Þjóðviljinn - 15.09.1973, Qupperneq 9
Laugardagur 15. september 1973 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
lslandsmeistarar Vals 1973
Hvernig endar barátta Hansa
við sterka mulningsvé! Valsara?
Valur og
Gummersbach
mætast í
Höllinni á
þriðjudag
Þegar er orðið uppselt á leik
Vals gegn Gummersbach,
og er það einsdæmi að mið-
ar seljist upp svo snemma
fyrir leik.
Ekki er þó útilokað fyrir
þá, sem út undan urðu að
þessu sinni, að sjá Gumm-
ersbach leika, þvi auka-
leikur verður á miðvikudag
við landsliðið. Á baksíðu
blaðsins í dag má sjá,
hvernig landsliðið er skip-
að.
Þýskalandsmeistarar Gummersbach 1973
Þaö ætti að vera óþarfi aö taka
þaö fram, að hér er um geysi-
legan stórleik aö ræða. Lið
Gummersbach er gifurlega sterkt,
meö Hansa Schmidt i broddi fylk-
ingar. 1 Valsliðinu eru heldur ekki
neinar smástjörnur i islenskum
handknattleik, og þvi er öruggt að
leikurinn i hölljnni verður afar
spennandi og fjörugur.
Þetta er i fyrsta sinn að Valur
tekur þátt i þessari Evrópukeppni
i karlaflokki, og þvi verður ekki
neitað að liðið sem Valsmenn fá i
fyrstu umferðinni er svo sannar-
lega ekki af lakara taginu.
Hans Schmidt er frægastur leik-
manna Gummersbach, hann er
geysigóður handknattleiks-
maður, en afar skapstór og oft hið
mesta ruddamenni á leikvelli. ‘
Hætt er þó við að mulningsvél
Valsmanna, sú fræga vörn þeirra,
muni ekki láta Þjóðverjana leika
sér of mikið i lessum leik. Vals-
vörninerein af þeim betri i heim-
inum og mun vafalaust ekkert
gefa eftir.
Gummersbach er með marga
meistaratitla i safni sinu, s.s.
Þýskalandsmeistaratitilinn árin
1966, 1967, 1969 og 1973. Ebvrópu-
meistari hefur liðið orðið þrisvar
sinnum, 1967, 1970 og 1971.
Forleikur verður milli Vals og
Fram i meistaraflokki kvenna, en
aðalleikurinn hefst siðan klukkan
20.30. Leikinn dæma tveir sænskir
dómarar, sem báðir hafa dæmt
áöur hér á landi.
Leikmenn Vals eru þessir:
Jón B. Ólafsson,
Ólafur Benediktsson,
Ólafur Guðjónsson,
Gunnsteinn Skúlason,
Bergur Guðnason,
Ágúst ögmundsson,
Ólafur H. Jónsson,
Stefán Gunnarsson,
Jón H. Karlsson
Jón Ágústsson,
Jóhann Ingi Gunnarsson,
Þorbjörn Guðmundsson,
Torfi Asgeirsson,
Jón P. Jónsson,
Gisli Blöndal.
Leikmenn Gummersbach:
Klaus Kater 55 landsleikir
Ralf Hamann 1 landsleikur
Hansi Schmidt 76 landsleikir
Jochen Feldhoff 69 landsleikir
Jochen Brand 67 landsleikir
Heiner Brand
Brono Zay
Helmut Kosmehl 11 landsleikir
Klaus Schlagheck
Klaus Westebbe 25 landsleikir
Achim Deckarm
Werner Lettgen
Frank Jersch
Manfred Clodde
Ewald Baumhoer
Sundþing SSÍ í dag
1 dag hefst þing Sundsam-
bánds tslands og stendur það
fram á sunnudagskvöld.
t tilefni af fundinum hefur
itarleg ársskýrsla verið útbúin
og er i henni margur fróðleiks-
molinn.
Eins og hjá öðrum iþrótta-
samböndum eru fjármáiin
bágborin, ýmsar fjáröflunar-
leiðir voru reyndar hjá SSI en
árangur varð ekki sem skyldi.
Meðal fjáröflunarleiða var
firmakeppni SSt, sem fór nú
fram i annað sinn. Þátttaka
var minni en i fyrra skiptið.
Sigurvegari varð fyrirtækið
Eggert Kristjánsson og Co. en
fyrir það synti Sólbjört Gunn-
þórsdóttir.
Þá var enn ýtt af stað happ-
drætti i maimánuði. Var upp-
lag miða nú 4000 og verð
þeirra óbreytt frá i fyrra, 100
krónur. Vinningar voru þrir,
og komu þessi númer upp.
1. vinningur: miði nr. 3494
2. vinningur: miði nr. 2122.
3. vinningur: miði nr. 1045.
Undirtektir voru ekki nógu
góðar, enda i marga staði
fremur illa að þessu happ-
drætti staðið.
Einnig var leitað til fyrir-
tækja með auglýsingar i kepp-
endaskrá móta SSt og hafðist
þannig fyrir prentkostnaði og
verðlaunum. Það er góður ár-
angur og sérstaklega mikil-
vægur, þar eð áhorfendafjöldi
á sundmótum er i algjöru lág-
marki.
Um páskana kom hingað til
lands skoski landsliðsþjálfar-
inn J. Hogg og stóð fyrir fyrir-
lestrum og námskeiðum, en
hann er mikill kunnáttumaður
á sviði þjálfunar. Hann að-
stoðaði einnig við þjálfun
landsliðsins hér og sótti heim
ýmis félög og fylgdist með æf-
ingum þeirra.
Þrátt fyrir nærveru Skotans
var þátttaka islenskra sund-
manna i þessum æfingum þvi
miður I lágmarki.