Þjóðviljinn - 07.12.1972, Page 13
Fimintudagur 7. desember 1972 ÞJÓÐVILJINN — SÍDA 13.
Q
Alistair Mair:
Það
var sumar i
gær
innri dyrnar. — Vertu eðlilegur,
hvislaði hún. — Þú þarft ekki að
gera annað.
Hann elti hana inn i dimman
ganginn og stóð kyrr meðan hún
þreifaði eftir rofanum. Þegar
ljósin kviknuðu deplaði hann aug-
unum. Jean var að hrista regnið
af kápunni sinni með nokkrum
gusugangi.
— Almáttugur, sagði hún. En
það veður!
Einhvers staðar heyrðist marr i
rúmbotni. Karlmaður hóstaði
lágt. Og kvenrödd barst fram um
lokaðar dyr:
— Ert það þú, elskan?
Hún drap tittlinga til hans.
— Já, mamma, sagði hún.
— Við hvern varstu að tala?
— Það er Simon, sagði hún. —
Ég bauð honum i skjól. Veðrið er
andstyggilegt.
— Urðuð þið blaut?
— Við erum talsvert blaut,
sagði hún. — Það er úrhellisrign-
ing.
— Þá ættuð þið bæði að fá ykk-
ur eitthvað heitt að drekka, góða
min. Farðu með Simon fram i
eldhús.
—■ Allt i lagi, mamma.
— En gættu að timanum.
Mundu að við förum í kirkju i
fyrramálið.
— Allt i lagi! Hún sneri sér að
honum með kimið bros í augum.
— Kemurðu. Simon?
— Hann elti hana inn i eldhúsið,
lokaði á eftir þeim og teygði sig
eftir henni.
— Þú ert biræfin, hvislaði
hann. — Þau eru rétt handan við
ganginn.
Hún kyssti hann i skyndi og vék
sér frá honum.
— Ekki hvisla, sagði hún lág-
um rómi. — Talaðu eðlilega. Þá
geta þau heyrt óminn en ekki
orðaskil. En ef þau heyra ekki
neitt, þá verða þau tortryggin.
Þeim er ekki alls varnað. Hún
setti vatn á ketilinn. — Farðu úr
frakkanum, sagði hún rólega. Ef
þú hengir hann hjá eldavélinni þá
þornar hann svolitið.
— En Jean —
— Ekki hvisla, sagði hún. —
Farðu úr honum.
Hann yppti öxlum og fór úr vot-
um rykfrakkanum.
— Á ég að setja hann þarna?
Honum brá þegar hann heyrði
sina eigin rödd.
— Já, sagði hún. — Þetta er
ágætt. Ég hengi mina kápu á stól-
bak. Og hér er handklæði.
Meðan hann þurrkaði sér, at-
hugaði Jean Ferguson á sér and-
litið fyrir framan spegilinn.
— Ég get litið gert við hárið á
mér. sagði hún, — en þetta er þó
skömminni skárra.
Hann leit yfir til hennar um leið
hann hann stakk greiðunni aftur i
vasann. Hún sneri að honum baki,
hallaöi sér eilitið til, lyfti hand-
leggjunum upp að höfðinu svo að
ung brjóstin risu. Hann fann blóð-
ið ólga i æðum sér. Það var nótt
þau voru alein. Og nálægð for-
eldra hennar kryddaði allt sam-
an. Hann gekk að henni og lagði
varirnar að mjúkum hálsinum
ofanvið fleginn ballkjólinn. Hann
fann hvernig likami hennar lét
undan sem snöggvast. Siðan sneri
hún sér við og horfði á hann dökk-
um, dreymandi augum.
— Við verðum að tala, sagði
hún. — Ég var búin að segja þér
það.
— Ég vil ekki tala.
— Ef við gerum það ekki, þá
kemur hún fram.
— En hvernig veiztu að hún
heyrir ekki hvað við segjum?
— Hún heyrir það ekki, sagði
hún. — Þú verður að treysta þvi.
Hann þrýsti henni fastar að sér
og bar varirnar að vanga hennar
en hún vék sér fimlega undan.
— Þolinmóður, sagði hún. —
Við ætlum að fá okkur kaffi.
Hún kom með bolla og undir-
skálar og lagði á borð, Iét glamra
i leirtauinu og teskeiðunum.
Simon horfði á hana með ólundar-
svip. Hann hafði stundað Jean
Ferguson i næstum mánuð, hafði
ef til vill fyrst og fremst heillazt
af sögunum sem af henni fór,- en
hann var farinn að efast um aö
Þann 4/11 voru gefin saman i
hjónaband i Háteigskirkju af
séra Jóni Þorvarðssyni ungfrú
Sigfrið Þormar Garöarsdóttir og
Jón Pétursson. Heimili þeirra er
að Njálsgötu 20, Rvik.
Studio Guðmundar
Garðastræti 2, simi 20900.
