Árið 1866 sneri Sigfús aftur
heim og settist að i Reykjavik.
Ferðaðist hann á sumrin og tók
myndir, en stundaði bókband á
vetrum.
Sigfús hafði forgöngu um ýms-
ar framkvæmdir. Hann varð
fyrstur til að koma á gufubáts-
ferðum um Faxaflóa og keypti i
þvi skyni i Englandi litið skip, en
vandað og hraðskreitt, sem áður
var skemmtiskip ensks lávarðar.
Var skipið skirt Faxi. Sökk það
seinast i hvassviðri hér i höfninni
og tapaði þá Sigfús miklu fé.
Nokkru eftir að Sigfús settist
hér að keypti hann hús það á
horni Lækjargötu og Lækjar-
torgs, sem enn stendur. Hú þetta
er um 120 ára gamalt. Byggði það
danskur kaupmaður, C.P. Knudt-
zon, en seinna bjó þar um langa
hrið sr. Ölafur Pálsson, dóm-
kirkjuprestur. Stækkaði Sigfús
Sigfús Eymundsson — fæddur á
Vopnafirði
Á þeim tima er Hannes skuld-
færður fyrir Gestssögum á 1
rikisdal, Bólu-Hjálmar á 2 rikis-
dali og 50 skiidinga, ljóðmæli
Byrons á 2 rikisdali og ritföng og
blek. Aldrei borgar skáldið,og er
kreditdálkur auður allan timann.
Árið 1907 keypti Pétur Hall-
dórsson, siðar borgarstjóri.bóka-
Þegar ljóð Kristjáns Fjallaskálds
seldust á 1 ríkisdal og 72 skildinga
— og vinnukonur grétu sig í svefn
Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar er 100 ára á
þessu ári. Er það eitt elzta fyrirtæki borgarinnar og
opnaði bókabúðin i lok nóvember i Lækjargötu 2 og
hefur þá jólaverzlun verið höfð i huga þá. Þetta var
á horni Lækjargötu og Austurstrætis og kallað Ey-
mundssen-hornið i gamla daga.
I auglýsingu fyrir jólin fyrir
einni öld eru þessar bækur á boð-
stólum: Ljóðmæli Kristjáns Jóns-
sonar á 1 rikisdal og 72 skildinga,
en i gylltu bandi á 2 rikisdali.
Hefur það verið fögur gjöf til
vinnukvenna þeirra tima, sem
sváfu með þessi ljóðmæli undir
koddanum og grétu sig i svefn á
dimmum vetrarkvöldum.
Til þess að vega upp á móti sút
heimsins er lika á boðstólum
Heljarslóðarorusta Gröndals á 2
mörk og Þúsund og ein nótt i þýð-
ingu Steingrims, öll fimm bindin
á 3 rikisdali. Þá selur hann kon-
vólútur, lakk, blýanta, pappir
strikaðan og óstrikaðan og tekur
að sér að útvega mönnum erlend-
ar bækur, — danskar, norskar,
sænskar, þýzkar, enskar og
franskar.
En þýddar erlendar bækur hafa
lika verið komnar á markaðinn.
Til sölu er Pilagrimur ástarinnar
á 1 rikisdal. Hefur sú bók fjallað
um mikið eirðarleysi og óþol á
þeirri tið.
Bókaútgáfa
Fjórtán árum eftir opnun
búðarinnar hóf Sigfús bókaút-
gáfu. Rak hann þá prentsmiðju
um skeið. Varð hún upphaf að Fé-
lagsprentsmiðjunni.
Meðal útgáfubóka Sigfúsar er
hægt að nefna Sjálfsfræðarann,
bókaflokk er menntamenn þeirr-
ar tiðar sömdu um tækniundur
eins og gufuvélina og hennar
tækniöld og raforkuvinnsla á
næsta leiti.
Þá gefur hann út sálmasöngs-
bók sr. Bjarna Þorsteinssonar,
Úrvalsljóð Bólu - Hjálmárs, sem
Hannes Hafstein bjó til prentun-
ar, Ritsafn Gests Pálssonar og
læknatimaritið Eir.
Ilver var Sigfús?
Sigfús var brautryðjandi i
verzlunarmálum og var einn af
fyrstu forstöðumönnum sam-
vinnuverzlunar hér i borginni.
Stýrði hann um skeið Kaupfélagi
Reykjavikur, hinu fyrsta.
Þá var Sigfús umboðsmaður
Allan-skipafélagsins. Átti hann
mikinn þátt i bættri aðbúð vestur-
fara. Skirrðist hann ekki við að fá
félag sitt dæmt i sektir fyrir van-
rækslu i þeim efnum.
Sigfús átti mestan þátt i undir-
búningi þjóðhátiðarinnar árið
113
awrzU
1874 ásamt Sigurði málara. Fyrir
það starf gaf Kristján 9. Dana-
konungur Sigfúsi brjóstmál, setta
demöntum, hinn dýrasta grip.
Sigfús Eymundsson fæddist i
Vopnafirði árið 1837, fór tvitugur
til Kaupmannahafnar og nam þar
bókband fyrir milligöngu Jóns
Sigurðssonar. Hét meistari hans
húsið, hækkaði það og lengdi, og
kom þar fyrir ljósmyndastofu
sinni og bókaverzlun.
Borgaöi skáldið?
t gömlum verzlunarbókum er
til viðskiptareikningur á Hannes
Hafstein, ráðherra. Sýnir hún út-
tekt hans frá febrúar til júli 1888.
verzlunina. Þá rak Björn sonur
Péturs bókaverzlunina frá 1935 og
ennfremur forlagið. Almenna
bókafélagið keypti verzlunina i
ársbyrjun 1959. Var hún þá komin
til húsa i Austurstræti 18. Hafði
Pétur Halldórsson rekið þar
bókaverzlunina frá árinu 1919.
G. M
Ævintýragetraun Samvinnubankans 3.
Getið þið fundið, í hvaða ævintýri Bjössi
Baukur er nú? — Geymið biöðin unz 5
ævintýri eru komin og sendið þá lausnirn-
ar aliar í einu umslagi, merktu „BJÖSSI
BAUKUR“ til Samvinnubankans Bankastræti 7, Reykjavík, eða útibúa
hans víðs vegar um landið. — 100 vinningar verða dregnir út.
BJÖSSI BAUKUR
FRÁ BANGSALANDI
Hvenær borgaöi skáldiöl