Þjóðviljinn - 19.05.1973, Side 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVXLJINN Laugardagur 19. mal 1973
Laugardagur 19. mal 1973 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
RABBAÐ VIÐ BÆNDUR FYRIR VESTAN, NORÐAN, AUSTAN OG SUNNAN
Sauðburður er nú hafinn
um allt land og gott hljóð í
bændum, amk. þeim, sem
Þjóðviljinn ræddi við fyrr í
vikunni í öllum landsfjórð-
ungum. Gróður er lítið
kominn til, nema helzt
syðst á Suðurlandi og vor-
verk því yfirleitt lítið byrj-
uð. En klaki er lítill sem
enginn í jörðu eftir mildan
vetur, krossmessuhretið
gengur yfir og komin þíða
um allt íand,og voru sumir
farnir að sjá græn strá hér
og þar í kringum sig.
Hvergi var kvartað yfir
heyleysi, og er þó fé að því
er virðist allstaðar enn á
fullri gjöf.
Biðum eftir
betri tið
— Við erum að biða eftir betri
tið, sagði Guðmundur Þor-
steinsson bóndi að Skálpastöðum
i Lundareykjadal. Það hefur
verið kalt að undanförnu og þetta
er fyrsti dagurinn, sem dálitið
hlýnar, en jörðin tekur vel við;
það er litill klaki og vantar nú
bara raka og hlýju.
Sauðburður hófst viða fyrir
nokkrum dögum og er að byrja
annarsstaðar. Ekkert er farið að
bera á, en ef vel tekst til með að
korna áburðinn og hann er góður
er útlitið gott. Menn bjuggust við
áburðarhækkuninni og jafnvel
meiri en raun varð á, það var búið
að tala um hærri tölu.
Heilsufar er gott i búfé, en þetta
er auðvitað viðkvæmasti timinn.
Afkoman eftir
pólitikinni
Gróðurinn gengur hægt, enda
verið frost á nóttunni þangað til
réttnúna, sagði Hinrik Þórðarson
bóndi að Gtverkum á Skeiðum.
Sauðburður er að byrja, en ekkert
farið að grænka og féð á fullri
gjöf. En hrossin eru úti i góðu
ástandi. Veturinn hefur verið
góður, en svo kalt að undanförnu,
að það er klaki i jörðu ennþá. Það
munar uppundir mánuði á gróðri
frá Stokkseyri og Eyrarbakka
neðst i sýslunni og hér uppi i hlið-
inni.
Vegir eru betri en oft áður og
búið að flytja áburðinn, en ekkert
farið að bera á né setja niður i
garða eða vinna önnur vorverk.
Ef ekki vætir litur út fyrir, að
langt sé þangað til komin verði
útbeit fyrir nautgripi, jörðin er
svo þurr.
Það hefur verið kvefpest i
mannfólkinu, en ekkert borið á
niður núna og við erum að vona,
að þetta verði ekki meira. Enn
hefur ekki borið á neinum áhrif-
um á féð. Mannheilt, skepnuhöld
með afburðum góð og kapphlaup
milli manna að fóðra sem bezt,
enda óvenjumikil hey á óvenju
stuttum tima i fyrrasumar.
Aburðarhækkunin kom ekki á
óvart, við gengum útfrá þvi, að
hann mundi hækka einsog annað.
Það er allt dýrt orðið. Ég fór i
vetur með 2-3 poka af fóðurbæti á
dag i fénaðinn. Svo þetta kemur
ekki alveg fritt út, þótt Dagrún
haldi það kannski...
Að byrja að
sjást litur
— Hér er rétt að byrja að sjást
litur á túnum, sagði Magnús
Guðmundsson bóndi á Kvigindis-
felli i Tálknafirði en annars hefur
verið leiðindaveður það sem af
er, snjókoma og frost þangað til
fyrir tveim dögum.
Sauðburður hófst uppúr 10. mai
og gengur vel, skepnuhöld góð og
hefur ekki borið á neinum sjúk-
dóm i fé hér, fremur en áður.
