Þjóðviljinn - 07.12.1972, Side 11

Þjóðviljinn - 07.12.1972, Side 11
FiinmtUdagur 7. desember 1972 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11 A aukaþingi Golfsambands íslands fyrir skömmu var ákveöiö aö senda i fyrsta sinn islenzkt u-landsliöið i golfi á Evrópumeistaramótið sem fram fer i Silkeborg i I)an- mörku næsta sumar. Ilér er um að ræða golfleikara 20 ára og yngri. Sent verður 6 manna lið. Þess iná geta til gamans að islandsmeistarinn i ár Loftur Ólafsson og islandsmeistarinn frá árinu áður og sá er varð i 2. sæti á mótinu i ár, Björgvin Þorsteinsson frá Akurcyri, verða báðir i þessu liði. Og eins og áður sagði er þetta i fyrsta sinn, sem unglinga landsliöer myndað hér á landi i golfi. Þá hafði golfsa mbandið ákveöiö að islenzka landsliðið tæki þátt i EM karla og átti það að fara fram á trlandi. Nú hefur verið ákveðið, vegna óska Englendinga, Skota og Wales-manna, að halda það ekki þar vegna innanlands- ástandsins og var mótið þvi fært til Portúgal ??????? Þetta setur strik i reikninginn þvi að GSl ræður ekki við kostnaöinn að senda liðið þangað. Loftur Ólafsson islandsmeist ari i golfi. En nú fyrir skömmu barst boð frá Lúxembúrg um að is- lenzka liðið komi þangað næsta sumar og að þar fari frain landskeppni í golfi milli Islands og Lúxembúrgar. Heynt verður að haga þeirri ferð þannig að islenzka liðið geti farið fra Lúxembúrg til Portúgal á EM og myndi þaö minnka feröakostnaðinn stór- lcga. Þá ákvað þetta aukaþing, að i stað nefskatts þess, er vcrið hefur i gildi, þ.e. að félögin greiöi til sambandsins vissa upphæð af hverjum félaga, skuli nú greiddar 100 kr. til sambandsins af hverjum keppanda i mótum golffélag- anna. Þá var og ákveöið að öll opin mót skuli vera punkta- mót, en eftir er að seinja reglur fyrir þessa nýbreytni. Þá var og ákveðið, að GSÍ skuli gefa út mótaskrá fyrir öll golfmót og skuli hvert golffé- lag kaupa skrár sem svari til einnar á hvern félaga. Með þessu móti hyggst GSÍ afla fjár til starfsemi sinnar i stað ncfskattsins en innheimta hans hcfur gefizt illa. Þess má að lokum geta að Páll Á. Tryggvason var kjör- inn formaður Golfsambands islands. Það er hægt að birta þessa frábæru Ijósmynd án nokkurs texta. Við vitum ekki hvar hún er tekin cn það skiptir ekki máli. Sem fréttamynd, scm knattspyrnuinynd, og sem Ijósmynd, er hún í alla staði frábær. F innskir áhugamenn? Lasse Viren fær 10 þúsund finnsk mörk fyrir næsta æfingatimabil. Að þvi cr segir i skeyti frá norsku fréttaslofunni NTB fá (i finnskir frjálsiþróttamenn loþús- und finnsk mörk frá finnska frjáls iþróttasambandinu fyrir næsta æfingatimabil. Þessu hafði sam- bandiö lieitið þeim finnsku frjál- iþróttamönnum, sem næðu að komast i eitt af (i efstu sætunum i sinni grein á ÓL i Munchen i sumar. Sex menn náðu þessu marki og fá þvi þessa peninga. Eru þetta áhugamenn? Undirritaður frétti það af hreinni tilviljun að Reykjavíkur- mótið i körfuknattleik væri hafið. Og þegar leitað var eftir þvi hvort þetta væri rétt kom i ljós að svo var. Mótið var hafið án þess að nokkur einasta tilkynning væri send fjölmiðlum, eða án þess að nokkur einasta auglýsing þess efnis væri sett i blöð eða útvarp. Hvernig stendur á þessu og hvaöa tilgangi þjónar svona pukur? Körfuknattleiksmenn kvarta oft yfir þvi, og það með réttu, að minna sé skrifaö i blööin um körfuknattleik en aðrar bolta- iþróttir. Astæðan er eflaust sú að almenningur virðist hafa mun minni áhuga fyrir körfuknattleik en til að mynda knattspyrnu eða handknattleik ef marka má að- sókn að leikjum. En þaðerekki til Þeir sem fá 10 þúsund mörkin cru: Tapic Kantanen, Jorma Kinnunen, Markku Kukkoaho, Hannu Siitonen, Pekka Vasala og Lasse Viren. Þá fá :i0 frjálsiþróttamcnn 0 þúsund niörk hver. í allt greiðir finnska frjálsiþróttasambandið 355:000 mörk til iþróttafólksins. Þetta er upphæö sem svarar til læpra 7 milj. isl. kr. að bæta ástandið þegar Reykja- vikurmót er látið fara fram, án þess að nokkur fjölmiðill sé látin af þvi vita. Og ekki nóg með það. t byrjun nóvember var send út tilkynning þar sem sagði aö tslandsmótið i körfuknattleik myndi hefjast i desember. Ekki sagt hvenær eöa með hvaða leikjum. Svo allt i einu um siðustu helgi er mótið hafið án þess að nokkur fjölmiðill sé látin af þvi vita. Maður heyrir bara i fréttum frá Akureyri að þar hafi fyrsti leikur tslandsmótsins farið fram um siðustu helgi. Þessi framkoma forustumanna körfu- knattleiksins á íslandi er fyrir neðan allar hellur og svo kvarta þessir menn undan þvi að grein þeirra sé litið sinnt. Maður littu þér nær. Leynimótið Best í vand- ræðum Enn cinu sinni er George Best, irski knattspv rnusnill- ingurinn hjá Manchester Utd., kominn i vandræði vegna framkomu sinnar. Hann mætti ekki á tvær æfingar hjá félagi sinu i siöustu viku og var sett- ur út úr liöinu á laugardaginn var fyrir vikiö. Svo á mánudaginn mætti hann ekki heldur á æfingu og nú inunu forráðamenn Man. Utd. vcra búnir að fá sig full- sadda af framkomu hans. Eins og menn muna lenti Best i vandræðum i fyrra vegna framkomu sinnar, er hann mætti ekki á æfingar og kom of seint til leikja, Nú cru uppi raddir um aö Manchester Utd. muni selja Best en hver vill kaupa svona vandræða- gemling þótt hann sé frábær knattspyrnumaður þegar liann æfir? Sagt er að forráða- menn Derby hafi áhuga og að þeir telji sig geta agað piltinn. Sigurdór Sigurdórsson

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.