Þjóðviljinn - 16.06.1973, Blaðsíða 11
Laugardagur 16. júni 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Brundage
Ástar-
ævintýri
Brundage
á OL
endar meö
brúðkaupi
Avery Brundage, fyrrver-
andi forseti Alþjóða olympiu-
nefndarinnar, sem orðinn er
85 ára gamall, ætlar að fara að
kvænast á næstunni þýzku
prinsessunni Marianna von
Heuss, sem er 37 ára. Móðir
hennar var viðstödd þegar
Brundage skýrði opinberlega
frá trúlofun þeirra.
Brundage kynntist Mari-
önnu i sambandi við Olympiu-
leikana i Miinchen, þar sem
hún var túlkur hans.
ísland í
Evrópumót
unglinga
Stjórn KSI hefur tilkynnt
þátttöku i Evrópumóti ungl-
inga — INTERNATIONAL
YOUTH TOURNAMENT OF
UEFA 1974 — og fer aðal-
keppni mótsins fram i Sviþjóð
23,— 31. mai 1974.
Hinn 12. júli n.k. verður
dregið um leiki i byrjunar-
keppni mótsins og fer sú at-
höfn fram á Hotel Atlantis,
Döltschiweg. Ziirich, og verð-
ur formaður KSI, Albert Guð-
mundsson þar viðstaddur, en
hann á sæti i framkvæmda-
nefnd Evrópusambandsins
(UEFA).
Löggildir til þátttöku i þessu
móti eru leikmenn, sem munu
hafa náð 15 ára aldri, 1. ágúst,
1973 eða áriö fyrir aðalkeppn-
ina, og þeir leikmenn einnig,
sem verða ekki 18 ára fyrir
nefndan mánaðardag, 1973.
1 aöalkeppninni eru þeir
leikmenn löggildir, sem voru
15 ára eða eldri 1. ágúst, 1973,
en höfðu ekki náð 18 ára aldri
fyrir þennan sama mánaðar-
dag.
Unglinganefnd K.S.l. mun
sjá um þjálfun og val liðsins.
Unglinga-
landsleikur
við Færeyjar
Fyrirhugað er að ís-
lenzka unglingalandslið-
ið haldi til Færeyja og
leiki þar við unglinga-
landslið heimamanna
þann 18. júlí n.k.
Þjóðhátíðarmót
hefst í dag kl.
Englending-
ar í öldudal
Englendingar virðast í
miklum öldudal á knatt-
spyrnusviðinu um þessar
mundir. Þeir töpuðu um
daginn fyrir Pólverjum
með tveggja marka mun.
Alan Ball braut af sér og
var settur í ævilangt lands-
leikjakeppnisbann. og nú í
fyrrakvöld töpuðu Eng-
lendingar landsleik við
ítali með tveimur mörkum
gegn engu. Leikurinn fór
fram í Torino á ítalíu.
Þetta er niundi landsleik-
ur þjóðanna. Enskir hafa
sigrað fjórum sinnum, og
fjórum sinnum hafa ítalir
náð jafntefli.
Leikur þessi var ekki lið-
ur í neinu föstu móti.
Bobby AAoore lék þarna
sinnóO. landsleiksem fyrir-
liði.
Erlendur Valdimarsson er iðinn við islandsmctin.
Haukar unnu
Haukar komu skemmtilega á
óvart í fyrrakvöld og sigruðu þá
Vikinga með þremur mörkum
gegn tveimur.
Vikingar skoruðu strax á fyrstu
minútunum, en Haukar komust
siðan i 2:1. Þeir fengu vitaspyrnu
og skoruðu úr henni. Leikurinn
fór fram á Hvaleyrarholtsvellin-
um.
Þetta er fyrsti ósigur Vikinga i
deildinni i ár.
íslandsmet
í lóðkasti
Erlendur Valdimarsson stórbætti fyrra tslandsmet sitt i lóðaksti á siö-
asta fimmtudagsmóti F.Í.R. Hann átti gamla metið sem var 18,58
metrar, en kastaði nú 20,64 mctra. Þá setti óskar Jakobsson nýtt
drcngja-og unglingamet i sömu grein er hann kastaði 13,45 metra.
í dag klukkan 14,00 hefst
á Laugardalsvellinum hið
árlega þjóðhátíðarmót í
frjálsum iþróttum. AAótið
heldur siðan áfram á morg-
un og hefst þá klukkan
16,00.
Að venju munu allir beztu
frjálsíþróttamenn landsins
taka þátt í mótinu, og eru
keppendur alls um 100.
AAótið má teljast úrtöku-
mót fyrir landslið karla
sem taka mun þátt i
Evrópubikarkeppninni í
byrjun júlí. Er það í þriðja
sinn sem þeir taka þátt í
þeirri keppni.
