Þjóðviljinn - 01.03.1973, Qupperneq 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 1. marz. 1973.
Fimmtudagur 1. marz. 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Vélskóli íslands skoðaður í fylgd Andrésar Guðjónssonar skólastjóra
Andrós (.uftjónsson skólastjóri Vólskólans.
Nákvæml skal það vera
Hennismíðanám I Vélskólanum
Hér sést yfir vélasalinn,og það er Ólafur Erlksson kennari sem þarna cr að athuga vélina
Einn fjölbreyttasti skóli landsins
Þótt ef til vill eigi aldrei
að fullyrða neitt, liggur
nærri, að maður fullyrði
að Vélskóli islands sé ein-
hver fjölbreyttasti skóli
landsins. Það er ekki bara
að bóklegt nám í skólanum
veiti mjög góða alhliða
menntun, heldur er verk-
legt nám skólans eitt hið
mesta sem þekkist í skóla
hér á landi. Segja má, að
nær fullkomin vélsmiðja sé
í skólanum, vélahús, þar
sem keyrðar eru margar
tegundir af díselvélum,
rafmagnstæki og margt
fleira. Svo fjölbreytt nám
sem Vélskólinn býður uppá
hlýtur að orka hvetjandi
á nemendur, enda var það
svo að áhugi virtist alis
staðar vera i fyrirrúmi þar
sem við komum, er við
gengum um skólann i fylgd
Andrésar Guðjónssonar
skólastjóra, sem sagði okk-
ur það sem máli skiptir um
Vélskóla islands.
Andrés sagði okkur, að árið
1966 hefðu ný lög verið sett um
Vélskóla tslands. Aöur var það
skilyrði aö menn hefðu lokið 4ra
ára iðnnámi i vélsmiðju til að
geta komizt i skólann, en nú er
það skilyrði til inntöku I 1. bekk
eöa stig, eins og það kallast i Vél-
skólanum, aö menn hafi lokiö
skyldunámi og séu orönir 17 ára.
Nú eru stigin 4,og til aö komast
milli stiga þurfa menn að hafa
náð framhaldseinkunn i vélfræði
en annars að taka sérstakt inn-
tökupróf upp i hvert stig, ef fram-
haldseink . næst ekki. Hvert stig
veitir ákveðin réttindi, sem auk-
ast að sjálfsögðu eftir þvi sem
fleiri stig eru tekin,og 4. stig veitir
ótakmörkuö réttindi sem vélstjóri
að loknu sveinsprófi i vélvirkjun.
Andrés sagði okkur að i upphafi
hafi vélskóli verið hér á landi i
tvennu lagi. Vélskóli tslands var
stofnaður 1915, en hann útskrifaði
aðeins „fina” vélstjóra, sem
fannst sér ekki sæmandi að taka
aö sér önnur vélstjórastörf en á
stórum og góöum skipum. Þaö
þótti heldur betur að taka niður
fyrir sig fyrir menn sem útskrif-
uðust af Vélskólanum aö fara á
fiskiskip. bvi var það að Fiskifé-
lag Islands fór að halda námskeið
og siðan skóla fyrir hina svoköll-
uðu „mótorista”, og fóru þeir
flestir á fiskiskipin.
Fyrsti skólastjóri Vélskóla ts-
lands var danskur maður að nafni
Jessen,og gegndi hann þvi starfi i
45 ár. Astæðan fyrir þvi að dansk-
ur maður var ráðinn til starfans
var einfaldlega sú, að islenzkir
vélstjórar voru ekki til. Þó var
stolt okkar svo mikið þegar Gull-
foss kom 1912 að islenzkur véla-
maður var sendur utan til náms,
svo ekki þyrfti aö ráöa danskan
vélstjóra á „óskabarn þjóðarinn-
ar”, sem fyrsta millilandaskip
okkar óneitanlega var. En svo
þegar næsti foss kom, sem var
Goöafoss, voru engir islenzkir
vélstjórar til og danskur maður
ráðinn i vélina.
Þegar Vélskólinn var stofnaður
1915 var hann til húsa i Sjó-
mannaskólanum, þar sem Stýri-
mannaskólinn var til húsa á öldu-
götunni. Jessen hafði fyrir 3 árum
verið ráðinn til Stýrimannaskól-
ans og var, þegar Vélskólinn var
stofnaður, ráðinn skólastjóri
hans, en hann hafði kennt við vél-
stjóradeild Stýrimannaskólans.
