Þjóðviljinn - 16.10.1973, Blaðsíða 1
DIOÐVIUINN
Þriðjudagur 16. október 1973. — 38. árg. — 237. tbl.
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA í KRON
APflTEK
OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 7.
í NEMA LAUGARDAGA TIL KL. 2.
SUNNUDAGA MILLI KL. 1 OG 3
SlMI 40102
Funda-
höld í
London
í gœr
Framhaldið i dag.
Rœðir Olafur
við Home i dag
einnig?
Frá Hirti Gunnarssyni i Lond-
on:
Þegar ólafur Jóhannesson,
forsætisráðherra, kom hingað
á sunnudagskvöld, var haft
eftir honum að hann myndi
gera sitt besta i viðræðunum
við Heath en ráðherrann vildi
ekkert segja um málið annars
og kvaðst vilja sjá til uns fund-
ir hefðu verið haldnir.
Fundur hófst svo kl. 10.30 i
morgun og ræddust þeir þá
tveir við forsætisráðherrarnir
i hálfa klukkustund, en siðan
hófust viðræður ráðherranna
og embættismanna þeirra. Af
tslands hálfu tóku þátt i við-
ræðunum Hans G. Andersen,
Hannes Jónsson og Niels P.
Sigurðsson. Fundinum lauk
um kl. eitt og siðan hófst
framhaldsfundur kl. 4. Þá
ræddust ráðherrarnir við, en
siðan hófst fundur með
embættismönnunum. t gær-
kvöld sátu tslendingarnir
kvöldverðarboð Heaths og þar
átti að halda viðræðunum á-
fram. Jafnvel var talið hugs-
anlegt að viðræðum verði
framhaldið i fyrramálið,
þriðjudag, og sagt var að for-
sætisráðherra myndi hitta
Home að máli á morgun.
Forsætisráðherrarnir hafa
ekkert viljað láta hafa eftir
sér um fundina, en i tilkynn-
ingu sem gefin var út var tekið
fram að viðræðurnar hefðu
verið „vingjarnlegar”.
AP-fréttastofan sagði i dag
að rætt hefði verið um tillögur
Heaths á fundunum i dag, en
Ólafur Jóhannesson, forsætis-
ráðherra, vildi ekkert við það
kannast. Hann kvaðst hins
vegar vera bjartsýnn á að i
viðræðunum mætti leggja
grundvöll að frekari viðræð-
um fulltrúa deiluaðila.
RÁÐSTEFNA ASÍ:
Lágmarkslaun 35 bús
á mánuði
vísitölu-
greiðslum verði breytt
Skattafrádráttur
hœhhaður.
Eflt félagslegt
framtak í
húsbyggingamálum
Ráðstefnu Alþýöusambands ts-
lands um kjaramál lauk á laugar-
daginn. Þar voru samþykktar
meginkröfur verkalýðshreyfing-
arinnar fyrir þá kjarasamninga
sem senn hefjast. Þjóðviljinn
mun birta kröfurnar f heild í blaö-
inu á morgun, en hér verður aö
sinni aöeins tæpt á aðalatriðun-
um.
Sameiginlegar kröfur
t samþykkt ráöstefnunnar um
sameiginlegar kröfur er gerð
grein fyrir aðalkjarakröfunum i
níu liðum:
1. Lægstu laun verði 35.000 kr. á
mánuði eða um 40,90% hækkun.
Mánaðarlaun meö visitölu allt að
31.000 hækki samsvarandi.
Umsamin laun verði grunnlaun
og kaupgreiðsluvisitalan sett á
100.
Verðlagsuppbætur greiðist
hlutfallslega að fullu upp að 50
þús. kr., en þar fyrir ofan sama
krónutala og á 50 þús. kr.
2. Auk almennra hækkana verði
15% hækkun á alla fiskvinnslu-
taxta.
3. Verkafólk sem unnið hefur
hjá sama atvinnurekanda 4 vikur
fái föst vikulaun sem svari til 40
klst. i dagvinnu. Þegar verkafólk
hefur unnið sér þessi réttindi inn
skal það fá einnar viku uppsagn-
arfrest með sömu kauptryggingu.
Frh. á bls. 15
1 gær voru kröfur verkalýðsfélaganna afhentar fulltrúum Vinnuveitcndasambands Islands. Myndin hér
aö ofan var tekin viö þaö tækifæri. A kjararáöstefnu Alþýðusambandsins var kosin 30 manna samninga-
nefnd, en sú nefnd hefur kosið sér 7 manna framkvæmdanefnd, er gekk á fund vinnuveitenda.
Kr atast j órn
Þykir litlu gœfulegri en hinni fyrri
t
1
Noregi
OSLÓ 15/10 — Trygve Bratteli,
leiötogi Verkamannaflokksins
norska, lagði ráðherralista sinn
fyrir Ólaf konung I dag7og tekur
stjórn hans að forminu til við
völdum klukkan tólf á morgun,
eftir staðartima.
1 stjórninni eru eingöngu ráð-
herrar úr Verkamannaflokknum,
en sem kunnugt er vantar mikið á
að sá flokkur hafi meirihluta á
Stórþinginu, svo að hin nýja
Verðandi á 1. des. hátíð:
ISLAND UR NATO
- HERINN BURT
I gær rann út framboösfrestur
til kosninga f nefnd til að annast
hátfðarhöld stúdenta á 1. desem-
ber. Kosningar munu svo fara
833.4 milj.
Loftur Baldvinsson EA hefur nú
selt Norðursjávarsfld fyrir 54
miljónir króna og skarar langt
fram úr næstu skipum. I öðru sæti
er Guðmundur RE með sölu fyrir
39.4 miljónir og í þriðja sæti er
Súlan EA með sölu fyrir 38,5 milj.
