Þjóðviljinn - 16.06.1973, Qupperneq 1
UOBVIUINN
Laugardagur 16. iúni 1973 — 38. árg. 135. tbl.
\
1
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐVERZLA ÍKRON
k A
GERIR
EKKERT
„Ástandið” er óbreytt
Fundi utanríkisráðherranna lauk án þess að nokkuð
gerðist í þá átt að Bretar hrey fðu sig af íslandsmiðiim
Krafa íslendinga um að
NATO fyrirskipi Bretum
að hætta hernaðarum-
svifum sinum í íslenzkri
lögsögu, virðist ekki hafa
minnstu áhrif. Málið var
talsvert rætt á utanrikis-
ráðherrafundi NATO í
Kaupmannahöfn, ekki
vantaði það, en það
hvorki gekk né rak. (s-
lendingar standa í sömu
sporum eftir sem áður.
Hernaðarbandalagið
sýnir með aðgerðaleysi
sínu, að það hefur hvorki
vilja né getu til þess að fá
bandalagsþjóðina Breta
til að hætta árásarað-
gerðum á bandalagsþjóð-
ina íslendinga.
Einkafundir þeirra
Home, utanríkisráðherra
Breta, og Einars Ágústs-
sonar, utanríkisráðherra
íslendinga, voru til
einskis. Bretar voru alls
ekki á þeim buxunum að
víkja burt með herskip
sín.
Enginn valdamaður í
NATO hefur komið með
neinar bindandi yfirlýs-
ingar um að hann muni
styðja íslendinga í hinni
ójöfnu baráttu við brezka
flotaveldið; engin stofnun
NATO hefur gert neinar
samþykktir í þágu (slend-
inga.
Er þess þá varla von úr
þessu, að NATOgeri neitt
fyrir Islendinga í þessu
máli, því helzt var von til
þess að utanríkisráð-
herrarnir gerðu einhverja
slíka samþykkt, þar sem
þeireiga þó að vera undir
einhverjum þrýstingi frá
al menni ngsáI itin u í
löndum sínum. Her-
foringjarnir, sem stjórna í
aðalstöðvunum í Brössel,
eru mun ólíklegri til að
hneigjasttil samúðar með
málstað (slendinga.
í hinni sameiginlegu yfir-
lýsingu frá utanríkisráð-
herrafundi NATO i Kaup-
mannahöfn er ekki minnzt
einu orði á kröfur íslend-
inga um að Bretar fari með
herskip sín af Islandsmið-
um. Þar er aðeins rætt um
þau atriði sem stórveldun-
um eru þóknanleg, en þó
með orðalagi sem bendirtil
þess, að samkomulagið um
nýskipan NATO sé ekki
langt á veg komið.
1 yfirlýsingunni segir, að hlut-
verk bandalagsins veröi að
endurskoða i ljósi þeirra breyt-
inga, sem orðið hafa frá stofnun
þess, og samskipti Bandarikj-
anna og aðildarrikja NATO i
Evrópu verði tekin til athugunar
á nýjum grundvelli. Ráðherrarn-
ir komu sér saman um það, að ör-
yggisráðstefna Evrópu hæfist 3.
júli, en viðræðurnar um gagn-
kvæma fækkun i herjum i Evrópu
hæfust i október.
Engar frekari umræður urðu á
fundinum um Islandsmál en frá
var sagt i blaðinu i gær. Þó
minntist Rogers utanrikisráð-
herra Bandarikjanna, litillega á
herstöðvamálið. Sagðist hann
ekki búast við erfiðleikum i
samningum við Islendinga um
framtið herstöðvarinnar i Kefla-
vik, en bandariska stjórnin og sú
islenzka mundu nú taka það mál
til meðferðar. Kvaðst hann ekki
hafa orðið var við neina óánægju
með herstööina þegar hann var á
tslandi fyrir skömmu.
Sir Alec Douglas-Home, utan-
rikisráðherra Bretlands, sagði
um einkaviðræður þeirra Einars
Agústssonar, að ástandið væri
óbreytt, en hann mundi ráðgast
við stjórn sina um málið.
Fulltrúar Noregs, Danmerkur.
Belgiu, Kanada og Hollands fjöll-
uðu m.a. um það i ræðum sinum,
að álit NATO-landa væri i veði ef
ekkert yrði gert til þess að auka
lýðræði og tryggja persónufrelsi i
aðildarlöndunum. Létu þeir i ljós
ugg vegna þess óorðs sem á
bandalagið kæmi, þar sem innan
þess væru lönd sem ekki virtu
frumstæðustu mannréttindi. Attu
þeir þar við Grikkland, Tyrkland
og Portúgal.
I gær tók Hannibal
Valdimarsson, félagsmála-
ráðherra, fyrstu skóflu-
stunguna að síðasta húsi 6.
og síðasta byggingaáfanga
Framkvæmdanefndar
byggingaráætlunar, sem er
að rísa við Rjúpufell t
Fella- og Hólahverfi.