önnur vorverk eru ekki hafin, en
áburðurinn kominn, stór-
hækkaður, og þótt maður byggist
við hækkun, kom á óvart hve
mikil hún varð nú þegar þeir eru
að lækka annað.
. Bátar hér eru að hætta á ver-
tiðinni og hefur verið mikil vinna
hér i frystihúsinu i vetur, einkum
framanaf vetri. Vertiðarfólki
fækkaði verulega kringum
Kominn með 6
— 8 tvilembdar
— Sauðburður er að byrja alls-
staðar hér i kring, sagði Kristinn
Eirikssou, bóndi á Keldhólum i
Vallahreppi, hjá mér bar sú
fyrsta þann 12. og ég er kominn
með 6-8 tvilembdar og nokkrar
einlembdar. Þetta gengur yfir-
leitt vel og hafa skepnur verið
með hraustasta móti hér i vetur,
enda vel gert við þær framanaf
vetri og þær ekki látnar leggja af.
Ekkert hefur orðið vart við sjúk-
dóma i fé, en ær hafa látið
lömbum á einstaka bæ.
Heilsufar i mannfólkinu hefur
lika verið þokkalegt, nema hvað
það gengur þetta venjulega vor-
kvef.
Það er ekkert farið að gróa, rétt
að byrja að grænka hólabörðin,
en mýrar kolgráar enn. Það er
þvi ekkert farið að bera á, ekki
einu sinni farið að sækja
áburðinn, og verður ekki gert fyrr
en eftir svona hálfan mánuð.
Verðhækkunin á áburði þykir
nokkuð frek, en það er útlendi
áburðurinn sem hækkar mest og
litið keypt af honum hjá okkur; sá
innlendi hækkar ekki eins mikið.
Fé er enn á fullri gjöf og verður
að mestu næstu tvær vikurnar;
við höfum það úti, en gefum i
stakka.
Hleypum alltaf
til 2. i jólum
— Hér hefur verið gjóstur i
veðrinu þangað til i dag, að það er
loks að byrja að grænka, sagði
Sauðburður stendur sem hæst um allt land
sjúkdómum i sauðfé, tannlosi né
öðru. Og i nautgripum er gott
heilsufar einsog alltaf þegar
slegið er seint, þá reynist heyið
hollara.
Otlitið er frekar gott og af-
koman virðist góð hjá bændum,
en svolitið eftir þvi, hvar þeir eru
i pólitik...
I Skeiðahreppi er nú verið að
byggja sundlaug við skólann i
Brautarholti með gufuböðum og
öllu tilheyrandi. En það gengur
hægt og kostnaðaráætiunin hefur
hækkaö við gengislækkanirnar,
svo nú óttast ég mest, að ég verði
dauður úr elli áður en verkinu
lýkur og komist aldrei i baðið.
Ástandið á
vegum slæmt
1 dag er fyrsti hlýi dagurinn,
sunnanátt og þiðviðri, en hefur
veriðkaltundanfarið.sagði Björn
Guttormsson bóndi á Ketilsstöð-
um i Hjaltastaðahreppi á Héraði.
Gróðri hefur farið hægt fram, en
er að byrja og jörðin að mestu
orðin þið.
Sauðburður er hafinn viðast
hvar, en ekki hefur viðrað til
annarra vorverka, verið frost
flestar nætur siðan um páska.
Astand á vegum er mjög slæmt,
svo menn hafa ekki getað dregið
að sér áburð og ekki er heldur
farið að breiða neitt út að ráði.
Heilsufar er gott, nema misl-
ingar hafa eitthvað herjað á
skólakrakka á Eiðum, og skepnu-
höld hafa verið góð.
Nokkuð hefur verið um
skemmtanahald að undanförnu i
sambandi við Héraðsvöku og
Leikfélag Fljótsdalshéraðs er að
sýna Hart i bak hér i nágrenninu.
