Þjóðviljinn - 08.12.1972, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 08.12.1972, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Köstudagur 8. desember 1972 NOÐVIUINN malgagn sósíalisma, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans Kramkvæmdastjóri: Giður Bergmann Kitstjórar: Kjartan ólafsson Sva var Gestsson (áb.) Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson Kitstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur). Áskriftarverð kr. 225.00 á mánuði. Lausasöluverð kr. 15.00. Prentun: Blaðaprent h.f. SKIPTUM BYRÐINNI RÉTT Rikisstjórnin vinnur nú að tillögugerð til alþingis varðandi lausn á efnahagsvanda- málum þjóðarbúsins. Valkostanefnd em- bættismanna, sem undanfarnar vikur hefur unnið að þvi að gera úttekt á þjóðar- búinu, hefur skilað skýrslu sinni til rikisstjórnarinnar, og er þar gerð nokkur grein fyrir hvaða vanda er við að etja, og bent á fjölmargar hugsanlegar leiðir, er til greina koma. Sá vandi, sem við er að glima, er fyrst og fremst tviþættur, annars vegar er um að ræða nauðsyn þess að tryggja afkomu rikissjóðs og hins vegar rekstur út- flutningsatvinnuveganna. Hér verður rikisstjórnin að sjálfsögðu að hafa forustu um pólitiskar ákvarðanir, það er að segja, hvað eigi að spara, og hvar að afla þess fjár, sem óhjákvæmilegt er. Samkvæmt skrifum stjórnarandstöðu- blaðanna undanfarið ætti almenningur að eiga i vændum hrikalegustu árás á lifs- kjörin, sem islenzk stjórnmálasaga siðari ára kann frá að greina. Af langri og biturri reynslu getur launafólk lika verið þess fullvisst, hvaða úrræðum Sjálfstæðis- flokkurinn og Alþýðuflokkurinn hefðu beitt væru völdin enn i þeirra höndum, og vissulega verður fróðlegt að sjá hverjar verða tillögur þeirra nú, ekki siður en tillögur rikisstjórnarinnar. Allar likur eru á þvi að afla verði 2-3 miljarða króna til að tryggja rekstur út- flutningsatvinnuveganna og fé i rikissjóð til þess m.a. að standa undir niðurgreiðsl- um svo að verðbólgunni verði haldið i skefjum. Þessa fjár verður væntanlega aflað með þvi að skera nokkuð niður út- gjöld fjárlagafrumvarpsins fyrir 1973, en þar er gert ráð fyrir yfir 20 miljarða rikis- útgjöldum og það sem þá vantar verður að taka af þeim sem betur mega i þjóð- félaginu, með sköttum af tekjum þeirra eða eyðslu. Ekki verður um það deilt, að á valda- tima núverandi rikisstjórnar hefur kaup- máttur láglaunafólks fyrir hverja vinnu- stund vaxið um a.m.k. 25-30% og sam- kvæmt samningum verkalýðsfélaganna og opinberra starfsmanna er enn 6-7% launahækkun framundan stuttu eftir næstu áramót. Þær kjarabætur, sem launþegasam- tökin hafa i samvinnu við vinveitta rikisstjórn tryggt láglaunafólkinu á íslandi, eru mun meiri en nokkru sinni fyrr á svo skömmum tima. Hér hefur átt sér stað veruleg tilfærsla á fjármunum, svo að nokkuð hefur rétzt af sá halli, sem verkafólk varð jafnan að bera, meðan við- reisnarstjórn Jóhanns Hafstein og dr. Gylfa átti þess kost að eyða árangri verk- falla og kjarabaráttu með lagaboði. Það verkefni, sem rikisstjórnin stendur nú frammi fyrir að leysa, er að tryggja i raun þá kaupmáttaraukningu láglauna- fólks sem samningar gera ráð fyrir, og jafnframt að gangast fyrir framhaldi at- vinnuuppbyggingar þeirrar, sem hafin er. Siðast en ekki sizt hyggst rikisstjórnin halda ótrauð áfram að beita