Þjóðviljinn - 16.06.1973, Side 3
Laugardagur 16. júni 1973. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Islandia er sett upp á hreyfanlegar uppistöbur og er fólki heimilt aft færa þær til mcft sér um gólfift
og bera þannig saman einstaka þætti scm sýndir eru. Myndin er frá sýningunni í Stokkhóimi.
Islandia- þannig er
r
Island kynnt
nágrannaþjóðunum
i dag hefst í Norræna
húsinu sýning sem tveir
sænskir menn hafa búið
upp sem nokkurs konar
heimildarsýningu um ís-
land. Sýningin er að
miklu leyti byggð upp á
fallegum Ijósmyndum
og hefur verið sýnd á
Norðurlöndunum öllum.
Hún hefur vakið mikla
athygli og er nú komin
hingað til lands og mun
standa í kjallara N.H. í
sumar.
Tilgangurinn með
flutningi sýningarinnar
til landsins er, að sögn
Maj Britt, forstöðu-
manns Norræna hússins,
tvíþættur. Annars vegar
að sýna l'slendingum
hvernig landið kemur
fyrir augu ferðamanna,
hvað þeim finnst at-
hyglisverðast o.s.frv. og
hins vegar að gefa er-
lendum ferðamönnum
hér á landi kost á að sjá
þetta.
Það eru þeir dr. Olov
Isaksson, safnstjóri Stat-
ens historiska museum í
Stokkhólmi, og Ijós-
myndari þess, Sören
Hallgren, sem hafa unn-
ið þessa sýningu og ferð-
azt með hana um
Norðurlöndín. Þeir
gerðu einnig mjög stóra
og ýtarlega bók um Is-
land sem heitir Is og
eldur og er gagnort og
gott heimildarrit um l's-
land, skrifað á sænska
tungu.
Við gerð bókarinnar og
fleiri rita sem þeir félag-
ar hafa unnið í tilefni
sýningarinnar, svo og
við gerð sýningarinnar
sjálfrar, nutu þeir
dyggrar aðstoðar
margra íslendinga, sér-
staklega þó þeirra Sig-
urðar Þórarinssonar,
prófessors, og Harðar
Ágústssonar, skóla-
stjóra.
Islandia heitir sýning-
in og er kostuð af Nord-
isk Kulturfond, Letter-
stedtska stiftelsen og
Statens historiska muse-
um.
Markmiðið með
Islandia var upphaflega
að veita sænskum
almenningi greinargott
yfiriit um ísland og ís-
lenzka menningu nú á
dögum og jafnframt hið
sögulega baksvið, sem
jafnan verður að hafa í
huga við mat á nútíma-
aðstæðum. Sýningin
var þannig gerð að
mestu af Ijósmyndum
víðs vegar að af landinu,
einnig eftirmyndum
gamalla teikninga, Ijós-
mynda og korta. Textar
voru einnig við það mið-
aðir, að þeir segðu í ör-
stuttu máli aðalatriðin
úrsöguog þjóðlífi lands-
ins. Til viðbótarvoru svo
á sýningunni ýmsir
gamlir munir úr Þjóð-
minjasafni fslands og
Norræna safninu í
Stokkhólmi.
Erlendir menn ættu að
fá á þessari sýningu
greinargott yfirlit um ís-
lenzkt þjóðlíf, og fslend-
ingar geta einnig af
henni fræðst um það,
sem þeim útlenzku
finnst eftirtektarverðast
á Islandi.
Þá eru á sýningunni
gullfallegar myndir frá
Vesfmannaeyjum, og er
sýningin í heild mjög vel
gerð hvað Ijósmyndir og
annað snertir.
i ráði er að í haust
flytjist Islandia til Kan-
ada, en ekki hefur end-
anlega verið tekin
ákvörðun um það.
Auk Ijósmyndanna og
muna frá Þjóðminja-
safninu eru hlutir frá
eftirtöldum fyrirtækj-
um:
1. Álafoss h.f. (Kápur úr
ísl. ull)
2. Hekla (Kápur úr ísl.
lambskinni
3. Borgarprjón h.f.
(Peysur og kápur úr ísl.
ull)
4. Glit h.f. (Keramik
vörur)
5. Kirkjumunir (Batik-
vörur)
6. ísl. heimilisiðnaður
(Kjólar úr ofnu efni
o.fl.)
7. Útf lutningssamtök
gullsmiða (Skartgripir)
Þessi fyrirtæki hafa
flutt vörur út í stórum
stil og flest tekið þátt í
fleiri sýningum fyrir er-
lenda aðila.
Helztu markaðssvæði
fyrir íslenzkar iðnaðar-
vörur 1972 voru:
EBE 61,5%
EFTA 12,9%
N-AMERIKA 9,7%
A-EVRÓPA 14,1%
ÖNNURLOND 1,8%
Islandia verður opin
frá 16. júní til 15. ágúst. I
dag er hún opin almenn-
ingi frá kl. 17.00,en ann-
ars verður hún opin alla
daga frá kl. 14-00—19 00.
GSP
Mánudagsmyndin eftir Bergmann
„ÁSTRÍÐA”
mín eða þín?
