Þjóðviljinn - 31.05.1973, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 31.05.1973, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 31. mal 1973 ÍSRAELSVIKA Hótel Loftleiðum d » 3 n MATSEÐILL MENU K*7 1 DO VaVs FYLLTUR PIPARAVOXTUR AÐ AUSTURLENZ KUM HÆTTI Oriental Stuffed Pepper onK nitt oy vuno nss ©nn OFNSTEIKT LAM8 MEÐ RAUÐUM HRISGRJONUM Oven Baked Lamb with Red Rice np’nsKo 3 0 173 nnn dVd ISRAELSKT AVAXTASALAT Israeli Fruit Salad Kr. 695.00 I tilefni 25 ára afmælis hins endurreista Israelsríkis, hefur verið ákveðið að efna til IsraelsviKu i Hótel Loftleiðum á vegum (sra- elsku ríkisferðaskrifstofunnar, ísraelska flug- félagins EL-AL, og Hótels Loftleiða. Vikan er frá og með 24/5. - 1/6. Þessa daga munu israelskir réttir framreiddir í veitinga- sölum Hótels Loftleiða og mun bryti frá Israel annast gerð þeirra. A kvöldin munu lista- menn frá Israel skemmta. Aðgöngumiði gildir sem happdrættismiði. Vinningur er flugmiði fyrir tvo með Loftleið- um til Kaupmannahafnar og til baka og með EL-AL fram og til baka milli Kaupmanna- hafnar og Tel Aviv. Daglega verða ísraelskir grillréttir á kalda borðinu i hádeginu. LOFTIEIDIR AFGREIÐSLUR LOFTLEIÐA Keflavíkurflugvelli, beinn sími 22333. LOFTLEIDIR BSAB BSAB er að hefja byggingu keðjuhúsa og einbýlishúsa i Markholtshverfi nýja, Mos- fellssveit. Nokkrum húsum enn óráðstaf- að. Upplýsingar á skrifstofunni Siðumúla 34. BSAB, Siðumúla 34, Slmi 33699 Aldan yill Þorláks- höfn fullgerða strax Skipstjóra- og stýrimannafé- lagiö Aldan vitl láta endurbæta og fuligera landshöfnina i Þoriáks- höfn strax og taka þær fram- kvæmdir framyfir aörar viö hafn- ir sunnanlands. Á framhaldsaöalfundi félagsins 17. mai. sl., þar sem þessi mál voru rædd var einróma samþykkt eftirfarandi áskorun: „Fundurinn skorar á sam- gönguráðherra og hafna- og vita- málastjórn að leggja megin-á- herzlu á að endurbæta og fullgera nú þegar landshöfnina i Þorláks- höfn framyfir hugsanlegar hafnarframkvæmdir sunnan- lands, eða hraða þeim fram- kvæmdum svo fljótt sem kostur er á. Fundurinn vill benda á mikil- vægi Þorlákshafnar, þar sem auk heimabáta sækja þangað fiski- skip stór og smá af öllum lands- hlutum (og nú siðast bættist við stór hluti Vestmannaeyjaflotans) Wickman heimsækir Kínverja PEKING 29/5 — Krister Wick- man, utanrikisráðherra Svia, kom í dag i tiu daga opinbera heimsókn til Peking og tók Tsji Peng-fei, kinverskur kollega hans, á móti honum á flugvellin- um. Wickman mun eiga viðræður við Tsji tvo morgna og verða þær með svipuðu sniði og umræður þess siðarnefdna við tvo aðra nor- ræna utanrikisráðherra — norsk- an og danskan — en þeir voru á ferð i Peking fyrr i þessum mán- uði. Wickman undirritar i ferðinni samning við Kinverja um flug- samgöngur milli landanna. Af öðrum málum sem ofarlega verða á baugi i viðræðunum má nefna samvinnu á sviði viðskipta og menningarmála, þar á meðal stúdentaskipti sem legið hafa niðri siðan i menningarbylting- unni og skipti á visindamönnum. Verður færeyska landhelgin færð út? BONN 28/5. — Anker Jörgen- sen, forsætisráðherra Danmerk- ur, sem var á mánudag i eins dags heimsókn i Vestur-Þýzka- landi sagði á