Þjóðviljinn - 11.05.1973, Síða 5
Föstudagur 11. mai 1973 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Tímaritið Veðrið segir:
Raflína á hálendi
þarf að þola miklu
meira en 100 hnúta
Þegar Búrfellslína I gaf
sig í hvassviðri skömmu
fyrir jólin var því haldið
fram að ástæðan hefði
verið mjög óvenjulegt
hvassviðri sem sjaldan
kæmi hér á landi. Páll
Bergþórsson veðurfræð-
ingur mótmælti þessari
kenningu hér í blaðinu
(Þjóðviljinn 4. febrúar
1973, bls. 1) og greindi frá
því að Búrfellslínan ætti að
þola 100 hnúta vindhraða í
mestu vindhviðum. Taldi
Páll þetta allt of litið. I
fyrsta lagi vegna þess að
þegar komið væri úpp i 60
metra hæð frá bersvæði
væri vindhraðinn iðulega
25-30% meiri en i 10 metra
hæð. I öðru lagi vegna þess
að reikna þyrfti með
öryggisstuðli sem þyldi
óven julegustu aðstæður.
Var niðurstaða veðurfræð-
ingsins sú að gera yrði ráð
fyrir 150 hnúta vindhraða
þegar raflina væri hönnuð.
1 nýjasta hefti timaritsins
Veöriö er fjallaö um þessi mál.
Þar kemur fram i greinargerö
eftir Oddu Báru Sigfúsdóttur og
Flosa Hrafn Sigurbjörnsson, aö
setja megi fram þá ágizkun „aö
mesti vindhraði, sem vænta má
einu sinni á 50 árum, sé um 100
hnútar i 10 metra hæb yfir jöröu
viðast hvar við strendur landsins
og á hálendinu, en þar, sem staö-
hættir eru sérstaklega til þess
fallnir að magna vind, eigi aö
miða viö 110 hnúta eða meiri
vindhraða. A skjólsælum stööum
má hins vegar færa markið niöur
i um 90 hnúta.” Segja þau siöan
að þrátt fyrir strjála mælingar-
staði sé ekki ástæöa til aö ætla að
um of háa áætlun sé aö ræða fyrir
tsland og miöa þau þá viö
erlendar mælingar. Athugun
öddu Báru og Flosa Hrafns birt-
ist fyrst i Iðnaðarmálum, 2. h.
1971, en greinargeröin er dagsett
17. marz 1971. Frá þeim tima er
greinargeröin var samin og til
ársloka 1972 komst vindhraði einu
sinni i 100 hnúta — að þvi vitaö er
— á Stórhöfða i Vestmannaeyjúm
i deseber 1972. Þá mældust þar
mest 107 hnútar.
t nýjasta hefti timaritsins
Veðrið er ennfremur birt greinar-
gerð eftir Ólaf E. Ólafsson og Pál
Bergþórsson um ofviöri á tslandi.
Þeir komast m.a. að þessum
niöurstööum:
1. Hvössustu vindhviður eru
mun snarpari en 10 minútna
meðaltalsvindur. Þannig hafi 3ja
sekúndna vindhviða mælzt 30%
hvassari en 10 min. meðalvindur.
2. Vindur er 50-100% meiri uppi
i 700 metra hæð en i 10 metra hæð
frá bersvæði. Þannig er gert ráð
fyrir þvi að vindur á 80 metrum
yfir bersvæði sé 30% meiri en i 10
metra hæð.
3. Þegar ákveða skal styrkleika
mannvirkja er ekki nóg að þekkja
vindhraðann heldur verður lika
að þekkja vindþrýstinginn, sem
má teija i kilógrömmum á fer-
metra, hornrétt á vindinn. Um
leið og vindurinn eykst með hæð-
inni eykst þrýstingurinn. 1 80
metra hæð frá bersvæði er vind-
þrýstingurinn 69% merir en i 10
metra hæð.
Fjölmörg atriði verður að taka
til greina við hönnun mannvirkja
önnur en þau sem hér eru nefnd
en greinarnar i Veðrinu, renna
óyggjandi rökum undir það að allt
of lágt er að miða við 100 hnúta
vind sem hámark á raflinur á
hálendi tslands.
JÓHANNES ÚR KÖTLUM
LJÓÐA-
SAFN
Ný útgáfa af Ijóöum
Jóhannesar úr Kötlum.
Fjögur bindi eru komin út.
Bí bí og blaka
Álftirnar kvaka
Verð ib. kr. 650+söluskattur
Ég læt sem ég sofi
Samt mun ég vaka
Vcrö ib. kr. 650+sölusk.
