Þjóðviljinn - 19.05.1973, Qupperneq 15
Laugardagur 19. mai 1973 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
íþróttir
Framhald af bls. 11.
veröa það trauðla i þetta sinn. En
liðið er cnn ungt þannig að ég hef
ekki trú á að það komist ofar en i
5. til 6. sæti. Bezt er þó að taka
slikri spó meö varúö. Liðið hefur
nú orðið töluverða reynslu og gæti
þvi allt eins komið mjög á óvart í
sumar, við skulum alla vega vera
þvi viðbúin.
Breiðablik (UBK)
Tvö síðustu ár höfum við eins
og raunar flestir aðrir spáð
..Blikunum” falli. Við skulum
láta af þeirri iðju, þeir hafa sýnt
að þeir geta barizt þegar mest á
reynir og slik lið falla ógjarnan.
Eftir siíka eldskirn sem 2 si. ár
hafa verið fyrir liðið ætti það vart
að falla i ár. Ég spái „Blikunum”
5. til 7. sæti i sumar.
Akureyri (ÍBA)
Akureyringar sem komu upp úr
2. deild f fyrra eru aö minu áliti
iiklegastir til að falla niður í ár.
Það er alltaf mikil hætta á að lið
falli aftur niöur þegar þau koma
upp i 1. deild, þannig hefur það
veriö flest undanfarin ár hér á
landi og raunar viða. Þetta er þó
ekki regla en það þarf bæði
heppni og mjög efnilegt lið til að
standa 1. árið i 1. deild af sér.
Takist IB það i ár er þvi áreiðan-
lega borgið næstu árin en eins og
er bendir flest til þess að það
verði tBA sem fellur.
TRYGGINGAR
Framhald af bls. 3.
skatti, auk þess sem gjald fyr-
ir benzinið er að sjálfsögðu
reiknað inn i ökutaxta. Það
fyrirkomulag, sem ég hef
stungið upp á ætti þvi ekki að
skapa atvinnubifreiðastjórum
nein ný vandamál.
— En hvað um áhrif slikrar
breytingar i sambandi við
skiptingu landsins I umdæmi
með misháum iðgjöldum?
— Þessari umdæmaskipt-
ingu er mjög auðvelt að halda,
þó að tillaga min kæmi til
framkvæmda, og segði þessi
skipting þá til sin við inn-
heimtu þess hluta iðgjaldsins,
sem greiddur yrði sem fast
gjald og innheimtur með bif-
reiðaskattinum.
Nu, tryggingafélögin hafa
bent á, að stærsta vandamálið
sé sivaxandi tjón og kostnaður
við bilaviðgerðir, og er það i
sjálfu sér alveg rétt. Hins veg-
ar hefur mér fundizt, að
tryggingafélögin ynnu furðu
slælega að þvi, að ganga úr
skugga um að ekki sé greitt of
mikið fyrir bilaviðgerðir. Er-
lendis, þar sem ég þekki til, er
um að ræða nákvæma og fasta
samninga milli tryggingafé-
laganna og bifreiðaverkstæð-
anna um þau efni, en hér er
allt slikt eftirlit afar slælegt,
svo vægilega sé til orða tekið,
og þar fara að minni hyggju
miklar upphæöir i súginn.
Meinið er það, að trygginga-
félögin hafa beint allri orku
sinni að þvi, að fá sem mesta
hámarkshækkun á iðgjöldin ár
hvert og fyrir þvi hagsmuna-
máli hafa önnur sjónarmið
vikið.
— Hvað áttu von á að gerist
næst i þessum málum?
— Ég vildi gjarnan mega
vænta þess, að eitthvert
tryggingafélaganna komi
fram með tillögur um, hvernig
koma mætti bifreiðatrygging-
unum fyrir á einfaldan og hag-
kvæman hátt. Meðan engar
slikar tillögur koma fram af
þeirra hálfu, veröur maður að
lita svo á, að þau telji þetta
áttfalda skriffinnsku-kerfi á
okkar litla markaði alfullkom-
ið.
Þyrlur
Framhald af bls. 1
Times birti ritstjórnargrein þar
sem brezku stjórninni var ráðlagt
að horfast i augu við þá staðreynd
að deilan yrði nokkuð örugglega
leyst á endanum með samkomu-
lagi tslendingum i hag. Timinn
ynni með tslendingum, hvað sem
Alþjóðadómstóll segir. The Tele-
graphi London segir að brottsigl-
ing togaranna muni ósennilega
knýja brezku stjórnina til að
senda herskip á vettvang. — Aft-
ur á móti er styrjaldarhljóð i
stærstu blöðunum i héraðinu þar
sem helztu útgerðarbæir eru:
Blóði verður hellt fyrr eða siöar,
segir Yorkshire Post, og
Birmingham Post leggur til að
brezki sjóherinn klippi á veiðar-
færi islenzkra báta i hefndarskyni
fyrir vörpuklippingar varðskip-
anna.
Annað Lundúnablaðiö segir i
lok sinnar forystugreinar:
„Regluleg flotavernd myndi stór-
lega draga úr afla, og það er ein
ástæðan fyrir þvi að togaraeig-
endur hafa fram að þessu,svo og
margir af áhöfnum, verið á móti
henni”.
