Þjóðviljinn - 16.06.1973, Page 6

Þjóðviljinn - 16.06.1973, Page 6
fi Stf)A — ÞJ6ÐV1L.HNN Laugardagur 16. júni 1973. DJOÐVIUINN MÁLGAGN SÓSIALISMA, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Ótgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson (áb.) Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 Hnur). Askriftarverö Jkr. 300.00 á mánuöi. Lausasöluvcrö kr. 18.00. Prentun: Blaöaprent h.f. VÍÐAR EN Á ÍSLANDI EFAST MENN UM GILDI NATO Það var vist ekki rætt mikið um „rauðu hættuna” og ógnun úr austri á utanrikis- ráðherrafundi NATO i Kaupmannahöfn. öðru visi mér áður brá. Við stofnun NATO og lengi fram eftir árum voru samkomur af þessu tagi aðal- lega notaðar til samkeppni um það, hver gæti komið með hroðalegustu lýsinguna á yfirgangi Rússa og samsæri heims- kommúnismans. Menn töluðu sig hása um nauðsyn á öflugum vörnum gegn aðsteðj- andi hættum, bæði innanfrá og utanfrá. Hvern átti að verja? Eitthvað var nú vist talað um fólk og mannlif, en aðalá- herzla var lögð á verðmæti og frelsi, vest- ræna menningu og friðhelgi framtaks og eignarréttar. Og fyrir hverjum átti að verja? Vitanlega fyrir þeim öflum sem ekki virtu mannhelgi og friðhelgi mann- legra verðmæta, öflum sem kærðu sig kollótt um lýðræði og frelsi, öflum sem vildu ekkert af vestrænni menningu vita. Sósialistar vöruðu frá upphafi við þessu lýðskrumi og bentu á veruleikann á bak við það: Hagsmuni Bandarikjanna að afla sér herstöðva i Evrópu og ihlutunarrétt um hermál Vestur-Evrópurikja, hags- muni vestur-evrópskrar borgarastéttar af bandariskri vernd i óhjákvæmilegum stéttarátökum heima fyrir. Þessum hags- munum tengdust áætlanir um alhliða upp- byggingu auðvaldskerfisins i Vestur-Evr- ópu, örmagnaðri eftir styrjöldina. Þar átti bandariskt auðmagn að hafa stóran hlut, og jafnhliða kom viðleitni til efnahagslegs samruna yfir landamæri þjóðrikjanna. Hernaðarbandalagið ruddi þvi brautina fyrir efnahagssamsteypunum. Af sjálfu leiddi að Sovétrikin töldu sér ógnað af NATO, enda var bandalagið öðr- um þræði liður i hnattrænni herkvi um riki sósialismans. Af þessu spratt æðislegt hernaðarkapphlaup, sem enn sér ekki fyr- ir endann á, og þau sambúðarform þjóða i milli, sem kennd eru við ,,kalt strið”. Afskræming sósialismans undir veldi Stalins og sporgöngumanna hans var og er einn meginstyrkur þeirra áróðursmeist- ara sem hafa tekið að sér að réttlæta NATO fyrir almenningi á Vesturlöndum. En vitanlega kom að þvi að frjálslynt og friðelskandi fólk sæi i gegnum blekking- arnar. Eitt af þvi sem þar hefur hjálpað upp á sakirnar er einmitt það, hvað hern- aðarbandalög risaveldanna i austri og vestri eru um margt sviplik að ætlunar- verki og starfsemi. Þau eru skjaldborg um stórveldastefnu, en ganga i móti smá- þjóðatilveru og lifsformum þeirrar alþýðu sem vill ráða sér sjálf. Á seinustu árum hefur þvi mjög dregið saman með forystu hernaðarbandalag- anna 2ja sem lykja krumlum sinum um Evrópu og Amerika norðanverða. Og milli höfuðpauranna i Kreml og Hvita húsinu eru komnir dáindis kærleikar, og verður það kærleiksband þvi sterkara sem meir slaknar á trúnaðarböndum þeirra við eig- in þjóðir. Við þessar aðstæður er vissulega holur hljómur i rödd bandariska utanrikisráð- herrans þegar hann hvetur til einingar um NATO til að verjast útþenslustefnu Rússa. Lang er bilið milli Rogers 1973 og fyrir- rennara hans Forrestals 1949, sem varp- aði sér út