Þjóðviljinn - 08.12.1972, Qupperneq 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐViLJINN Köstudagur S. desember lí)72
SKILIN EFTIR . . .
Teiknimyndasaga frá Kína
59. Han Chi þolir ekki þá tilhugsun aö verfta saklausri konu aö bana og
er luröu lostinn yl'ir rf7rirleitni húsbónda sins. Hann ákveöur þvi að
láta þau sleppa og gefur Hsiang-lien sillur og segir þeim aö l'lýja hið
bráöasta.
<;o. Þegar Hsiang-lien er aö yfirgel'a musteriö hrekkur hún við við dynk
sem hún heyrir l'yrir altan sig. Hún snýr sér viö og sér Han örendan á
góll'inu. Hann hefur l'ramiö sjálfsmorö til að sleppa viö þá refsingu sem
hann fengi fyrir aö óhlýðnast l'yrirskipunum. Hún tekur sverð hans og
leggur af staö til Lao íursta.
Laust embætti,
er forseti íslands veitir:
Tvö prófessorsembætti i uppeldissálar-
fræði við Kennaraháskóla íslands eru laus
til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum
um ritsmiðar og rannsóknir, svo og náms-
feril, kennarareynslu og önnur störf,
sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6, Reykjavik, fyrir 5. janúar 1973.
Mennta má la ráðuney tið,
5. desember 1972.
Lausar stöður
Við tollstjóraembættið i Reykjavik eru
lausar eftirtaldar stöður:
Staða skrifstofustjóra.
Staða löglærðs fulltrúa.
Tvær stöður tollendurskoðenda.
Stöður skrifstofustúlkna.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og starfsferil sendist skrifstofu tollstjóra,
Tryggvagötu 19, fyrir 1. janúar 1973.
Tollstjórinn i Reykjavik, 6. desember 1972.
sjónvarp nœstu víku
Sunnudagur
10. desember 1972
1B.30 Kndurtekið efni. Marty
Bandarisk biómynd frá ár-
inu 1955. Leikstjóri Delbert
Mann. Aðalhlutverk Ernest
Borgnine. Þýöandi Óskar
Ingimarsson. Myndin grein-
ir frá hæglátum miöaldra
piparsveini, sem býr meö
aldraðri móöursinni, og á i
ýmsum erfiöleikum i sam-
skiptum viö konur á sinum
aldri. Aöur á dagskrá 16.
september sl.
18.00 Stundin okkar Flutt er
ævintýriö um ..prinsessuna
á bauninni” og sagt frá upp-
runa jólatrésins. Loks verö-
ur sýnd mynd um Liriu
Langsokk. Umsjónarmenn
Ragnheiöur Cestsdóttir og
Björn Þór Sigurbjörnsson.
18.50 Enska knattspyrnan.
19.40 11 lé.
20.00 Krcttir.
20.20 Veður og auglýsingar
20.30 liuxnalausi ævintýra-
maðurinn. Kramhaldsleik-
rit eftir Edward Matz,
byggt á sögulegum heimild-
um. 2. þáttur. Aðalhlutverk
Jonas Bergström. Þýöandi
Dóra Hafsteinsdóttir. Efni
1. þáttar: Lars Larsson,
unglingspiltur. stelur
peningum Irá fööur sinum.
Ilann óttast refsinguna og
leitar á náöir Maju, vinkonu
sinnar á næsta bæ. Þau
ákveöa aö veröa samferða
út i heiminn. Lars klæöist
kvenlötum og þau ráöast i
vist á herragarði, Brátt
kemst þó upp, að hér eru
brögö i tafli. Lars leggur á
flótta og flakkar viöa dulbú-
inn sem kona. Hann verður
þekklur undir nafninu
Lasse-Maja. Loks er hann
tekinn höndum. Faðir hans
kaupir hann undan hýðingu,
en Maja er dæmd til fanga-
vistar. (Nordivision —
Sænska sjónvarpið)
21.30. Bodil Ipsen. Dagskrá
um eina frægustu og vin-
sælustu leikkonu Dana á
fyrri hluta aldarinnar. Sagt
er frá ævi hennar og
leiklistarferli og brugðið
upp myndum úr ýmsum
hlutverkum hennar allt frá
þvi hún var ung stúlka. Þul-
ur Ole Brandstrump. Þýð-
andi Jóhanna Jóhannsdótt-
ir. (Nordvision — Danska
sjónvarpið)
22.25 Krá tónleikum Samein-
uðu þjóðanna. Sinfóniu-
hljómsveitin i New Jersey
leikur Aldorado del
Graciose og Pianókonsert i
G-dúr eftir Maurice Ravel.