Ummæli brezku blaðanna
verða rakin nánar i Þjóðviljanum
á morgun.
SUM
Framhald af bls. 3.
leggur fyrir hina fjölmörgu
listamenn i fyrri bókinni:
Hvað er list?
„Aðeins þegar listamaður-
inn er að kljást við vandamál
umhverfis sins fæst nokkur
mælikvarði á vinnu hans — já,
aðeins þá verður vinna hans
sönn og einlæg. Enginn getur
kallað sig listamann, sem ekki
tekst á við þau vandamál, sem
hann sér umhverfis sig og ekki
beitir sér af alefli fyrir lausn
þeirra”.
Galleri SOM er opið kl. 4—10
daglega og blöð Werners
verða á veggjunum til 28. mai.
Hvítasunna
Framhald af bls. 3.
verði opin almenningi yfir helg-
ina. Erindi þessa efnis hefur verið
sent dómsmálaráðherra og að
sögn æskulýðsráðsmanna tók
ráðherra ekki ónotalega i þessi
tilmæli.
Þá fer ráðið fram á það við út-
varpið að það bjóði upp á vandaða
og fjölbreytta dagskrá yfir hvita-
sunnuna. Otvarpsráð hefur þegar
fjallað um þessi tilmæli og tekið
vel i.
Landverndarsamtök hafa verið
hvött til að skipuleggja land-
græðsluferðir fyrirfólk um hvita-
sunnuna, og iþróttasamtök hvött
til að láta fara fram keppnir um
þessa helgi og koma upp iþrótta-
aðstöðu sem viðast fyrir hvern
þann sem vill spreyta sig á slik-
um iðkunum.
Segja má, að þessi tilmæli
Æskulýðsráðs gefi vonir um, að
hvitasunnuhelgin verði i framtið
inni annað en slarkhelgi. —úþ
Fylgizt.,.
Framhald af bls. 1
gjaldeyri, svo scm faringjöld
milli landa lækka i islenzkum
krónum til samræmis við
gengishækkunina. Lækkunin
skal koma til framkvæmda
eigi siðar cn 7. inai.
A þvi þykir hafa orðið mis-
brestur viöa að eftir þessum
lögum sé farið og skal skorað
á neytendur að láta verðlags-
skrifstofuna vita verði þaö
vart við að verzlanir brjóti
þessi lög. Þessi 1. grein þýðir
það, að verölag á aö lækka
meira en 2% á mörgum vörum
og þaö þarf mjög strangt verö-
lagseftirlit af hálfu almenn-
ings til að takast megi að
koma þessum verðlækkunum
á. —S.dór.
„Hvers vegna er verið að tala um vélstjóraskort? Er ekkl sjálfvirknln alveg á næstu
grösum?"
Þessar tölur hafa verið
dregnar út:
46 — 61 — 25 — 31 — 1
53 — 75 — 16 — 69 — 52
32 — 26 — 4 — 62 — 41
48 — 44 — 54 — 14 — 38
72 — 47 — 19 — 43 — 63
11 — 36 — 20 — 51 — 50
17 _ 6 — 55 — 67 — 34
68 — 33 — 27 — 23— 21
13 _ 37 — 24 — 45 — 71
15 — 57 — 73 — 42 — 58
12 — 64 — 18 — 70 — 2
Framvegis birtist 1 taia á kvöldi
i sjónvarpinu. Tilkynnið bingó i
sima 84549. Þegar einhver hefur
tilkynnt bingó verður beöiö i 7
daga eftir að einhver-annar gefi
sig fram. Geri það enginn vcrður
vinningurinn afhentur hinum
fyrsta að því loknu.
Lionsklúbburinn Ægir.
SZNDIBÍLASTÖÐIN Hf
BlLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA
SÓLÓ-
eldavélar
Framleiði Sól.ó-eldavélar af mörguin stærðum og gerð-
uin, —einkum hagkvæmar fvrir sveilabæi. sumarbústaði
og báta.
— YarahUitaþjónusta —
Y.iljum sérstaklega benda á nýja gerð eiiihólla eldavéla
fvrir sma-rri báta og litla sumarbústaði.
KLDAYkLAVKHKSTÆÐI
ÍÓIIWNS KK. KKISTJÁNSSONAR II.F.
KLEPPSVEGI 62. — SÍMI33069.
RÖNTGENDEILD
LANDSPÍTALANS
Vegna breytinga og lagfæringa á húsnæði
Röntgendeildar Landspitalans, verður
inngangur og innkeyrsla til deildarinnar
frá Eiriksgötu, meðan á lagfæringum
stendur.
Breytingin gildir frá og með mánudegin-
um 21. mai 1973.
Reykjavik, 18. mai 1973
Skrifstofa rikisspitalanna
Auglýsingasíminn er 17500
Séla&ir
hjólbarÖar
til sölu ó ýmsar stærðir fólksbíla.
Mjög hagstætt verð,
Full óbyrgð tekin ó sólningunni.
Sendum um allt land gegn póstkröfu.
BARÐINN
ÁRMÚLA 7 SÍMl 30501 REYKJAVÍK.
F.