um glugga æpandi: Rússarnir koma! í þá daga gilti kjörorðið ,,betra dauður en rauður”. Það er vist flest annað en Rússar og veldi þeirra vina sem skapa hættu fyrir NATO i þann mund sem utanrikisráðherr- ar þess þinga nú i Kaupmannahöfn. Sjálf- sagt tala þeir mikið og kannske tala þeir sig hása, en það er ekki um þær utanað- komandi hættur sem „varnarbandalag- inu” var ætlað að kljást við, heldur um hættur af upplausn, ósamkomulagi, stjórnmálaspillingu og valdniðslu sem ógna innanfrá og eiga rætur i sjálfri til- veru bandalagsins. Er það ekki dæmi um upplausn innan hernaðarbandalags þegar eitt stórveldið gerir herhlaup inn á yfirráðasvæði minnsta rikisins til að vernda þjófnað úr verðmætustu auðlindum þess? Hvað um þá varðstöðu sem NATO átti i orði kveðnu að tryggja um friðhelgi framtaks og eign- arréttar? Var það svona framtak og svona eignarréttur sem átti að tryggja? Dæmi um rotnun NATO innanfrá er Grikkland,þar sem herforingjar fótum- troða lýðræðið i helgustu véum þess — og eru þess þvi aðeins megnugir að NATO hjálpaði þeim til valda og heldur yfir þeim hlifiskildi. Stór var ábyrgð NATO-rikja á gereyð- ingarstyrjöld forysturikisins, Bandarikj- anna, i Vietnam, en stærri er ábyrgð þeirra á nýlendustyrjöldum Portúgala i Afriku. Þvi Portúgalar gætu alls ekki háð þær án fulltingis NATO. Ráðherrar stórveldanna færu ekki i hár saman út af þessum og þvilikum atriðum. Meinið er — frá þeirra sjónarmiði — að fulltrúar smárikjanna skuli vera farnir að skipta sér af þessu. En ætli staðreyndin sé ekki sú, að einmitt hjá smáþjóðunum á heilbrigt almenningsálit greiðari leið að forystumönnunum? Og það hvetur þá til að halda eftir megni i ávinninga vest- rænnar menningar og lýðræðis, jafnvel þótt þeir eigi undir högg að sækja meðan til eru bandalög eins og NATO. Efasemdir um gildi NATO fyrir smá- þjóðirnar eru orðnar háværari en orð- skrúð um „vestrænar varnir” — jafnvel á ráðherrafundum NATO-rikja. Ráðlagt að taka upp svartolíu Spara má verulegar upphœðir i útgerðarkostnaði við að nota heldur svartoliu en gasoliu Svartolíunefnd hefur nú skilaö áliti, og telur hún að brennsla svartolíu í skipum sé að öðru jöfnu bæði hag- kvæm og æskileg. Er hér um mikið hagsmunamál að ræða, þar sem árlegur sparnaður á einum togara geti numið 2. miljónum króna ef notuð er svartolía í stað gasolíu. Hins vegar megi ekki rasa um ráð fram i málinu og þurfi framkvæmdir að vera und- ir eftirliti kunnáttumanna. I marzmánuði s.l. skipaði sjávarútvegsráðherra nefnd til að kynna sér til hlitar reynslu af brennslu svartoliu I disilvélum og láta siðan i ljós álit sitt á þvi, hvort slfk oliunotkun væri hag- kvæm og æskileg. í nefndinni áttu sæti: Gunnar Bjarnason fyrrv. skólastjóri Vél- skóla íslands formaður, Gunnar Björnsson verkfræðingur, prófessor við verkfræðideild Há- skóla tslands, Ólafur Eiriksson tæknifræðingur, kennari við Vél- skóla Islands, Aðunn Ágústsson verkfræðingur, starfsmaður við tæknideild Fiskifélags Islands og Ingólfur Ingólfsson vélstjóri, for- maður Vélstjórafélags tslands. Nefndin hefur nýlega skilað áliti, sem hér fer á eftir i heild, ásamt úrdrætti úr greinargerð nefndarinnar: Nefndin telur, að brennsla svartoliu i islenzkum skipum sé bæði hagkvæm og æskileg, ef henni verður við komið meö til- hlýðilegu öryggi. Nefndin telur, að taka beri upp svartoliunotkun til reynslu i tleiri tegundum véla, en gert hefur ver- ið