Sumarið leggst vel I mann, út-
litið er sæmilegt eins og er, en
hver reyndin verður er ekki vitað
fyrirfram. Þetta er ekki nema
einstaka maður, sem veit lengra
nefi sinu i þessum efnum og þeir
eru þá ekkert að flika með það.
Vorið leggst
vel i menn
Vetur hefur verið góður og
fremur snjóléttur, en fé er enn
allt á gjöf, sagði Sturla Eiðsson
bóndi að Þúfnavöllum i Skriðu-
hreppi. Sauðburður byrjaði viðast
svona viku af mai og gengur vel.
Vorið leggst vel i menn og
byrjað er að vinna tún og gera við
girðingar. Þetta er mesti anna-
timinn hjá bændum og enginn
timi til samkoma, enda þær ekki
haldnar um þetta leyti.
Túnin eru að grænka og margir
farnir að dreifa útlenda áburðin-
um, sem við áttum að visu von á
að hækkaði, en varla svona mikið.
Taka hækkuninni likt
og stirðri tið
— Þetta er orðin löng bið eftir
gróðrinum og þetta hefur verið
einn gjafaþyngsti vetur um lengri
tima,sagði Einar ólafsson bóndi
að Lambeyrum i Laxárdal. Hér
hefur verið mikill snjór og hag-
leysi og fé mikils til staðið inni
siðan i nóvember. Heyskapur var
hér ágætur i fyrrasumar, en hey
hafa öll gefizt upp og menn al-
mennt að verða búnir með þau.
Enn er það kalt, að gróðri miðar
hægt, enginn bithagi fyrir fé og
það sem ber núna verður að vera
algerlega inni. Sauðburður er al-
mennt að byrja og fyrstu lömbin
að fæðast hér i sveitinni þessa
dagana.
Litið er farið að hreyfa við vor-
verkum nema þá helzt að laga
girðingar og vinnsla á túnum
ekkert hafin. Aburður er að byrja
að koma og menn taka
hækkuninni likt og stirðri tið.
Mikið lif hefur verið i leikstarf-
semi i vetur og er Leikfélag Lax-
dæla að sýna annað stykkið,
annars er litið um samkomur og
við förum litið þessháttar, þessir
karlar fram til dalanna.
Ekki laust við
græn strá
— Það hefur nú verið þannig tið
hér nyrðra, að vorverk eru engin
farin af stað, sagði Guðmundur
Asgrimsson bóndi i Hlið I Hjalta-
dal. Sauðburður er almennt
hafinn, en allmisjafnt, hve langt
hann er kominn. Fé er allt á fullri
gjöf, en ekki laust við, að maður
sjái græn strá, gróðurinn var að
byrja þegar siðasta kuldakast
kom.
Þetta er annar dagurinn sem er
hláka. Annars hefur snjóað á
hverri nóttu siðustu viku, en tekið
upp jafnóðum á láglendi. Ég er nú
litill spámaður um útlitið, en það
er vitað mál, að jörð kom klaka-
laus undan vetri, svo búast má
við, að hún taki fljótt við sér úr
þessu.
Þær fyrstu á þrem
bæjum þrilembdar
— Sauðburður er rétt að byrja
og gengur vel, en gróður er litill
ennþá, hefur verið frost og snjór
yfir jörðu.en tekið upp nú nýlega.
Menn eru sæmilega birgir af heyj-
um, en fóðurbætir er af skornum
skammti einsog er, mest vegna
þess, að vegir eru allir hálfófærir
sagði Skúli Andrésson bóndi á
Framnesi I Borgarfirði eystra.
Það er gott hljóð i bændum og
féð frjósamt, ég veit til, að hjá
þrem nágrannabændum minum
voru fyrstu rollurnar sem báru á
hverjum bæ þrilembdar.
Túnin eru svo blaut, að ekkert
er farið að bera á nema smávegis
Lítiö farið
aö grænka
og vorverk
óvíöa hafin
húsdýraáburð fyrr i vor.
Aburðarhækkunin þykir koma
illa ofan á hækkunina i fyrra.
