Þjóðviljinn - 31.05.1973, Page 7
Fimmtudagur 31. mai 1973 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 7
Austfirðingar:
Vilja þjónustudeildir
varðandi húsnœðismál
í hverjum fjórðungi
Um síðustu helgi var
haldin ráðstefna um
húsnæðismál á Austurlandi
og þar gerð glögg grein fyr-
ir þeim vandamálum sem
við blasa.
Samkvæmt könnun er
ljóst, að húsnæðisskortur er
mikill og fer vaxandi verði ekki
að gert, segir i fréttatilkynningu
frá Sambandi sveitarfélaga i
Austurlandskjördæmi. Árið 1071
voru aðeins teknar i notkun 68
ibúðir og 1972 63 ibúðir. Arleg
byggingaþörf i 14 skipulagsskyld-
um þéttbýlissveitarfélögum er
samtals 180 ibúðir. Þar af eru 20
ibúðir vega útrýmingar heilsu-
spillandi húsnæðis og 35 leigu-
ibúðir sem byggja þarf á vegum
sveitarfélaga. 35% allra húsa á
Austurlandi eru byggð fyrir 1930,
og i nokkrum stærstu sveitar-
félögum er annað hvert hús um
hálfrar aldar gamalt.
Ráðstefnan vill að lögum um
Húsnæðismálastofnun rikissins
verði breytt á þann veg að komið
verði upp þjónustudeildum frá
stofnuninni i hverjum landsfjórð-
ungi. Deildarskrifstofurnar
annist upplýsingaþjónustu,
ráðgjöf, teikniþjónustu og fyrir-
greiðslu varðandi lánveitingar úr
Byggingasjóði rikisins.
Nánar verður sagt frá ráðstefn-
unni siðar.
Ragnar Arnalds
Benedikt Daviðsson
Guðjón Jónsson
Hvetjum fólk til að
fjölmenna í kröfu-
gönguna og á fundinn
Ragnar Arnalds,
formaður
Alþýðubandalagsins.
Alþýöubandalagiö hvetur fólk
eindregið til að fjölmenna i kröfu-
gönguna, sem efnt er til i dag. Hér
er um að ræða einstakt tækifæri
til að vekja athygli á kröfum okk-
ar um brottför hersins og afnám
hernaðarbandalaga, þegar hitt-
ast hér aö viðstöddum hundruð-
um blaðamanna Nixon, forystu-
maöur stærsta rikis NATO, og
Pompidou, einn helzt oddviti
Efnahagsbandalagsins, en þetta
eru einmitt þau rikjasamtök, sem
okkur eru andsnúnust i land-
helgismálinu.
Alþýðubandalagið tekur undir
það, sem komið hefur fram hjá
fundarboöendum, aö þessi ganga
beinist alls ekki gegn komu
forsetanna tveggja hingaö til
lands og með þessum friðsamlegu
aðgerðum er ekki á nokkurn hátt
stefnt að þvi að trufla fund þeirra.
En forsetarnir mega ekki imynda
sér, að tslendingar séu skoöana-
lausir puntudrengir Bandarikja-
manna, sem biði spenntir eftir
nýjum Atlanzhafssáttmála. Þeir
mega gjarnan vita, að ts-
lendingar hafa megna óbeit á
loftárásum Nixons i Indokina og
kjarnorkusprengjum Pompisous
á Kyrrahafi. Þeir þurfa að sjæa
og heyra, að á tslandi býr þjóö,
sem vill lifa sjálfstæð og ein I
Iandi sinu, og þeir þurfa að vita ,
að einmitt þessa dagana heyja
tslendingar harða baráttu um til-
verugrundvöll sinn og eru beittir
vopnuðu ofbeldi af nánasta
vopnabróður Bandarikjamanna
og Frakka með þegjandi sam-
þy kki N ATO .
Benedikt Davíðsson
formaður Sambands
byggingarmanna:
Ég tel fyllstu ástæðu að fólk
fjölmenni i kröfugönguna og á
útifundinn i dag. Hér gefst ágætt
tækifæri til að koma skoðunum
okkar tslendinga á framfæri við
þessa oddvita heimsvaldastefn-
unnar.
Það þarf trúlega ekki að minna
fólk á hvaða afrekaskrá Nixon á
að baki bæði heimafyrir og er-
lendis, en ég vil gjarnan minna á
að Pompidou er einn helzti
frammámaður Efnahagsbanda-
lagsins, og þetta bandalag hefur
reynt á hinn ósvifnasta hátt að
kúga okkur tslendinga til nauð-
ungarsamninga við Breta með
þvi að neita að staðfesta umsam-
in tollfriðindi fyrir islenzkan fisk
meðan við ekki hvikum frá rétti
okkar til landhelginnar. Þeir Nix-
on og Pompidou eru fulltrúar
NATO og Efnahagsbandalagsins,
en þessi bandalög bæöi eigum við.
i rauninni i höggi viö i landhelgis-
deilunni auk Bretanna sérstak-
lega.