Hrímhvíta móðir
Hart er í heimi
Vcrð ib. kr. 800+sölusk.
Mannssonurinn
Eilífðar smáblóm
Verð ib. kr. 700 + sölusk.
HEIMSKRINGL
Laugavegi 18.
Fiskiskip fyrir
12 miljarða kr.
/Ms
KRYDD
í FALLEGUM
UMBÚÐUM
MIKIÐ ÚRVAL
GOTT VERÐ
SMEKKLEGAR
KRYDDHILLUR
FÁST EINNIG
íslendingar áttu 875 þiljuð fiskiskip um áramót,
rúmlega 1000 opna báta og 77 önnur skip
Vátryggingarverðmæti
allra íslenzkra skipa nam
um 17 miljörðum króna í
árslok 1972, og hafði það
hækkað um nær 4 miljarða
á árinu. Vegna verðbreyt-
inga var vátryggingin
hækkuð á skyldutryggðum
fiskiskipum undir 100 lestir
að stærð um 12% á árinu,
en hækkunin var minni á
öðrum skipum. Fiskiskipin
ein voru tryggð fyrir um 12
miljarða. 19 skip voru felld
Samning-
ar eftir
84 tíma
Samningar tókust i gærmorgun
i flugmannaverkfallinu að lokn-
um sáttafundi, sem stóð i 84
klukkutima. Að sögn Torfa
Hjartarsonar sáttasemjára
rikisins er þetta lengsti sátta-
fundir i vinnudeilu siðan hann hóf
störf sem sáttasemjari árið 1945.
Aður var metið 72 klukkustundir.
Samningana átti að undirrita í
gærkvöld, en þá eiga þeir eftir að
fara fyrir fundi i félögum flugvél-
stjóra og flugmanna og hjá at-
vinnurekéndum.
Skyndiverkfallinu, sem staðið
hafði einn sólarhring, var aflétt i
gærmorgun.
af skipaskrá á liðnu ári en
75 skip bættust við, þannig
að fjöldi skipa og þilfars-
báta var alls 952 í árslok,
samanlagt 146 þúsund rúm-
lestir að stærð.
Þessar upplýsingar um skipa-
stólinn er að finna i Hagtiöindum,
og eru þær að verulegu leyti
byggðar á riti Siglingamálastofn-
unar rikisins „Skrá yfir islenzk
skip 1973”.
A árinu 1972 urðu þessar breyt-
ingar helztar á skipastólnum :
Fiskiskipum hefuur fjölgað um
54 og brúttólestatala hækkað um
3591.
öllum öðrum skipum en fiski-
skipum hefur fjölgað um 2 skip,
en brúttólestatala þeirra hefur þó
lækkað um 557.
Af skrá voru felld 19 skip, sam-
tals 4312 brúttólestir, að vátrygg-
ingarverðmæti 178 milj. kr.
Nokkur þeirra höfðu ekki verið i
tryggingu siðustu árin. Af brott-
felldum skipum voru 2 vöruflutn-
ingaskip, Disarfell og Ljósafoss,
sem bæði voru seld úr landi,
Disarfell til niðurrifs. Tvö togskip
voru felld af skrá.Hamranes, sem
sökk og Karlsefni sem selt var úr
landi til niðurrifs. 15 fiskibátar
voru felldir af skrá, 9 fórust á sjó,
en 6 voru taldir ónýtir orðnir.
Fiskibátar þessir voru allir úr
tré. 5 hinna brottfelldu skipa voru
undir 15 ára aldri, en 3 voru 30 ára
eða eldri.
Við skipastólinn bættust 75 skip,
alls 8167 brúttólestir og 1941 milj.
kr. að vátryggingarverðmæti. 3
þeirra voru vöruflutningaskip,
þ.e. Múlafoss, Irafoss og Vestri,
alls 1305 brúttólestir. 72 fiskiskip
voru skrásett á árinu, alls 6862
brúttólestir. Af þeim voru 8 yfir
300 lestir að stærð, stærst þeirra
1047 lestir, skuttogarinn Karls-
efni. Að honum meðtöldum voru 6
af þessum 8 fiskiskipúm yfir 300
brúttolestum skuttogarar. 12
fiskibátar voru að stærð 100-149
lestir, 2 80-99 lestir, 2 50-79 lestir,
Framhald á bls. 15.
Höfum ávallt fyrirliggjandi allar stærðir skraut-
hringja á hjólbarða, bæði alhvíta og hvíta meS
svartri rönd.
Sendum gegn póstkröfu hvert-á land sem er.
GÚMMÍVINNUSTOFAN H.F.
Skipholti 35 — Reykjavík — Sími 30688