Viðstaddir voru borgarráðs-
menn, borgarstjóri, fram-
kvæmdanefndin, fulltrúar Hús-
næðismálastofnunar, veðdeildar
Landsbankans og Breiðholts hf.,
sem er aðalverktaki i öllu verk-
inu.
Við þetta tækifæri hélt Eyjólfur
K. Sigurjónsson, formaöur Fram-
kvæmdanefndarinnar, stutt
ávarp, þar sem hann skýrði frá
framkvæmdum.
Þar kom fram, að þegar fram-
kvæmdum við 5. áfanga lýkur,
sem verða mun i árslok, verður
lokið við byggingu 907 ibúða. 1
þessum siðasta áfanga eru 314
ibúðir, en þá eru eftir 29 ibúðir af
þeim 1250 sem júnisamkomulagið
kveður á um, en ekki hefur verið
tekin ákvörðun um staðsetningu
þeirra. Þegar 6. áfanga lýkur er
byggingasvæði það sem FB fékk
úthlutað i Breiðholti fullbyggt.
Framhald á bls. 15.
Heroini
smyglað
Los Angeles 15/6 — Lögreglan i
Los Angeles tók i gær höndum
sjómann á norska skipinu
,,Kongsville” og ákærði hann
fyrir að hafa ætlað að smygla
heroini inn i Bandarikin. Heroinið
sem fannst hjá manninum hefði
verið hægt að selja ólöglega fyrir
á að gizka 85 miljónir isl. kr.
Skipiðer i förum á Kyrrahafinu
og kemur m. a. á hafnir i Manilla,
Bankok, Singapore og Japan.
Framkvœmdanefnd byggingaráœtlunar í Breiðholti:
Síðasti áfangi hafinn
Verður lokið
á fyrra
hluta árs
1975
llannibal Valdimarsson, félagsmálaráöherrá, tekur fyrstu skóflustunguna að siðasta fjölbýlishúsinu
scm reist verður á vegum Framkvæmdanefndar byggingaáætlunar. Að baki honum má m.a. greina
borgarstjóra Birgi tsl. Gunnarsson, forseta borgarstjórnar Gisla Ilalldórsson, formann FB Eyjólf K.
Sigurjónsson, hogarfulltrúana Kristján Benediktsson og Steinunni Finnbogadóttur, og Ingólf Finnboga-
son sem á sæti i FB.
Fornminjarannsóknir í sumar:
Haldið áfram í Alftaveri
og Suðurgötu/Aðalstrœti
Gisli Gestsson, safnvöröur, er
nýfarinn austur I Alftaver til
að halda áfram rannsóknum
og uppgreftri á Mýrdalssandi.
t fyrra gróf hann þar upp stofu
og hálfan skála, og hefur nú I
hyggju að Ijúka þessum
greftri i sumar. Þór Magnús-
son þjóðminjavörður sagði i
spjalli við blaöið, að þarna sé
að koma fram mjög skemmti-
legur miðaldabær.
Um helgina er væntanleg
hingað Else Nordal, sænskur
fornfræðingur, sem vann hér i
fyrra ásamt Þorkeli Grims-
syni að fornminjarannsóknum
i Suðurgötu og Aðalstræti.
Mun þá aftur hefjast upp-
gröftur og rannsóknir. Þessar
rannsóknir eru kostaðar af
Reykjavikurborg og er vonazt
til að þeim ljúki i sumar. Auk
þeirra Else og Þorkels munu
vinna að rannsóknunum annar
sænskur fornfræðingur og is-
lenzkir fornfræðinemar.
Við spurðum Þór hvort ný-
lega hafi komið ábendingar
frá fólki um kuml, en svo er
ekki; a.m.k. kom ekkert slikt
fram i fyrrasumar.
Merkilegt hús vestur
á Mýrum
Þór kvaðst hafa veriö vestur
iVogi á Mýrum um daginn að
skoða þar merkilegt gamalt
hús — gamla amtmannshúsið
á Stapa, sem Bjarni amt-
maður Þorsteinsson byggði og
þeir eru fæddir i, Arni land-
fógeti og Steingrimur skáld.
Húsið var byggt 1820, en flutt
að Vogi liklega 1849 eða 1850
og endurreist þar. Sennilega
var húsið eftir flutningana
alveg eins, eða mjög likt og
það var i upphafi.
Staðurinn, þar sem húsið
stendur, er nú i eyði, en jörðin
er i eigu Málarafélags
Reykjavikur og hafa þeir
fullan hug á þvi að vernda
húsið. Þór sagði, að húsið væri
illa farið og sýnu verr farið en
Bernhöftstorfuhúsin hér.
Aftur á móti er ekkert áhorfs-
mál að gera við húsið ef áhugi
er fyrir hendi að vernda það.
-sj