Konurnar fara einnig á
þetta mót sem er í Brússel
hjá körlunum en í Lyngby í fyrsta skipti sem íslenzkt
Kaupmanahöfn hjá kven- kvennalandslið tekur þátt í
peningnum. Þetta verður í Evrópubikarkeppninni.
Unglingakeppni lokiö
Unglingakeppni Flugfélags ls-
lands var háð á golfvellinum i
Leiru, miövikudaginn 6. júni.
Keppt var i 5 manna sveitum,
sem skipaöar voru piltum, 17 ára
og yngri.
Arangur var reiknaður þannig,
að lögð voru saman högg þriggja
beztu keppenda i hverri sveit, að
lokinni keppni um hverjar 9 hol-
ur, en alls voru leiknar þrjár um-
ferðir, eða 27 holur.
Endaþótt veður væri mjög ó-
hagstætt til keppni, hvassviðri og
rigning, þá varð keppnin bæði
jöfn og spennandi og náðu sumir
einstaklingar ágætum árangri.
Úrslitin, eftir 27 holur, réðust
ekki fyrr en siðasta sveitin kom
inn, og mun óhætt að segja að
sjaldan hafi úrslita i golfkeppni
verið beðið með meiri eftirvænt-
ingu af hinum keppendunum.
Lokatölurnar urðu þannig:
Sveit Golfklúbbs Suðurnesja
sigraði á 359 höggum, A-sveit
G.R. fylgdi fast á eftir með 361
högg og sveit G.K. á hæla Reyk-
vikingum með 363 högg. Skaga-
menn léku á 383 höggum, en síö-
ust var B-sveit G.R. á 410 högg-
um.
Sumir piltanna sem tóku þátt i
þessari keppni, léku mjög vel og
hefði hver fullorðinn kylfingur
mátt vera ánægður með slikan
árangur. Þeir einstaklingar sem
beztum árangri náðu voru:
Björn V. Skúlason G.S. 39-37-37
eða 113 högg.
Siguröur Thorarensen G.K. 37-40-
40 eða 117 högg.
Geir Svánsson G.R. 39-40-41 eöa
120 högg.
Flugfélag tslands gefur öll
Framhald á bls. 15.
«olf-
andsliöiö
endanlega
valiö
6 íslendingar
halda utan
il keppni
Landslið lslendinga i golfi
sem heldur utan nú á næstunni
hefur nú verið endánlega val-
ið. Það er skipað 6 mönnum, 5
var búiö að velja fyrir þó
nokkru, en um 6. sætið var háð
hörð keppni milli nokkurra
manna.
.andsliöiö er þannig skipaö:
Þorbjörn Kjærbo GS
Björgvin Þorsteinsson GA
Einar Guðnason GR
Óttar Yngvason GR
oftur Ólafsson NK
Jóhann Ó. Guömundsson GR
Þessir menn halda utan um
mánaðamótin og taka þátt
Evrópumeistaramótinu. Þetta
er i fyrsta sinn sem islenzkir
kylfingar taka þátt i þvi móti.
Enginn fararstjóri fer með
landsliðinu, en Þorbjörn
Kjærbo verður fyrirliði liðsins
og lendir fararstjórnin þá
sennilega aö nokkru á honum.
Farið verður út þann 23. þ.m.
en keppnin sjálf hefst svo 28.
júni og stendur til 1. júli.
Keppendur hafa sjálfir lagt
út allan kostnað fyrir ferðinni
og staðið i fjársöfnun hennar
vegna.
Hörð barátta
Þeir fimm, sem börðust um
lausa sætið voru þeir Óskar
Sæmundsson GR, Jóhann
Benediktsson GS, Gunnlaugur
Ragnarsson GR, Július R.
Júliusson GK og Jóhann Ó.
Guðmundsson GR. Háðu þeir
72ja holu keppni, þar af léku
jeir 36 holur i Pierre Roberts-
keppninni, sem fram fór á
Nesvellinum um siðustu helgi.
Eftir það léku þeir 18 holur á
Grafarholtsvelli og siöan aðr-
ar 18 holur á velli GS i Leiru.
Á siðustu 18 holunum sem
leiknar voru á velli GS á miö-
vikudagskvöldið, var háö hörð
barátta milli þeirra Jóhanns
Ó, Gunnlaugs og Jóhanns Ben.
Þeir Óskar og Július höfðu þá
dregizt svo aftur úr, að þeir
hættu keppni.
Úrslitum i keppni þremenn-
inganna lauk þannig, að þeir
Jóhann Ó. og Gunnlaugur urðu
jafnir með samtals 318 högg á
öllum völlunum. Golfsam-
bandið þurfti þvi að velja á
milli þeirra tveggja, og varð
Jóhann fyrir valinu vegna
betri árangurs undanfarið.
Þeir Gunnlaugur og Jóhann
Benediktsson eru varaménn,
en fara þó ekki út nema nauð-
syn krefji.