Þjóðviljinn - 08.06.1973, Síða 15
Föstudagur 8. júni 1973. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15
Yor í dal
Framhald af bls. 16.
diskóteki þar sem músik og til-
kynningum verður útvarpað yfir
svæðið um hátalara og sér ungur
Walesbúa um þá hlið mála og að
lokum verður kapella þarna i
tjaldi.
Til að tryggja nægjanlega
hreinlætisaðstöðu hefur verið
lögð vatnslögn um allt svæðið, 19
kamrar eru á svæðinu og 15-20
manna hreinsunarflokkur verður
að störfum allan timann sem
hátíðin stendur.
Nógur matur er á svæðinu og
verða reistir fjórir söluskúrar þar
sem fólk getur komizt i tæri við
mat þegar sverfur að nestinu.
Auk þess verður veitingaaðstaða i
Arnesi allan sólarhringinn meðan
hátíöin stendur.
Slysahjálp annast 40 manns úr
hjálparsveitum skáta og tveir
læknar. Auk þess er öll aðstaða
fyrir hendi til að flytja fólk i
bæinn ef illa fer sem vonandi
verður ekki og á svæðinu verður
reist sjúkratjald sem skátar reka.
— Hvernig er með slagorðið
„ekkert vin — engin lögregla”?
— Hvað varðar fyrri liðinn
getum við ekki ábyrgzt neitt en
viö reynum að hafa nóg að gera
fyrir fólk til að afstýra vand-
ræðum en aðalástæðan fyrir
fylleriislátum á fyrri samkomum
af þessu tagi hefur verið skortur á
þjónustu, mat og einhverju til að
gera. betta reynum við að
tryggja að verði til staðar.
En með lögregluna verðum við
að beygja okkur fyrir því að Self-
osslögreglan krafðist þess að hafa
liö á staðnum, amk til að byrja
með. En þeir lofuðu að fara ef allt
léki i lyndi og við vonum að þeir
standi við það.
— Hve mörgum búizt þið við á
hátiðina?
— Við búumst við 3 þúsund
manns i minnsta lagi. Liklega
verða það þó fleiri og eins og áður
var sagt þolir kerfið sem við
höfum komið upp allt að 15
þúsund manns.
— Verða ekki mikil landspjöll
af hátiðum sem þessari?
— Við höfum séð fyrir að svo
verði ekki. Við ætlum að fá þátt-
takendur til að dreifa 1-2 fötum af
áburði hvern og dreifa þannig um
5 tonnum af áburði. Þá mun nýja
landgræðsluflugvélin, Páll
Sveinsson, dreifa fjórum tonnum
yfir hluta svæðisins. Að hátiðinni
lokinni munum við svo senda
vinnuflokk til að græða upplandið
og dreifa f jórum tonnum áburðar
til viðbótar, þannig að samtals
verður dreift 13 tonnum áburðar á
svæðið. Við búumst við að skila af
okkur svæðinu i betra horfi
eftir hátiðina en fyrir.
Að lokum birtum við skrá yfir
ferðir til og frá hátiðinni um
helgina. Verður farið frá Reykja-
vik sem hér segir: föstudag kl.
15, 17, og 20.30 — 21.30 eftir
þörfum, laugardag kl. 10, 14 — 15
og 19, sunnudag kl. 10 og 21 og
mánudag kl. 21. Úr Þjórsárdal
veröur farið á sunnudag kl. 17 og
23 og á mánudag kl. 10, eftir
þörfum milli 13 og 19 og siðasta
ferö i bæinn verður kl. 22. Brott-
fararstaður úr Reykjavik er
Umferðarmiðstöðin og verð
farmiða er 365 kr. hvora leið. -ÞH
Haukarnir
Framhald af bls. 11.
heyrandi. Samningur um
afhendingu hússins, milli
Hauka og Hafnarfjarðar-
bæjar, var undirritaður 25.
maí sl.
Húsið er að grunnfleti 16x30
metrar að stærö og er nú i fok-
heldu ástandi. Það er fyrst og
fremst hugsaö sem boltaleikja-
hús, verður staðsett sem slikt og
notað sem æfingahús eingöngu.
Ekki er nokkur vafi á þvi, að full-
gert mun húsiö koma i góðar
þarfir þarsem aðstaða til iðkunar
inniiþrótta i bænum er af skorn-
um skammti.