Einleikari Alicia de
Laroccha. Stjórnandi Henry
Lewis. Upptakan var gerð á
tónleikum SÞ i New York 27.
október siöastliöinn.
22.55 Að kvöldi dags. Sr.
Sigurður Sigurðarson á Sel-
lossi flytur hugvekju.
23.05
Dagskrárlok
Mánudagur
11. desember 1972
20.00 Kréttir
20.25 Veður og Auglýsingar
20.35 Bókakynning. Eirikur
Hrcinn Kinnbogason. borg-
arbókavöröur. getur nokk-
urra nýrra bóka.
20.50 ilestar. Ljóðræn austur-
risk mynd án oröa um hest-
inn og hin fjölbreyttu hlut-
verk hans i málverkum og
myndum. sem buröardýr.
veöhlaupahestur. reiðskjóti
i nautaati. sýningargripur i
hringleikahúsum o.s.frv.
21.45 Að ævilokum. Brezkt
sjónvarpsleikrit eftir
Neville Smith. Leikstjóri
Kenneth Loach. Aðalhlut-
verk Eidie Brooks. Jimmy
Coleman og Peter Kerrigan.
Þýöandi óskar Ingimars-
son. Aldraöur iönverka-
maöur er látinn. Ekkjan og
tveir uppkomnir synir
þeirra syrgja gamla mann-
inn, og sama er aö segja um
vinnufélaga hans, þvi Billy
gamli var vinsæll maöur og
vel liðinn og lagði á langri
ævi drjúgan skerf til baráttu
verkalýðshreyfingarinnar. 1
leikritinu rifja ættingjar og
vinir hins látna upp atburði
úr lifi hans og láta i ljós
skoðanir sinar áýmsum at-
höfnum hans.
22.55 Dagskrárlok
Þriöjudagur
12. september 1972
20.00 Kréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.35 Ashton-fjölskyldan.
Brezkur framhaldsmynda-
flokkur. 33. þáttur. Þýðandi
Heba Júliusdóttir. Efni 32.
þáttar: Jean Ashton kemur
i heimsókn til Sheilu,
tengdadóttur sinnar, en
stendur stutt viö. Hún er
rugluð og viöutan og ráfar
ósjálfrátt til æskuheimilis
sins. sem orðið hefur fyrir
loftárás. og er i rústum. Þar
veikist hún hastarlega, en
gamall fjölskylduvinur
kemur henni á sjúkrahús.
Edwin kemur heim af
kránni og lendiririmmu viö
Shefton. sem er þar fyrir.
E’réttir berast frá sjúkra-
húsinu um veikindi Jean og
fjölskyldan hraðar sér
þangaö. Hún andast um
kvöldiö og Davið, sem d,val-
iö hefur i Lundúnum. kemur
heim til þess aðveraviðút-
förina.
21.30 Skiðagaman. Stutt kvik-
mynd um skíðamennsku og
vetrarlif i Kanada.
21.50 A yztu nöf. Sænsk kvik-
mynd um sjálfsmorð og til-
raunir manna þar i landi, til
aö koma i veg fyrir þau.
Rætt er viö lækna og fólk,
sem hefur ætlaö aö svipta
sig lifi, um orsakirnar til
þess aö menn gripa til þessa
óyndisúrræðis i vandræöum
sinum, imynduðum eöa
raunverulegum. Þýðandi
Jón O. Edwald.
(Nordvision .— Sænska
sjónvarpið)
22.20 U mræðuþáttur. Að
myndinni lokinni hefjast i
sjónvarpssal umræður um
efni hennar. Umræðum
stýrir dr. Kjartan Jóhanns-
son, en aðrir þátttakendur
eru séra Jakob Jónsson,
Jóhannes Proppe, deildar-
stjóri og Tómas Helgason,
prófessor.