sér fyrir auknu félagslegu réttlæti i þjóðfélaginu, en á skömmum valdatima hefur sú við- leitni m.a. komið fram i stórauknum bót- um almannatrygginga. öll þessi mikilvægu markmið verður að hafa rikt i huga nú, þegar gera verður nýjar efnahagsráðstafanir, vegna þess, að áætlanir um heildarafkomu þjóðarbúsins standast ekki fyllilega, þar sem aflaverð- mæti er minna en ætlað var og heildarvið- skiptakjör okkar út á við hafa versnað. Hér er ekki um neinn óyfirstiganlegan vanda að ræða, en þeir sem hafa góðar meðaltekjur eða meira verða þó að taka þátt i að fleyta þjóðarbúskapnum yfir þennan hjalla, svo að tryggð verði fram- kvæmd gerðra kjarasamninga láglauna- fólks og stjórnvöld þurfi i engu að hvika frá boðaðri stefnu islenzkrar atvinnu- uppbyggingar og aukins félagslegs öryggis og jafnréttis. a 51« fl lííll þingsjá þjóðviljans Fjórar þingsályktunartillögur ræddar í sameinuðu þingi í gær Kluttur l'uudur var i sameinuöu þingi í gær. ísl. flugmenn atvinnulausir Staðsetning stjórnarráðsbyggingar Sverrir llermannsson ma'lti fyrir þingsályktunartillögu, um staösetningu nýrrar stjórnar- ráösbyggingar, en fyrsti flm. tillögunnar er t:ilert Schram og meöflutningsmenn ásamt Sverri eru þeir Gövarö Sigurösson og Gils Guömundsson. Tillagan er áskorun á rikisstjórnina um aö endurskoöa þá ákvöröun. aö reist skuli nú stjórnarráösbygging á lóö rikissjóös viö Bankastræti, Skóla- stræti og Amtmannsstig. Sverrir minnti á aö 18 ár væru nú liöin frá þvi ákvöröun var tekin um byggingu nýs stjórnar- ráöshúss á lóö rikisins á þessum staö. Sagöi hann, aö andstaöa heföi vaxiö á siðustu árum gegn þvi aö byggingin risi á þessum staö, og rakti ræðumaður þau erindi, sem ýmsir aðilar og sam- tök hafa sent opinberum aðilum i þessu skyni. en meðal þeirra eru Húsafriðunarnefnd og Arkitekta- félag Islands. Sagði Sverrir að það væri skoðun flutningsmanna að með tilliti til þess hve húsaröðin austan Lækjargötu væri mikið menningarverðmæti. þá bæri stjórnvöldum að taka til athugunar hvort ekki væri unnt að leysa húsnæðismál stjórnar- ráðsins á annan hátt. Þyrluflug til Eyja Ingólfur Jónsson mælti fyrir þingsályktunartillögu, sem hann flytur ásamt fjórum öðrum þing- mönnum, en samkvæmt tillögunni er rikisstjórninni falið að hlutast til um að þyrla verði fyrirhendi. sem geti flutt farþega milli lands og Eyja, þegar ekki eru skilyrði til flugs með venju- legum áællunarvélum. Ræðu- maður sagði að samkv. könnun væru að meðaltali 85 flugdagar á ári, sem ekki va*ri unnt að fljúga til Eyja. Nefndi hann þyrlur Landhelgisgæzlunnar sem mögu- leika i þessu sambandi, og kvaöst hafa rætt málið við forstjóra gæzlunnar. Ingólfur sagði, að ga’zlustörf yrðu vissulega að ganga fyrir flugi með farþega. Réttarstaöa tjónþola v/ flugumferöar Oddur olafssou mælti fyrir lillögu. sem hann flytur um réttarslöðu þeirra. sem verða lyrir tjóni af völdum l'lugum- feröar. Rikisframlög til jaröræktar Pálmi Jónsson mælti fyrir þingsályktunartillögu, sem hann flytur ásamt tveim öörum þing- Ólafur Jóhannesson dóms- málaráðherra mælti á alþingi fyrir frumvarpinu um fangelsi og vinnuhæli. Káð- herrann gerði grein fyrir mcgin- efni frumvarpsins sem miðar aö þvi að rikið eigi og reki öll fangelsi i landinu og sameinuð séu i ein lög núgildandi lög um rikisfangelsi og vinnuhæli og lög um héraðsfangelsi. Einnig