Þjóðviljinn - 29.04.1973, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 29.04.1973, Blaðsíða 16
uoðviuinn Almennar upplýfeingar um læknaþjónustu borgarinnaf eru gefnar I simsvara Lækna- félags Reykjavikur, simi 18888. Helgar-, kvöld- og næturþjón- usta apótekanna i Reykjavik vikuna 27. aprfl til 3. maf er f Laugarnesapóteki og Ingólfs- apóteki. Slysavaröstofa Borgarspital- ans er opin ailan sólarhring- inn. • ' Kvöld-, nætur og helgidaga- vakt á heilsuverp^arstööinni. Simi 21230. Sunnudagur 29. april 1973. Loftárásir á Kambodju aldrei harðari Loftárásumim stjómað af sendiróði USA í Phnom Penh WASHINGTON PHNOM PENH 28/4 — Sendiráð Bandarikjanna I Kambodju er notað sem miðstöð fyrir stjórn lofthernaðarins á landið og sprengjur bandariskra flugvéla falla stöðugt á þéttbýlustu svæði landsins — segir I skýrslu nefndar á vegum öldungadeildar bandariska þingsins sem hefur rannsakað þátttöku Bandarikjanna i striðinu i Kambodju. 1 dag voru svo gerðar þær loftárásir sem öflugastar hafa verið til þessa: féllu 30 tonna sprengjur og napalmsprengjur i þéttum hring um umsetna höfuðborg Kambodju. Þingnefndin segir, aö 80% af loftárásunum sé beinn stuöningur viö liö herforingjastjórnarinnar i Phnom Penh, en abeins 20% sé beint gegn flutningum um Ho Chi Minh veginn noröarlega I landinu. Stuart Symington, formaður nefndarinnar, sem hefur birt skýrsluna, segir aö hinn mikli lofthernaöur i Kambodju sé ský- laust brot á lögum þeim sem bandariska þingiö samþykkti áriö 1970 um hernaðarihlutun i Kam- bodju. Tveir nefndarmanna, Loewen- stein og Hoose, skoöuðu m.a. I Miðstjórnarfundir í Moskvu: Brézjnéf hrósað fyrir stórbætt samskipti vestur MOSKVU 28/4 — Aðalrit- ari miðstjórnar Kommún- istaflokks Sovétríkjanna/ Leoníd Brézjnéf/ hefur fengið mikið lof á mið- st jórnarf und i fyrir persónulegt framlag sitt til þess að bæta sambúð við Vesturveldin og til efna- hagsmála. Samþykkt þessi og svo mannaskiptin sem tilkynnt var um í gær þykja benda til þess að Brézjnéf Mannvíg í þorpinu Wounded Knee PINE RIDGE 28/4 — Einn þeirra Indjána sem tekib hafa þátt I hernámi þorpsins Wounded Knee I Suöur-Dakota hafi enn styrkt stöðu sína í flokksstjórninni. I samþykkt miðstjórnar var farið sérlega loflegum orðum um ,,það starf sem hefur verið unniö til aö þróa samskipti Sovétrikj- anna við riki sem búa viö annað þjóðskipulag og starf að þvi að bæta efnahagslega samvinnu viö riki þessi”. Ekki er vitað hvort nýir menn verða skipaöir i embætti þeirra Grétsjko landvarnarráöherra, Gromiko utanrikisráðherra og Antropofs, yfirmanns leynilög- reglunnar, sem tóku sæti I stjórn- málanefnd miðstjórnar i gær. Ýmsir telja að Dobrinin, sem ver- iðhefur sendiherra Sovétrikjanna i Washington, muni taka við embætti af Gromiko sem verið hefur utanrikisráðherra siðan 1957. A undan Grétsjko hefur einn varnarmálaráðherra setið i stjórnmálanefnd, Zjúkof, sem Krúsjof kallaði á vettvang þegar, hann glimdi við andstæöinga eins og Malenkof og Molotof. Sovézkir fjölmiðlar hafa skýrt frá mannaskiptum án athuga- semda. Þeir segja einungis að þeir Sjelest og Voronof, sem voru látnir vikja, hafi fariö á eftirlaun. Brézjnéf: hefur treyst stöðu sfna Dobrinfn: nýr utanrlkisráb- herra? sendiráði Bandarikjanna i Phnom Penh fullkominn fjar- skiptaútbúnað sem þar hefur ný- lega verið komið fyrir. Með að- stoð þessara tækja má i senn hafa samband við bandariskar njósna- flugvélar sem stöðugt eru á lofti yfir Kambodju og viö herfor- ingjaráð Lon Nols. Þeir heyrðu samtöl um um stöð þessa sem bentu til þess að sendiráðið sé notað sem miðstöð i rekstri loft- hernaðarins. Sem fyrr segir voru loftárásirn- ar á Þjóðfrelsishersveitir þær sem sitja um höfuöborgina aldrei ákafari en i morgun, og féllu sprengjur i aðeins þriggja km. fjarlægð frá borginni. * Sihanouk, æösti maður útlaga- stjórnar þeirrár sem mestur hluti landsins lýtur nú þegar, sagði i Peking i dag, að reyndar hefðu sveitir sinar umkringt Phnom Penh, en þær mundu ekki reyna að taka hana með áhlaupi. Þess i stað munum viö einangra Phnom Penh frá öðrum hlutum landsins, sagði Sihanouk, og hún mun falla okkur I hendur sem þroskaður ávöxtur. Sihanouk kvaðst ætla á ný til Kambodju aö heimsækja þau hér- uð sem frelsuð hafa verið. F æreysk vika í Norræna húsinir Dagskráin i dag og á