22.50 Dagskrárlok
Miðvikudagur
13. desember 1972
18.00 Teiknimyndir
13.15 Chaplin
18.35 Börnin og sveitin. Stutt
kvikmynd um börn og bú.
Aður á dagskrá 10. október
1971.
18.55 lllé
20.00 Kréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.35 Bókakynning. Eirikur
Hreinn Kinnbogason. borg-
arbókavöröur, getur nokk-
urra nýrra bóka.
20.45 Klvttu þér kona Brezkt
sjónvarpsleikrit úr flokki
gamanleikja eftir Ray
Galton og Alan Simpson.
Aöalhlutverk Jimmy Ed-
wards og Pat Coombs. Þýð-
andi Öskar Ingimarsson.
Croucher-hjónin hafa lifaö i
hamingjusömu hjónabandi i
nær aldarfjórðung og allan
þann tima hafa þau búiö i
sama húsinu. Þau ákveöa
þó loks aö festa kaup á öðru
og betra. Ung hjón kaupa
gamla húsiö og flutningun-
um er hraðað sem mest má
veröa. En þegar að þvi
kemur, aö frú Croucher á aö
segja skilið viösittgamla og
góöa heimili. er henni allri
lokiö.
21.15 Unglingurinn. Mynd frá
Sameinuöu þjóöunum um
vandamál ungs fólks og viö-
horf unglinga til þeirra, sem
eldri eru. Þýðandi Sigriður
Ragnarsdóttir.
21.40 Kloss höfuðmaður.
Póslkur njósnamyndaflokk-
ur. Café Rose. Þýðandi
Þrándur Thoroddsen.
22.50 Dagskrárlok
Föstudagur
15. desember 1972
20.00 Kréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.35 Varfærnir veiðimenn.
Brezk kvikmynd um fugla-
vernd i Kanada, en þar hef-
ur veiðifélagsskapur tekið
sér fyrir hendur að bæta
lifsskilyrði andategundar,
sem mikið er veidd. F’riðuð
hafa verið ákveðin svæði,
reynt að gera þau að sem
ákjósanlegustum varplönd-
um með áveitum og tilbún-
um stöðuvötnum. Þýðandi
og þulur Gylfi Pálsson.
21.05 Kóstbræður. Brezkur
sakamálaflokkur i léttum
tón. Ileima er bezt. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
22.00 Sjónaukinn. Umræðu- og
fréttaskýringaþáttur um
innlend og erlend málefni.
23.00 Dagskrárlok
Laugardagur
16. desember 1972
17.00 Þýzka i sjónvarpi.
Kennslumyndaflokkurinn
Guten Tag. 4. og 5. þáttur.
17.30 Skákkennsla. Kennari
F’riðrik ólafsson.
18.00 Þingvikan. Þáttur um
störf Alþingis. Umsjónar-
menn Björn Teitsson og
Björn Þorsteinsson.
18.30 iþróttir. Umsónarmaður
Ómar Ragnarsson.
Hlé
20.00 F’réttir
20.20 Veöur og auglýsingar
20.30 Heimurinn minn.
Bandariskur gamanmynda-
fiokkur. Þýðandi Guðrún
Jörundsdóttir.
20.55 Fiigum við að dansa?.
Kennarar og nemendur úr
Dansskóla Heiðars Ást-
valdssonar sýna dansa af
ýmsu tagi.
21.20 Vaka. Dagskrá um bók-
menntir og listir á liðandi
stund. Umsjónarmenn
Björn Th. Björnsson,
Sigurður Sverrir Pálsson,
Stefán Baldursson, Vésteinn
Ólason og Þorkell Sigur-
björnsson.
22.00 Othcllo. Sovézk biómynd
frá árinu 1955,byggð á sam-
nefndum harmleik eftir
William Shakespeare. Leik-
stjóri Sergei Jutkevitsj.
Aðalhlutverk Sergei Bond-
artsjúk. Islendkur texti er
gerður af Hallveigu Thor-
lacius og byggður á eldri
þýðingum.
23.45 Dagskrárlok