Heilsufar hefur verið gott á
mönnum og yfirleitt á skepnum,
þó hefur borið talsvert á tannlosi i
fé á sumum bæjum og er verið að
rannsaka þetta og gera tilraunir,
en þeir standa alveg á gati og vita
ekkert, hvað veldur.
Leikfélagið Vaka hefur verið að
sýna leikritið Júpiter hlær og
heimsótti Egilsstaði um siðustu
helgi. í Bakkagerði erum við með
félagsheimili i byggingu og
stendur til að vigja það að sauð-
burði loknum.
Vilium losna fljótt
við ærnar úr túnunum.
— Sauðburður er almennt
hafinn og langt kominn viða,
sagði Einar Einarsson bóndi á
Skammadalshóli i Mýrdal. Það
grær snemma hér hjá okkur og
við viljum fljótlega losna við
ærnar úr túnunum. Það er orðið
fallega grænt og er að koma
ágætur sauðhagi, en við höfum
náttúrlega veriö smeykir um
grasið vegna mengunarinnar frá
gosinu i Vestmannaey jum. Það er
langt siðan hefur bætzt við öskuna
og hún eyðist smám saman, en
svolitil hætta er fyrir hendi nú,
þegar uppstreymið frá gras-
rótunum verður örara. Rannsókn
á sýnishornum bendir til, að
hættan sé að minnka.
Skepnuhöld eru yfirleitt góð hér
um slóðir, enda góð hey i fyrra og
fé yfirleitt á fullri gjöf enn. Ekki
berá neinum sjúkdómum af völd-
um gossins, en fé hefur litið bitið
enn og mest haldið sig við hús og
enginn veit hvað koma kann fram
siðar.
Það er vorhugur i mönnum og
byrjað á vélavinnslu á túnum,
farið að tæta og herfa, en ekkert
farið að bera á. Það verður strax
og menn komast til þess. í garða
hefur mjög litið verið sett enn i
sveitinni, en eitthvað byrjað i Vik.
Viðhorf breytast og
fólk flyzt i sveitina
Við höfum haft fremur harðan
vetur og undanfarinn hálfan
mánuð hefur verið verulega kalt,
en ekki þó svo að frysi, svo við er-
um ekkert hræddir við skemmdir
i túnum, sagði Eggert Ólafsson
bóndi i Laxárdal i Svalbarðs-
strandarhreppi. Nú er sunnan
rigningarúði og gróðurvottur i
túnum.
Það er mikill hugur i mönnum
hér, sem búa, enda hafa tvö
undanfarin ár verið mjög góð,
sérstaklega sl. sumar, þegar bæði
spretta og nýting varð afburða
góð og dilkar með allra vænsta
móti i haust. Bændur eru þvi yfir-
leitt ánægðir og fólk flyzt i
sveitina. Fjórir eru að byrja bú-
skap hér i Þistilfirði núna og eru
nú að byggja.
Það er mikil breyting frá þvi
sem var, að nú skuli fremur
fjölga en hitt og mér finnst við-
horf ungs fólks til búskapar
greinilega vera að breytast. Hins
vegar ógna manni vægast sagt
þær upphæðir, sem þarf til að
stofna bú, bara i byggingarnar
fara þetta 4-5 miljónir, kannski
tvær i ibúðarhúsið og 2-3 i úti-
húsin. En það er liðin tið, að
byrjað sé með frumstæðum hætti.
t þorpinu á Þórshöfn er einnig
talsvert um byggingafram-
kvæmdir, 6-7 ibúðarhús i smiðum.
Það urðu kaupfélagsstjóraskipti
hjá okkur nýlega og tók Sigurjón
Daviðsson frá Kópavogi við af
Bjarna Aðalgeirssyni, sem hefur
verið kaupfélagsstjóri hér i
nokkur ár.
Þá er fengið áburðarverðið —
27% hækkun, takk. Hér verður
ekki farið að bera á fyrr en eftir
hálfan mánuð, það er fyllsta álag
á mönnum við sauðburðinn, sem
er nýhafinn á sumum bæjunum,
og er það með fyrra móti. Ærnar
bera inni eða við hús og eru
flestar tvilembdar og
gemlingarnir jafnvel með lömb-
um lika.