Næstu mánudaga mun Há-
skólabió sýna mynd eftir helzta
kvikmyndasnilling Noröurlanda
— Ingmar Bergmann.
Það er myndin „Passion” eða
„Astrifta”. sem sýnd verður, og
hún á það sameiginlegt með Per-
sona, Cifatima og Smáninni, að
hún gerist á afskekktri eyju, og
telst jafnframt eitt brotið enn úr
sjálfsævisögu kvikmyndahöfund-
arins.
t lok „Astriðu” er komizt svo að
orði um manninn, sem leikur
annað aðalhlutverkið, að „hann
heiti i þetta sinn Andrcas Winkel-
mann”.Er það talið tákn þess, að
maður þessi, sem leikLnn er af
Max von Sydow, hafi heitið öðrum
nöfnum við önnur tækifæri og
nuni einnig skipta um nafn siöar.
En hann gæti lika verið einn af
okkur — einn af þeim hópi, sem
við hittum og umgöngumst dag-
legá.
„Ástriða” fer mjög hægt af
stað, eins og margar myndir
Bergmanns gera raunar, þvi að
hann vill heldur siga á, jafnt og
þétt. Myndin f jallar um tvær kon-
ur og tvo karla, sem eru saman á
þeirri afskekktu eyju, sem er svo
oft yrkisefni höfundar. Maður fær
að sjá ýmsar sviösmyndir á eyj-
unni — tré, sem vindurinn skekur
með litlum hvildum, ströndina og
sjóinn úti fyrir. Þar er eins og ein-
hver töfra- eða galdrablær yfir
öllu, en Bergmann gefur frásögn-
inni málið sjálfur, og hann ræðir
hvernig leikararnir haga per -
sónumyndun sinni.
Andreas Winkelmann hefur
komið til eyjarinnar til að reyna
að slita samband sitt við fortið-
ina, þvi að hann hefur gerzt brot-
legur við lögin og orðið að taka út
hegningu fyrir. A eyjunni ætlar
hann að finna einveru, sem hann
hefur trú á, að muni verða honum
lækning, en þegar til kemur er
einveran ekki eins heppilega fyrir
hann og hann hefur haldið — hann
þolir hana ekki og hefur þörf fyrir
aðstoð annarra til þess ,,að verða
frjáls”. Mótleikari hans er Liv
Ullman, sem á sér einnig sárs-
aukafulia fortið i myndinni, sem
sýnir hvernig þau leysa þau
vandamál, sem að steðja.
Hér verður ekki farið lengra út i
að ræða efni þessarar myndar
Bergmanns, en hún verður sýnd
næstu mánudaga, eins og þegar
er sagt.
Ilinn mikli skapgerftaricikari Max von Sydow sést hér i gamalli Berg-
manns-mynd.
Notið samböndin
á Norðurlöndum
til að dreifa upplýsingum um
landhelgismálið — Kynningarrit Hannesar
komið i þýðingu Oslóar-stúdenta
Ríkisstjórnin hefur gefið
út kynningarrit um land-
helgismálið á norsku til
dreifingar á Norðurlönd-
um. Nefnist það ,,Grunn-
ene for utvidelsen af den is-
landske fiskerigrensen", og
er að meginefni þýðing á
upplýsingaritinu ,,lce-
land's 50 miles and the
reasons why" ásamt við-
bótum og breytingum með
tilliti til sameiginlegra
hagsmuna Norðurlanda í
málinu.
Ritið er litprentaö i 20.000 ein-
tökum, 16 siður með 12 litprentuð-
um myndritum auk ljósmynda.
Höfundur ritsins er Hannes
Jónsson, blaðafulltrúi rikisstjórn-
arinnar, en islenzkir stúdentar i
Osló hafa annazt þýðingu þess yf-
ir á norsku.
Teikningar gerði Tómas Tóm-
asson. Ritið er sett i prentsmiðju
Guðmundar Jóhannssonar og
prentað i Kassagerð Reykjavik-
ur.
tslenzk firmu, félög, samtök og
einstaklingar, sem eiga aöild aö
norrænu samstarfi, eða hafa
sambönd við áhrifamikla aðila á
Norðurlöndum, geta fengiö eintök
af ritinu ókeypis hjá embætti
blaðafulltrúa rikisstjórnarinnar
til útsendingar.
(Fréttatilkynning).
Sænskur kór
í heimsókn
Sænskur kór — Forsbacka
Kammarkör — kom hingaft tii
lands i fyrradag og mun dvelja
hér á landi nokkra daga.
Hann mun syngja vift guðsþjón-
ustuna i Dómkirkjunni kl. 11 f.h. á
morgun. Þar aft auk heldur hann
tónleika i kvöld kl. 21.00, og i
Laugarneskirkju á morgun kl.
17.00. Auk þess mun hann syngja i
Hverageröiskirkju mánudaginn
18. júni kl. 21.00.
’ Stjórnandi er: Börje Forsell.
Vift orgelift: Knut Petersen,
organisti vift Vaibo-kirkju.
Aftgangur er ókeypis og öllum
heimill.
(Fréttatilkynning frá
Biskupsstofu.)