vék ráðherrann að þeim nýmælum öðrum, sem fraumvarpið boðar. Benedikt Gröndal beindi þeirri fyrirspurn til ráðherra, hvað liði undirbúningi að byggingu rikis- mönnum Sjálfstæðisflokksins, en með tillögunni er lagt til að stefnt skuli að þvi að rikisframlög, skv. II kafla jarðra*ktarlaganna, verði greidd út á þvi ári sem fram- kvæmdir fara fram á. Er lagt til að þessu marki verði náð i áföng- um svo fljótt sem verða má. Þingmaðurinn* sagði. að við þær breytingar. sem gerðar voru á jarðræktarlögunum á siðasta þingi, hefðu stofnframlög sem til þessa hafa verið greidd út af Landnámi rikisins verið felld inn i jarðræktarlögin. Þessari breytingu fylgdi það, að ákveðinn hluti.eða 16%. þessara greiðslna til bænda færi fram ári siðar en verið hefur. Þetta væri að vissu leyti skref aftur á bak, og óhag- kvæmara fyrir bændur. Þing- maöurinn vakti athygli á að hér væri ekki um að ræða aukið fjár- framlag, heldur aðeins tilfærslu á fé milli ára. fangelsis. Einnig tók Jóhann Hafstein til máls og lýsti stuðningi við frumvarpið. Ráðherra gat þess að nú ættu 237 einstaklingar óafplánaða fangelsisdóma, sem m.a. mætti rekja til skorts á fangelsisrými. Sem svar við spurningu Bene- dikts sagði ráðherra að á sinum tima heföi verið gerð frum- teikning af 100 manna rikis- fangelsi, sem ætlunin heföi verið að byggja i einu lagi. Siðar hefði þessum áformum verið breytt og stæði nú til að byggja i áföngum 3 deildir þessa fangelsis. Kélag isienzkra atvinnuflug- manna hefur sent rikisstjórn eft- irfarandi áiyktun. Næsta frumsýning L.R. FLÓ Á SKINNI Um helgina verða siðustu sýn- ingar fyrir jól hjá Leikfélagi Reykjavikur, Atómstöðin á laugardagskvöldiö og á sunnu- dagskvöldið Kristnihald undir jökli, en það verður 160. sýning á þessu leikriti. Barna- og unglingaleikritið Leikhúsálfarnir verðursýnt á sunnudagseftirmið- daginn. Næsta frumsýning Leikfélags Reykjavikur verður milli jóla og nýárs. Það verður franskur hláturleikur, Fló á skinni. Bíla undir riddarana BERN — Á þriðjudaginn voru greidd atkvæði i neðri deild svissneska þingsins i miklu hitamáli. Þaö er hvort riddara- lið eigi að hverfa úr svissneska hernum og riddararnir að flytjast yfir i brynvarða vagna. 430 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til rikisstjórnar- innar um, að riddaraliðið skuli halda áfram að verja landið, en þingmenn samþykktu með 20 atkvæða meirihluta aðsetja bila undir riddarana. Riddararnir eru 3 þúsund að tölu. ,,Á aðalfundi Félags islenzkra atvinnuflugmanna, sem haldinn var 23. nóvember 1972, kom fram að félagsmenn hafa nokkrar ^hýggjúr af þeirri óheillaþróun, sem orðið hefur i islenzkum flug- málum, þar sem erlendum leigu- flugfélögum hefur verið leyft aö fljúga, nær hömlulaust, með is- lenzka farþega til og frá Islandi, á sama tima sem islenzkir flug- menn hafa gengið atvinnulausir og flugvélakostur hefur verið fyrir hendi i landinu, til þess að annast þessi verkefni. Fundurin ályktaði þvi, að skora á þislenzk stjórnvöld að stemma stigu við þessari þróun , og gæta betur islenzkra hags- muna”. Okkur vantar fólk til að bera út blaðið Blaðburöarfólk óskast i eftirtalin hverfi: Hjaröarhaga Skjól Seltjarnarnes 1 Miöbæ Breiðholt Nökkvavog DJODMHNN simi 17500 Ríkið eigi og reki öll fangelsin

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.