Þjóðviljinn - 16.06.1973, Side 16
DIÚOVIUINN
Laugardagur 16. júnl 1973.
Almenna/ up'plýfeingar um
læknaþjónustu borgarinnar'
erírgefnar i simsvara Lækna-
félags Reykjavikur, simi
18888.
Nætur- kvöld- og helgarvarzla
lyfjabúðanna i Reykjavik vikuna
15.—21. júni verður i Reykja-
vikurapóteki og Borgarapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspitai-
ans er opin allan sólarhring-
Inn.
Kvöld-, nætur og helgidaga-
vakt á heilsuverjyjarstöðinni.
Simi 21230.
Lúðrasveit úr Pragkastala
t samhandi við tékknesku sýninguna I Laugardalshöll er komin til landsins iúðrasveit lifvarðar Tékkó-
slóvakiuforscta úr Pragkastala. t sveitinni eru 62 blásarar og berjendur, og hefur hún leikið viða um
lönd við góðan orðstír, en Tékkar eru ein fremsta tónlistarþjóð álfunnar eins og kunnugt má vera.
Lúðrasveitin leikur við opnun tékknesku sýningarinnar i dag og fyrir framan Bernhöftstorfu siðdegis á
morgun. A mánudagskvöid heldur hún opinbcra hijómleika i liáskóiabiói, kl. háif niu, og rennur ágóði
af þeim til styrktar Vestmannaeyingum. Myndin sýnir sveitina I heimahögum : kastaiinu flradcany er i
baksýn.
Hvíta húsið mútaði
Hunt til að þegja
WASHINGTON 15/6 —
Jeb Nagruder varaformaö-
ur endurkjörsnefndar for-
setans, samþykkti i gær að
vera aðalvitni ákæruvalds-
ins, þegar málið kemur
fyrir rétt. Hann sagðist
einnig hafa gefið Hvíta
húsinu skýrslur af innbrot-
inu og njósnunum frá upp-
hafi. Hafi náinn samstarfs-
maður Bobs Haldemans
starfsmannastjóra Hvíta
hússins tekið við þeim, og
gerði því Magruder ráð fyr-
ir þvi að Haldeman hefði
fengiö fréttirnar jafnóðum.
Haldeman sem er náinn vinur
Nixons neitaði þó i dag allri vitn-
eskju um innbrotið og njósnirnar.
Hann sagði að þegar allar hliðar
málsins hefðu verið rannsakaðar
kæmi það i ljós að hann væri al-
saklaus, og það sama væri að
segja um vininn, Nixon.
Nixon kom fram opinberlega i
dag, i annað skipti á þrem dögum,
er hann lagði hornstein að bygg-
ingu til minningar um þingmann i
Illinois. Við það tækifæri hélt
hann ræðu, óg þótt hann nefndi
ekki Watergate-málið á nafn, var
hann jafn öruggur um sig og Bob
Haldeman, og sagöi að það væri
sorglegt ef margar hreinar sálir
ættu að þurfa að liða fyrir óheppi-
legar gerðir fáeinna manna.
En Washington Post, sem held-
ur áfram að koma upp um ný atr-
iði Watergate-málsins, sagði i
dag að rannsóknarnefnd þingsins
hefði komizt að þvi að Howard
Hunt einn af aðalmönnunum i
innbrotinu, hefði daginn eftir að
hann var tekinn til fanga, neytt
Hvita húsið til þess að borga háa
upphæð fyrir þögn hans, varð-
andi samsærið.
BREZJNÉF
OG NIXON
ÞINGA
MOSKVU 15/6 — Á
morgun kl. 07.00 að isl.
tima leggur kommún-
istaforinginn Leonid Ilj-
itsj Brezjnéf upp i ferð
sína til Washington í
Bandarikjunum. Hann
fer einum degi fyrr en á-
ætlað var, og ekki er
gefið upp nákvæmlega
um ferðir flugvélarinn-
ar. Um helgina dvelst
hann uppi i sveit ca 80
km utan við Washing-
ton; annars ferðast hann
ekki um i Bandarikjun-
um i þetta skipti.