Brúðkaup
Þann 23/9 voru gelin saman i
hjónaband i Háteigskirkju af séra
Jóni Þorvarðssyni ungfrú Stein
unn Steinþórsdóttir Kleppsveg 72
og Karl Rósinbergsson Nesveg 44.
Studio Guðmundar.
Garðastræti 2, simi 20900.
nokkur fótur væri fyrir þeim.
Þrisvar sinnum hafði hann skilið
við hana i uppnámi eftir faðmlög.
en til þessa hafði hún fyrst og
fremst sýnt fádæma leikni i að
smeygja sér úr áköfum armlög-
um. Hann gerði sér ekki vel ljóst.
til hve mikils hann ætlaðist, en
hann var að byrja að finna til
óþolinmæði yfir að fá ekkert i
aðra hönd. Og nú var hún að leika
mömmu litlu. ná i sex og sykur og
blaðra utii dansleik sem var lið-
inn og búinn.
— Svart eða með mjólk? spurði
hún fjörlega.
— Svart, sagði hann.
— Þá þurfum við ekki mjólk-
ina. Húnsetti flöskuna i isskápinn
aftur. — Ég sá ekki Susan.
— Hún var ekki.
— Af hverju ekki? Var hún eftir
sig eftir siðustu helgi?
Hann starði á hana.
— Hvað áttu við?
— Tja... bara það sem ég sagði.
Hún stakk býsna fljótt af frá hon-
um Phil vini þinum.
— Já,ég veit það. Hún var ekki
vel hress.
Stúlkan setti lokið á Nescaffi-
dósina og brosti ibyggin.
— Jæja, var það skýringin.
— Já, auðvitað. Hvað annað?
— Var ekkert til i því að Phil
gerðist áleitinn og fengi hné á
versta stað fyrir frekjuna?
— Ég hef ekkert heyrt um það.
— En þannig var það nú samt.
— Simon fann til óvæntrar
reiði. Susan var ekki af þvi tag-
inu. Þótt hann væri bróðir henn-
ar, gerði hann sér það ljóst. Og ef
Phil hafði reynt eitthvað, þá gat
hann átt von á þvi sem hann fékk.
Hann ætti að vita að það var hægt
að reyna til við sumar stúlkur og
aðrar ekki. Og maður var ekki
áleitinn við systur vinar sins. Það
var satt og vist.
— Hvernig veiztu það? spurði
hann. — Þú varst með mér.
— Já, elskan. En Betty
McLaren var ekki með þér. Hún
ýtti bollanum hans yfir borðið. —
Hún var að kela við Biil Thomson
undir næsta tré. Hún sá það ger-
ast.
— Sá hvað gerast?
— Jú, eftir þvi sem Betty sagði,
þá voru bau i sælu kelerii eins og
allir aðrir, þú veizt, andköf og
stunur allt i kring eins og vera
ber. Þá sagði Susan: — Gerðu það
ekki svona! og hvislið barst
margrakilómetra leið. Og auövit-
1 áð fór Betty að leggja við eyrun.
Og Bill þótti þetta býsna fyndið.
Hann sagði: — Hvernig vill hún
að hann geri það? Standandi á
höfði?
— Allt i lagi, sagði Simon. —
Slepptu smáatriðunum. Hvað
gerðist svo?
— Ja, ekkert alveg strax. Þau
róuðust dálitið aftur. ()g Phil
hlýtur að hafa haldið að allt væri i
bezta lagi, þvi að eitthvað reyndi
hann að minnsta kosti. Betty sá
það ekki almennilega —
— Var hún enn að horfa?
Auðvitað var hún að horfa.
Maður snýr sér ekki undan ó-
keypis leiksýningu. En hún var
ekki viss um hvort hann byrjaði
að ofan eða neöan. Alla vega vissi
hún ekki fyrr en Phil stóð i hnipri
og æpti ,,Guð minn góður” eins
og særð górilla og Susan æpti
,,Láttu mig i friði”, svo að heyrð-
ist um allan garðinn, og þar meö
var öllu lokið. Hún þaut að sækja
kápuna sina og hann laumaðist
inn i skuggana og allir aðrir hlógu
dátt.
— Geysifyndið, sagði Simon.
Já, eiginlega var það fyndið.
Ég á við, að hún var auðvitað
systir þin og allt það, en hún þarf
þó ekki að gera svona hræðilegt
veður út af hlutunum.
— Hann átti ekkert með að
reyna. það.
- Af hverju i ósköpunum ekki?
Hún er uppkomin stúlka.
Ekki svo uppkomin, sagði
Simon. — Að þessu leyti er hún
ekki annað en barn.
Hún litur ekki út fyrir það,
sagði Jean þurrlega. — Ekki i
kjólnum sem hún var i siðasta
laugardag. Og hún kemur ekki
þannig fram heldur, þegar hún
vaggar sér yfir dansgólfið.
— Það er allt annað mál.
— Ég læt það vera. Hún kemur
strákunum til og segir svo hingað
og ekki lengra.