Húsið hefur verið samþykkt af
iþróttasjóði rikisins, og verður
væntanlega úthlutað úr hinum
nýja iþróttasjóði til þess strax á
næsta ári. Þar með er tryggt að
rikið greiði 40% byggingarkostn-
aöar. Hafnarfjarðarbær hefur
lofað að greiða 30%,og afganginn
sjá Haukar sjálfir væntanlega
um.
1 skipulagi bæjarins er gert ráð
fyrir, að þar sem húsið stendur nú
komi siðar skóla- og leiksvæði.og
gæti það þá verið i tengslum við
væntanlegan Hraunaskóla.
Miklar utanlandsferðir eru
framundan hjá ýmsum flokkum
innan Hauka i sumar. Þannig
fara t.d. 3. og 4 flokkur drengja i
handbolta til Sviþjóðar, kvennalið
fer til Færeyja og leikur þar
nokkra handknattleiksleiki, 16 og
17 ára knattspyrnumenn fara til
Skotlands og dveljast i 1/2 mán-
uð, og mfl. Hauka i handbolta fer i
hvildar- og skemmtiferð til
Mæjorka. Það eru þvi um 130
manns sem fara utan i sumar frá
þessu vaxandi iþróttafélagi.
GSP
Englendingar
Framhald af bls. 11.
Ball fékk reisupassann i leiknum
við Pólverja. Ekki i fyrsta sinn
sem þessi smái en knái rauðhæröi
leikmaður lendir I útistöðum við
dómara.
Rikisréttur
Framhald af bis. 16.
stjóri Nixons i Hvita húsinu,hafi
viðurkennt það i janúar i vetur að
„viss mistök” hafi verið gerð i
kosningabaráttunni i fyrrahaust.
Hugh Sloan áður gjaldkeri endur-
kjörsnefndar Nixons bar þetta
fyrir öldungadeildarnefndinni
sem rannsakar Watergate.
New York Times skrifaði i dag
að Nixon hafi i júli i fyrrasumar
skrifaö undir áætlun um aukið
eftirlit, enda þótt hann hafi verið
varaður við þvi að i sumum atrið-
um væri farið inn á ólögmætar at-
hafnir. Forsetanum var einnig
bent á það, að stjórnin mundi fá á
baukinn ef áætlunin yrði heyrin
kunnug.
Af hverju
Framhald af bls. 1.
Hins vegar beita Bretar öðrum
kúnstum. t viðureign herskipsins
Scyliu við okkur á Arvakri, hélt
það skip i burtu þegar nógu
margir togarar voru komnir að
okkur til að halda áfram þeim
leik sem Scylla hóf, og meðan enn
var alsendis óvist hvernig færi,
hvort mannsskaði yrði eða skips-
tap.
Þessari sérkenniiegu séntil-
mennsku mætti skýra almenningi
oftarfrá. úþ
Símamenn
vilja
endurskoða
afstöðuna
til NATO
Á fundi Félagsráðs Félags
islenzkra simamanna, sem
haldinn var þriðjudaginn 5. júni
s.l., var svohljóðandi ályktun
gerð og samþykkt samhljóöa:
„Fundur Félagsráðs F.t.S.,
haldinn i Sigtúni 5. júni 1973, mót-
mælir harðlega yfirgangi brezka
flotans innan islenzkrar fiskveiði-
landhelgi og þvi vitaverða athæfi,
að reynt er að sigla niður islenzku
varðskipin. Jafnframt vekur
fundurinn athygli á, hvort ekki sé
timabært aö endurskoða stöðu
okkar i NATO i ljósi innrásar
brezkra herskipa i islenzka lög-
sögu.”
Tveir sækja um
stöðu
skólameistara
Hinn 30. mai s.l. lauk umsókn-
arfresti um embætti skólameist-
ara við nýja skólastofnun á
menntaskólastigi i Kópavogi.
Umsækjendur eru: Sira Guð-
mundur Sveinsson, skólastjóri, og
Ingólfur A. Þorkelsson, kennari.
tiT’í
|||; jl
Nýútskrifaðar matráðskon-
ur og húsmæðrakennarar
Hinn 1. júni sl. útskrifuðust 13
stúlkur sem húsmæðrakennarar
og matráðskonur frá Húsmæðra-
kennaraskóla Islands. Eru þær
hér á myndinni ásamt föstum
kennurum skólans.