Peir ætia að semja um afvopnun,
vinirnir.
I tilefni fararinnar hafði Brézj-
néf fund með 11 bandariskum
blaðamönnum, og er það I fyrsta
sinn sem hann heldur slíkan fund
með erlendum blaðamönnum. A
fundinum fullvissaði hann blaða-
mennina um að hann ætlaði ekki
að notfæra sér vandræðaástandið
er rikti i Bandarikjunum, vegna
Watergate-málsins.
Margt hefur gerzt á þvi ári sem
liðið er siðan Nixon heimsótti
Brézjnéf, en núna er ráðgert að
þeir ræði um möguleikana á af-
vopnun og takmörkun aukinnar
hergagnaframleiðslu, auk þess
sem þeir munu ræða möguleik-
ana á aukinni samvinnu á tækni-
og efnahagssviðinu.
Brézjnéf hafði á orði á blaða-
mannafundinum að fundir þeirra
Nixons, og það sem af þeim
leiddi, yrði skráð i mannkynssög-
una. Enda má a.m.k. segja að
miklar breytingar hafi að undan-
förnu átt sér stað i viðskiptum So-
vétrikjanna annars vegar og allra
Vesturveldanna hins vegar.
Brézjnéf er nýkominn úr heim-
sókn til Vestur-Þýzkalands, og
Ráðstjórnarrikin hafa staðið i
samningum við Vesturveldin
varðandi tækni og efnahagsmál.
Grikkland:
Hlýtur nýja stjórnar-
formið viðurkenningu?
Los Angeies 15/6 — Aöstoðar-
utanrikisráðherra Bandarikj-
anna sagði I gær, að Bandarikin
ætluðu ekki að viðurkenna hið
nýja grizka lýðveldi, fyrr en a. m.
k. að afstöðnum kosningum sem
fram eiga aðfara i næsta mánuði.
I>á á að kjósa um nýja stjórnar-
skrá til handa Grikkjum.
I bandariska þinginu eru uppi
háværar raddir um að endur-
skoða beri afstöðuna til Grikk-
lands, og urðu þær raddir há-
værari eftir að Georg Pápa-
dopoulos tilkynnti um væntanlega
stjórnarskrárbreytingu.
Utanrikisráðuneytið fjallar nú
um málið, og þykir koma til
greina, að viðurkenna Grikkland
að einhverju en ekki öllu leyti.
Bretland viðurkenndi Grikkland
fyrr i vikunni.
Sumarferð Alþýðubandalagsins á Jónsmessu
SKRÁIÐ YKKUR
TIL ÞÁTTTÖKU!
Nú er vika þangað
til sumarferð Alþýðu-
bandalagsins verður
1 þessu húsi eru skrifstofur Al-
þýðubandalagsins, gengið inn
úr húsasundinu og upp á aðra
hæð.
farin — hún er á
sunnudaginn kemur,
Jónsmessu, 24. júni.
Undirbúningur er i
fullum gangi, og á
morgun birtum við á-
grip af leiðarlýsingu
fararstjórans, Björns
Th. Björnssonar list-
fræðings.
Skrifstofa Alþýðu-
bandalagsins er opin i
dag eins og alla virka
daga til kl. 7 að kvöldi.
Dragið ekki úr hömlu
að panta miða og láta
skrá ykkur til þátt-
töku. Það borgar sig
fyrir þátttakendur og
það léttir undirbún-
inginn hjá starfs-
mönnum skrifstof-
unnar, þeim Pétri
Sumarliðasyni kenn-
ara og Sigurði
Magnússyni rafvéla-
virkja.
Skrifstofa Alþýðu-
bandalagsins er að
Grettisgötu 3. Sim-
arnir eru 18081 og
19835.
■ jm ' '>'V ^ ; '
Sigurður Magnússon við störf ú skrifstofu Alþýðubandalagsins.