Simon fékk sér kaffi til að róa
taugarnar.
— Þú getur trútt um talað,
tautaði hann. — Þú ert ekki hótinu
betri.
Henni virtist skemmt.
FIMMTUDAGUR 7. desember.
7.00 Morgunútvarp.
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dagbl.), 9.00
og 10.00. Morgunbæn barn-
anna kl. 8.45: Einar Logi
Einarsson heldur áfram
sögu sinni „Ævintýri á hafs-
botni” (2). Tilkynningar kl.
9.30. Þingfréttir kl. 9.45.
Létt lög á milli liða.
' Ileilnæmir lifsbættir, kl.
10.25: Björn L. Jónsson
læknir flytur þátt sem nefn-
ist: Meltingin byrjar i
munninum. Morguupopp,
kl. 10.45:Black Sabbath
syngur og leikur. Fréttir kl.
11.00. llljómplötusafniö
(endurt.þáttur G.G.).
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 A frivaktinni. Margrét
Guðmundsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.15 Búnaðarþáttur: Úr
b e i m a h ö g u m . G i s 1 i
Kristjánsson ritstjóri talar
við Þorstein Sigfússon á
Sandbrekku, Fljótsdals-
héraði. (Endurt.)
14.30 Siðdegissagan: „Gömul
kynni” eftir lugunni Jóns-
dóttur. Jónas R. Jónsson á
Melum les (11).
15.00 Miðdcgistónleikar: Frá
túnlistarhátiö i Marias i
Frakklandi s.l. sumar.
Ensemble Instrumental de
France leika verk eftir Bod-
in de Boismortier. Francois
Joseph Gossec, Henri-
Joseph Rigel. Jean-Marie
Leclair og Jaques Aubert.
16.0 0 Fréttir. 16.15.
Veðurfregnir.
16.25. Popphornið. Dóra
Ingvadóttir kynnir.
17.10 Barnatimi: Soffia Ja-
kobsdóltir stjórnar.a. Jólin
i ganila daga. Soffia og
Ragnheiður Steindórsdóttir
flytja ýmislegt efni. b.
„Jólaljós” saga eftir Sigur-
björn Sveinsson. Margrét
Pétursdóttir 10 ára les. c.
Útvarpssaga barnanna:
„Sagan bans lljalta litla”
cftir Stefán Jónsson. Gisli
Ilalldórsson leikari les (20).
18.00 Létt lög. Tilkynningar.
19.20 Daglegt mál. Páll
Bjarnason, menntaskóla-
kennari flytur þáttinn.
19.25 Glugginn. Umsjónar-
menn: Sigrún Björnsdóttir,
Guðrún Helgadóttir og Gylfi
Gislason.
20.05 Kinleikur i útvarpssal:
Lára Kafnsdóttir leikur á
pianó verk eftir Liszt og
Skrjabin.
20.25 Leikrit: „Engin ástæða
til uppsagnar” eftir Klas
Kwert Everwyn. Þýðandi:
Úlfur Hjörvar. Leikstjóri:
Þorsteinn Gunnarsson.
Persónur og leikendur:
Kurt Melchers: Pétur
Einarsson, Lisbeth
Melchers: Guðrún
Asmundsdóttir, Kramer,
húsbóndi Melchers: Gisli
Halldórsson, Frú Leine-
weber: Sigriður Hagalin,
Frú Wengenrot: Margrét
Olafsdóttir,
Lögreglufulltrúi: Helgi-
Skúlason, Dr. Wolf lögmað-
ur: Rúrik Haraldsson,
Læknir: Jón Sigurbjörns-
son, V i ðskiptavinur:
Guðrún Stephensen,
Fuiltrúi verkalýðsfélags:
Erlingur Gislason, Fulltrúi
vátryggingafélagsf Guð-
mundur Pálsson, Verk-
smiðjufulltrúinn: Baldvin
Halldórsson.
21.35 K i n s ö n g u r : T e r e z a
Bcrganza syngur óperuari-
ur frá 18. öld með hljóm-
sveit Covent Garden óper-
unnar, Alexander Gibson
stjórnar.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurlregnir. i sjón-
h e n d i n g . S v e i n n
Sæmundsson talar við
Björgólf Gunnarsson um
strið og daglegt lif i tsrael.
22.45 Manstu eftir þessu?
Tónlistarþáttur i umsjá
Guðmundar Jónssonar
pianóleikara.
23.30 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
STYRKT ARS J ÓÐUR
MEISTARAFÉLAGS
HÚSASMIÐA
Þeir aðilar sem sækja vilja um styrk úr
styrktarsjóði Meistarafélags húsasmiða,
komi skriflegum umsóknum til skrifstofu
félagsins að Skipholti 70 fyrir 15. des.
Stjórnin
FÉLAC ÍSLENZKRA HLJÉllSTffllM
#útvegar yður hljóðfœraleikara
og hljómsveitir við hverskonar tœkifœri
linsamlcfjast hringið í 202SS milli kl. 14-17