Frá vinstri, fremri röð: Þórunn
Halla Guðmundsdóttir, Hafnar-
firði, Hanna Regina Guttorms-
dóttir, Marteinstungu, Holtum,
Ingibjörg Þórarinsdóttir,
kennari, Vigdis Jónsdóttir, skóla-
stjóri, Anna Guðmundsdóttir,
kennari, S' eininna Asta Bjarka-
dóttir, Siglufirði, Gunnþórunn
Jónsdóttir, Köldukinn, Húna-
vatnssýslu.
Aftariröð: Guðrún Sigurðar-
dóttir, Reykjavik, Margrét Eyrún
Birgisdóttir Skagaströnd, Sig-
riður Kristin óladóttir, Akranesi,
Sigrún Kristjánsdóttir, Ferju-
bakka, Borgarfirði, Dómhildur
Arndis Sigfúsdóttir, Selfossi,
Sigurborg Lilja Baldvinsdóttir,
Reykjavik, Sigriður Erla Eiriks-
dóttir, Laugarvatni, Margrét
Jónina Stefánsdóttir, Arabæ,
Árnessýslu, Anna Heiður
Guðmundsdóttir, Egilsstöðum.
Ilinn þekkti söngleikur Kabarett verður sýndur i lO.skiptið á morgun. Mjög góð aðsókn hefur verið að
leiknum og hcfur hann hlotið frábæra dóma. Margir telja að Ieikararnir Bessi Bjarnason og Baldvin
Halldórsson hafi aldrei sýnt betri leik á leiksviði og hafa þeir hlotið mikið lof fyrir túlkun á hlutverkum
sinum. Þrjár sýningar verða á leiknum um hvítasunnuhelgina þ.e. á föstudag, luogardag og á annan i
hvitasunnu. Myndin er af Bessa Bjarnasyni ásamt tveimur dansmeyjum.
Af hátíðahöldum
á þjóðhátíðardegi
Með heimild borgarráðs hefur
þjóðhátiöarnefnd Reykjavikur 17.
júni ákveöiö að efna til dans-
skemmtana að kvöldi þjóð-
hátiöardagsins við eftirtalda
skóia borgarinnar: Melaskóia,
Alftamýrarskóla, Langholts-
skóla, Arbæjarskóla og Breið-
holtsskóla. A þessum stöðum
munu hljómsveitir leika fyrir
dansi á timabilinu kl. 21 til mið-
nættis. Er þetta gert sem tilraun
til breyttrar tilhögunar kvöld-
skemmtunar þjóðhátiðardagsins
og þær vonir við hana bundnar, að
annar og betri bragur verði á
Fimmtudaginn, 7.6. 1973 kl. 11 f.
hád., var lagður krans á leiði
Björns Pálssonar, sjúkraflug-
manns, i Fossvogskirkjugarði.
Kransinn var frá bæjarstjórn
Angmagssalik, Grænlandi.
þessum kvöldsamkomum en
þeim, sem fram fóru i miðbænum
i Reykjavik 17. júni 1972.
Að öðru leyti munu hátiðarhöld
17. júni I ár verða með svipuðum
hætti og undanfarin ár nema að
þvi er snertir barnaskemmtun og
siðdegissamkomu sem hvort
tveggja verður haldið á Lækjar-
torgi. Munu þvi skrúðgöngur
stefna til Lækjartorgs i stað
Laugardals, þar sem barna-
skemmtun hefur veriö haldin 17.
júni nú siðustu ár.
I Árbæjarhverfi verður lika sið-
degisskemmtun og skrúðganga,
sem Kvenfélag Arbæjarsóknar
og Iþróttafélagið Fylkir standa að
i samvinnu við þjóðhátiðarnefnd.
Dragnótaveiðar
hefjast 15. júní
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
samkvæmt lögum nr. 40/1960, um
takmarkað leyfi til dragnótaveiða
undir visindalegu eftirliti, gefið út
auglýsingu um takmarkað ieyfi
til dragnótaveiöa sumarið 1973.
Samkvæmt auglýsingu þessari
eru leyfi til dragnótaveiða veitt á
sömu timum og á sömu svæðum
og á s.l. ári. Dragnótaveiði sam-
kvæmt leyfisbréfunum verður
heimil frá 15. júni til 31. október,
en þó hefst veiðin fyrir Norður-
landi ekki fyrr en 15. júli og lýkur
30. nóvember.