Þjóðviljinn - 30.06.1973, Blaðsíða 1
DJOÐVIUim
Kro
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐVERZLA ÍKRON
Laugardagur 30. júní 1973. — 38. árg. —147. tbl.
SENDIBÍLASTÖÐIN Hf
BÍLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA
Ekki samið við
Y estur-Þ j óðverj a
í gær lauk í Reykjavík
viöræöum við Vestur-Þjóð-
verja um landhelgisdeil-
una. Samningar tókust ekki
um bráðabirgðasamkomu-
lag, en gert er ráð fyrir að
tala saman aftur eftir um
það bil 2 mánuði.
I fréttatilkynningu is-
lenzka utanrikisráðuneytis-
ins um viðræðurnar segir:
„Viðræðunefndir tslands og
Sambandslýðveldisins Þýzka-
lands héldu tvo fundi i dag og
ræddu um hagkvæmt bráða-
birgðasamkomulag til lausnar
þeim vandamálum, sem leiða af
útfærslu fiskveiðilögsögunar við
tsland. Skipzt var á skoðunum af
hreinskilni um öll þau atriði, sem
aðilar töldu máli skipta, og álitu
þeir að fundirnir hefðu verið
gagnlegir.
Málin þokuðust nokkuð áfram i
ýmsum atriöum. Nánari athugun
mun fara fram af beggja hálfu i
ljósi þeirra viðræöna, sem nú
hafa fariö fram.
Framhald viðræðnanna er ráð-
gert seinni hluta ágústmánaðar
og verður ákvörðun siðar tekin
um stað og tima”.
Öll húsin
byggð
í einu
Vestur I Tálknafirði er nú
unnið aö byggingu átta húsa
við sömu götu i einum áfanga
og á þetta fyrirkomulag að
spara væntanlegum eigendum
25-30% af verði húsanna.
Myndin var tekin nú í vik-
unni' af framkvæmdum við
Túngötu i Tálknafiröi. (Ljóm.
vh)
Höfðingleg gjöf til Kleppsspítala:
VISTTIEIMILI FYRIR
FYRRLM SJÚKLINGA
í gær veitti Magnús
Kjartansson heilbrigðis-
málaráðherra móttöku
fyrir hönd ríkisins og
Kleppsspítala höfðinglegri
gjöf Guðríðar Jónsdóttur
hjúkrunarkonu, fyrrv. for-
stöðukonu spítalans, húsi
hennar nr. 55við Reynimel
með öllum innanstokks-
munum. Það hefur Guð-
ríður síðustu 6 árin rekið
vistheimili fyrir fyrr-
verandi sjúklinga á
Kleppsspítala og er gert ráð
fyrir, að sjúkrahúsið haldi
þeim rekstri áfram.
Móttaka hússins fór fram i þvi
síðdegis i gær að viðstaddri
stjórnarnefnd rikisspitalanna,
próf. Tómasi Helgasyni yfirlækni
Kleppsspitala og fleiri gestum.
Minntist formaður stjórnar-
nefndarinnar, Sigurður Sigurðs-
son fv. landlæknir við það tæki-
færi yfir 30 ára fórnfúss starfs
Guðriðar Jónsdóttur við Klepps-
spitala á þeim tima er starfs-
aðstæður voru mun erfiðari og
þörfin fyrir sjúkrarúm þar
kannski enn brýnni en nú, þegar
möguleikar eru á lyfjameðferð
geðsjúklinga. Þakkaði hann Guð-
riöi sérstaklega hyggindi hennar,
myndarskap og samvinnuþýö-
leika i öllum störfum og ekki sizt
fyrir stofnun vistheimilisins.
Guðriður Jónsdóttir hafði þegar
ánafnað Kleppsspitala allar eigur
sinar að sér látinni með arf-
Framhald á bls. 15.
V axandi
stuðningur
í Bretlandi
við 50
mílna
mörkin
Fulltrúi „íslands-
vma
” kemur til
Reykjavikur
á morgun
A morgun, sunnudag kemur
David Jarvis, formaður samtak-
anna „Islandsvinir” i Bretlandi.
til Reykjavikur til vikudvalar á
Islandi. Hér mun hann hitta full-
trúa sjávarútvegsins og blaða-
menn að máli.
Siðastliðna viku hafa tslands-
vinir haldið fjölmarga fundi viða
á Englandi, þar sem Jónas Árna-
son gestursamtakanna kom fram
ásamt formanni þeirra og ritara
Derek Smith. Einnig hefur Jónas
Árnason komið fram i útvarpi og
sjónvarpi að tilhlutan samtak-
anna.
Eftir að borgarstjórnin i
Grimsby neitaði samtökunum um
afnot af fundarsal i ráðhúsinu
bauð Humberside útvarpsstöðin
samtökunum að flytja mál sitt i 45
minútna útvarpsþætti, þar sem
auk Jónasar komu einnig fram
Jón Olgeirsson, vararæðismaður,
formaður samtakanna og fulltrú-
ar andstæðinganna, brezki þing-
maðurinn James Johnson og full-
trúi útgerðarmanna, Mike
Burton.
Þrátt fyrir neitun borgarstjórn-
arinnar i Grimsby hafa Islands-
vinir ekki fallið frá þeirri hug-
mynd að halda almenna fundi,
þvert á móti eru þeir að skipu-
leggja fundi ekki aðeins i Grims-
Framhald á bls. 15.
Reynimelur 55 — vistheimilið, sem
Kleppsspitala.
Guðríður hefur gefiö
Yiðræður í landi
lögbrot á sjó!
Yarðskipið Albert skaut að v-þýzkum veiðiþjófi
Það virðist vera fyrir-
fram skipulagt af „Nató-
vinum okkar" V-Þjóð-
verjum, að í hvert sinn sem
sezt er að samningaborði
við þess lenda menn, gera
togarar þeirra skurk í veið-
um innan landhelginnar.
Nú, þegar viðræður standa
yfir hér i Reykjavík við V -
Þjóðverja þurfti að skjóta
að einum v-þýzkum veiði-
þjófi til þess að hann færi út
fyrir mörkin, en síðast
þegar Islendingar ræddu
við V-Þjóðverja um land-
helgismál sigldi v-þýzki
flotinn i breiðfylkingu til
veiða inn á alfriðað svæði
þar sem íslendingum var
einnig bannað að veiða.
Á miðvikudag komu kvartanir
frá islenzkum skipum um að
vestur-þýzkur togari væri að
veiðum innan um islenzku fiski-
bátana, grunnt á Eldeyjarbanka.
Flugvél frá Landhelgisgæzlunni
flaug yfir svæðið og fann togar-
ann.
Fór þá varðskipið Albert þegar
á vettvang, og kom að togaranum
aðfaranótt föstudagsins, sem
reyndist vera Tunfiseh BX-663.
Togarinn þrjóskaðist við að
yfirgefa svæðið þar til albert
skaut einu púðurskoti og siðan
einu kúluskoti fyrir framan
togarann, en við það sigldi veiði-
þjófurinn vestur-þýzki út fyrir
fiskveiðitakmörkin.
Skipherra á Albert er Sigurjón
Hannesson, -úþ