Ekki voru nú nemendurnir marg-
ir i fyrstu, en þeim fjölgaði brátt
og fljótléga var stofnað fyrsta
vélstjórafélagið sem hét þá
„Gufuvélamannaféiagið”, enda
þekktust ekki diselvélar hér á
landi þá.
En þar sem þeir sem útskrifuð-
ust úr Vélskólanum tóku nær ein-
göngu að sér störf sem vélstjórar
á stærri skipum hélt Fiskifélagið
áfram sinum skóla fyrir „motor
istana” á fiskiskipin, sem voru nú
hvert af öðru að fá sér vélar i stað
segla. Það var mikið djúp á milli
þess að vera vélstjóri á Gullfossi
eða „mótoristi” á 20 tonna mótor-
bát i þá daga.sagði Andrés. Og
áfram héldu þessar tvær stofnan-
ir aö vaxa hlið við hlið, þótt tak-
markið væri i rauninni það sama,
að mennta menn til vélgæzlu. Og
meira að segja voru stéttarfélög-
in orðin 2, Vélstjórafélagið og
„Mótoristafélagið”.
Arið 1945 var Sjómannaskóla-
húsið,sem nú er, tekiö i notkun,og
þá fluttist Vélskólinn þangað.
Eins og áður segir var skólan-
um breytt mikið með nýjum lög-
um 1966, og þá voru sameinaðir
Vélskólinn og skóli Fiskifélags-
ins. Hefur öðrum breytingum
sem þá áttu sér stað veriö lýst hér
i upphafi.
Andrés Guðjónsson skólastjóri
sagði okkur, að i dag væru 263
nemendur i Vélskóla tslands i
Reykjavik, en skólinn starfrækir
deildir út á landi, og eru á Akur-
eyri 22 nemendur i vetur, Isafirði
10, og i Vestmannaeyjum voru
þeir 16, en eru nú allir komnir i
skólann hér i Reykjavik. Aðsókn
að skólanum hefur verið mjög góð
og er vaxandi. t fyrra þurfti að
neita 30 nemendum um vist I skól-
anum.en i haust var hægt að taka
alla þá sem um sóttu,sökum þess
að skólinn gat tekið i notkun tvær
stofur i nýbyggingu sem verið er
að reisa við hlið Stýrimannaskól-
ans.og þar fá bæði Vélskólinn og
Stýrimannaskólinn aðstöðu. Eru
nú 13 bekkjadeildir i skólanum.
Andrés sagöi, aö i ár og raunar i
fyrra lika, hefði verið gert mjög
vel við Vélskólann af rikisvald-
inu. Sagði Andrés að fjárveitinga-
nefnd Alþingis hefði sýnt fullan
skilning á þvi að efla Vélskólann
og hefði skólinn fengið 5 milj. til
tækjakaupa og 17 milj. i húsbygg-
ingasjóð. Þetta væri miklu meira
en nokkru sinni hefði verið gert
fyrir skólann. Hrósaði Andrés
Geir Gunnarssyni alþingismanni,
formanni fjárveitinganefndar
Alþingis,sérstaklega fyrir mikinn
skilning á þörf eflingar Vélskól
ans. Sagði Andrés að nú væri
mikil bjartsýni rikjandi hjá þeim
Vélskólamönnum sökum þess að
skólinn hefði eignazt ný og góð
tæki og fleiri væru á leiðinni, en
sannleikurinn væri sá að skólinn
var oröinn á eftir sökum tækja-
skorts, en vélsmiði heföi fleygt
fram erlendis og hefðu nemendur
ekki getað fylgzt með þeirri þróun
fyrr en nú.
Eins og fyrr segir var það
þannig, að einungis sveinar I vél-
virkjun gátu fengið aðgang að
skólanum, en eftir breytinguna
1966 er það þannig, að þeir sem
ljúka öllum 4 stigum Vélskólans,
geta tekið sveinspróf i vélvirkjun
eftir 2ja ára nám i smiöju og þá
hafa þeir öðlazt öll þau réttindi,
sem hægt er að fá sem vélstjórar.
