Þjóðviljinn - 16.06.1973, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 16.06.1973, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. júnl 1973. IDAGSBRUNI IfeP Orðsending frá Verkamanna- félaginu Dagsbrún Vegna lokunar ölfusborga til orlofsdvalar á þessu sumri, gefst félagsmönnum Dags- brúnar i samráði við Alþýðuorlof kostur á orlofsdvöl i Héraðsskólanum að Reykholti fyrir sig og fjölskyldur sinar. Leigð verða út herbergi, sem rúma 2-4 til vikudvalar i senn. Kostnaður verður sem hér segir: Fullorðnir 5.000 kr. á viku Börn fi-i:} ára 2.500 kr. á viku. Börn undir 6 ára ókeypis. Innifalið i þessu verði er gisting, morgunmatur og tvær heitar máltiðir á dag, aðgangur að sundlaug og gufubaði auk barnagæzlu hluta úr degi. Aðstaða verður til þess að gestir geti sjálfir hitað sér kvöldkaffi, ef þeir óska þess. Þá eru einnig möguleikar á dvöl i septem- ber að Illugastöðum og siðast i ágúst, og allan septembermánuð að Einarsstöðum. Þeir félagsmenn, sem áhuga hafa á þessu, eru beðnir að hafa samband við skrif- stofuna i sima 25633 eigi siðar en 20. júni, þar sem starfsemi að Reykholti hefst 23. júni n.k. Stjórnin Húsmæðraskólinn Laugum S-Þing. starfar i tveimur námstimabilum næsta skólaár. Nánari upplýsingar gefur skólastjóri, simi um Breiðumýri. i nokkrar fólksbifreiðar og Pick-up bif- reið, er verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðjudaginn 19. júni kl. 12-3. — Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl. 5. SALA VARNARLIÐSEIGNA FÉLAG ÍSLEMZKHA HLJÓllSTAIiMAlA úivegaryður hljódfœraleikara og hljómsveitir við hverskonar tækifan Vinsamlcgast Siringið í Z0z!!)S milli kl. 14-17 Læknaritari Staða læknaritara, hálfs dags starf, er laust til umsóknar á lyflækningadeild Landspitalans frá 1. júli n.k. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg. Umsóknir, er greini frá aldri, menntun og fyrri störfum sendist Skrifstofu rikis- spitalanna, Eiriksgötu 5, fyrir 25. júni n.k. Reykjavik 8. júni 1973. Skrífstofa rikisspitalanna. Auglýsingasíminn er 17500 UL 100.000 trjáplöntur í Heiðmörk Úr fréttatilkynningu frá Skóg- ræktarfélagi Reykjavikur: Aðalfundur Skógræktarfélags Reykjavikur var haldinn i Tjarn- arbúð fimmtudaginn 7. júni. Fundarstjóri var kjörinn Jónas Jónsson aðst.m. ráðherra, en hann er formaður Skógræktarfé- lags fslands. f upphafi fundar gerðu formað- ur og framkvæmdastjóri félags- ins, Vilhjálmur Sigtryggsson, grein fyrir starfsemi þess á árinu sem var veð miklum blóma. f gróðrarstöðinni i Fossvogi var að venju unnið að uppeldi trjá- plantna og reynt var að auka fjöl- breytni þeirra eins og unnt var, þvi áhugi borgarbúa fyrir hinum ýmsu trjátegundum hefur aukizt mikið á undanförnum árum. Eins og fyrr eru þó skógar- plöntur i miklum meirihluta, en alls voru afgreiddar á siðastliðnu ári tæplega 300 þúsund trjáplönt- ur frá gróðrarstöðinni. f samvinnu við Hitaveitu Reykjavikur vann félagið við gróðursetningu trjáplantna i öskjuhlið en samkvæmt sam- þykktu skipulagi er þar gert ráð fyrir stóru opnu svæði með skóg- arreitum. t Heiðmörk vann félagið við gróðursetningu o.fl., i þessu stóra friðlandi Reykjavikur, en alls voru gróðursettar þar rúmlega 100 þúsund trjáplöntur, og var það að mestu unnið af áhuga- mönnum, og af Vinnuskóla Reykjavikur. Umferð um Heið- mörk hefur aukizt að mun á sið- ustu árum, og hafa borgarbúar notið útiverunnar þar i æ rikari mæli. Eftir að reikningar félagsins höfðu verið lesnir upp og sam- þykktir voru frjálsar umræður um skógræktarmál, með almennri þátttöku fundarmanna. f lok fundarins var samþykkt tillaga um að skógræktarfélög á Reykjavikursvæðinu vinni að þvi með þeim aðilum, er hlut eiga að máli, að komið verði á takmörkun á fjárhaldi á Reykjanessvæðinu og einnig að framkominni hug- mynd um fólkvang á svæðinu. Einnig var lögð áherzla á að strangara eftirlit væri haft um meðferð elds á viðavangi. t stjórn félagsins eru Guð- mundur Marteinsson rafmagns- verkfræðingur formaður, Svein- björn Jónsson hr., Lárus Blöndal Guðmundsson bóksali, Björn Ófeigsson stórkaupmaður og Jón Birgir Jónsson verkfræðingur, en i varastjórn þeir dr. Bjarni Helgason, Kjartan Sveinsson raf- fræðingur og Ragnar Jónsson skrifstofustjóri. Sumar- gistihús á Blönduósi f sumar verður starfrækt gisti- heimili i Kvennaskólanum Blönduósi. Er þetta fjórða sumarið i röð, sem skólinn er nýttur á þann hátt.Gistiheimilinu veitir forstöðu Sigurlaug Eggertsdóttir, húsmæðra- kennari, sem og liðin sumur. Öll starfsemi verður á svipaðan hátt og áður. Gistiheimilið, sem tekur til starfa sunnudaginn 17. júni, verður opið fram i septem- ber og býður ferðafólk velkomiö til lengri eða skemmri dvalar. Auk venjulegs gistirýmis (l,2ja,3ja,4ra m/herbergja) eru bornar fram margvislegar veitingar fyrir þá er þess óska s.s.: morgunverður, kaffi og kök- ur, smurt brauð og kvöldverður. Ferðafólki með sinn eiginn útbún- að er gefinn kostur á að nýta hann. Þá getur hópferðafólk fengið máltiðir, ef pantað er með fyrirvara, svo og gistiaðstöðu. Ulla bara ÞEGAR DÝRIN™knar'; HÖFÐU MÁL EFFEL Nú getum við hamazt, mamma og pabbi eru undir borð- um

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.