Þjóðviljinn - 29.04.1973, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 29.04.1973, Blaðsíða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 29. apríl 1973. Umsjón: Stefán Ásgrimsson. Ekki er bein þörf fyrir að kvarta yfir atburðaleysi i þeirri menningu sem við á þessari siðu fjöllum um. Er þá fyrst að nefna nýiítkomna plötu hljómsveitar- innar Icecross, og er ritað um hana á öðrum stað á siöunni i dag. Þá hefur skotið upp kollinum ný hljómsveit sem heitir Hljómsveit Kjartans og Sigurjóns, og er hún óvenjuleg i meira lagi. Þá hefur Gunnar Jökull yfirgef- ið hljómsveitina Mána, og er ekki útséð um afdrif hennar eftir þetta áfall, en Gunnar hugsar sér að hætta hljóðfæraleik að minnsta kosti um sinn og snúa sér að öðr- um störfum sem munu liggja á viðskiptasviðinu, en hann hefur sem kunnugt er haft áhuga á sliku um lengri tima, og þá helzt i þágu hljóðfæraleikara, en ekki er timabært að greina frá i hverju hugmyndir Gunnars eru fólgnar, og verður það þvi að biða betri tima. ICECROSS gefur út sína fyrstu plötu Nýlega kom út plata með hljómsveitinni Icecross, og er það jafnframt fyrsta plata hljóm- sveitarinnar. Platan er tekin upp i Rosenberg Studio i Kaupmanna- höfn og pressuð i London hjá EMI. Allir textar plötunnar eru á ensku, og þarf ég að lýsa hug minum til þess fyrir þeim sem áð- ur hafa lesið skrif min hér á siö- unni þegar um islenzkar hljóm- sveitir er að ræöa.en textarnir fylgja ekki með plötunni prentað- ir eins og oft hefur tiðkazt hjá mörgum, og er ekki vist að það sé neinn stórgalli, — ég er nefnilega ekki svo viss um að þeir séu það merkileg póesia, aö tekið hefði þvi, en satt að segja gat ég ekki með nokkru móti heyrt um hvað þeir fjalla nema að ákaflega tak- mörkuöu leyti. Platan inniheldur átta lög sem eru eftir þá Ómar Óskarsson og Axel Einarsson. Fyrsta lagið heitir Wandering Around og ber smá keim af Cree- dence Clearwater bæði með tilliti til söngs og laglinu, en að öðru leyti er platan Icecross sjálfir. Tónlistin er öll „Hard Rock,” og er hljóðfæraleikur allur með ágætum, en söngurinn er heldur götóttur á köflum. Upptaka og pressun er hvorttveggja gott, og umslagið fellur mér heldur vel i geð. Það er svart-hvitt og á fram- hliðinni er nafn hljómsveitarinn- ar og einhver herjans mikil hryll- ingsmynd á svörtum grunni, en á bakhliðinni er mynd af hljóm- sveitinni)rótaranum„ásamt þess- um venjulegu upplýsingum sem fylgja jafnan hljómplötum. Platan ætti að falla þeim, sem eru fyrir harða rokkið, vel i geð. NY HLJÓM- SVEIT Hljómsveit Kjart- ans og Sigur jóns heit- ir hljómsveit sem til- tölulega nýlega hefur hafið frægðarferil sinn, en hljómsveitina skipa tveir ungir menn sem Kjartan og Sigurjón heita. Viðhittum þá félaga að máli nú fyrir skömmu og ræddum við þá um hlutdeild þeirra i tónlistarlifinu. Þeir sögðu, þegar við inntum þá eftir þvi hvers vegna þeir kölluðu sig hljómsveit, að þá hefði ekki grunað að það væri neitt órök- rétt, enda væri þetta hljóm- sveit. Hljómsveitin hefði skemmt i skólum og á þjóðlagakvöldum frá þvi hún var stofnuð og væri það hennar rétti vettvangur, en hún væri ekki til þess að leika fyrir dansi. Þó sögðust þeir hafa komið fram