Andrés sagði, aö starfssviö
þeirra sem lokiö hafa 4. stigi og
eru vélvirkjar væri einkum sem
■ ■■
Þetta eru nemendur vélskóladeildarinnar i Vestmannaeyjum sem nú eru komnir til Reykjavikur og
halda þar áfram námi.
vélstjórar á skipum, i verksmiöj-
um eða orkuverum eða þá i
smiðjum. Þá veitir þetta nám
marga aðra möguleika, svo sem
að verða véltæknifræöingur eöa
vélaverkfræðingar, en til þess
þarf auðvitað framhaldsnám i
tækniskóla og háskóla. Auk þess
eru þeir menn sem útskrifast hjá
Vélskólanum mjög eftirsóttir hjá
öllum fyrirtækjum sem verzla
með vélar og vélahluti.
Til nánari skýringa skulum viö
Iita á hvernig námið fer fram i
Vélskólanum.
1. stig eða vélstjóranámskeið
hefst 15. sept. og lýkur 31. mai.
Inntökuskilyrði eru 17 ára aldur
og skyldunám. 1. stigspróf veitir
réttindi til að vera yfirvélstjóri á
fiskiskipi með allt aö 500 ha. vél
og rétt til inntökuprófs i 2. stig
skólans. Framhaldseinkunn (6
eða hærra) veitir rétt til inngöngu
I 2. stig án sérstaks inntökuprófs.
2. stig. Inntökuskilyrði éru
framhaldseinkunn 1. stigsprófs
eða 1. stigspróf og inntökupróf,
sveinspróf i vélvirkjun, 2ja ára
starf viö vélgæzlu eða vélavið-
gerðir, eins vetrar nám i verk-
námsskóla iðnaöar I málmiðn-
aðargreinum og a.m.k. 6 mánaða
reynsla að auki i meðferð véla
eða vélaviðgerðum og sérstakt
inntökupróf. 2. stigs próf veitir
réttindi til að vera yfirvélstjóri á
fiskiskipi meö 800 ha. vél og á far-
þegaskipi (innanlands) með 600
ha. vél.
3. stig. Inntökuskilyrði: 2. stigs-
próf með framhaldseinkunn 3
stigspróf veitir réttindi til að vera
yfirvélstjóri á fiskiskipi meö 1800
ha. vél, á flutningaskipi með 1500
ha. vél og á farþegaskipi með 1200
ha. vél.
4. stig. Inntökuskilyrði: 3. stigs
próf meö framhaldseinkunn og
a.m.k. 6 mánaða starf við vél-
gæzlu disilmótors, 400 ha. eöa
stærri. 4. stigs próf veitir ótak-
mörkuð réttindi til vélstjórnunar
að loknu sveinsprófi I vélvirkjun.
Full réttindi i öllum stigum eru
háð skilyrðum um siglingatlma.
Kennslugreinar Vélskóla Is-
lands á öllum stigum eru þessar:
1. stig: Vélfræði (bókleg og
verkleg), rafmagnsfræði (bókleg
og verkleg), rafeindatækni (til
sögn i meöferö og umhirðu tal-
stöðva, dýptarmæla, ratsjár-
tækja, miðunarstöðva og fiskileit-
artækja), smiöar, logsuöa, raf-
suða, stærðfræöi, eðlisfræði, is-
lenzka, danska, enska, kælitækni,
stýritækni, skyndihjálp, eldvarn-
ir og flatarteikning.
2. stig: Vélfræði (bókleg og
verkleg), rafmagnsfræöi (bókleg
og verkleg), rafeindatækni (til-
sögn I meöferð og umhirðu tal-
stöðva, dýptarmæla, ratsjár-
tækja, miöunarstöðva og fiskileit-
artækja), smiöar, málmsuða,
stærðfræði, eðlisfræöi, islenzka,
danska, enska, kælitækni, stýri-
tækni, efnafræði og rúmteikning.
3. stig: Vélfræði (bókleg og
verkleg), rafmagnsfræði (bókleg
og verkleg) burðarþolsfræði,
kælitækni, smiðar, stærðfræði,
eðlisfræði, islenzka, enska,
þýzka, stýritækni, efnafræði, bók-
færsla, og iönteikning.
4. stig: Vélfræði (bókleg og
verkleg), rafmagnsfræði (bókleg
og verkleg), burðarþolsfræði,
kælitækni, stýritækni, vatnsvéla-
fræöi, smiðar, stærðfræði, eðlis-
fræði, enska, þýzka, efnafræði og
fagteikning.