morgun er á þessa leið: Sunnudagur. Kl. 17.00 Joanis Rasmussen flyt- ur fyrirlestur með skugga- myndum um færeyska nátt- úru og jarðfræði Færeyja. Kl. 18.00 Kvikmyndasýning — Færeyjar I dag. Kl. 20.30 Rithöfundakvöld: Jens Pauli Heinesen, Steinbjörn B. Jacobsen, Guðriö Helmsdal Nielsen og Karsten Höydal lesa úr eigin verkum. — Einar Bragi kynnir höfundana. Mánudagur. Kl. 14.00 Johan Hendrik Winther Poulsen flytur fyrirlestur um skyldleika færeyskunnar og Islenzkunnar. Kl. 17.00 Erlendur Patursson flytur fyrirlestur um þróun færeyskra stjórnmála undan- farin ár. Mánudagsmyndin: r Itölsk mynd úr stéttabaráttunni var skotinn til bana i viðureign við alrikislögreglu i nótt. Ann- ar Indjáni særðist. Talsmaöur lögreglunnar sagði, aö sveit lögreglumanna hefði verið send inn i Wounded Knee til aö sækja þessa tvo menn. Hinn myrti er Lawrence Lamont af kynþætti Oglala-Sioux. Þá var Indjánaforinginn Russell Means handtekinn i Los Angeles i dag á þeim for- sendum, að hann heföi ekki mætt fyrir rétti I Dakota fyrr i vikunni. Means hafði átt við- ræður við leikarann Marlon Brando, sem styður málstað Indjána og neitaði á dögunum að taka við Oscarsverðlaunum vegna þess, hve falska mynd af Indjánum og hlutskipti þeirra Hollywood hefði gefið. Næsta mánudagsmynd Há- skólabiós er eftir ltalannMauro Bolognini og nefnist Metello. Hún var ein helzta myndin sem ttalir sendu á kvikmyndahátiöina I Cannes árið 1972. Bolognini varð fyrst þekktur aö ráði, þegar hann sendi frá sér myndina „Svarta sokka ” sem fjallaði um lif vændiskvenna I pútnahúsum, viöhorf þeirra inn- byrðis og til gesta þeirra, sem þær verða að þjóna, nauðugar viljugar. I „Metello” segir Bol- ognini hins vegar frá einhverju eftirminnilegasta verkfalli sem nokkru sinni hefur verið efnt til á ítaliu, aðdraganda þess og árangri. Verkfall þetta var háö áriö 1902, þegar múrarar lögðu niður vinnu til aö knýja fram betri kjör. Varð verkfallið langt og strangt og kostaði þrjá verka- menn lifið, þegar lögreglunni var att gegn þeim. Metello er sonur fátæks verka- manns. Hann missir foreidra sina I æsku, en skipar sér i raðir verkamanna, þegar hann hefur aldur og þroska til. Er hann dæmdur I fangelsi hvað eftir ann- að vegna afskipta sinna af kjara- baráttu verkamanna. Saga hans er þó ekki sögð þurrlega, eins og söguleg heimild, þvi að ekki er farið dult meö, að Metello er maður með holdi og blóði, maður sem elskar konur og getur ekki siður barizt I sambandi viö konur en kröpp kjör. I aöalhlutverkunum er Massimo Ranieri, sem leikur Metello, og Ottavia Piccoli, sem leikur konu hans. Hún hefur oft fengið viöurkenningu á kvik- myndahátiöum, m.a. i Cannes. Patrick Gray: brenndi mikil væg skjöi Fleiri sökkva í Watergatefenið Skipta varð um yfirmann FBI WASHINGTON 28/4 — Wiliiam D. Rucklehaus hefur verið skipaður yfirmaður al- rikislögreglunnar, FBI, i stað Patricks Gray, sem sagði af sér eftir að ljóst þótti orðið að hann hafði brennt upplýsingar meö mikilvægum upplýsing- um um njósnirnar í Water- gate-húsinu. Rucklehaus var áður yfir- maður náttúruverndar lands- ins og þótti nokkuð svo laginn við að miðla málum milli iðju- hölda og náttúruverndar- manna. Hann er fæddur 1928, lögfræðingur frá Harvard. Hann átti um tima sæti i öld- ungadeild þingsins og var til- nefndur aðstoðardómsmála- ráðherra 1969. Nixon skipaði hann yfirmann FBI aðeins tveim stundum eftir að Gray hafði sagt af sér. 1 gær kom það fram með meðferð svonefnds Pentagon- máls i Los Angeles, að opinber skýrsla bendir til þess, að tveir þeirra sem flæktir voru i Watergate-málið hafi brotizt inn á skrifstofu sálfræðings til að afla sér upplýsinga um Daniel Ellsberg, annan hinna ákærðu. I skýrslu þessari eru þeir nefndir Gordon Liddy og Howard Hunt, sem báðir hafa hlotið dóm i Watergate-mál- inu. Ellsberg er, eins og menn muna, fyrir rétti sakir þess, að hann kom leyniskjölum her- málaráðuneytisins um Viet- nam á framfæri viö bandarisk blöð. ALÞÝÐU- BANDALAGIÐ Fundi framkvæmdastjórnar Alþýðubandalagsins sem vera átti mánudaginn 30. april er frestað. 2. mai verður sameig- inlegur fundur framkvæmda- stjórnar og þingflokks að Grettisgötu 3 og hefst hann kl. 16.30. Til umræðu efnahags- mál, landhelgismál og viöræð- ur við Breta.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.