Ekki frítt þótt
Dagrún haldi það
— Sauðburður stendur nú sem
hæst úti i ausandi rigningunni og
gengur vel, mikið um tvilcmbt,
sagði Gissur Gissurarson bóndi i
Selkoti i Austur-Eyjafjallahreppi.
Við erum enn að gefa, en féð étur
orðið illa, það er aðallega vothey,
sem það vill, og svo mjölið.
Annars beitum við orðið á gömlu
túnin mest, siðan ræktunin á
Skógasandi kom til sögunnar.
Gróður hefur gengið hægt,
verið norðan átt og kalsi, en
byrjaði að rigna i gær og þá þýtur
grasið upp. Búið er að aka út
haugum og einstaka maður er
farinn að bera á, annars eru vor-
verk litið hafin.
Vorið leggst ágætlega i mig.
Hér hefur annars verið nokkur
mengun frá gosinu, en rignir
páskana, en það sem eftir varð
hefur haft feikna mikla vinnu
framað þessu, unnið helgidaga og
flest kvöld.
Kvenfólkið
i útskipun
— Það hefur verið rysjótt tið að
undanförnu, komið tvö hret og
annað rétt afstaðið, sagði Þór-
hallur Kristjánsson bóndi á
Halldórsstöðum i Kinn, Ljósa-
vatnshreppi. — Rafmagnið fór af
fyrir stuttu vegna isingar á linun-
um. Snjóskaflar eru á öllum tún-
um enn, gilin full og talsvert af
snjó meðfram Kinnarfjöllunum,
enda snjósælt I Þingeyjarsýslunni
og kannski Kinnin mest. Fyrri
hlutann i vetur var gifurlega
mikill snjór og var þá rafmagns-
laust alltaf öðru hverju, þegar
rafmagnslinurnar hrundu niður.
Sauðburður er hafinn fyrir
nokkra hjá sumum, en að byrja
annarsstaðar og gengur vel. Það
er af sem áður var, þegar vara-
samt var fyrir féð ef gróður kom
snögglega. Þá voru gefin úthey,
en nú er bara gefin taða, svo
breytingin er ekki veruleg.
Vorverk eru ekki hafin, enda
vorið tæplega komið hingað, en
talsvert af fólki úr sveitinni hefur
verið að vinna á Húsavik og
vinnur kvenfólkið við að skipa út
kisilgúr.
Óvenjuleg skemmtun var hér
um daginn, þegar tveir karla-
kórar sungu saman i félags-
heimilinu. Það voru karlakórinn
Þrymur af Húsavik og nýstofn-
aður kór hér kringum
Stóru-Tjarnarskólann, skipaður
Ljósvetningum, Fljótsdælingum
og Bárðdælingum. Báðir hafa
sama stjórnanda, tékkneskan
tónlistarkennara, sem starfar á
Húsavik.
Páll Lýðsson bóndi i Sandvik i
Arnessýslu. Sauðburður byrjar
eftir þ. 15. Við hleypum alltaf til
annan i jólum, það er jóla-
gamanið og alveg fastur siður.
Vorverk hafa gengið tiltölulega
vel. Það var farið að sá i rófna-
garða fyrst i maí, enda hvorki
blautt né klaki i jörð. Það er
byrjað að bera á túnin og er nú
fyrsta skiptið, sem við getum
fengið blandaðan áburð,
kornaðan, ótakmarkaðan. En
hann hefur hækkað talsvert og
þótt maður hefði grun um það er
erfitt, að aldrei skuli vera til-
kynnt um hækkunina fyrr en i
siðustu forvöð, jafnvel eftir að
byrjað er að taka hann. Dálitið
hefur verið kvartað undan, að
áburðarafhending dragist, bóndi
hér i nágrenni við mig hafði td.
ekki fengið garðáburðinn siðast
þegar ég vissi.