Eðvarð Sigurðsson,
formaður Verkamanna-
félagsins Dagsbrúnar:
Ég vil eindregið hvetja fóllk til
að fjölmenna i kröfugönguna og á
útifundinn i dag. Fundur forset-
anna tveggja hér i Reykjavik er
gott tækifæri til aö fylkja liði um
islenzk og alþjóðleg baráttumál.
Við höfum heimilaö þeim Nixon
og Pompidou aö eiga hér fund,
en það breytir aö sjálfsögðu engu
um afstöðu okkar til þeirrar
stjórnmálastefnu, sem þeir eru
fulltrúar fyrir. Kröfur okkar i
landhelgismálinu tel ég sjálfsagt
að bera fram við þetta tækifæri,
og i þvi sambandi rétt að leggja
áherzlu á, að við eigum ekkert
erindi i NATO. Bretar eru ásamt
Bandarikjamönnum og Frökkum
helztu stórveldin i Atlanzhafs-
bandalaginu og NATO getur ekki
skotið sér undan ábyrgð á
herskipainnrás eins þessara rikja
i islenzka fiskveiðilandhelgi.
Þá er einnig vert að nota þetta
tækifæri til að mótmæla kjarn-
orkutilraunum Frakka á Suður-
Kyrrahafi og sýna þannig
samstöðu með alþýöu þeirra
landa, sem þar er ógnað með
þessum tilraunum.
Fylkjum þvi liði i kröfugönguna
og á útifundinn i dag.
Guðjón Jónsson,
formaður Félags
járniðnaðarmanna:
Arðræningjar Suður-Ameriku,
auðdrottnar Efnahagsbandalags
Evrópu, ræningjar á islenzkum
fiskimiöum, sprengjukastarar i
Indó-Kina, atómsprengjukastar-
ar á Suður-Kyrrahafi — allt er
þetta sömu ættar.
Nú i dag gefst islenzku verka-
fólki tækifæri til að mótmæla
þessu öllu i tilefni af komu Nixons
og Pompidous hingaö til lands.
Ég vil hvetja verkafólk til að
fjölmenna i kröfugönguna og á
útifundinn viö Sjómannaskólann.
Með þvi sýnum viö stuðning okk-
ar viö kröfur um sjálfsákvörðun-
arétt þjóða, um umhverfisvernd,
um afvopnun og friö.
1 dag hefur islenzkt verkafólk
tækifæri til aö sýna alþjóða-
hyggju um leið og bornar eru
fram kröfur okkar eigin þjóðar.
Þvi hvet ég alla félaga mina til
að taka þátt i kröfugöngunni og
útifundinum á þann hátt, sem
fundarboðendur hafa tilkynnt.
Guðmunda Helgadóttir,
formaður Starfsstúlknafé-
lagsins Sóknar
,,Ég vil mjög gjarnan hvetja
fólk til að nota þetta tækifæri til
að mótmæla yfirgangi Breta i is-
lenzku landhelginni. Þá vil ég
einnig hvetja félagskonur Sóknar
til þátttöku i þessum aðgeröum til
þess að mótmæla fyrirhuguðum
kjarnorkuvopnatilraunum
F'rakka i Kyrrahafi.
Kristbjörn Arnason,
formaður Sveinafélags
húsgagnasmiða
Auövitað verður verkalýðs-
hreyfingin alltaf aö átta sig á þvi
hvar hún stendur. Nú, þegar full-
trúar tveggja svonefndra stór-
velda hittast á Islandi, þarf
verkalýöshreyfingin einnig að
fylgjast með. 1 Bandarikjunum er
i dag til mesti auður heimsins, en
hins vegar mesta fátækt. Verka-
lýðshreyfingin má lika gera sér
Eövarð Sigurðsson
Guðmunda Helgadóttir
Kristbjörn Arnason
grein fyrir þvi að verkamenn
hafa veriö fluttir hálfgeröum
nauðungarflutningum til Frakk-
lands til þess að vinna þar fyrir
sama og ekkert kaup. Viö megum
lika muna eftir Vietnam og fram-
komu Bandarikjastjórnar þar.
Við skulum lika muna aö Efna-
hagsbandalagið, en Pompidou er
aö sjálfsögöu einn helzti talsmað-
ur þess, hefur haft það á stefnu-
skrá sinni aö halda launum niðri
og mynda sérstök láglaunasvæði.
Hefur angi þessarar stefnu EBE
náö til tslands. Nú i tengslum við
komu þessara manna vil ég
leggja áherzlu á Iandhelgismálið,
sem er auðvitað númer eitt mál-
efni alþýöunnar i þessu landi.
Ég vil hvetja fólk til þess að
fjölmenna i mótmælagönguna og
á útifundinn i dag: islenzk alþýða
má ekki láta sér slikt tækifæri úr
greipum ganga. Við höfum sjald-
an fengið annaö eins tækifæri.
HIIMIR VANDLÁTU VELJA AÐEINS
ÞAÐ BEZTA-ÞEIR AKA Á
YOKOHAMA
HJÓLBÖRÐUM
SAMBAND ISLENZKRA
SAMVINNUFÉLAGA
^Véladeild
ARMULA 3 REYKJAVIK,
SÍMI 38900