hingað til hér á landi. Nefndin telur það vera mjög mikilvægt, að framkvæmdir við undirbúning og reynslunotkun svartoliu færi fram undir ná- kvæmu eftirliti kunnáttumanna, sem til þess yröu skipaðir. Verði fenginni reynslu þar með safnað á einn stað, þar sem hún veröi að- gengileg þeim, er hennar hafa þörf. Þá er og mikilvægt, að vél- stjórar hljóti góðar og traustar leiðbeiningar i notkun svartoli- unnar. Þá telur nefndin, að á tiltölu- lega skömmum tima verði hægt aö hefja notkun svartoliu i flest- um togurum landsmanna, ef rétt er haldið á framkvæmd þessara mála. Nefndin telurennfremur,aö skynsamlegt sé, að ný skip veröi yfirleitt gerð með búnaði til svartoliunotkunar. Þegar miðað er við núverandi verðlag innanlands og meðal- stærð islenzkra togaravéla, má gera ráð fyrir, að árlegur sparn- aður eins togara i rekstri veröi 3—4 milj. króna brúttó, en nettó- sparnaður varla undir 2 milj. króna, ef notuð er svartolia i stað gasoliu. I greinargerð kemur m.a. fram: Notkun svartoliu i stórum skip- um var hafin fyrir 1950. t þeim var þá farið að brenna jafnvel þykkustu tegundum svartoliu. Siðan hefur orðið mikil þróun i gerð véla og búnaðar fyrir þessa oliunotkun, bættar smuroliur hafa komið fram, en þær eru mikilvægur þáttur i þessu sam- bandi og loks hefur þekking á þessu sviði aukizt. í greinargerðinni kemur fram, aö reynsla af svartoliu hér á landi er ekki einhlit. Hjá Eimskipafé- laginu hefur svartolia reynzt bet- ur i litlum og hraðgengum hjálp- arvélum heldur en i aðalvélum, en hjá Skipadeild SÍS hefur svart- oliunotkun gefið góða raun. Þá hafa verið gerðar tilraunir með svartoliu á togurum, og má telja að önnur tilraun, sem stendur ennþá, ætti að gefa góða raun. Til að kanna afstöðu vélafram- leiðenda og til að kynnast sjónar- miðum þeirra i sambandi við svartoliubrennslu i togurum, heimsótti formaður nefndarinnar Gunnar Bjarnason, nokkrar þeirra, Wekspoor i Amsterdam (Narfavélin), M.A.N. i Augsburg (Bjarni Benediktsson o.fl. spænskir togarar) og Mirrless i Stockport (ögri og Vigri). Allar framleiða þessar verk- smiðjur vélar fyrir svartoliu og telja ekkert þvi til fyrirstöðu að slik olia sé brennd i togaravélum, þó að þvi tilskildu,að álag á vél- arnar sé ekki langtimum saman undir 60% af fullu álagi. Athugun hefur verið gerð á b/v Narfa, b/v ögra og b/v Karlsefni og ber þeim saman um að álag á togi sé um 60—75% af fullu álagi. Þá aflaöi nefndin sér upplýsinga frá vélaframleiðendum japönsku skuttogaranna og telja þeir að Framhald á bls. 15. Togararnir með sæmilegan afla, en lítið af þorski Fjórir togarar hafa landað I Reykjavik það sem af er vikunn- ar. Mestur hluti aflans hefur ver- iðufsi og karfi, en minna af þorsk og ýsu. Narfi landaði 11. og 12. júnf 163 tonnum; þar af voru 19 tonn þorskur. 12. júni landaði Þormóður goði 141 tonni og voru 20 tonn af aflan- um þorskur. 13. júni landaði Karlsefni 196 tonnum.og i gær var Hjörleifur að landa, og var hann með um 170 tonn. — úþ. Jöfn staða í Bretlandi LONDON 14/6 — Skoðanakönnun sem gerð var i Bretlandi nýlega sýnir að ef til kosninga kæmi nú stæðu stóru flokkarnir tveir mjög jafnt að vigi. Verkamanna- flokkurinn hefur nú 42% fylgi, Ihaldsflokkurinn 41% og frjáls- lyndir 14,5%. Þá finnst 42% Breta Heath standa sig i stykkinu og fer sól hans hækkandi þar sem hann hafði 38% fylgi i siðasta mánuði.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.