Islensku síldveiðiskipin seldu i
siðustu viku 2705 lestir fyrir 79,9
miljónir og var meðalverðið kr.
29,55.
Samtals hafa skipin selt fyrir
833.4 miljónir króna og er meðal-
veröið 24,20.
fram á laugardag. 20. október.
Tvö framboð bárust að þessu
sinni: eitt frá Verðandi og annað
frá Vökupiltum. Framboð Verð-
andi er likt og undanfarin ár helg-
að baráttunni gegn heimsvalda-
stefnunni og slagorð 1. des. þvi:
island úr Nató — herinn burt. I
dreifiriti sem frambjóðendur létu
frá sér fara i gær er bent á að nú
sé mikilvægara en nokkru sinni
fyrr að fylkja liði undir ofan-
nefndum kjörorðum þvi eftir ára-
tuga baráttu er sigur i herstöðva-
málinu i sjónmáli.
Frambjóöendur Verðandi til 1.
des. nefndarinnar eru Arni Hjart-
arson, Ingimar Ingimarsson, Ey-
vindur Eiriksson, Þuriður Jó-
hannesdóttir, Vigfús Geirdal, Alf-
heiður Ingadóttir og Jón Guðni
Kristjánsson. Aðalræðumaður
Lúö-
Verðandi verður Vésteinn
viksson rithöfundur.
Hægri menn afrekuðu það i
þetta sinn að berja saman fram-
boð en róður þeirra inn i þessa
nefnd hefur gengiö erfiölega und-
anfarin ár. 1 fyrra tókst þeim ekki
aö koma saman framboði og árið
þar áður fékk listi þeirra ekki
nema rúm 20% atkvæða. Fram-
boð þeirra felur i sér að
Þorsteinn Thorarensen rithöf-
undur og Ardis Þórðardóttir
reifa umræðuefnið Maðurinn og
báknið.
Fyrir skömmu var talið vist að
umræðuefni Vökupilta yrði 200
milurnar en þeir munu hafa
heykst á þvi eftir fundinn sem
haldinn var nýverið á Hótel Sögu
um landhelgismálið og frægur er
orðinn. —ÞH
stjórn hans verður aö treysta á
utanflokksfylgi, ef hún ætlar að
sitja til frambúðar, og hefur
Sósialiska kosningabandalagið,
sem fékk sextán þingsæti i kosn-
inginum og varð helsti sigurveg-
ari þeirra, einkum veriö tilnefnt i
þvi sambandi.
Auk Brattelis sjálfs, sem nú
verður aftur forsætisráðherra
Noregs, eru helstu ráðherraemb-
ætti skipuð sem hér segir: Utan-
rikisráðherra er Knut Fryden-
lund, landbúnaðarráðherra Thor-
stein Treholt, viðskiptamálaráð-
herra Jens Evensen, dómsmála-
ráðherra Inger-Louise Valle,
kirkju- og menntamálaráöherra
Bjartmar Gjerde, sjávarútvegs-
málaráöherra Eivind Bolle, fjár-
málaráðherra Per Kleppe, varn-
armálaráðherrá Alv Jakob Fost-
ervoll, umhverfisverndarráð-
herra Tor Halvorsen og félags-
málaráðherra Sonja Ludvigsen.
Sigurvegari fer, —
hrakfallabálkur kemur
Það má heita kaldhæöni örlag-
anna að Verkamannaflokkurinn,
sem varö einn mesti hrakfalla-
bálkur-þingkosninganna á dögun
um, skuli nú taka við stjórn
landsins að nýju, og að forustu-
flokkur fráfarandi stjórnar,
Kristilegi þjóðarflokkurinn, skuli
hafa verið annar af tveimur
helstu sigurvegurum kosning-
anna, Ofan á það bætist að fyrri
stjórn Brattelis féll á stuðningi
sinum við Efnahagsbandalag
Evrópu, og hrakfarir flokks hans
i kosningunum voru fyrst og
fremst af sömu orsök. En Kristi-
legi þjóðarflokkurinn átti stjórn-
arforustu sina og kosningasigur á
hinn bóginn fyrst og fremst að
þakka andstöðu sinni við EBE.
Af ummælum norskra blaða i
dag aö dæma er hinni nýju stjórn
tekiö af ýkja mikilli hrifningu.
Talsmenn landsbyggðarinnar
telja hana hafa verið setta hjá við
úthlutun ráðherraembætta, eink-
um þó norðurhluta landsins. Eitt
blaðið komst svo að orði að Ei-
vind Bolle væri sá eini i stjórn-
inni, sem væri i einhverri lifandi
snertingu við atvinnuvegina.
Bolle er fimmtugur að aldri, bú -
settur i Lofoten, hefur verið fiski
maður að atvinnu frá sextán ára
aldri og þar að auki gegnt mörg-
um trúnaöarstörfum fyrir fiski-
mannasamtök landsins. Bolle er
Frh. á bls. 15
Sauðárkrókur:
VITNA-
LEIÐSLUR
STANDA
ENN YFIR
Sem kunnugt er fannst
Skarphéðinn Eiriksson látinn
fýrir utan hús á Sauðárkróki
sl. föstudagsmorgun og voru
áverkar á likinu.
Siðan hafa staðið yfir stans-
lausar vitnaleiðslur i málinu,
en engin niðurstaða fengist
enn. Beðið er eftir krufnings-
skýrslu lækna i Reykjavik, og
fyrr er engrar niðurstöðu að
vænta i þessu máli, að þvi er
fulltrúi bæjarfógeta á Sauðár-
króki sagði okkur i gær.
—S.dór