á dansleik i kennara- skólanum og hefði það verið bölvað þar sem gestir hefðu veriöstressaðir I meira lagi af einhverjum ótilgreindum or- sökum, enda hefði klukkan veriöorðin rúmlega tólf. Sögð- ust þeir hafa verið púaöir nið- ur og töldu þvi þessa sam- komu kennaranema hina af- leitustu. Við spurðum þá hvort þeir hyggðust fara út á land i sum- ar og skemmta og þá til dæmis á héraösmótum stjórnmála- flokkanna, en það töldu þeir alveg af og frá þar sem boð- skapur þeirra væri allt önnur pólitik en pólitik nokkurs stjórnmálaflokkanna, en aftur á móti hefðu þeir sótzt eftir aö komast 1 þáttinn „Kvöldstund i sjónvarpssal,” en stjórnandi þáttarins heföi talið það af og frá, og út frá þvi vildu þeir taka fram, að eignamenn og menn i aðstöðu ýmis konar væru hinn versti dragbitur á starfsemi hljómsveitarinnar, en þeir legöu áherzlu á að skemmta alþýðufólki og al- þýðan þarfnaðist hljómsveit- arinnar. Þá inntum við þá eftir hvort kennaraskólafólk væri ekki al- þýðufólk, og sögðu þeir að visu væri það svo, en á fyrrnefndri samkomu hefði það verið stressað af fyrrnefndum ótil- greindum orsökum. Spurðum viö þá um nánari skýrgreiningu á alþýðufólki, og svöruðu þeir að alþýðufólk væri fólk sem komið er af und- irstöðustéttum þjóðfélagsins, — sem er alþýðan. Hljómsveitin semur sjálf bæði lög og texta og fylgir engri áður fram kominni tón- listarstefnu, en hvort tveggja er i súrrealistiskum anda. Sviðsframkoman er hluti túlkunarinnar, og er hún notuð til að undirstrika innihald textans, og er mikið lagt upp úr að hafa kynæsandi áhrif á kvenfólk, og telja þeir félagar að það hafi tekizt mjög vel og tiltóku sérstaklega sem dæmi um þetta húsmæðurnar við Grensásveginn, en þeir segjast eiga eina aðal fyrir- mynd og það sé James Dean, en Kjartan hefur sveip i hári og fjarrænt augnaráð eins og hann hafði. Þeir sögðu einnig að text- arnir fjölluðu að mestu leyti um kynlaust hjónaband og konur I sokkaböndum, nema textinn um hana Binu sem lenti fyrir ljánum, en sá texti hefði verið nokkurs konar að- dragandi. Þá sögðust þeir stefna að þvi að gefa út plötu næsta haust og yrði hún til þess að hefja tón- listina á æðra stig, það er að segja ef hún yrði ekki bönnuð um leið og hún kæmi út. Að lokum sögðust þeir sækja það mjög fast að komast I þáttinn „Kvöldstund i sjón- varpssal” og vildu biðja stjórnandann að minnast þess, að nú þegar hrikti I innviðum kerfisins og alþýðan krefðist þess að sjá þá i þættinum. Hér á eftir fylgir einn af textum hljómsveitarinnar. ■ ■ Oldugjálfur og mávaþytur Konan með hýjunginn undir höndunum herðir að sér böndunum, þvi hún er að fara á ball, ball, ball, svo fer hún kannski á trall, trall, trall. Konan með hýjunginn undir höndunum ropar hjá raddböndunum, þvi hún er að fara á ball, ball, ball, svo fer hún kannski á trall, trall, trall. Konan með hýjunginn undir höndunum kastar frá sig bröndurum, þvi hún er að fara á ball, ball, ball, svo fer hún kannski á trall, trall, trall. Konan með hýjunginn undir höndumum er látin leið og löndunum, þvi nú er hún kominn á ball, ball, ball, svo fer hún kannski á trall, trall, trall. SÍÐAN SÍÐAST

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.