blaðamannafundi i Bonn að ekki væri með öllu útilok- að að Danir fylgdu fordæmi Is- lendinga og færðu út landhelgi Færeyja fyrir hafréttarráðstefn- una. Þó taldi hann það mjög ó- sennilegt eins og sakir standa. Hann sagði að lönd sem væru i sérstæðri landfræðilegri og efna- hagslegri aðstöðu eins og Islend- ingar ættu rétt til sérstakrar til- litssemi hvað varðar fiskveiðilög- sögu en að öll slik mál ætti að út- kljá við samningaborðið. Jörgensen hélt fram þeirri skoðun Dana að þeir mynduðu eins konar brú milli Norðurland- anna og EBE. En þegar hann var spurður hvort Danir ætluðu aö taka að sér slfkt hlutverk i þorskastriðinu hvað hann nei við, en sagðist vona að NATÓ-ráö- stefnan sem halda á i Kaup- mannahöfn i næsta mánuði væri rétti grundvölluTinn til að finna lausn á landhelgisdéilunni. til löndunar á fiski sem fluttur er og dreifður viðsvegar um Suð- vesturlandssvæðiö. Skipstjórar Þorlákshafnarbáta og margra annarra þeirra skipa sem sækja til Þorlákshafnar á vetrarvertiðum telja höfnina óör- ugga og ófullnægjandi, þar sem skip hafa stórskemmzt viö að liggja I höfninni I illviðrum og skipshafnir haft nóg að gera með aö verja báta sina áföllum i höfn- inni. Haldi svo lengi áfram enn að ekkert verði gert i þessum mál- um, sjá þeir ekki framá annað en að þeir neyðist til að sækja sjó frá öruggari sjávarplássum. Er þá illa farið fyrir sliku vaxandi at- hafnaplássi sem Þorlákshöfnin er”. Bitizt um símana? Allt bendir til að koma muni til vandræða i fjarskiptamipstöö- inni, sem komið hefur verið fyrir i Myndlistarhúsinu til þjónustu við erlenda fréttamenn. Þarna verða hundruð blaða- og fréttamanna við störf og virtust þegar siðast var vitað til i gær, eiga að bitast um 5 simaklefa, en upphaflega hafði verið áætlað að þeir yrðu 17 Einnig hefur blaðið frétt, að erfiðleikar verði við telexþjónust- una, td. eru allar horfur á þvi, að taka verði allt úr sambandi i hvert sinn, sem blaöamannafund- ir eru haldnir, þvi fyrir þá er eng- inn staður i húsinu nema salur- inn, þar sem fjarskiptin fara fram. CJ Ófétis punkturinn Eftirfarandi atriði úr íslandsklukkunni og spurning I sambandi við það var meðal verkefna i islenzku á sam- ræmdu gagnfræðaprófi nú I Þegar Jón Hreggviösson hafði etið um stund, keyrði hann hnifinn i borðið og sagði: — Þar fékk ég loksins vel að éta. Nú smáfer landið að rlsa aftur. Jón Marteinsson grúfði sig áfergjulega yfir matinn. — Það er sokkið, sagði hann. Það byrjaði að sökkva þegar þeir settu punktinn aftan við Brennunjálssögu. Aldrei hefur nokkurt land sokkið jafn djúpt. Gerið grein fyrir þeirri af- stöðu til ísiands, sem felst i ummælum Jónanna hvors um sig. Meðal svara hefur Þjóð- viljinn heyrt eftirfarandi gull- korn: A: ,,Jón Marteinsson sagði að þeir hefðu aldrei átt að setja punktinn aftan við Brennun jálssögu, heldur halda áfram með hana og landiö biði þess aldrei bætur.” B: „Miðpunktur við Brennunjálssögu var svo þungur, að landið sökk”. ÞEGAR DÝRIN^'knar.: HÖFÐUMÁL EFFEL Hvernær viljið þér láta vekja yður, hr. múrmeldý«' Þann 21sta marz næstkomandi Hnohno þið þarna! Það er bannað að hvísla!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.