Það er vorhugur i mönnum og
okkur lizt vel á sumarið fram-
undan. Þótt kalt hafi verið að
undanförnu, hefur það litið að
segja fyrir okkur, þvi við gefum
von úr viti, erum enn að gefa fé og
mas. með hross á gjöf. Eftir allt-
saman urðu heyin svo mikil i
fyrra, að menn gátu leyft sér hitt
og annað i vetur.
Tannlosið i sauðfé hefur nú
borizt niður i Flóa; við könnun
sauðfjársjúkdómanefndar
fundust 8-9 kindur með tannlos á
einum bænum, en þessi sjúk-
dómur var ekki kominn i neðri
hluta Arnessýslu i fyrrahaust.
Kýlapestina hefur hinsvegar ekki
orðið vart við hér. Hún virðíst
aðallega fyrir austan.
Félagslega fer nú dauður timi i
hönd, þvi það er keppzt við að
ljúka öllum aðalfundum og öðrum
fundum fyrir sauðburð, sem
stendur framundir 5.-10. júni.
—vh
Ballett um
Austurstræti
Tómasar
Reykjavikurborg ætlar að láta
semja ballett og kórverk I tilefni
þjóðhátiðarinnar 1974.Á bailettinn
að vera um ljóð Reykjavikur-
skáldsins Tómasar Guðmunds-
sonar, „Austurstræti”.
A fundi borgarráðs i gær var
samþykkt tillaga þjóðhátiðar-
nefndar Reykjavikur 1974 um
þetta og ákveðið að fela ákveðn-
um listamönnum verkið. Var
samþykkt að leita til Jóns Þórar-
inssonar tónskálds um kórverkið,
en efni þess verður frjálst val, og
til Jóns Nordals tónskálds og
Eriks Bidsteds ballettmeistara
um samningu ballettsins.
Sótt um
lóö fyrir
hof og
grafreit
Asatrúarmenn hafa nú skrifað
borgaryfirvöldum bréf og sótt um
lóð undir hof og grafreit. Var mál
þeirra tekið fyrir i borgarráði i
gær og visað til afgreiðslu lóða-
nefndar.
Kínverjar
vilja
friöa
Kyrrahafiö
Peking 18/5 — Tsjú En-læ for-
sætisráðherra Kina sagði i viðtali
viö James Cairns, ráðherra er-
lendra viðskipta i Astraliu, að
Kinverjar aðhylltust tillögu
Mexikana um að hluti Kyrrahafs-
ins skuli friðaður fyrir atðm-
vopnatilraunum.
Cairns átti viðræður við Tsjú i
Peking i gærkvöld og stóðu þær i
eina klukkustund. Þar gerði
Cairns grein fyrir áliti Ástrala á
atómvopnatilraunum Frakka og
Kinverja. Tsjú En-læ kvaðst einn-
ig hafa skýrt Gough Witlam frá
þvi hver væri stefna Kinverja
gagnvart tilraunum þegar Whit-
lam var i Peking fyrir stuttu.
SF — Bjarna:
Vill
viöræöur
viö ríkis-
stjórnina
Blaðinu hefur borizt ályktun fé-
lagsfundar Samtaka frjálslyndra
i Reykjavik sem haldinn var i
fyrrakvöld. Þar er vakin athygli á
þvi, að bráðabirgðalög skuli hafa
verið sett og nýr ráðherra vænt-
anlegur i stjórnina án nokkurs
samráðs við þingmann SF,
Bjarna Guðnason. ,,Er augljóst
að rikisstjórnin ber ein ábyrgð á
þeim gerðum, sem þannig er
staðið að”. Leggur fundurinn til,
að rikisstjórnin taki upp viðræður
við fulltrúa SF um samstarfs-
grundvöll. Tilgreinir fundurinn
nokkur atriði sem sérstaklega
þurfi að fjalla um, og er þar efst á
blaði framvinda landhelgismáls-
ins, uppsögn hernámssamnings-
ins og dreifing miðstjórnarvalds.